Skessuhorn


Skessuhorn - 08.07.2015, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 08.07.2015, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2015 7 ERTU EFNI Í NÝBAKAÐAN VERSLUNARSTJÓRA? DOMINO’S LEITAR AÐ NÝJUM VERSLUNARSTJÓRA Á AKRANESI Við viljum ráða samviskusama og skipulagða manneskju sem á auðvelt með að hvetja aðra til góðra verka á líflegum og skemmtilegum vinnustað. Verslunarstjóri hefur umsjón með daglegum rekstri verslunar Domino’s á Smiðjuvöllum. Ef þú ert 25 ára eða eldri, hefur leiðtogahæfileika, býrð yfir góðri tölvukunnáttu, talar ensku, hefur ökuréttindi og ert klár í að vinna sjálfstætt og í hóp skaltu endilega senda okkur ferilskrá þína og aðrar upplýsingar á petra@dominos.is. Umsóknarfrestur er til 23. júlí. Öllum umsóknum verður svarað og fullum trúnaði heitið. Freisting vikunnar Yfir hásumarið er nóg að gera í vatnaveiðinni og því margir sem eiga silung. Hægt er að fara ýms- ar leiðir með gott hráefni eins og glænýjan silung. Margir kjósa að láta reykja hann en aðrir vilja elda hann ferskan. Silungurinn er jafnframt einstaklega góð- ur á grillið. Sædís Halldórsdótt- ir deildi með okkur uppskrift af grilluðum silungi sem slær allt- af í gegn þegar hún ber hann á borð. Grillaður silungur með hnet- um og Camembert Það sem þarf: Heill silungur (2-3ja punda sil- ungur er passlegur á mann) Púrrulaukur skorinn smátt Camembert ostur Salthnetur Púðursykur Salt Hvítlaukspipar Álpappír Aðferð: Roðhreinsið silunginn með því að skafa roðið létt með hníf und- ir rennandi vatni (köldu). Af- hausið hann og skerið sporðinn af. Hægt að bera fiskana fram í heilu lagi á hvern og einn eða hluta þá niður. Ath að kviðurinn er fylltur. Myljið salthneturnar, sneiðið púrrulaukinn og bitið niður ca- membert ostinn. Byrjað er á að krydda silunginn að innan og utan með hvítlaukspiparnum og ca 1-3 tsk af púðursykri (fer eft- ir hve fiskurinn er stór), mats- atriði. Sykurinn gerir fiskinn safaríkan. Fyllið síðan silung- inn með púrrulauk, camembert osti og dálítlu af hnetum. Strá- ið síðan salthnetum yfir fiskinn og kryddið með hvítlaukspiparn- um og dálitlu af salti. Pakkið inn í álpappír. Grillað í ca. 12 mín. á hvorri hlið. Borið fram með bakaðri kartöflu, salati og jafn- vel heitu brauði. Beringer hvít- vín passar mjög vel við réttinn. „Þetta er algjört sælgæti og frá- bær tilbreyting í matarboðinu eða hreinlega í útilegunni eftir að hafa dregið fisk á land. Fólk er alltaf jafn hissa á hve bragð- góð þessi silungauppskrift er.“ grþ Gómsætur silungur sem bráðnar í munni Veiði er nú í fullum gangi í lands- hlutanum og því kjörið að skella nýveiddum fiski á grillið. Ingveldur María Hjartardóttir, oft- ast kölluð Inga, er ung Skagakona sem stundar nám við söngdeild Berklee College of Music í Bo- ston í Bandaríkjunum. Hún hefur komist á lista skólans yfir afburða- nemendur, en skólinn þykir einn virtasti tónlistarskóli í heiminum. Hún hlaut á dögunum námsstyrk frá Íslandsbanka ásamt tólf öðrum námsmönnum. Styrkirnir eru veitt- ir nemendum sem þykja hafa skar- að fram úr, hver á sínu sviði. Sam- tals bárust bankanum 300 umsóknir og styrkurinn sem kom í hlut Ingu nam 300 þúsund krónum. „Ég sá þetta bara auglýst á heimasíðunni þeirra og datt í hug að sækja um,“ sagði Inga í samtali við Skessuhorn. „Ég hef sótt um þennan styrk einu sinni áður og sæki bara um allt sem ég get til að reyna að fá smá auka pening,“ segir Inga og hlær við. Aðspurð kveðst hún eiga þrjár annir eftir fram að útskrift. Hennar aðalfag kallast Music Business and Management en þar sem hún taki ekki svokallað undirfag geri það henni kleift að ljúka námi á þrem- ur og hálfu ári í stað fjögurra ann- ars. En hvaða þýðingu hefur þessi nýfengni styrkur frá Íslandsbanka fyrir námsmanninn? „Þessi styrk- ur þýðir að ég næ að greiða niður yfirdráttinn síðan í fyrra. Ég klár- aði það bara á föstudaginn,“ seg- ir hún létt í bragði. „Mig langar að þakka Íslandsbanka kærlega fyrir mig. Nú get ég bara byrjað að safna aftur fyrir næstu önn. Ég væri lík- lega ekki á leiðinni út ef ekki væri fyrir þennan styrk. Það var farið að vera erfitt að ráða við skólagjöldin,“ bætir hún við að lokum. kgk Inga skemmti gestum ásamt hljómsveit á Litlu lopapeysunni, opnunarhátíð Írskra daga, síðastliðinn fimmtudag. Ljósm. kgk. Inga María hlaut veglegan námsstyrk Frá afhendingu styrksins í höfuðstöðvum Íslandsbanka. F.v. Inga María Hjartar- dóttir og Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.