Skessuhorn - 22.04.2015, Qupperneq 33
33MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Hákon frá Ragnheiðarstöðum
Til sölu folatollur undir Hákon
frá Ragnheiðarstöðum. Hákon er
undan Álfi frá Selfossi og Hátíð
frá Úlfsstöðum. Hákon er að gefa
hæfileikamikil og falleg afkvæmi, sjá
síðu Hákonar, Hákon.is. Hesturinn
verður í húsnotkun 1. maí - 15. júní
í Söðulsholti Snæfellsnesi, síðan í
Austvaðsholti Holta- og Landssveit
15. júní -15. sept. Upplýsingar í síma
895-6666.
Kisa í vanda
10 ára gömul læða, sem búið er
að gera ófrjóa, vantar nýtt heimili
vegna breyttra aðstæðna. Hún er
róleg og sjálfri sér nóg og mjög góð
í umgengni. Vön að geta farið út að
vild, en er mjög heimakær. Hanna
K.S. Bæheimum sími 435-1360 og
869-9813 sveitin@vesturland.is.
Óska eftir til langtímaleigu
2-3 herbergja íbúð með geymslu
á Akranes óskast til langtímaleigu.
Gott væri að hún væri laus 1. maí
eða 1. júní upplýsingar á netfanginu:
spalmadottir1@gmail.com eða í síma
867-2971.
Til leigu í Borgarnesi
Til leigu 3ja herbergja kjallaraíbúð,
87 m2. Draumaleigjandi er skilvís og
reglusöm, einhleyp kona sem leitar
að langtímaleigu. Upplýsingar í síma
437-1384 og 895-1284.
Óska eftir leigu
Óskum eftir íbúð til leigu á Akranesi.
Helst að minnsta kosti 3 herbergja,
en skoðum annað. Upplýsingar á
netfanginu: malfridu@landspitali.is.
Óskum eftir íbúð í Borgarnesi
Par óskar eftir snyrtilegri íbúð í
Borgarnesi frá 1. júní í óákveðinn
tíma. Góð cavalier tík fylgir. Anna:
865-4498 eða í run3691@gmail.com.
Vinnukona er að leita að herbergi
til leigu á Snæfellsnesi. Síminn
er 666-6813 og tölvupóstur
superannnne@gmail.com.
Óskum eftir húsnæði
Við erum 4 manna fjölskylda
sem óskar eftir húsnæði á
Kleppjárnsreykjum eða í Reykholti
sem fyrst. Reyklaus og án gæludýra.
Upplýsingar í síma 865-4227, Anna
Dís eða 865-0776, Narfi.
Einbýlishús til leigu í Borgarnesi
Tæplega 160 fermetra, 5 herbergja
hús með bílskúr er til leigu frá og
með 1. júní. Góð staðsetning, góðir
grannar og stutt í alla þjónustu. Í
húsinu eru 4 svefnherbergi, stofa,
eldhús, hol, forstofa, 2 salerni,
þvottahús og síðast en ekki síst
bílskúrinn. Áhugasamir hringið í síma
847 4085.
Mótorhjól og skellinöðrur
Ég er að leita að alls konar gömlum
mótorhjólum og skellinöðrum í
hvaða ásigkomulagi sem er. Jafnvel
bara einhverjum pörtum úr gömlu
hjólum (vél, felgur, grind). Má vera
óskráð, ljótt og bilað. Upplýsingar
á valur@heimsnet.is eða í síma
896-0158.
Óska eftir að kaupa Daihatsu
Ferozu
Er að leita mér að Daihatsu Ferozu.
Þarf að vera heillegur og ekki
ryðgaður en má þarfnast lagfæringar.
Upplýsingar í síma 696 2334 eða
ispostur@yahoo.com.
Pílórahandrið
Til sölu 16 metrar af pílórahandriði.
Flott í hlið, gerði eða bara eitthvað
sniðugt. Nýtt kostar svona efni á
þriðja hundrað þúsund en fæst á 25
þúsund ef það verður sótt fyrir 20.
apríl. Upplýsingar á netfanginu: keg@
talnet.is.
Rafmagnspottar
Notaðir rafmagnspottar til sölu.
Tilvalið fyrir bústaðinn eða í garðinn.
Verða til sýnis og afhendingar í
Stykkishólmi fimmtudaginn 23. apríl.
