Skessuhorn - 20.05.2015, Page 27
27MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Hildur Sigurðardóttir, körfu-
boltakona úr Snæfelli, var kjörinn
íþróttamaður HSH á laugardag-
inn. Íþróttamenn ársins voru kynnt-
ir í íþróttahúsinu í Ólafsvík en HSH
hélt á sama tíma frjálsíþróttamót
sitt þar. Auk þess voru aðrir íþrótta-
menn heiðraðir. Íþróttamaður HSH
er kjörinn af stjórn HSH og for-
mönnum aðildarfélaga sambands-
ins. Auk íþróttamanna er sú hefð að
heiðra þá sem eru að vinna að stjórn-
unar- og þjálfarastörfum hjá aðild-
arfélögum HSH. Þetta árið fengu
þær Kristín Halla Haraldsdóttir og
Björg Ágústsdóttir afhentan Vinnu-
þjark HSH. Viðurkenninguna fá
þær fyrir störf í þágu frjálsra íþrótta
bæði heima í héraði og fyrir Sam-
Vest sem er samstarf sjö íþróttasam-
banda á Vesturlandi og Vestfjörðum
í frjálsum íþróttum.
Eftirtaldir hlutu
viðurkenningar:
Skotíþróttamaður HSH 2014:
Unnsteinn Guðmundsson, Skot-
grund. Unnsteinn sigraði á þeim
leirdúfuskotmótum sem haldin
hafa verið á árinu. Hann tók virkan
þátt í starfsemi félagsins og sá um
kennslu ásamt öðrum á skotvopn-
anámskeiði sem haldið var í sumar.
Hestaíþróttamaður HSH 2014:
Siguroddur Pétursson er hest-
íþróttamaður Snæfellings. Hann
varð í þriðja sæti á landsmótinu í
sumar. Efstur bæði í tölti og fjór-
gangi á íþróttamóti Snæfellings og í
verðlaunasæti á Reykjavíkur-meist-
aramótinu síðastliðið vor.
Frjálsíþróttamaður HSH 2014:
Katrín Eva Hafsteinsdóttir, Umf.
Snæfelli. Katrín var við æfingar og
keppni á árinu. Á Silfurleikunum í
haust náði hún sínum besta árangri
á árinu og varð í 4. sæti í kúluvarpi.
Knattspyrnumaður HSH 2014:
Ásdís Lilja Pétursdóttir, Umf. Vík-
ingi. Ásdís hefur verið lykilleik-
maður í ungu liði Víkings Ó. sem
er að stíga sín fyrstu skref. Er fyr-
irliði liðsins og leiðtogi innan vallar
auk þess að vera góð fyrirmynd.
Blakmaður HSH 2014: Aldís Ás-
geirsdóttir, Umf. Grundarfjarðar.
Aldís er til fyrirmyndar bæði innan
vallar sem utan og var valin Íþrótta-
maður Grundarfjarðar 2014. Hún
var valin í landslið U17 og U19 í
blaki og keppti með báðum liðum
í haust.
Körfuknattleiksmaður HSH
2014: Hildur Sigurðardóttir, Umf.
Snæfelli. Hildur var fyrirliði deild-
ar- og Íslandsmeistara kvennaliðs
Snæfells í vor og var einnig val-
in besti leikmaður síðustu leiktíð-
ar. Hún var svo valin í landslið Ís-
lands sem keppti í C-keppni Evr-
ópukeppninar.
Kylfingur HSH 2014: Hjörtur
Ragnarsson, Golfklúbbnum Jökli.
Hirti gekk vel sumarið 2014. Hann
tók þátt í fjölda móta bæði hjá Jökli
sem og hjá nágrannaklúbbum á
Snæfellsnesi og lækkaði í forgjöf úr
10 niður í 6,9. Hann er öðrum kylf-
ingum góð fyrirmynd.
Vinnuþjarkur HSH 2014: Full-
trúar HSH í SamVest hópunum.
Björg Ágústsdóttir og Kristín Halla
Haraldsdóttir fyrir frábært og öt-
ult frumkvöðlastarf í þágu frjálsra
íþrótta.
af
ÍA mætti lærisveinum Ólafs Þórð-
arsonar í Víkingi R. á Akranesvelli
á sunnudagskvöldið. Aðstæður til
knattspyrnuiðkunar voru ekki þær
bestu; kalt og nokkuð mikill hlið-
arvindur en völlurinn leit vel út.
Leikurinn fór rólega af stað þar sem
bæði lið þreifuðu fyrir sér. Víking-
ar komust yfir á 17. mínútu þegar
Haukur Baldvinsson fékk knöttinn
í vítateig Skagamanna, kom skoti að
marki sem fór af varnarmanni og í
netið. Víkingar voru beittari fyrstu
mínúturnar þar á eftir en leikurinn
opnaðist eftir því sem leið á hálf-
leikinn. Bæði lið áttu skot í þverslá,
Skagamenn úr aukaspyrnu Jóns
Vilhelms Ákasonar og Víkingar
eftir skyndisókn. Á 42. mínútu átti
Jón Vilhelm svo fyrirgjöf frá hægri
sem féll fyrir fætur Garðars Gunn-
laugssonar. Hann lagði boltann fyr-
ir sig og smellti honum í nærhornið
úr vítateignum. Staðan 1-1 í hálf-
leik, nokkuð sanngjarnt þrátt fyrir
að Víkingar hafi ef til vill verið ögn
sterkari.
