Skessuhorn


Skessuhorn - 08.07.2015, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 08.07.2015, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 20152 Leiðrétting Í síðasta tölublaði var viðtal við Gyðu Jónsdóttur Wells, bæjar- listamann Akraness. Þekktasta verk Gyðu á Akranesi er stytta af hjónum sem stendur við Har- aldarhús á Vesturgötu. Í viðtal- inu og í myndatexta var sagt að styttan væri af hjónunum Har- aldi Sturlaugssyni og Ingunni Sveinsdóttur. Það er að sjálf- sögðu ekki rétt, heldur er hún af Haraldi Böðvarssyni og Ing- unni Sveinsdóttur. Þetta er leið- rétt hér með og beðist velvirð- ingar á mistökunum. –grþ Erilsöm vika VESTURLAND: Töluverð- ur erill var hjá embætti lögregl- unnar á Vesturlandi um liðna helgi, enda Írskir dagar á Akra- nesi og Ólafsvíkurvaka\ á Snæ- fellsnesi. Annars fóru báðar há- tíðirnar vel fram, að sögn lög- reglu, og lítið um alvarleg of- beldismál. Einna helst að menn væru í minniháttar pústrum og væringum að nóttu til. Haldið var uppi ströngu eftirliti með ölvunar- og fíkniefnaakstri og fengu margir ökumenn að blása hjá lögreglunni. Alls voru 18 ökumenn teknir fyrir meinta ölvun við akstur um helgina, flestir á Akranesi. Þá voru tíu ökumenn teknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna, flestir í tengslum við Írska daga. Þá lagði lögreglan hald á um 15 gr. af kannabisefnum og nokkur grömm af ætluðu amfetamíni á Akranesi. Alls urðu ellefu um- ferðaróhöpp í umdæmi LVL í liðinni viku, þar af þrjú þar sem að ekið var á slá við Hvalfjarð- argöngin. Flest óhöppin voru án teljandi meiðsla fyrir utan meiðsl mótorhjólamannsins á Holtavörðuheiðinni á laugar- daginn og greint er frá í annarri frétt í blaðinu. –mm Vilja styðja Norð- lendinga í sjón- varpsþáttagerð DALIR: Stjórn Samtaka sveit- arfélaga á Vesturlandi hefur sent fyrirspurnir um hvort sveitar- félögunum á Vesturlandi hugn- ist að skoðað verði samstarf við sjónvarpsstöðina N4 um gerð sjónvarpsþátta um Vesturland. Einnig er spurt hvort sveitar- félögin væru tilbúin til að taka að einhverju leyti þátt í því að fjármagna þáttagerðina. Byggð- aráð Dalabyggðar tók þessa fyr- irspurn til umfjöllunar á fundi sínum 30. júní og tekur jákvætt í að Dalabyggð taki þátt í sam- starfinu. -mþh Hvanneyrarhátíð verður haldin næstkom- andi laugardag. Þar má finna fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Fornbílasýn- ing, markaður, ratleikur, kenndur pönnu- kökubakstur og margt fleira verður á dag- skrá. Að lokum verða tónleikar í hlöðu Hall- dórsfjóss þar sem hljómsveitin Veturhús ætlar að spila. Sjá nánar í Skessuhorni í dag. Á fimmtudag spáir norðlægri átt, 3-8 m/s og skýjað með dálítilli vætu fyrir norðan og austan, jafnvel slydda til fjalla. Annars bjart- viðri á köflum. Hiti 5-15 stig, hlýjast suðvest- anlands, en kaldast á norðanverðu land- inu. Á föstudag verður norðlæg átt, yfirleitt 3-10 m/s og tiltölulega skýjað og úrkoma á víð og dreif, síst þó á Vesturlandi. Hiti breyt- ist lítið. Á laugardag má búast við norðaust- an 10-15 m/s með suðausturströndinni og norðvestanlands en hægari vindur annars staðar. Rigning suðaustan- og austanlands, annars þurrt að mestu og bjartviðri á köfl- um vestanlands. Hlýnar heldur. Á sunnudag og mánudag er útlit fyrir áframhaldandi norðaustlæguar áttir með vætu öðru hverju norðan- og austanlands, en björtu á köfl- um suðvestan- og vestanlands. Hiti verður á bilinu 6-16 stig, mildast á suðvesturlandi. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns „Myndir þú nýta Sundabraut gegn gjaldi?“ Flestir sem svöruðu sögðust örugglega nýta sér hana eða 41,69%. „Já, sennilega“ svör- uðu 18,55%. „Veit ekki“ svöruðu 8,43%. „Nei, líklega ekki“ svöruðu 11,81% og 19,52% þeirra sem svöruðu myndu örugglega ekki nýta sér Sundabrautina gegn gjaldi. Í næstu viku er spurt: Þegar þú ferð í útilegu - hvar sefur þú? Fólkið sem tekur upp á sitt einsdæmi að þrífa upp eftir aðra þegar fjölmennar sam- komur hafa skilið eftir sig rusl, eru Vestlend- ingar vikunnar. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpiehf.is HAFÐU SAMBAND Hinir árlegu Bátadag- ar á Breiðafirði fóru í átt- unda sinn fram um síðast- liðna helgi, að þessu sinni í glaðasólskini og hægviðri. Það er Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarð- ar sem stendur fyrir hátíð- inni í samvinnu við Báta- og hlunnindasýninguna á Reyk- hólum. Á hátíðinni koma eigendur trébáta saman og sigla um Breiðafjörð eft- ir fyrirfram ákveðnum leið- um. Siglingin hófst á laugar- dagsmorgun þegar lagt var upp frá Staðarhöfn á Reykjanesi og voru fjögur nes heimsótt; Skálmarnes, Svínanes, Bæjarnes í Múlasveit og Skálanes í Gufudalssveit. Þaðan var haldið aftur að Stað á Reykjanesi. Að sögn Sigurðar Berg- sveinssonar gekk hátíð- in ljómandi vel í ár. „Það var blíðuveður og áætl- un hélst vel. Þetta voru sex bátar sem tóku þátt í ár og um 35 manns. Við grilluð- um svo saman um kvöldið á Báta- og hlunnindasýning- unni á Reykhólum og það gekk ljómandi vel líka. Það má því segja að þetta hafi heppnast vel, við höfum oft verið óheppin með veður en það var svo sannarlega ekki í ár,“ sagði Sigurður í samtali við Skessuhorn. grþ Laugardaginn 27. júní síðastlið- inn settu félagar í Skógræktarfélagi Skilmannahrepps niður þrjár birki- plöntur af yrkinu emblu, á svæði félagsins á flöt sem kölluð er Spari- flötin. Plönturnar útvegaði Skóg- ræktarfélag Íslands. Var þetta gert í tilefni að 35 ár eru frá kjöri Vigdísar Finnbogadóttur til forseta Íslands. Mættir voru tíu félagar, fulltrúi Hvalfjarðarsveitar og þrjár ungar stúlkur, sem tóku þátti í að gróð- ursetja plönturnar. Auk þeirra voru þrír gestir. Veður var hið fegursta, logn og sólskin. Athöfnin gekk vel og að lokum var tekið lagið Nú er sumar. Síðan var gengið upp í Furu- hlíð og þegnar veitingar. bþ Síðastliðinn laugardag bauð Sjó- baðsfélag Akraness til sjósunds til minningar um Helga Hannesson, sundkennara og sjósundskappa á Akranesi sem lést í vetur, 76 ára að aldri. Um Helga segir á heima- síðu Sundfélags Akraness að hann hafi haft sérgáfur sem sundkennari og búið til afreksfólk í sundi, þar af tvo Íþróttamenn ársins, Norð- urlandameistara, Íslandsmeistara og landsliðsfólk í sundi. Hann hafi verið hvatamaður mikill og áhuga- maður um sjósund og Akurnes- ingar minnist hans með þakklæti og virðingu fyrir óeigingjarnt lífs- starf. Sjósund hefur verið liður í dag- skrá Írskra daga á Akranesi und- anfarin ár en ákveðið var nú að synda í minningu Helga. Synt var frá Sementsbryggjunni að Merk- jaklöpp á Langasandi, um það bil 900m vegalengd. „Sundið fór fram í blíðskaparveðri þar sem 15 sjósundsgarpar tóku þátt, þar af nokkrir af helstu sjösundsköpp- um landsins. Félagar úr Björgun- arfélagi Akraness fylgdu hópnum á þremur kajökum,“ sagði Bjarn- heiður Hallsdóttir, stjórnarmaður í Sjóbaðsfélagi Akraness, í samtali við Skessuhorn. „Það var alveg frábær stemning, brillíant veður og selur sem fylgdi okkur eins og skugginn megnið af ferðinni. Sem betur fer sáu fæstir sundmenn til hans,“ segir Bjarn- heiður létt í bragði. „Svo var boðið upp á heitt kakó og kleinur í heita pottinum eftir sundið,“ bætir hún við að lokum. Sjóbaðsfélagið heldur upptekn- um hætti næsta laugardag þegar farið verður Skarfavararsund frá Skarfavör og upp á Langasand. kgk Helgasund í blíðskaparveðri í minningu Helga Hannessonar Sjósundsgarparnir skömmu áður en þeir stungu sér til sunds frá Sementsbryggjunni og syntu sem leið lá að Langasandi. Ljósm. Guðni Hannesson. Bátadagar á Breiðafirði fóru fram í blíðskapar veðri um helgina. Ljósm. Goddur. Glaðasólskin var á Bátadögum á Breiðafirði Gróðursetning á Vigdísar- plöntum í Skilmannahreppi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.