Frekari upplýsingar gefur Bragi í síma
695-7045.
I would like to learn Icelandic
I’ m living near Bifröst and I would
like to learn Icelandic (especially
listening comprehension and
speech). Salary is negotiable. If
you are interested, please call me:
857-5996 (Jürg).
I would like to learn Icelandic
I’ m living near Bifröst and I would
like to learn Icelandic (especially
listening comprehension and
speech). Salary is negotiable. If
you are interested, please call me:
691-3419 (Leila).
Borgarbyggð -
miðvikudagskvöldið 22. apríl kl.
20.30.
Fjölskylduhátíð í tilefni 100
ára afmælis kosningaréttar
kvenna í Reykholtskirkju. Söngur,
skemmtiefni og fróðleikur. Eitthvað
við allra hæfi. Kaffi og meðlæti í
hléi á kr. 500.
Dalabyggð -
fimmtudaginn 23. apríl kl. 12:30
sunnudagsins 26. apríl kl. 22:00.
Jörfagleði 2015 verður haldin
sumardaginn fyrsta frá kl. 12:30.
Meðan á Jörfagleði stendur verður
opið hjá Handverkshópnum Bolla
alla dagana frá kl. 13:00-18:00,
Hjá Jófríði 13:00-17:00 og
Blómalindinni 11:00-18:00,
þar sýnir Silja Rut Thorlacius
ljósmyndir. Dagskrá Jörfagleði:
http://www.dalir.is/jorfagledi/
Borgarbyggð - fimmtudaginn
23. apríl kl. 13:30.
Skátaguðsþjónusta í Borgarnesi
á sumardaginn fyrsta í
Borgarneskirkju í umsjón sr. Páls
Ágústs Ólafssonar. Organisti er
Steinunn Árnadóttir. Fögnum
sumri í helgidóminum.
Snæfellsbær – fimmtudaginn
23. apríl kl. 14:00 -16:00.
Árlegur safnadagur á Snæfellsnesi.
Bjarnarhöfn, Norska húsið,
Eldfjallasafnið, Vatnasafnið,
Sögumiðstöðin, Sögustofa Inga
Hans, Samkomuhúsið á Arnarstapa
og Pakkhúsið opna dyrnar upp á
gátt fyrir íbúa Snæfellsness og aðra
gesti milli kl. 14-16.
Borgarbyggð - fimmtudaginn
23. apríl frá kl. 15:00.
Tónleikar Tónlistarskóla og
Safnahúss Borgarfjarðar
í Safnahúsi Borgarfjarðar.
Nemendur og kennarar
Tónlistarskóla Borgarfjarðar
flytja frumsamin verk við ljóð
skálda frá Ásbjarnarstöðum í
Stafholtstungum - listsköpun
unga fólksins. Opnun
sýningarinnar Gleym þeim ei er
jafnframt í Safnahúsi Borgarfjarðar.
Þar er borgfirskra kvenna minnst í
tilefni af 100 ára kjörgengisafmæli
íslenskra kvenna. Sérstök og
einlæg sýning.
Akranes - fimmtudagskvöldið
23. apríl kl. 20:30.
Vortónleikar Karlakórs Rangæinga.
Karlakór Rangæinga heldur
tónleika í sal Tónlistarskólans á
Akranesi. Fjölbreytt söngdagskrá.
Miðaverð kr. 2.500,- (posi á
staðnum), frítt fyrir börn og
unglinga að 16 ára aldri.
Sjá einnig: www.karlar.is.
Snæfellsbær -
fimmtudagskvöldið
23. apríl kl. 21:00.
Sumartónleikar Frystiklefans
2015. Hljómsveit Mammút
mætir í Snæfellsbæ og heldur
stórtónleika í Frystiklefanum í
Rifi. Hin hæfileikaríka Alda Dís
Arnardóttir mun sjá um upphitun.
Verð 2.900 kr. Sjá einnig: www.
midi.is.
Snæfellsbær -
fimmtudaginn 23. apríl
frá kl. 18:00 til 00:00
Vortónleikar Lúðrasveitar
Stykkishólms í Stykkishólmskirkju.