Í síðari hálfleik var annar bragur
á sóknarleik Skagamanna, leikur-
inn opnari og bæði lið sóttu. Skaga-
menn sköpuðu sér nokkur ákjósan-
leg marktækifæri, flest eftir laglegt
kantspil og voru nálægt því að koma
boltanum í netið, en allt kom fyr-
ir ekki. Tvisvar sinnum á skömm-
um tíma björguðu leikmenn Vík-
ings á marklínu og þrátt fyrir mörg
tækifæri vantaði herslumuninn hjá
heimamönnum.
Á 85. mínútu fékk Agnar Darri
Sverrisson sendingu inn fyrir vörn
Skagamanna, var kominn í dauða-
færi og gat stolið sigrinum en Árni
Snær varði stórvel í markinu. Vík-
ingar komu reyndar boltanum í
netið í uppbótartíma en mark Igors
Taskovic var dæmt af vegna brots
á Árna Snæ í marki Skagamanna.
Stuðningsmenn Víkings voru
ekki par sáttir með Guðmund Ár-
sæl Guðmundsson dómara en þar
við sat, niðurstaðan 1-1 jafntefli á
Akranesvelli.
Næsti leikur Skagamanna er í
kvöld, miðvikudag, klukkan 19:15
gegn FH á Kaplakrika.
kgk/ Ljósm. Guðmundur Bjarki
Halldórsson.
Káramenn mættu Víði frá Garði í
Akraneshöllinni síðastliðinn laug-
ardag. Leikurinn var ójafn frá
fyrstu mínútu, heimamenn í Kára
voru miklu sterkari og leiddu 3-0
í hálfleik með tveimur mörkum
Fjalars Arnar Sigurðssonar og einu
marki Sverris Mars Smárasonar.
Káramenn héldu uppteknum hætti
í þeim síðari, Fjalar bætti tveimur
mörkum við en liðið hefði hæglega
getað skorað fleiri, því þeir áttu
fjölmörg tækifæri og skutu meðal
annars í stöng. Á 81. mínútu tækl-
aði Jósef Halldór Þorgeirsson leik-
mann Víðis á miðjunni. Sá brást
ókvæða við, tók Jósef hálstaki sem
missti við það stjórn á skapi sínu
og svaraði í sömu mynt. Uppskáru
báðir rautt spjald fyrir vikið. Liðin
léku því með tíu leikmenn hvort lið
síðustu mínútur leiksins. Lokatölur
5-0, Kára í vil.
Landsliðsmaður Tógó
til félagsins
Einhver óvæntustu félagaskipti
knattspyrnusumarsins, hingað til
að minnsta kosti, gengu í gegn fyr-
ir helgi þegar miðjumaðurinn Fa-
rid Zato gekk til liðs við Kára eftir
að samningur hans við KR rann út.
Farid er landsliðsmaður Tógó og
gekk til liðs við KR í fyrra. Hann
fótbrotnaði hins vegar fyrr á árinu
og hefur ekki náð sér að fullu eft-
ir þau meiðsli. Þrátt fyrir að geta
ekki byrjað að leika með Kára strax
vegna meiðsla er ljóst að Farid er
mikill fengur fyrir félagið.
Káramenn hafa verið dugleg-
ir að styrkja sig í sumar. Á dögun-
um gekk hinn 28 ára gamli Heimir
Einarsson til liðs við félagið. Hann
var fastamaður í vörn ÍA á sínum
tíma en lagði skóna á hilluna árið
2011 vegna meiðsla. Nú hefur hann
hins vegar dregið þá fram aftur og
mun leika með Kára í þriðju deild-
inni í sumar.
kgk
Ásgeir Marteinsson var valinn maður leiksins og því verðlaunaður sérstaklega
fyrir frammistöðu sína. Hér má sjá Elísabetu Ragnarsdóttur veita Ásgeiri
verðlaunin.
Jafntefli í leik ÍA og
Víkings á Akranesvelli
Ármann Smári Björnsson fyrirliði ÍA.
Það var kalt á Akranesvelli á sunnudaginn og áhorfendur flestir vel klæddir. Hér
eru gömlu kempurnar Guðjón Guðmundsson læknir og Hörður Pálsson bakari á
sínum stað í stúkunni.
Farid Zato. Ljósm. af kr.is
Káramenn völtuðu yfir Víði
Lið Kára fyrir leik í fotbolti.net mótinu fyrr í vor.
Hildur Sigurðardóttir var kjörin
íþróttamaður ársins hjá HSH.
Hildur Sigurðardóttir er íþróttmaður HSH
Íþróttamenn HSH 2014.