Skessuhorn - 20.05.2015, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Nafn: Tinna Pétursdóttir.
Fjölskylduhagir/búseta: Gift
og á tvö börn, 5 ára og 3ja ára.
Starfsheiti/fyrirtæki: Nuddari á
snyrtistofunni Face á Akranesi.
Áhugamál: Blak og að ferðast.
Dagurinn: Miðvikudagur í maí.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði kl. 7:30,
klæddi börnin og mig. Svo var
farið með þau í leikskólann.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Ristað brauð með osti og kaffi.
Ég get ekki byrjað daginn án
kaffibolla!
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Korter í níu var far-
ið í vinnuna á bílnum. Þar sem
ég er oft að fara að nudda tvisv-
ar yfir daginn og vill nýta lausan
tíma inn á milli þá er ég því mið-
ur oftast á bíl.
Fyrstu verk í vinnunni? Þar
sem ég er nuddari og fullt bók-
að í dag þá var farið í að búa um
nuddbekkinn, kveikja á hitateppi
og slökunartónlist.
Hvað varstu að gera klukk-
an 10? Þá var ég að skipta um
á nuddbekknum mínum og gera
klárt fyrir næsta kúnna.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Klukkan hálf tólf byrjaði 90 mín-
útna eyða áður en næsti kúnni
kom. Þá fór ég að fá mér hádeg-
ismat og í matvörubúð að kaupa
inn fyrir heimilið. Svo heim að
ganga frá.
Hvað varstu að gera klukk-
an 14? Þá var ég að klára nudd
og skipta á bekknum fyrir næsta
nudd.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Ég
fer úr vinnufötunum og geri
bekkinn kláran fyrir kvöldið þar
sem ég er með einn viðskiptavin
sem kemur kl. 18:15.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Klukkan 15:30 náði ég í krakk-
ana og við fórum heim að leika
okkur þar til þau fóru í pössun
hjá ömmu sinni klukkan sex. Þá
þurfti ég að fara og nudda síð-
asta líkamann fyrir daginn.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Krakkarnir borðuðu
kvöldmat hjá ömmu sinni sem
hún eldaði. Ég greip bara einn
banana áður en ég fór aftur í
vinnuna og fékk mér svo skyr
þegar ég kom heim eftir blakæf-
ingu.
Hvernig var kvöldið? Var í blaki
frá klukkan hálf átta til níu.
Hvenær fórstu að sofa? Ég fór
nú ekki að sofa fyrr en rétt fyrir
miðnætti.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Ég horfði á sjónvarpið
eftir soldið langan vinnudag.
Hvað stendur uppúr eftir
daginn? Það er nú voða lítið þar
sem þessi dagur var óvenju mik-
ið fram og tilbaka.
Eitthvað að lokum? Ég verð nú
að taka fram að þetta er nú ekki
alveg hefðbundinn dagur hjá
mér þar sem ég var óvenju mikið
bókuð á snyrtistofunni.
Dag ur í lífi...
Dagur í lífi nuddara
Rækjukvótinn
aukinn við Nesið
SNÆFELLSNES: Haf-
rannsóknastofnun hef-
ur lokið árlegri stofnmæl-
ingu sinni á rækju við Snæ-
fellsnes. Á grundvelli henn-
ar leggur stofnunin nú til að
leyft verði að veiða 700 tonn
af rækju við nesið frá 1. maí
2015 til 15. mars 2016. Ástand
rækjustofnsins er talið ágætt á
svæðinu. Svokölluð stofnvísi-
tala mældist yfir meðallagi.
Stærð rækju í Breiðafirði var
123 stk/kg en hún taldist 167
stk/kg í Kolluál og eru þetta
svipuð niðurstaða talningar
og fékkst í stofnmælingu árið
2014. Meira mældist af rækju
í Breiðafirði en í fyrra. Lítið
var af fiski á slóðinni. Rann-
sóknirnar fóru fram á Dröfn
RE 35 dagana 22. til 26. apríl.
Sjávarútvegsráðuneytið hef-
ur í framhaldi af þessu auk-
ið rækjukvótann við Snæfells-
nes úr 600 tonnum í 833 tonn
á yfirstandandi fiskveiðiári. Í
nýrri reglugerð frá ráðuneyt-
inu kemur fram að veiðitíma-
bil rækju við Snæfellsnes sé frá
og með 1. september 2014 til
og með 31. ágúst 2015. Veið-
ar á rækju við Snæfellsnes eru
óheimilar frá og með 15. mars
til og með 30. apríl ár hvert. Í
reglugerðinni er einnig kveð-
ið á um að heimilt sé að flytja
óveitt aflamark rækju við
Snæfellsnes frá fiskveiðiárinu
2014/2015 yfir á fiskveiðiárið
2015/2016.
–mþh
Aflatölur fyrir
Vesturland
9. - 15. maí 2015.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 25 bátar.
Heildarlöndun: 77.998 kg.
Mestur afli: Akraberg ÓF:
20.499 kg í fjórum löndunum.
Arnarstapi 31 bátur.
