Skessuhorn


Skessuhorn - 08.07.2015, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 08.07.2015, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2015 13 Á fundi fræðslunefndar í Borgar- byggð 23. júní síðastliðinn lögðu fulltrúar VG og Samfylkingar fram bókun þar sem þeir harma litla að- komu nefndarfólks að nokkrum mikilvægum málum. „Við erum að mótmæla því að ákveðin mál hafi ekki fengið tilskylda umræðu í fræðslunefnd. Sérstaklega hvað varðar skýrslu hagræðingarhóps í fræðslumálum og skýrslu vegna leikskólans Hnoðraból en það gekk erfiðlega að fá þau mál á dagskrá funda fræðslunefndar. Við erum að mótmæla því að fræðslunefnd hafi haft litla aðkomu að málum sem lögum samkvæmt falla undir nefnd- ina. Fræðslunefnd ber skylda til að fjalla um mál sem undir nefndina heyra á sínum fundum,“segir Maj- Britt Hjördís Briem fulltrúi Sam- fylkingarinnar í fræðslunefnd. Alls eru fjögur mismunandi mál nefnd í bókuninni. Sagt er frá því að aðkoma fræðslunefndar að vinnu sem tengdist fjárhagsáætlunargerð hafi verið lítil sem engin. Nefnd- in hafi eingöngu fengið kynningu á þeirri áætlun fræðslumála sem lá fyrir, þrátt fyrir að óskað hefði ver- ið eftir frekari aðkomu fræðslu- nefndar að gerð áætlunarinnar. Þá hafi engin fjárhagsáætlun vegna tómstundamála verið lögð fyr- ir fræðslunefnd þrátt fyrir ósk þar um. Því næst er fjallað um skýrslu vinnuhóps um Hnoðraból. Óskað hafi verið eftir því að skýrsla vinnu- hóps um Hnoðraból yrði rædd í fræðslunefnd áður en hún yrði lögð fyrir Byggðarráð. Við því var ekki orðið og skýrslan hafi því aðeins verið lögð fram til kynningar fyr- ir fræðslunefnd. Þá er gagnrýnt að gjaldskrárgerð og innheimtukerfi fyrir Íþrótta- og tómstundaskólann hafi ekki fengið þá umfjöllun sem óskað var eftir. Engin formleg umræða Fjórða atriðið sem nefnt er í bók- uninni snýr að hagræðingu í fræðslu- málum. Þar segir að óskað hafi ver- ið eftir því að fjallað yrði um vinnu hagræðingarhóps í fræðslumálum á fræðslunefndarfundi en erfiðlega hafi gengið að fá málið á dagskrá. Einnig hafi verið óskað eftir því að skýrslan sjálf og niðurstöður henn- ar yrðu til umfjöllunar á fræðslu- nefndarfundi. „Skýrslan sjálf og niðurstöður hennar voru ekki til umfjöllunar á fundi fræðslunefnd- ar eins og rætt hafði verið um. Hún var kynnt á fundi, sem boðaður var með þriggja klukkustunda fyrirvara. Kynningarfundir eru aldrei á pari við formlega umfjöllun á fræðslu- nefndarfundum. Þarna voru niður- stöðurnar kynntar en það fór engin formleg umræða fram á milli okkar í fræðslunefnd um málið. Við lítum þannig á að það hafi verið gengið framhjá okkur hvað það varðar,“ segir Maj-Britt. „Þessi bókun snýr að vinnubrögðum en ekki að til- lögum nefndarinnar. Fræðslunefnd hefur ákveðnar lögbundnar skyldur og það er erfitt að sinna þeim þeg- ar við fáum málin ekki á dagskrá til umfjöllunar,“ bætir hún við. Guðveig Eyglóardóttir formaður fræðslunefndar kvaðst aðspurð ekki vilja tjá sig um bókun minnihlut- ans í fjölmiðlum, þegar blaðamað- ur leitaði eftir því við vinnslu frétt- arinnar. grþ Undanfarinn mánuð hefur ver- ið kenndur fyrsti áfangi í 80 tíma málmsuðunámskeiði fyrir fanga á Kvíabryggju. Námskeiðið er hald- ið í samstarfi við Símenntunarmið- stöð Vesturlands. „Þetta er