Skessuhorn


Skessuhorn - 08.07.2015, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 08.07.2015, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2015 31 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA Bílaumboðið Askja hefur undan- farin ár verið einn af aðal styrktar- aðilum Knattspyrnufélags ÍA. Nú hefur ÍA endurnýjað samstarfs- samninginn við Öskju til þriggja ára. Í frétt á heimasíðu KFÍA segir að endurnýjunin sé félaginu mikið ánægjuefni. Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, tekur í sama streng í samtali. „Samstarfið við ÍA hefur verið gott og farsælt. Félagið er á réttri leið í uppbygg- ingarstarfsemi og með góðu yngri flokka starfi karla og kvenna þá er það okkur ánægjuefni að halda áfram samstarfi við Knattspyrnu- félag ÍA,“ segir Jón Trausti í frétt á heimasíðu félagsins. -kgk Síðastliðinn laugardag var leikið um hinn árlega Kristmundarbikar í golfi í Grundarfirði. Leikið var með Texas Scramble fyrirkomulagi með samanlagðri forgjöf deilt með þremur. Með sigur úr býtum fóru þeir Margeir Ingi Rúnarsson og Gunnar Björn Guðmundsson á 64 höggum. Í öðru sæti höfnuðu þeir Bent Russell og Guðni Hallgrímsson, einnig á 64 höggum. Það eina sem skildi liðin að voru betur leiknar holur Margeirs og Gunnars á seinni níu. Þriðja sætið hrepptu svo Jófríður Friðgeirsdóttir og Steinar Alfreðsson á 65 höggum. Að loknu móti var boðið til veisluborðs sem ættingjar Kristmundar Harðarsonar sáu um af miklum myndarskap og eiga þeir þakkir skildar fyrir það. sk/kgk Opna Guinnes mótið í golfi fór fram á Garðavelli á Akranesi síðast- liðinn laugardag í tilefni af Írskum dögum. Alls tóku 144 kylfingar þátt í mótinu og voru bæði veður og vallaraðstæður með frábæru móti, að sögn Guðmundar Sigvaldason- ar framkvæmdastjóra Golfklúbbs- ins Leynis. Hann vildi fyrir hönd Leynis koma á framfæri þökkum til Ölgerðarinnar, Galito, Slippbars- ins og Icelandair hótel Reykjavík Marina fyrir stuðninginn við mót- ið og öllum keppendum fyrir þátt- tökuna. Úrslit voru eftirfarandi: 1. sæti: United (Ingi Rúnar Gísla- son GR/Aron Skúli Ingason GM), 58 högg nettó. 2. sæti: Stjarnan (Tinna Jóhanns- dóttir GK/Jóhann Sigurbergsson GK), 63 högg nettó (betri á seinni níu). 3. sæti: Svört Sól (Hróðmar Hall- dórsson GL/Stefán Orri Ólafsson GL), 63 högg nettó. Nándarverðlaun á par 3 holum: 3. hola: Árni Geir Ómarsson GKB, 1.26 m 8. hola: Axel Bóasson GK, 37 cm 14. hola: Axel Fannar Elvarsson GL, 2.32 m 18. hola: Magnús Lárusson GJÓ, 1.55 m grþ Sundtímabilinu lauk hjá Sund- félagi Akraness með þátttöku kepp- enda félagsins í Aldursflokkameist- aramóti Íslands á Akureyri helgina 25.-28. júní síðastliðna. Félagið sendi 25 sundmenn til keppni og sneru þeir heim með samtals 35 verðlaunapeninga: Þrjú gull-, 14 silfur- og 18 bronsverð- laun. Alls settu keppendurnir 25 úr SA 85 persónuleg met í 121 stungu og skilaði það liðinu sjötta sæti í liðakeppni með 352 stig. Lið SA eignaðist þrjá aldurs- flokkameistara. Sigrún Sigþórs- dóttir sigraði í 200m fjórsundi 18 ára og eldri, Patrekur Björgvins- son sigraði 100m baksund í 17 ára flokki og Una Lára Lárusdóttir varð hlutskörpust í 100m baksundi í flokki 16 ára. kgk Síðastiðinn fimmtudag gerðu leik- menn ÍA sér ferð suður með sjó og mættu Keflavík í fyrstu deild kvenna í knattspyrnu. Það byrjaði ekki vel hjá Skagakonum sem urðu manni færri strax á sjöundu mín- útu leiksins þegar Hulda Margrét Brynjarsdóttir fékk að líta rauða spjaldið fyrir brot á leikmanni Keflavíkur. Aðeins mínútu síðar skoruðu