Skessuhorn - 20.05.2015, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Vilja girða
fyrir sauðfé
DALIR: Fjallskilanefnd Fells-
strandar hefur óskað eftir því
við sveitarstjórn Dalabyggð-
ar að sett verði upp u.þ.b. 350
metra girðing í landi Orms-
staða ásamt ristahliði á Dag-
verðarnesvegi. Tilgangurinn
er að koma í veg fyrir að sauðfé
gangi í Dagverðarnes en þar
þykir erfitt að smala. Byggðar-
ráð Dalabyggðar hefur hafnað
því að taka þátt í kostnaði við
að koma upp þessari girðingu.
Á fundi sínum nú í maí gerði
byggðaráð þó ekki athuga-
semdir við að fjallskilasjóður
Fellsstrandar komi henni upp
að fengnu samþykki landeig-
enda. Verði af framkvæmdinni
samþykkir byggðarráð að koma
upp ristahliði á Dagverðarnes-
veg í samvinnu við Vegagerð-
ina. -mþh
Garðakaffi verð-
ur opnað á ný
AKRANES: Kaffihúsið Garða-
kaffi á Akranesi verður opnað á
nýjan leik í sumar eftir að hafa
verið lokað frá því í desember
2014. Skrifað hefur verið undir
samning við nýja rekstraraðila,
leigutakann Hof Apartments.
Mæðgurnar Guðný Guðjóns-
dóttir og Sara D. Baldursdóttir
munu sjá um reksturinn í sum-
ar. Leigutíminn er frá 1. júní -
31. ágúst 2015 en möguleiki er
á framlengingu ef vilji er fyr-
ir hendi hjá báðum aðilum.
Kaffihúsið er í Safnaskálanum
í Görðum sem er í eigu Akra-
neskaupstaðar og Hvalfjarðar-
sveitar. –grþ
Veitingar á
hafnarsvæðinu
STYKKISH: Stykkishólms-
bær hefur veitt stöðuleyfi fyr-
ir Ljúfmetismarkað í Stykk-
ishólmi í sumar. Til stend-
ur að markaðurinn verði hald-
inn laugardaginn 25. júlí, að
því gefnu að verkefnið fái styrk
frá Uppbyggingarsjóði Vest-
urlands. Markaðurinn verð-
ur haldinn á hafnarsvæðinu og
verður veitingamönnum og
matvælaframleiðendum boðið
að kynna vöru sína og selja. Þá
hefur einnig verið veitt stöðu-
leyfi fyrir söluvagni á hafnar-
svæði Stykkishólmsbæjar. Þar
er fyrirhugað að vera með ís-
búð. Tímabil stöðuleyfisins er
frá 15. maí til 30. september.
Nánari staðsetning verður í
samráði við hafnarvörð. –grþ
Sóttu vélarvana
bát að inn-
siglingunni
RIF: Björgunarskip Lands-
bjargar í Rifi var kallað út á
mánudagskvöldið síðasta vegna
trillu sem hafði bilað í innsigl-
ingunni að höfninni. Einn mað-
ur var um borð. Talin var nokk-
ur hætta á ferðum þar sem bát-
inn rak að landi og var björg-
unarskipið því kallað út á fyrsta
forgangi. Aðeins liðu fjór-
ar mínútur frá því að útkallið
barst og þar til björgunarskip-
ið var komið að bilaða bátnum.
Bæði var stutt að fara og skip-
stjórinn var við vinnu við hafn-
arvogina þegar kallið kom. Bát-
urinn var tekinn í tog og dreg-
inn til hafnar og var útkallinu
lokið á um 20 mínútum. –mm
Áhyggjur vegna
framtíðar FSN
SNÆFELLSNES: Á fundi
bæjarstjórnar Stykkishólms
13. maí síðastliðinn lýsti Lár-
us Ástmar Hannesson bæjar-
fulltrúi yfir áhyggjum sínum
varðandi framtíð Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga. Sturla
Böðvarsson bæjarstjóri gerði
grein fyrir fundi sínum, bæjar-
stjóra Grundarfjarðar og Snæ-
fellsbæjar með Illuga Gunn-
arssyni menntamálaráðherra.
Á honum kom fram að staða
skólameistara Fjölbrautaskóla
Snæfellinga verði auglýst en
hann hefur sagt upp störfum.
Í framhaldinu lagði Lárus Ást-
mar fram eftirfarandi bókun:
„Undirrituð harma þá stöðu
sem uppi er varðandi Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga. Frá
haustmánuðum hefur verið
vegið verulega að starfi skól-
ans og virðist ekkert lát vera á.
