Skessuhorn - 22.04.2015, Blaðsíða 21
21MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
Reykhólahreppur óskar íbúum
og Vestlendingum öllum
gleðilegs sumars
Snæfellsbær sendir íbúum Snæfellsbæjar og íbúum
Vesturlands ósk um gleðilegt sumar
-gefur fyrirheit um yndislegt íslenskt sumar
Stykkishólmur
Bæjarstjórn Grundararðar óskar íbúum Grundararðar
og öðrum Vestlendingum gleðilegs sumars
GRUNDARGÖTU 30, 350 GRUNDARFIRÐI
SÍMI: 430 8500, FAX: 430 8501
Grundarfjarðarbær
Bæjarstjórn Grundararðarbæjar hefur samþykkt á
fundi 14. apríl 2015 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi
samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagsbreytingin á við lóðina Ártún 1, þar sem
byggingarreitur er settur inn með nýtingarhlutafall
0,3. Lóðin stækkar um 5 m til austurs. Gerð nýrrar
jarðvegsmanar. Hámarkshæð mænis er 8 m frá götukóta
en hámarkshæð tanka má vera hærri. Sjá nánari
upplýsingar á tillögu að breytingu.
Deiliskipulagstillagan verður aðgengileg á vef
Grundararðar, www.grundarordur.is og á skrifstofu
skipulags- og byggingarfulltrúa, Borgarbraut 16 á
skrifstofutíma frá 10-14 frá 22. apríl 2015 til 4. júní 2015
og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru
hvattir til að kynna sér breytinguna og koma ábendingum
eða athugasemdum á framfæri skriega til skipulags- og
byggingarfulltrúa Grundararðar, Borgarbraut 16, 350
Grundarörður, í síðasta lagi 4. júní 2015.
Sigurbjartur Loftsson
Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Grundarrði.
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi
vestan Kvernár – Iðnaðar og athafnarsvæði.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Brekkubæjarskóli á Akranesi er
meðal tólf skóla í úrslitum í Skóla-
hreysti sem fara fram í kvöld, mið-
vikudaginn 22. apríl í Laugardals-
höll. Frítt er inn á keppnina í boði
Landsbankans sem er bakhjarl
Skólahreysti. RÚV sýnir beint
frá keppninni klukkan 20.00. Auk
Brekkubæjarskóla keppa keppa
eftirtaldir skólar til úrslita: Breið-
holtsskóli og Réttarholtsskóli frá
Reykjavík, Dalvíkurskóli, Fella-
skóli í Fellabæ, Grunnskólinn á
Ísafirði, Grunnskólinn í Hvera-
gerði, Heiðarskóli og Holtaskóli
úr Reykjanesbæ, Lindaskóli úr
Kópavogi, Síðuskóli á Akureyri og
Valhúsaskóli á Seltjarnarnesi.
Fyrir Brekkubæjarskóla keppa
þau Anton Elí Ingason og Írena
Rut Elmarsdóttir í hraðaþraut,
Birta Margrét Björgvinsdóttir tek-
ur armbeygjur og hreystigreip og
Svavar Örn Sigurðsson tekur upp-
hífingar og dýfur.
Það verður gríðarleg spenna
í Laugardalshöll á miðvikudag.
Frítt er inn í Laugardalshöll og
eru allir velkomnir. Landsbankinn
veitir nemendafélög þriggja efstu
skólanna vegleg peningaverðlaun.
Keppendur sigurliðsins fá einnig
vegleg verðlaun. Þá stendur bank-
inn einnig fyrir Instagram-mynda-
keppni og geta áhorfendur sent
inn myndir merktar #skolahreysti.
Bestu og frumlegustu myndirnar
verða verðlaunaðar. mm
Brekkubæjarskóli keppir í
úrslitum Skólahreysti
Nýverið gaf Magnús Þórarinn
Öfjörð Byggðasafni Borgarfjarðar
gamalt altari frá Hjörsey á Mýr-
um. Magnús fékk altarið frá móð-
ur sinni Sigríði Jónsdóttur. Alt-
arisdúkur sem Sigríður saumaði
1950 þegar hún var nemandi á
Varmalandi fylgdi gjöfinni. Altar-
ið er málað viðarmynstri í brún-
um lit og í því eru tvær hillur.
Það ber þess örlítil merki að hafa
lent í bruna. Gripnum fylgdi sú
saga að hann væri ekki úr síðustu
kirkju heldur enn eldri kirkju.
Líklegt má telja að altarið sé því
að minnsta kosti 150 ára gamalt.
Kirkjan í Hjörsey tilheyrði Hítar-
nesþingum en kirkjur þar voru þá
þrjár, á Kolbeinsstöðum, Ökrum
og í Hjörsey. Kirkjan í Hjörsey
var aflögð1896.
eha
Byggðasafni Borgarfjarðar
barst altari frá Hjörsey
Magnús og kona hans Þórunn
Ragnheiður við altarið sem hann færði
Byggðasafni að gjöf.
Ljósm: Guðrún Jónsdóttir
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is