Lúðrasveitin blæs til
hefðbundinna vortónleika og
skartar öllu því flottasta sem hún
á til. Allar sveitir spila. Stjórnandi
er Martin Markvoll. Allir velkomnir
og enginn aðgangseyrir. Athugið
tónleikatímann kl. 18:00.
Akranes - föstudaginn
24. apríl frá kl. 21:00 til 01:00.
Tónleikar My Sweet Baklava á
Vitakaffi. Þau Valgerður Jónsdóttir
og Þórður Sævarsson í My Sweet
Baklava leika eigin tónlist í bland
við ýmis uppáhalds lög. Með
þeim leika þau Sveinn Rúnar
Grímarsson, Ingi B. Róbertsson og
Harpa Þorvaldsdóttir. 1500 krónur
inn (aðeins reiðufé).
Á döfinni
Markaðstorg Vesturlands
Nýfæddir
Vestlendingar
TIL SÖLU
13. apríl. Drengur. Þyngd 4.470 gr.
Lengd 55 sm. Foreldrar: Þórkatla Kr.
Sumarliðadóttir og Baldur Ágúst
Sigþórsson, Ólafsvík. Ljósmóðir: Lóa
Kristinsdóttir.
Getir þú barn þá
birtist það hér,
þ.e.a.s. barnið!
www.skessuhorn.is
LEIGUMARKAÐUR
20. apríl. Drengur. Þyngd 4.300 gr.
Lengd 53 sm. Foreldrar: Hjördís
Garðarsdóttir og Guðjón Hólm
Gunnarsson, Akranesi. Ljósmóðir:
Elísabet Harles.
ÓSKAST KEYPT
ÝMISLEGT
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Mótið verður haldið í Íþróttahúsinu við
Vesturgötu á Akranesi laugardaginn 25. apríl.
Húsið verður opnað klukkan 15:00 og keppni
hefst klukkan 16:00.
Kaffi og meðlæti verður til sölu.
Ókeypis aðgangur og allir velkomnir að
fylgjast með og njóta.
Umf. Skipaskagi
Línudansmót Umf.
Skipaskaga 60 ára og eldri
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi
Akraness 2005-2017
Þjóðvegur 13 og 15
Bæjarstjórn Akraness auglýsir hér með tillögu að breytingu á
Aðalskipulagi Akraness 2005-2017, samkvæmt 1. mgr. 31. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í breyttri landnotkun á landi sem er skilgreint
óbyggt svæði í land til sérstakra nota og stækkun á íbúðasvæði.
Breytingartillagan verður til kynningar í þjónustuveri
kaupstaðarins að Stillholti 16-18, 1. hæð, frá og með
27. apríl n.k. til og með 12. júní 2015. Tillagan er einnig til
kynningar á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur
á að gera athugasemdir við breytingartillöguna til mánudagsins
12. júní 2015. Skriflegum athugasemdum í þarf að skila í
þjónustuver Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18,
eða á netfangið akranes@akranes.is.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Akraneskaupstaðar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Tillaga að deiliskipulagi
Miðvogslækjarsvæði
Þjóðvegur 13 og 15
Bæjarstjórn Akraness auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi
Miðvogslækjarsvæði vegna þjóðvegar 13 og 15, samkvæmt 2. mgr.
41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svæðið liggur milli Akrafjallsvegar (Þjóðvegar 51) og gamla
þjóðvegarins, til norðurs liggur svæðið að lóðinni Þjóðvegi 17 og
Þjóðvegi 15A (nýr hitaveitutankur), til suðvesturs er óbyggt land og
skógrækt þar sem Miðvogslækur rennur um. Deiliskipulagsáætlunin
gerir ráð fyrir opnu svæði til sérstakra nota á lóð nr. 15 og
m.a. íbúðabyggðar á lóð nr. 13.
Deiliskipulagstillagan verður til kynningar í þjónustuveri
kaupstaðarins að Stillholti 16-18, 1. hæð, frá og með föstudeginum
27. apríl n.k. til og með þriðjudagsins 12. júní 2015. Tillagan er einnig
til kynningar á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur
á að gera athugasemdir við tillöguna til 12. júní 2015. Skriflegum
athugasemdum þarf að skila í þjónustuver Akraneskaupstaðar að
Stillholti 16-18, 1. hæð, eða á netfangið akranes@akranes.is
Skipulags- og byggingarfulltrúi Akraneskaupstaðar
DÝRAHALD