Skessuhorn - 22.04.2015, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
Kór Akraneskirkju heldur sín ár-
legu kaffihúsakvöld í þessari viku,
tvö að þessu sinni. Hið fyrra verð-
ur í kvöld miðvikudaginn 22. apríl
og hið síðara fimmtudagskvöld-
ið 23. apríl. Dagskráin hefst kl. 20
bæði kvöldin. „Í boði verður fjöl-
breytt dagskrá í tali og tónum og
glæsilegar kaffiveitingar úr smiðju
kórfélaga. Sérstakir gestir kórs-
ins verða þær Regína Ásvaldsdótt-
ir bæjarstjóri Akraness og Sigríð-
ur Thorlacius söngkona. Reg-
ína kemur í sérstakt „sófaspjall“
og kaffihúsagestir fá að kynnast
þessari ágætu konu aðeins betur
en hún hefur verið farsæl í starfi
á Akranesi. Sigríður Thorlacius
mun leyfa gestum að njóta sinnar
fallegu söngraddar. Kórinn flyt-
ur flotta söngdagskrá en einn-
ig mun Sigíður syngja með kórn-
um. Meðleikari á píanó er Tóm-
as Guðni Eggertsson. Aðgangs-
eyrir á kaffihúsakvöldin kr. 2.500,“
segir Sveinn Arnar Sæmundsson
kórstjóri. Forsala aðgöngumiða á
kaffihúsakvöldin er í Versluninni
Bjargi.
mm
Vetrarleikar hestamannafélags-
ins Glaðs voru haldnir síðastliðinn
sunnudag á reiðvellinum í Búðar-
dal. Veðurguðirnir voru ekki að leika
við knapa og mótsgesti þennan dag-
inn en það var hífandi rok á meðan
á móti stóð. Næsta mót Glaðs verð-
ur haldið 1. maí n.k. og er það opið
íþróttamót. Á íþróttamótið koma
jafnan keppendur úr öðrum félögum
og sækja og etja keppa við Glaðsfólk.
Nú er bara að panta sól og blíðu fyrir
1. maí og þá er næsta víst að íþrótta-
mótið verði fjölmennt og skemmti-
legt mót eins og venja er.
Helstu úrslit:
Tölt, opinn flokkur
1. Svanhvít Gísladóttir, Lukka frá
Lindarholti
2. Eyþór Jón Gíslason, Werner frá
Vatni
3. Viðar Þór Ólafsson, Þíða frá Spá-
gilsstöðum
Tölt, unglingaflokkur
1. Einar Hólm Friðjónsson, Glói frá
Króki
Tölt, barnaflokkur
1. Friðjón Kristinn Friðjónsson,
Glampi frá Núpakoti
2. Birta Magnúsdóttir, Baldur Bald-
urss frá Búðardal.
Fjórgangur, opinn flokkur
1. Inga Heiða Halldórsdóttir
Næk frá Miklagarði
2. Svanhvít Gísladóttir, Þorri frá
Lindarholti
3. Eyþór Jón Gíslason, Werner frá
Vatni
Fjórgangur, unglingaflokkur
1. Einar Hólm Friðjónsson, Glói frá
Króki
Fjórgangur, barnaflokkur
1. Friðjón Kristinn Friðjónsson,
Glampi frá Núpakoti
2. Birta Magnúsdóttir, Dama frá
Arnarbæli.
Fimmgangur F2, opinn flokkur
1. Guðmundur H Sigvaldason,
Kempa frá Reykhólum
2. Inga Heiða Halldórsdóttir, Frey-
faxi frá Breiðabólsstað
3. Eyþór Jón Gíslason, Riddari frá
Spágilsstöðum.
ss/ Ljósm. bae.
