Skessuhorn - 22.04.2015, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
Akraneskaupstaður óskar íbúu�
Akranes� o� Vestlendingu�
öllu� gleðileg� sumar�
Borgarbyggð óskar íbúum
sveitarfélagsins og Vestlendingum
öllum gleðilegs sumars.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Laus eru til umsókna störf við
íþróttamiðstöðvar/sundlaugar Borgarbyggðar í sumar.
Okkur vantar bæði karl og konu í 75% störf á Kleppjárnsreykjum.
Karl og konu í 75-100% störf á Varmalandi og karl og
konu í 100% störf í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi.
Unnið er á vöktum. Umsækendur þurfa að vera orðnir
18 ára og standast hæfnispróf fyrir laugaverði, vera stundvísir
og hafa góða þjónustulund.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Ingunn í síma
898-1210/433-7140. Einnig má senda fyrirspurnir/umsóknir á
netfangið ingunn28@borgarbyggd.is
Sumarafleysingar
í íþróttamiðstöðvum Borgarbyggðar
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir 2 störf í
„Smiðjunni“ í Ólafsvík, sem er dagvinnustofa og
atvinnutengd úrræði fatlaðs fólks.
Um er að ræða 2 x 100% stöðugildi,
vinnutími virka daga kl. 8.00 – 16.00.
Launakjör skv. samningum SDS og sveitarfélaganna
Æskilegt er, en þó ekki skilyrði, að umsækjandi búi að
félagsliðamenntun og eða starfsreynslu er
nýtist í starfi með fólki með fötlun.
Skriflegar umsóknir er tilgreini menntun, fyrri störf, umsagnar-
aðila og sakavottorð viðkomandi berist til undirritaðrar sem
jafnframt veitir frekari upplýsingar um starfið:
Ingveldur Eyþórsdóttir, félagsráðgjafi,
ingveldur@fssf.is, s. 430-7800 og 852-8702,
Klettsbúð 4, 360 Hellissandi
Umsóknarfrestur er til 27. apríl 2015
Atvinna í boði!
Brekkubæjarskóli á Akranesi hef-
ur undanfarið tekið þátt í tónlist-
arverkefninu „Europe 12 points! A
Eurovision Song Contest!“ Það er
samstarfsverkefni átta þjóða í Evr-
ópu; Þýskalands, Rúmeníu, Spán-
ar, Írlands, Póllands, Grikklands,
Tyrklands og Íslands. Brekku-
bæjarskóli fékk styrk frá evrópsku
menntaáætluninni Erasmus+ upp á
tæpar 56.000 evrur eða rúmar átta
milljónir íslenskra króna. Verkefnið
er til þriggja ára og er fyrsta skóla-
árinu senn að ljúka. Ýmis verkefni
hafa legið fyrir í vetur. Til dæmis
tóku allir skólarnir upp jólalag. „Við
sendum inn lagið Jólakötturinn. Nú
síðast skiptumst við á þjóðlögum og
þjóðdönsum frá hverju landi sem
við tókum upp á myndband og næst
á dagskrá eru þjóðsöngvar þjóð-
anna,“ segir Heiðrún Hámundar-
dóttur tónmenntakennari í Brekku-
bæjarskóla sem hefur umsjón með
verkefninu á vegum skólans.
Í síðustu viku kom í tengslum
við verkefnið í heimsókn til Akra-
ness tuttugu manna hópur frá sjö
löndum. Farið var í skoðunarferð
um bæinn. Þar á meðal í Akranes-
vita þar sem nemendur Brekku-
bæjarskóla spiluðu og sungu fyr-
ir gestina. Þá fór hópurinn í heim-
sókn í Byggðasafnið í Görðum þar
sem Anna Leif Elídóttir tók á móti
hópnum og fræddi um söguna.
Gestirnir fóru í fjallgöngu, á hest-
bak og aðrir nutu sín í sundlaug-
inni. Einnig voru dansaðir þjóð-
dansar í Tónlistarskólanum á Akra-
nesi. Ferðinni lauk síðan með ferð
um Gullna hringinn og í Bláa lón-
ið. Einhverjir höfðu á orði að Akra-
nesvitinn og tónlistarflutningur-
inn þar hafi staðið upp úr í ferð-
inni. Nokkrir úr hópnum sögðust
hafa gleymt sér við að fylgjast með
litlum hvölum að leik við Breiðina.
Ekki síst Rúmeninn í hópnum en
hann var dolfallinn enda að sjá sjó
í fyrsta skipti á ævinni.
Snýst um fleira
en tónlist
Að sögn Heiðrúnar Hámundar-
dóttur mun næsta skólaár byrja
á popptónlistarverkefni þar sem
nemendur kynna uppáhalds tón-
listarfólkið sitt og gera topp tíu
lista. „Þá verður spennandi að sjá
hvort okkar nemendur eigi ein-
hver lög sameiginleg með nem-
endum frá öðrum löndum. Þó
svo að verkefnið sé tónlistarverk-
efni þá snýst það líka um sam-
skipti milli nemenda frá ólíkum
þjóðum. Nemendur skrifast á og
kynnast menningu þátttökuþjóð-
anna. Einnig eru fyrirhuguð nem-
endaskipti milli Brekkubæjarskóla
og Charlotte-Salomon Schule í
Berlín og svo munu nemendur úr
Brekkubæjarskóla heimsækja Es-
cola Ciutat d’Alba í Katalóníu.
Það er að mörgu að huga og svona
samstarf þarf að skipuleggja vel.
Því eru svona undirbúningsfund-
ir nauðsynlegir og eru tveir fund-
ir á hverju skólaári,“ segir Heið-
rún. Fyrsti fundurinn vegna verk-
efnisins var í Berlín síðasta haust.
Annar fundurinn var núna á Akra-
nesi. Á næsta skólaári verða fund-
ir í Grikklandi og Tyrklandi og á
þriðja árinu verða þeir á Spáni og
á Írlandi. „Fundirnir okkar á Akra-
nesi voru haldnir í Svöfusalnum
á bókasafninu og viljum við skila
þakklæti til starfsfólks bókasafns-
ins sem stjanaði við okkur á meðan
fundarhöldum stóð,“ segir Heið-
rún. þá
Tuttugu manna hópur í heimsókn
vegna evrópsks tónlistarverkefnis
Nokkrir erlendu gestanna spjalla við nemendur Brekku-
bæjarskóla. Ljósm. kp.
Hópurinn saman kominn á sal Brekkubæjarskóla síðastliðinn fimmtudag.
Fagnaðarfundir voru í hópnum þegar erlendu gestirnir
hittust en þeir voru frá sjö löndum.