Skessuhorn - 22.04.2015, Side 25
25MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
Kaupsýslan kynnir bakarí í Stykkishólmi
Upplýsingar í síma 571 1800
Til sölu fasteign og fyrirtæki
í einum vinsælasta
ferðamannabæ landsins
• Verslunarhúsnæði
170,1 m2 við Nesveg
• Bakaríð Nesbrauð ehf.
í góðum rekstri
• Mikil aukning í sölu,
allt árið um kring
• Seljendur skoða skipti á
fast eign á höfuðborgar-
svæðinu
Monika Hjálmtýsdóttir
Löggiltur fasteignasali
gsm: 823 2800
Snæfellsbær
Grunnskóli Snæfellsbæjar er heildstæður 270 nemenda grunnskóli með
þrjár starfsstöðvar, í Ólafsvík, á Hellissandi og á Lýsuhóli. Skólinn
hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki. Mikil áhersla er
lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti, með það
að markmiði að gera hvern einstakling tilbúinn til þátttöku í frekara
námi og lýðræðissamfélagi. Skólinn leggur mikla áherslu á kennslu í
átthagafræði, allar starfsstöðvar flagga Grænfána, eru þátttakendur í
Olweusarverkefninu gegn einelti og starfsfólk hefur á undanförnum
misserum lagt mikla vinnu í innleiðingu nýrrar Aðalnámskrár með það
að markmiði að byggja skólastarfið á þeirri vinnu frá hausti 2015.
Hlutverk skólastjóra er að vera í forystu við að skapa umgjörð sem
eflir áhuga nemenda og árangur. Hann leiðir stjórnendateymi skólans
og skapar hvetjandi starfsumhverfi fyrir nemendur, kennara og aðra
starfsmenn með það að markmiði að gera skólann sífellt betri. Hann er
opinn fyrir samstarfi við bæði leik- og tónlistarskóla auk samstarfs við
aðra grunnskóla á svæðinu. Umsækjandi þarf að hafa leiðtogahæfi-
leika, víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn.
Skólastjóri er talsmaður skólans í samskiptum við opinbera stjórnsýslu
á sviði menntamála, gagnvart fræðsluyfirvöldum og í öllum samskipt-
um skólans út á við.
Leitað er að hæfileikaríkum einstaklingi sem getur leitt kraftmikið og
gott skólastarf, verið reiðubúinn til að leita lausna og á gott með sam-
skipti við nemendur, kennara og foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur.
Kennarapróf er skilyrði.•
Kennslu- og/eða stjórnunarreynsla í grunnskóla.•
Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- eða •
kennslufræða æskileg.
Reynsla af fjármálastjórnun.•
Hæfni í mannlegum samskiptum.•
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.•
Skipulagshæfileikar.•
Umsókn um starfið þarf að fylgja greinargóð starfsferilskrá sem inni-
heldur vísun í umsagnaraðila. Auk þess skal umsókn fylgja greinargerð
um ástæður fyrir umsókn og sýn umsækjanda á skólastarf í Snæfellsbæ
til framtíðar auk lýsingar á þeim verkefnum sem umsækjandi hefur
leyst og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna skólastjórastarfinu.
Umsóknarfrestur er til og með þriðjudagsins 5. maí 2015 og skal um-
sóknum skilað til bæjarstjóra, Kristins Jónassonar, Ráðhúsi Snæfells-
bæjar, Klettsbúð 4, 360 Hellissandi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
í síma 894-7575 og í tölvupóstfanginu kristinn@snb.is, Magnús Þór
Jónsson, skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar í síma 894-9903 og
í tölvupóstfanginu maggi@gsnb.is og Örvar Marteinsson, formaður
fræðslunefndar í síma 863-5026 og í tölvupóstfanginu
orvarmarteins@simnet.is.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2015. Í samræmi við jafn-
réttisstefnu Snæfellsbæjar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja
um stöðuna.
Staða skólastjóra Grunnskóla
Snæfellsbæjar er laus til umsóknar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Landnámssetur Íslands í Borgar-
nesi er á lokametrunum til að verða
fyrst fyrirtækja á Vesturlandi til að
innleiða Vakann, sem er gæða- og
umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar.
