Skessuhorn - 22.04.2015, Qupperneq 35
35MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Í síðustu viku var undirritaður
samningur milli stjórnar körfu-
knattleiksdeildar Snæfells og Inga
Þórs Steinþórssonar um að hann
haldi áfram þjálfun karla- og
kvennaliðsins. Eitt ár var eftir af
samningi Inga Þórs við Snæfell.
„Bæði ég og stjórnin eru með samn-
ingnum að undirstrika vilja beggja
aðila um áframhaldandi samstarf.
Það er mjög mikilvægt þegar far-
ið verður að vinna að leikmanna-
málum sem er að byrja þessa dag-
ana,“ sagði Ingi Þór í samtali við
Skessuhorn. Samningurinn er op-
inn að því leyti að ekki er tímasetn-
ing í honum enda er hann í raun
staðfesting á eldri samningi. Ingi er
nú á sínu sjötta tímabili hjá Snæfelli
og ljóst að hann verður að minnsta
kosti eitt ár í viðbót. „Ég kann mjög
vel við mig hérna í Hólminum og
ætli ég verði ekki hérna eins lengi
og ég vil,“ bætti Ingi Þór við í gam-
ansömum tón.
Einhverjar
mannabreytingar
Ingi Þór segir að afrakstur þessa
vetrar virðist ekki vera langt frá því
sem að var stefnt. Það hafi þó ver-
ið vonbrigði að karlaliðið náði ekki
í úrslitakeppnina eins og að var
stefnt. „Þetta var bara svo gríðar-
lega jafnt í sætunum frá þrjú til níu.
Haukarnir voru til dæmist í níunda
sæti þegar þrjár umferðir voru eft-
ir en enduðu svo í því þriðja. Karla-
liðið hjá okkur var að spila vel í
mörgum leikjum en vantaði stöð-
ugleikann,“ segir Ingi Þór. Þeg-
ar samningurinn við Inga Þór var
endurnýjaður stóð baráttan sem
hæst í úrslitakeppni kvenna í Dom-
inosdeildinni og útlit fyrir æðisleg-
an lokasprett í baráttunni um Ís-
landsmeistaratitilinn. Áfangi náð-
ist svo á fimmtudaginn þegar kon-
urnar í Snæfelli tryggðu sér sæti í
úrslitakeppninni ásamt Keflavík.
Fer fyrsta viðureign liðanna fram í
Stykkishólmi í kvöld.
Aðspurður segir Ingi Þór að bú-
ast megi við einhverjum breyting-
um á meistaraflokkum Snæfells fyr-
ir næsta vetur. Ljóst sé að Pálmi
Freyr hætti hjá körlunum og Krist-
en McCarty hjá konunum, auk þess
sem tvær í kvennaliðinu séu að fara
í nám. „Það eru kynslóðaskipti að
eiga sér stað hjá körlunum og ung-
ir menn munu stíga fram á svið-
ið næsta vetur. Við verðum eitt-
hvað að styrkja hópinn. Hjá konun-
um verða líka einhverjar breytingar
en ég er bjartsýnn á að við verðum
með sterk lið á báðum vígstöðv-
um næsta vetur. Það þýðir ekkert
að vera með væl þótt einhver skörð
þurfi að fylla. Ég þekki ekkert ann-
að en takast á við verkefnin með
áhuga og gleði rétt eins og mór-
allinn er hérna í Hólminum,“ segir
Ingi Þór. þá
Íslandsbanki og Knattspyrnufélag
ÍA skrifuðu nýverið undir nýj-
an styrktarsamning. Íslandsbanki
hefur verið einn stærsti styrktar-
aðili félagsins síðastliðin sex ár.
Áhersla samningsins er á barna-
og unglingastarf KFÍA. Magnús D.
Brandsson útibússtjóri sagði eft-
ir undirritun samningsins að bank-
inn væri mjög ánægður með sam-
starfið við KFÍA undanfarin ár. Ís-
landsbanki hefur lagt áherslu að
vera þátttakandi í samfélaginu á
Akranesi og því ánægjulegt að gera
samning við stærsta íþróttafélagið á
Akranesi. Jafnframt þessum samn-
ingi þá hefur bankinn styrkt ýmis
íþrótta- og menningarmál í bæjar-
félaginu.
Magnús Guðmundsson formað-
ur KFÍA sagði að stuðningur Ís-
landsbanka við knattspyrnustarfið
á Akranesi skipti miklu máli en alls
eru iðkendur á vegum félagsins um
500 talsins. Fyrstu knattspyrnuleik-
ir sumarsins eru á næsta leiti og þá
þurfa Skagamenn að ná fram þeirri
sigurgleði sem hefur einkennt
knattspyrnuna á Akranesi um ára-
bil. „Að hafa öflugt fyrirtæki eins
og Íslandsbanka í forgrunni stuðn-
ingsaðila félagsins er ómetanlegt,“
sagði Magnús.
-fréttatilkynning
Fulltrúar SamVest og frjálsíþrótta-
deildar FH undirrituðu síðastliðinn
laugardag samstarfssamning um að-
stöðu og þjálfun. „Með þessu sam-
komulagi semjum við um að halda
samæfingar SamVest hjá frjáls-
íþróttadeild FH á þeirra æfinga-
tíma og í þessari frábæru aðstöðu
í Kaplakrika, en við höfum kom-
ið með íþróttahópa í höfuðborgina
um það bil þrisvar sinnum á vetri,“
sagði Björg Ágústsdóttir formað-
ur framkvæmdaráðs SamVest eft-
ir undirritunina. „Frjálsíþrótta-
deild FH sér okkur jafnframt fyr-
ir gestaþjálfurum á þessum æfing-
um í Kaplakrika. Íþróttamenn Sam-
Vest mega koma á einstaka æfingar
í Hafnarfirði ef þau eru á svæðinu.
