Skessuhorn - 08.07.2015, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 201518
Um helgina gekk vaskur hóp-
ur fólks á Hvanneyri í það ver að
setja upp þrautabraut á Hvann-
eyri. Þrautabrautin er fjölbreytt
og með þann megintilgang að efla
hreyfifærni einstaklinga og hent-
ar vel fyrir börn sem fullorðna.
Hugmyndin og leyfi var fengið
frá Laugarvatns-Adventure, þar
sem svipuð braut var útbúin við
tjaldstæðið á Laugarvatni. Verk-
efnið var styrkt af Borgarbyggð
vorið 2014 en sökum veðurfars
og anna var brautin ekki reist fyrr
en nú.
Það var Sólrún Halla Bjarna-
dóttir á Hvanneyri sem hafði yfir-
umsjón með verkefninu. Hún vill
koma á framfæri kæru þakklæti
til þeirra sem lögðu henni lið við
uppbyggingu þrautabrautarinnar.
Meðfylgjandi myndir voru teknar
þegar brautin var byggð.
mm
Á fundi Rótarýklúbbs Borgarness
síðastliðinn miðvikudag fóru fram
umdæmisstjóraskipti Rótarý á Ís-
landi. Guðbjörg Alfreðsdóttir lét
af embætti og við því tók Magn-
ús B. Jónsson á Hvanneyri, félagi í
Rótarýklúbbi Borgarness. „Rótarý
á Íslandi er hluti af alþjóðlegu fé-
lagi. Hér á landi er 31 klúbbur og
félagar um 1200 talsins. Hlutverk
leiðtoga þessara samtaka er tví-
þætt. Í fyrsta lagi er það forysta
inn á við, þ.e. að hlúa að veikum
klúbbum og efla þá sem eru sterk-
ir. Í öðru lagi er umdæmisstjóri for-
svarsmaður fyrir Rótarý á Íslandi
á erlendri grundu,“ sagði Magnús
þegar blaðamaður Skessuhorns tók
hann tali eftir fundinn. „Hver um-
dæmisstjóri leggur sínar línur og
kemur með sínar eigin áherslur til
embættisins auk þess að fylgja þeim
línum sem forverar hans hafa lagt.
Ég mun leggja áherslu á að styrkja
þá klúbba sem eiga erfitt af ýms-
um ástæðum. Ég er þeirrar skoðun-
ar að mikilvægara sé að efla þá sem
fyrir eru en að stofna nýja ef gam-
all klúbbur deyr. Það er mikilvægt
að umdæmisstjóri skynji hvaða
klúbbar eru veikir og hverja þarf að
styrkja,“ segir Magnús.
Umdæmisstjóri hefur sér til full-
tingis umdæmisráð, sem hverju
sinni er skipað bæði fyrrverandi og
verðandi umdæmisstjórum. „Þetta
er gert svo öll skipti gangi smurt
fyrir sig,“ segir Magnús. Hann seg-
ir að Rótarý sé stærsta góðgerðar-
félag í heiminum og er einna þekkt-
ast fyrir samstarf sitt við Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna og Alþjóða
heilbrigðismálastofnunina um út-
rýmingu mænusóttar, eða lömun-
arveiki (pólíó). „En það má ekki
gleyma að Rótarý leggur líka nær-
samfélaginu lið. Einkunnarorð
klúbbsins eru: „Þjónusta ofar eigin
hag,“ sem minnir mann á að hugsa
um samfélagið áður en maður hugs-
ar um sjálfan sig,“ segir Magnús.
Fyrsta konan forseti
Rótarýklúbbs Borgarness
Á fundinum voru einnig tilkynnt
forsetaskipti Rótarýklúbbs Borgar-
ness þegar Birna Guðrún Konráðs-
dóttir tók við af Daníel Inga Har-
aldssyni. Er Birna jafnframt fyrsta
konan sem gegnir því embætti.
„Loksins er kona forseti Rótarý
í Borgarnesi,“ sagði Birna létt í
bragði í ræðu sinni. „Þetta var því
tvöföld hátíðarstund og tvöföld
ástæða til að fagna,“ bætti hún við
í samtali við Skessuhorn. „Við höf-
um ekki verið með mjög margar
konur í klúbbnum í gegnum tíð-
ina. Þær sem hafa verið félagar hafa
ekki viljað taka þetta að sér af ein-
hverjum ástæðum. Núna erum við
til dæmis bara þrjár, af 25 virkum
félögum. Þannig að þetta verður
skráð á spjöld sögunnar.“
Aðspurð hvort standi til að hrinda
af stað átaki til að fjölga konum sér-
staklega segir Birna svo ekki vera.
Aftur á móti standi til að reyna að
fjölga félögum almennt. „Rótarý
er mannúðarhreyfing og því fleiri
virkir félagar sem hreyfingin telur,
því betra verður starfið.“
Stuðningur við nærsam-
félagið í verki
Á fundinum var gerð grein fyr-
ir söfnun Rótarýklúbbs Borgar-
ness fyrir hjartahnoðtækinu Lúk-
asi sem fært var Heilbrigðisstofn-
un Vesturlands í Borgarnesi. Vegna
þess hve söfnunin gekk vel þá færði
Rótarýklúbburinn Heilsugæslu-
stöðinni í Borgarnesi fartölvur og
netbeini í sjúkrabíla stofnunarinn-
ar, senditæki í hjartastuðtæki þann-
ig að hægt er að senda hjartalínurit
til sérfræðings sem getur lesið í það
hvar sem er. Einnig gaf klúbbur-
inn hjartalínurita á Heilsugæslu-
stöðina í Borgarnesi auk þess sem
heilsugæslustöðin fékk afhent allt
það fé sem eftir stóð að söfnun lok-
inni.
„Ég nefndi það á Rótarýfundi í
vetur hvort það væri ekki fínt verk-
efni fyrir Rótarýfélaga að standa
fyrir söfnun á sjálfvirku hjarta-
hnoðtæki til að gefa í sjúkrabílinn
hér í Borgarnesi og félagarnir tóku
strax vel í það. Mikill einhugur var
um þá söfnun allan tímann,“ seg-
ir Haukur Valsson, Rótarýfélagi
og sjúkraflutningamaður. „Okk-
ur er efst í huga þakklæti til fyrir-
tækja í héraðinu, félagasamtaka og
einstaklinga sem lögðu söfnuninni
lið,“ bætir hann við að lokum.
kgk
Samhent átak og þrautabraut
er risin á Hvanneyri
Umdæmisstjóraskipti hjá Rótarý á Íslandi
Frá vinstri: Hjónin Ásmundur Karlsson og Guðbjörg Alfreðsdóttir, fráfarandi
umdæmisstjóri. Við hlið hennar eru Magnús B. Jónsson, umdæmisstjóri Rótarý á
Íslandi 2015-2016 og Steinunn S. Ingólfsdóttir, eiginkona hans.
Loksins er kona forseti Rótarý í Borgarnesi,“ sagði Guðrún Birna Konráðsdóttir í
ræðu sinni eftir að hún tók við embættinu.
Sigurður Már Sigmarsson, Pétur Guðmundsson, Ásgeir Sæmundsson, Haukur
Valsson, Unnsteinn Þorsteinsson, Þorgerður Erla Bjarnadóttir og Daníel Ingi
Haraldsson þegar hjartahnoðtækið Lúkas var afhent í Borgarnesi fyrr í vetur.
Ljósm. eha.