Vakinn er samvinnuverkefni Ferða-
málastofu, Samtaka Ferðaþjónust-
unnar, Nýsköpunarmiðstöðvar og
Ferðamálasamtaka Íslands. Mark-
miðið með Vakanum er að efla gæði
og öryggi í ferðaþjónustu á Íslandi.
Fyrirtæki sem hafa hlotið gæðaút-
tekt Vakans vinna jafnframt að því
að styrkja samfélagslega ábyrgð
ferðaþjónustufyrirtækja.
„Við erum nú á lokametrum inn-
leiðingarferlisins og væntum þess
að fá lokaúttekt innan tíðar,“ segir
Sigríður Margrét Guðmundsdótt-
ir, Sirrý, framkvæmdastjóri Land-
námsseturs Íslands í samtali við
Skessuhorn. „Þetta er búið að taka
okkur dágóðan tíma að vinna um-
sóknarferlið. Ekki að það hafi verið
svo mikið sem við þurftum að bæta,
en ferlið felur í sér marga gátlista
og námskeið fyrir allt starfsfólk.
Þá var það öryggisáætlunin sem
tafði okkur, helst vegna þess að það
þyrmdi yfir okkur og okkur féllust
hendur. Við kunnum ekkert að gera
öryggis- og rýmingaráætlun,“ seg-
ir Sirrý og hlær. „Eftir að við tók-
um ákvörðun um að klára umsókn-
arferlið þá hefur þetta gengið vel.
Enda mikla og góða hjálp að fá frá
Vakanum. Og við höfum haft gott
að þessu ferli, það er fyrirtækjum
hollt að fara í gegnum verkferla og
öll skúmaskotin sem vilja gleym-
ast. Í þessu gæðakerfi er lögð mik-
il áhersla á öryggismál og hafa all-
ir stafsmenn okkar farið í sérstaka
þjálfun. Æfðar hafa verið viðbragðs-
áætlanir og verkaskipting ef að við-
skiptavinur slasast eða stendur í
honum. Þá þarf að vera skýrt hvaða
hlutverk er hvers, ekki geta allir
rokið til og sinnt þeim sem þarfn-
ast aðhlynningar. Það þarf líka að
sinna hinum viðskiptavinunum og
hringja eftir aðstoð og þess háttar.
Ég vonast til að þetta ferli og þessi
vottun skili því að við bætum þjón-
ustuna okkar og að hún verði fag-
mannlegri. Að gestir upplifi um-
hyggju og öryggi og starfsfólk vel-
líðan.“
Áslaug Þorvaldsóttir rekstrar-
stjóri Landnámsseturs segir að
í Vakanum sé einnig lögð mik-
il áhersla á umhverfismál og nú
vinni Landnámssetrið að því að fá
sérstaka gáma svo að hægt verði
að flokka allt sorp til fullnustu. Nú
vanti að flokka lífræna sorpið en
annað flokki þau nú þegar. „Þeg-
ar við erum komin með gámana þá
fer allt sorp sem fellur til frá okkar
stað í endurvinnslu. Lífræna sorpið
sendum við í moltugerð og þar með
verðum við umhverfisvænni,“ segir
Áslaug að endingu.
eha
Innleiða senn gæðavottunarkerfið Vakann
Áslaug og Sirrý á Landnámssetrinu eru á lokametrum með að innleiða Vakann,
gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar.