Enn fremur nær þetta samstarf til
nemenda af SamVest svæðinu sem
eru við nám á höfuðborgarsvæðinu
en þeir hafa aðgang að æfingum FH
í Kaplakrika gegn sama gjaldi og
FH-ingar. Samningurinn er gagn-
kvæmur og býður FH-ingum því
að sama skapi upp á heimsóknir til
okkar,“ sagði Björg enn fremur.
Að sögn Bjargar hafa iðkend-
ur hjá SamVest margir hverjir ekki
einu sinni haft þjálfara heima fyrir
og því sé gríðarlega dýrmætt að geta
viðhaldið áhuga þeirra og ástundun
í gegnum SamVest, en það er sem
kunnugt er heiti á samstarfsverkefni
í frjálsíþróttum milli sjö héraðs-
og ungmennasambanda á Vestur-
landi og Vestfjörðum, það er UDN,
USK, HSH, UMSB, UMFK, HSS
og HHF. „Samstarf SamVest við
frjálsíþróttadeild FH er gott dæmi
um hvernig hægt er að vinna sam-
an á vettvangi íþróttanna, þrátt fyrir
að menn stilli sér síðan upp í keppni
við önnur tækifæri. Frá því SamVest
tók til starfa fyrir tæpum þrem-
ur árum höfum við líka notið lið-
sinnis þjálfara frá öllum félögum á
höfuðborgarsvæðinu. Þeir hafa að-
stoðað sem gestaþjálfarar á samæf-
ingum á okkar starfssvæði eða fyr-
ir sunnan. Markmið okkar á vett-
vangi frjálsíþróttanna eru nefnilega
þau sömu; að efla íþróttina í heild,
iðkendum til framfara og gleði. Við
erum mjög þakklát fyrir stuðning-
inn og áhugann á okkar starfi, sem
við vonumst til að njóta áfram,“
segir Björg Ágústsdóttir. þá
Skagamenn unnu Fjölni
stórt, 5:1, í átta liða úr-
slitum Lengjubikarsins
í Akraneshöllinni síðast-
liðið fimmtudagskvöld. Þeir
mættu síðan fyrstu deildarliði KA
í undanúrslitum á gervigrasvelli
félagsins fyrir norðan á sunnu-
daginn. Jafnt var eftir venjulegan
leiktíma 1:1 og því gripið til víta-
spyrnukeppni. Þar reyndust KA
menn sterkari og leika því til úr-
slita gegn Breiðabliki á sumar-
daginn fyrsta. Leikið var við erf-
iðar aðstæður á Akureyri, sterkan
vind, sem gerði leikmönnum erfitt
fyrir. Það var Jón Vilhelm Ákason
sem náði forystunni fyrir Skaga-
liðið með glæsilegu marki beint
úr aukaspyrnu á 27. mínútu leiks-
ins en þar við sat í hálfleik. Í seinni
hálfleiknum tókst KA-mönnum að
jafna eftir sjálfmark hjá Skagalið-
inu en þá var tæpur stundarfjórð-
ungur eftir af leiknum. Skagalið-
ið sótti stíft að marki heimamanna
síðustu mínútur leiksins en það
dugði ekki. Þátttöku Skagamanna
er því lokið í Lengjubikarnum en
liðið náði samt sem áður fínum ár-
angri í keppninni þetta árið. Það
vann sjö af níu leikjum sínum í
mótinu og endaði með markatöl-
una 24:15. Nú er skammt í fyrsta
leik í Pepsi-deildinni. Þá strax er
stórleikur á Akranesvelli þegar
Skagamenn mæta Íslandsmeistur-
um Stjörnunnar sunnudaginn 3.
maí. þá
Meistaraflokkskonur kvenna í Snæ-
felli báru á fimmtudagskvöldið sig-
urorð af Grindavíkurstúlkum í
fjórðu viðureign liðanna í undan-
úrslitum Íslandsmótsins. Í þessari
fjórðu og síðustu viðureign sigr-
uðu Snæfellskonur af öryggi 71:56.
Etja þær því kappi við Keflvíkinga í
úrslitakeppninni. Snæfell á titil að
verja og á möguleika á að sigra tvö-
falt, deild og bikar.
Snæfell fær heimaleik í fyrstu
viðureign liðanna og fer hún fram
í kvöld, miðvikudaginn 22. apríl
klukkan 19:15. Annar leikurinn
verður í TM höllinni föstudaginn
24. apríl klukkan 19:15. Þriðji leik-
urinn verður í Hólminum mánu-
daginn 27. apríl kl. 19:15 og fjórði
leikurinn, ef þarf, í TM höllinni 30.
apríl klukkan 19:15. Ef enn verður
jafnt með liðunum eftir fjóra leiki
fer oddaviðureign fram í Stykkis-
hólmi sunnudaginn 3. maí klukk-
an 16.
mm/ Ljósm. eb.
Snæfellkonur í úrslit
ásamt Keflavík
Hópur barna og unglinga úr SamVest var viðstaddur þegar Björg Ágústsdóttir
og Súsanna Helgadóttir varaformaður frjálsíþróttadeildar FH undirrituðu sam-
komulagið síðastliðinn laugardag.
SamVest og FH
semja um samstarf
Ingi Þór Steinþórsson þjálfari kvenna- og karlaliðs Snæfells í körfubolta.
Ingi Þór og stjórnin staðfestu
áframhaldandi samstarf
Íslandsbanki styður knattspyrnuna á Akranesi
Skagamenn töpuðu í
undanúrslitum Lengjubikarsins