Ekki hefur enn verið auglýst
eftir skólameistara en marg-
ar vikur eru frá því að fráfar-
andi skólameistari sagði starfi
sínu lausu. Svo virðist sem
neyða eigi skólann til samein-
ingar við aðra framhaldsskóla.
Einnig lýsum við miklum von-
brigðum með að ekki enn hef-
ur verið boðað til fundar með
sveitarstjórnum svæðisins
vegna þessa mikilvæga máls og
leggjum enn og aftur áherslu á
að það verði gert hið fyrsta.“
–mþh
Hafliði Páll
verður aðstoðar-
skólameistari
AKRANES: Gengið hefur
verið frá ráðningu Hafliða Páls
Guðjónssonar í stöðu aðstoð-
arskólameistara Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akra-
nesi. Tekur hann við starfinu
1. ágúst næstkomandi. Á vef
skólans kemur fram að fjórtán
sóttu um stöðuna.
–mm
Fulltrúar Íbúasamtaka Hvanneyr-
ar og nágrennis sátu fund með nýr-
áðnum ráðgjafa í fræðslumálum hjá
Borgarbyggð, Gunnari Gíslasyni,
þriðjudaginn 12. maí. Umræða
fundarins var hagræðing í fræðslu-
málum sveitarfélagsins en háværar
raddir hafa verið á sveimi í Borgar-
byggð um mögulega lokun Hvann-
eyrardeildar Grunnskóla Borgar-
fjarðar. Íbúasamtökin óskuðu eftir
fundi með ráðgjafanum en á fund-
inum var mikilvægi þessarar deild-
ar fyrir Hvanneyri og Borgarbyggð
alla rætt. Til að auðvelda nýráðn-
um ráðgjafa verkið ákváðu Íbúa-
samtökin því að taka saman skýrslu
um mikilvægi skólastarfs á Hvann-
eyri og afhentu þau ráðgjafanum
skýrsluna í upphafi fundar. Ákvörð-
un í málinu verður tekin á sveitar-
stjórnarfundi í lok maí en það kom
fram á fundi Íbúasamtakanna með
byggðarráði Borgarbyggðar 7. maí
síðastliðinn, eins og greint var frá í
síðasta Skessuhorni.
mm
HB Grandi hefur selt uppsjávar-
skipin Ingunni AK og Faxa RE
til Vinnslustöðvarinnar í Vest-
mannaeyjum. Með skipunum
fylgir 0,676% aflahlutdeild í loðnu
af kvóta HB Granda í stofninum.
Þetta kemur fram í tilkynningu
sem HB Grandi sendi Kauphöll
Íslands seint á mánudagskvöld.
Heildarsöluverð er 2.150 millj-
ónir króna. Þessi sölusamning-
ur er gerður með fyrirvara um að
stjórnir þeirra samþykki hann.
Ingunn AK verður afhent nýj-
um eigendum 3. júlí. Faxi verð-
ur síðan afhentur í desember. Ing-
unn var smíðuð árið 2000 en Faxi
er frá 1987. Nýtt uppsjávarskip HB
Granda, Venus NS, er nú á leið til
landsins frá skipasmíðastöð í Tyrk-
landi. Aðfaranótt mánudagsins
sigldi það vestur og út gegnum Gí-
braltarsund. Menn úr áhöfn Ing-
unnar fara yfir á það skip en Guð-
laugur Jónsson skipstjóri sem ver-
ið hefur með Ingunni verður skip-
stjóri á Venusi. Ingunn var í byrj-
un vikunnar á leið frá Færeyjamið-
um til Vopnafjarðar með kolmun-
nafarm en Faxi RE var við lönd-
un þar. Líklegt má telja að menn af
Faxa fari yfir á annað nýtt uppsjáv-
arskip HB Granda sem er í smíðum
í Tyrklandi. Hefur það hlotið nafn-
ið Víkingur AK og á að koma til Ís-
lands síðar á árinu.
Þriðja uppsjávarskipi HB Granda
sem er Lundey NS hefur nú ver-
ið lagt í Akraneshöfn og er skipið
á sölu. Áhöfn þess hefur verið af-
skráð. Sjá nánar frétt á síðu 11.
mþh
Ingunn AK og og Faxi RE
seld til Vestmannaeyja
Faxi RE 9 við loðnulöndun í Akraneshöfn.Ingunn AK 150 landar loðnu á Akranesi nú í vetur.
Fulltrúar Íbúasamtaka Hvanneyrar og nágrennis með skýrsluna fyrir utan ráð-
húsið. F.v. Sólrún Halla Bjarnadóttir, Birgitta Sigþórsdóttir, Álfheiður Sverrisdóttir,
Sigurður Guðmundsson og Borgar Páll Bragason.
Afhentu skýrslu um mikilvægi
skólastarfs á Hvanneyri