Um síðustu mánaðamót rann
út frestur til að sækja um leigu á
jörðunum Hesti og Mávahlíð sem
eru í eigu Landbúnaðarháskóla Ís-
lands. Skólinn hefur rekið fjárbú
sitt að Hesti og skal jörðin leigj-
ast út með fjárstofni. Alls sóttu
12 aðilar um, eins og greint hef-
ur verið frá í Skessuhorni. „Ég
skipaði þriggja manna valnefnd
sem nú hefur farið yfir umsókn-
irnar. Hún valdi fjóra aðila út til
nánara samtals. Tveir þeirra eru
fallnir út þannig að eftir stendur
að velja milli þeirra tveggja sem
eftir eru. Það eru hvorutveggja
fólk sem hefur mikla þekkingu og
reynslu af búrekstri. Síðan verður
boðið að ganga til samninga. Það
er brýnt að þetta mál gangi hratt
fyrir sig. Vorverkin í fjárbúskapn-
um eru handan við hornið. Við
stefnum á að það liggi fyrir í lok
mánaðarins hver verði leigutaki,“
sagði Björn Þorsteinsson rektor
Landbúnaðarháskólans í samtali
við Skessuhorn í gær, þriðjudag.
Skýrist brátt með nýt-
ingu fleiri húsa
Frestur til að sækja um rekstur á
félags- og veitingaaðstöðunni í
gömlu hestaréttinni á Hvanneyri
(Kollubar) rann síðan út 10. apríl.
Í auglýsingu þar um var einnig til-
greint að til greina tæki að útvíkka
starfsemina og láta hana ná til fleiri
af gömlu byggingunum á Hvann-
eyri, það er Skólastjórahússins,
Gamla skólans og Gamla bútækni-
hússins. „Samningur sem var 2005
um reksturinn á húsnæði Kollubars
rann út. Það var ákveðið að setja
þetta í opið útboð. Ég fann fyrir
miklum áhuga í samfélaginu hér á
Hvanneyri til að móta nýja framtíð-
arsýn fyrir þessar byggingar og þá
jafnvel í stærra samhengi en verið
hefur. Það eru svo mikil verðmæti
fólgin í nýsköpunarvilja fólksins á
staðnum og sjálfsagt að virkja þau.
Fimm aðilar sendu inn umsókn-
ir og lögðu fram hugmyndir sín-
ar. Flestar komu frá heimafólki og
allar frá fólki í sveitarfélaginu. Þær
endurspegla allar mikinn áhuga og
fela í sér hugmyndir um nýsköpun
í menningarstarfsemi og ferðaþjón-
ustu. Ég hef haft umsóknirnar til
umsagnar til nokkurra ráðgefandi
aðila. Væntanlega göngum við til
samninga og niðurstaða liggur fyrir
í lok mánaðar. Ég hef góða von um
að sá kraftur sem er í fólkinu okk-
ar geti leitt til þess að gamla torf-
an svokallaða hér á Hvanneyri fái
hlutverk til framtíðar,“ segir Björn
Þorsteinsson.
mþh
Gamla skólastjórahúsið og kirkjan á
Hvanneyri.
Hlutir fara að skýrast í leigumálum
Landbúnaðarháskólans
SS
Listamiðstöð Akraness
Art center
Níu manna hópur listafólks af Akranesi hefur
stofnað listamiðstöð í gömlu stjórnstöðinni sem
tilheyrði Sementsverksmiðjunni. Húsnæðið hefur
fengið nafnið; Samsteypan – Listamiðstöð Akraness
og sinnir hópurinn ólíkri listsköpun. Ætlunin er að
skapa vettvang fyrir hópinn til að sýna og miðla af
þekkingu sinni. Bakgrunnur hópsins er ólíkur en
allir hafa lokið einhverri list- og eða verkmenntun.
Von hópsins er að í framtíðinni geti verkefnið m.a.
verið skapandi vettvangur fyrir einstaklinga jafnt
sem ölskyldur. Opnar vinnustofur, samsýningar
og samvinna við innlenda sem og erlenda
listamenn er einnig eitthvað sem hópurinn sér fyrir
sér og vonandi kemur þessi skemmtilega nýsköpun
til með að auka óru menningar og lista í
bæjarfélaginu.
Formleg opnun Samsteypunnar
verður á sumardaginn fyrsta frá
kl. 13:00 – 15:00 og allir
áhugasamir eru hjartanlega
velkomnir.
UNNUR, GYÐA, DRÍFA, BRYNDÍS, MAJA STÍNA, HALLVARÐUR, ÞÓREY, GERÐA OG INGA