frum- kvöðlastarf sem verið er að prófa. Ef það gengur vel á að reyna að koma þessu á þannig að alltaf verði í boði iðnnám fyrir vistmenn á Kvía- bryggju,“ sagði Finnur Hinriksson, járnsmiður og suðumaður, en hann hefur kennt á námskeiðinu undan- farinn mánuð. Hann kvaðst ánægð- ur með aðsóknina. Alls voru sjö sem tóku þátt í námskeiðinu en á Kvía- bryggju eru aðeins um 20 fangar hverju sinni. „Þeir stóðu sig vel. Ég er ánægður með hvað menn voru áhugasamir og virtust hafa gaman af að læra þetta,“ bætir Finnur við. Námskeiðinu lýkur í næstu viku með bóklegu og verklegu prófi, en bóklegur hluti þess er kennd- ur í samstarfi við Fjölbrautaskóla Vesturlands. „Þá þurfa þeir að leysa ákveðin verkefni sem þeir eiga að kunna skil á. Þeir sem standast próf- ið geta fengið námskeiðið metið til tveggja fjölbrautaskólaeininga. Ef reynslan af þessu námskeiði verð- ur góð og við fáum að halda áfram verður annars konar suða tekin fyr- ir næst,“ segir Finnur og leggur áherslu á mikilvægi þess að nám sé í boði fyrir fanga. „Margir sem dvelja þarna eru ómenntaðir og reynslu- litlir. Það þarf að reyna að gera eitt- hvað fyrir þá þannig að þeir eigi að einhverju að hverfa þegar þeir snúa út aftur,“ segir hann. „ Ég vona að það verði framhald á þessu þann- ig að menn geti lært á meðan þeir sitja inni. Reyndar er það þannig að fæstir eru þarna nógu lengi til að geta klárað námið. En það væri gott að þeim stæði til boða að nýta tímann á meðan þeir eru inni til að læra. Þegar þeir losna gætu þeir svo farið í Iðnskólann og lokið nám- inu,“ segir Finnur að lokum. kgk/ Ljósm. þit. Finnur Hinriksson, járnsmiður og suðumaður, hefur undanfarinn mánuð kennt á málmsuðunámskeiði fyrir fanga á Kvía- bryggju. Kenna föngum málmsuðu á Kvíabryggju Einbeittur nemandi við rafsuðu á Kvíabryggju. Harma litla aðkomu fræðslu- nefndar að mikilvægum málum Starf byggingar- og skipulagsfulltrúa Grundarfjarðarbær auglýsir starf byggingar- og skipulagsfulltrúa laust til umsóknar. Um er að ræða mjög spennandi starf í áhugaverðu samfélagi. Miðað Byggingar fulltrúi ber m.a. ábyrgð á skráningu mannvirkja, úttektum, staðfestingu mannvirki til íbúa. Um er að ræða 100% starf og er umsóknarfrestur til og með 24. júlí nk. • • Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar, úttektir og útreikningar. • • byggingarmála. • • Önnur verkefni. • Menntun og löggilding, samkvæmt ákvæðum 8. og 25. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 og 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er nauðsynleg. • Reynsla af stjórnun æskileg. • Þekking og reynsla af úttektum og mælingum. • Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum og byggingarreglugerð. • • • Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku. • Góð almenn tölvukunnátta. Umsókn á að fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir Laun eru samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaga við Samband íslenskra sveitarfélaga. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn á netfangið thorsteinn@grundarfjordur.is, eigi síðar en 24. júlí nk. Einnig er óskað er eftir að umsækj endur tilgreini a.m.k. tvo 430 8500 thorsteinn@grundarfjordur.is. SK ES SU H O R N 2 01 5

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.