heimamenn fyrsta mark leiksins. Eftir erfiðar upphafsmínútur sóttu Skagakonur í sig veðrið og komust meira inn í leikinn eftir því sem leið á hálfleikinn. Þær börðust áfram og fengu nokkur færi þar til Maren Leósdóttir jafnaði metin á síðustu mínútu fyrri hálfleiks. Þrátt fyrir að vera manni færri allan síðari hálfleikinn voru Skaga- konur síst lakari aðilinn í leikn- um. Þær fengu nokkur ákjósan- leg marktækifæri sem tókst þó ekki að nýta og niðurstaðan 1-1 jafnt- efli í Keflavík, sem hlýtur að teljast ásættanlegt í ljósi þess að þær léku manni færri nær allan leikinn. Úrslitin þýða að Skagakonur sitja í fjórða sæti riðilsins með átta stig eftir fimm leiki. Næst mæta þær Augnabliki í Fífunni í Kópavogi á morgun, fimmtudaginn. 9. júlí. kgk Orkumótið í Vestmannaeyjum var haldið dagana 25. - 27. júní sl. en þar voru um 1200 peyjar á aldrin- um 9 og 10 ára að spila fótbolta. Tvö lið mættu frá Snæfellsnesi og stóðu þau sig bæði með prýði. Mik- ill vindur var í Vestmannaeyjum þessa daga en drengirnir létu það ekki á sig fá og spiluðu knattspyrnu eftir bestu getu. Það voru þreyttir en sælir drengir sem spókuðu sig um í Eyjum seinnipart laugardags og á sunnudag áður en haldið var heim á leið eftir frábært mót. tfk Fimmtudaginn 2. júlí síðastliðinn ferðuð- ust leikmenn Víkings Ó. norður til Akur- eyrar og mættu KA í fyrstu deild karla í knattspyrnu. Nokk- uð jafnræði var með liðunum fyrsta kort- erið en eftir það voru heimamenn sterkari. Þeir pressuðu á gest- ina frá Ólafsvík og markið lá í loftinu. Það var því nokkuð gegn gangi leiksins þegar Emir Dokara kom Víkingi yfir á 30. mínútu leiksins. William Dom- inguez lék á varnarmann KA, lagði boltann út á Emir sem þrumaði honum í markið. KA-menn létu engan bilbug á sér finna og sóttu hart að gestunum líkt og þeir höfðu gert fyrir mark- ið. Sóknartilburðir heimamanna báru árangur á 41. mínútu þeg- ar Elfar Árni Aðalsteinsson jafnaði metin. Eftir laglegan samleik fékk Ben Everson boltann, sendi hann fyrir markið þar sem Elfar var mættur og skoraði örugglega og staðan jöfn í hálfleik. Síðari hálfleik- ur var fjörugri en sá fyrri ef eitthvað var og bæði lið fengu fín marktækifæri. Ben Everson átti skot sem small í þverslánni og William Dominguez átti skot rétt framhjá marki KA-manna eftir góðan sprett upp kantinn. En allt kom fyrir ekki og hvorugu liðinu tókst að skora og jafntefli niðurstaðan norður á Akureyri. Úrslitin þýða að Víkingar sitja í öðru sæti deildarinnar með 20 stig eftir 9 leiki, tveimur stigum meira en Fjarðabyggð sem er í þriðja sæti og fjórum stigum á eftir Þrótti R. sem trónir á toppi deildarinnar. Næst mæta Víkingar einmitt topp- liði Fjarðabyggðar á Eskjuvelli austur á Eskifirði. kgk Víkingur Ó. gerði jafntefli við KA Miðvörðurinn Emir Dokara skoraði mark Víkings í 1-1 jafnteflinu gegn KA í síðustu viku. Maren Leósdóttir jafnaði fyrir ÍA undir lok fyrri hálfleiksins. Skagakonur manni færri nær allan leikinn Una Lára Lárusdóttir og Patrekur Björgvinsson, aldursflokkameistarar í 100m baksundi. Una í flokki 16 ára og Patrekur í flokki 17 ára. Ljósm. ia.is. SA eignaðist þrjá aldursflokkameistara Snæfellingar skelltu sér á Orkumót Hressir Snæfellingar. Hér mæta þeir nágrönnum sínum í ÍA í hörkuleik. ÍA endurnýjar samstarfssamning við Öskju Leikið um Kristmundarbikarinn á Grundarfirði Opna Guinnes mótið á Garðavelli Þessir kylfingar tóku þátt í Opna Guinnes mótinu á Akranesi síðastliðna helgi. Ljósm. Golfklúbburinn Leynir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.