Vetrarleikar Glaðs
í hvassviðri
Egill Guðlaugsson í Badminton-
félagi Akraness var meðal kepp-
enda á Íslandsmótinu í badmin-
ton sem fram fór í Reykjavík um
þarsíðustu helgi. Egill náði tíma-
mótaárangri þegar hann komst
í úrslitaviðureignina í meistara-
flokki. Ekki er vitað til að karl-
spilari frá Akranesi hafi áður
náð þeim árangri að sögn Birg-
ittu Rán Ásgeirsdóttur formanns
Badmintonfélags Akraness. Eg-
ill tapaði 2:0 í úrslitum fyrir Kára
Gunnarssyni TBR sem vann sinn
fjórða Íslandsmeistaratitil á jafn-
mörgum árum. Í undanúrslit-
um vann Egill Atla Jóhannesson
TBR 2:1 í hörkuspennandi viður-
eign. Þá keppti Egill í tvíliðaleik
ásamt Magnúsi Helgasyni TBR
en þeir töpuðu í undanúrslitum
fyrir Bjarka Stefánssyni og Daní-
el Thomsen. Egill keppti einnig í
tvenndarleik ásamt Drífu Harð-
ardóttur Badmintonfélagi Akra-
ness. Þau unnu einn leik en duttu
út í annarri umferð. Ljóst er af
frammistöðunni í einliðaleiknum
á Íslandsmótinu að Egill á fram-
tíðina fyrir sér í badmintoninu en
hann er aðeins 23 ára.
þá
Tímamótaárangur hjá
Agli á Íslandsmótinu
í badminton
Egill með silfurverðlaunin á Íslands-
mótinu.
Sædís Guðlaugsdóttir garðyrkju-
fræðingur hefur rekið Gróðrar-
stöðina Gleym-mér-ei í Borgar-
nesi undanfarin 29 ár. Hún ræktar
og selur selur á sama stað mikið úr-
val fjölærra plantna ásamt úrvali af
sumarblómum, kál- og kryddjurt-
um. Hún ræktar meðal annars sjö
mismunandi tegundir af myntu og
eru margar þeirra ansi framandi.
„Ég er núna búin að koma á legg
sjö ólíkum tegundum. Þar á meðal
er fjölær piparmynta sem er rótgró-
ið og þekkt afbrigði sem allir ættu
að geta ræktað. Hinar tegundirnar
mínar eru myntublóðberg, súkk-
ulaðimynta, appelsínumynta, epla-
mynta, ananasmynta og jarðar-
berjamynta. En ég kalla eftir eintaki
af sítrónumyntu. Ef einhver lum-
ar á slíkri má hinn sami hafa sam-
band við mig,“ segir Sædís. Plönt-
urnar gefa af sé allt sumarið og er
hægt að nota hinar ólíku myntuteg-
undir í eftirrétti, heilsudrykki, te og
alla matargerð.
eha
Mikið úrval myntuplantna í Gleym-mér-ei
Sædís Guðlaugsdóttir er hér með hluta myntuúrvalsins sem hún ræktar í gróðrarstöðinni Gleym-mér-ei við Sólbakka í
Borgarnesi.
Myntublóðbergið er hið besta í drykki á borð við Mojito og eru blöð þeirrar myntu
slétt og falleg áferðar.
Tvö kaffihúsakvöld Kórs Akraneskirkju
Skíðaáhugafólk í Grundarfirði boð-
aði til opins fundar á veitingastaðn-
um Rúben síðastliðið miðvikudags-
kvöld. Góð mæting var á fundinn og
greinilega mikill áhugi fyrir málinu
en langt er síðan hægt var að stunda
skíðaíþróttina á Snæfellsnesi. Fund-
argestir ræddu mögulega staðsetn-
ingu fyrir skíðasvæði en ljóst er að
um miklar framkvæmd yrði að ræða.
Helst var rætt um svæðið við Eld-
hamra fyrir ofan Grundarfjörð en
þar er jafnan nægur snjór á veturna.
Þá þyrfti að koma til vegagerðar upp
í hlíðina ásamt kostnaði við að koma
upp skíðalyftu. Nú er bara spurn-
ingin sú hvort eldmóður Snæfell-
inga smiti út frá sér og hægt verði
að bregða sér á skíði á Snæfellsnesi
á næstu árum, en tíminn verður að
leiða það í ljós. tfk
Skíðaáhugafólk kom saman í Grundarfirði