Heildarlöndun: 164.176 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs
SH: 49.011 kg í sex löndun-
um.
Grundarfjörður 37 bátar.
Heildarlöndun: 244.981 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
67.545 kg í einni löndun.
Ólafsvík 38 bátar.
Heildarlöndun: 402.520 kg.
Mestur afli: Kristinn SH:
58.219 kg í sex löndunum.
Rif 44 bátar.
Heildarlöndun: 583.151 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
144.920 kg í tveimur löndun-
um.
Stykkishólmur 12 bátar.
Heildarlöndun: 14.157 kg.
Mestur afli: Kári SH: 4.050
kg í einni löndun.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Tjaldur SH – RIF:
74.903 kg. 13. maí
2. Tjaldur SH – RIF:
70.017 kg. 9. maí
3. Hringur SH – GRU:
67.545 kg. 12. maí
4. Örvar SH – RIF:
61.601 kg. 13. maí
5. Helgi SH – GRU:
49.366 kg. 10. maí
mþh
Verkum miðar vel við að undirbúa
hvalvertíð sumarsins í hvalstöð Hvals
hf. í Hvalfirði. Þar hefur stór hóp-
ur iðnaðar- og verkamanna starfað
í allan vetur við endurbætur og ný-
byggingar á húsakosti. Nýtt hús fyr-
ir kjötvinnslu er risið á vinnusvæði
hvalstöðvarinnar. Þar verður stund-
uð pökkun og frysting á hvalkjöti á
komandi vertíð en hvalskurði hefur
nú verið hætt á Akranesi. Sú vinnsla
verður í staðinn stunduð í Hvalfirði.
Einnig er búið að reisa nýtt hús með
góðri búningsaðstöðu fyrir hval-
skurðarmenn á plani. Sömuleiðis
eru menn komnir vel á veg með að
stækka gistirými fyrir hvalskurðar-
menn í búðum Hvals hf. í bragga-
hverfinu á Miðsandi, eins og nýver-
ið var sagt frá í Skessuhorni. Það
reyndist nauðsynlegt þar sem ljóst
er að starfsmönnum í hvalstöðinni
mun fjölga nokkuð nú þegar skurð-
ur og snyrting á hvalkjöti hefur færst
inn í Hvalfjörð. Um leið og þetta
gerist þá eru hvalbátarnir Hvalur 8
og Hvalur 9 teknir í slipp í Reykja-
vík. Það er því ljóst að hvalvertíð er
undirbúin af kappi þó að hugsanleg
verkföll í lok maí gætu sett þar strik
í reikninginn.
mþh
Framkvæmdir fyrir hvalvertíð
ganga vel í Hvalfirði
Horft yfir hvalstöð Hvals hf. um síðustu helgi. Fyrir miðju á myndinni er hið nýja
kjötvinnsluhús sem nú er risið.
Verið er að stækka og breyta gömlu tómstundahúsi í braggahverfinu á Miðsandi
í gistiskála fyrir hvalskurðarmenn. Húsið kallast „Tempó“ og verður alls 168
fermetrar að flatarmáli.
Bændasamtökin hafa um árabil gef-
ið út litaveggspjöld af íslensku búfé.
Í fyrrahaust kom út nýtt spjald með
geitinni. Nú eru það hins vegar
landnámshanar-, landnámshænur og
ungar þeirra sem komin eru á prent.
Alls eru myndirnar 26 talsins með
öllu þessu fiðurfé við ýmsar aðstæð-
ur í lífsbaráttunni. Nýja hænsna-
veggspjaldið er litríkt eins og fyrir-
sæturnar og fáanlegt hjá Bændasam-
tökunum. Tvær stærðir eru í boði,
A3 og stór veggspjöld í stærðinni 61
x 87 cm. Minni gerðin kostar 900 kr.
og sú stærri 1.500 kr. Tekið er við
pöntunum í netfangið jl@bondi.is
eða í síma 563-0300.
mþh
Landnámshænur í lit
Nýja veggspjaldið er augnayndi og þarf ekki að koma á óvart enda íslensk
hænsni glæsilegir fuglar.
Ungmennafélag Grundarfjarðar hélt
aðalfund þann 12. maí síðastliðinn. Í
reikningum félagsins kemur fram smá
hagnaður eftir árið. Þá voru siðareglur
félagsins lagðar fram til samþykktar.
Einnig kom fram á fundinum að Kári
Pétur Ólafsson formaður félagsins
gaf ekki kost á sér til áframhaldandi
setu og var það lagt í hendur starfandi
stjórnar að finna eftirmann hans.
Frá vinstri eru: Kári Pétur Ólafs-
son fráfarandi formaður, Dagný Ósk
Guðlaugsdóttir ritari, Halldóra Dögg
Hjörleifsdóttir meðstjórnandi og Sól-
berg Ásgeirsson gjaldkeri. Á myndina
vantar Pétur Vilberg Georgsson með-
stjórnanda sem komst ekki á fund.
tfk
Leita að nýjum formanni í Umf. Grundarfjarðar