Skessuhorn


Skessuhorn - 08.07.2015, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 08.07.2015, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 201520 „Ferðin var mjög lærdómsrík og við fengum að kynnast því hvað fólkið þarna er nægjusamt og nær að bjarga sér með það sem það hef- ur,“ sagði Skagakonan Sigurbjörg Gyða Guðmundsdóttir hjúkrunar- fræðinemi sem er nýkomin heim frá Kambódíu. Þar dvaldi hún í þrjár vikur ásamt sjö öðrum hjúkrunar- fræðinemum við Háskóla Íslands og sinnti sjálfboðastarfi á sjúkra- húsi í þorpinu Samraong, skammt frá borginni Siem Riep í norðvest- urhluta landsins. Íbúar þorpsins eru um sex þúsund talsins. „Fólkið þarna hafði varla séð hvíta mann- eskju áður. Krakkarnir voru mjög áhugasamir, komu út á götu og gáfu okkur „fæf“. Fullorðna fólkið var líka forvitið, tók myndir af okkur og vildi fá að snerta húðina,“ segir Sigurbjörg og hlær. Sex deildir eru á sjúkrahúsinu í Samraong og Sigurbjörg telur það vera mjög svipað að stærð og sjúkrahúsið á Akranesi. Aðspurð um aðbúnaðinn á spítalanum segir hún að hann hafi komið sér veru- lega á óvart. „Ég hélt að aðstæð- urnar væru miklu verri og var búin að búa mig undir það. Þarna er fólk sem hefur þekkingu en það vantar sárlega peninga til heil- brigðismála. Það er svo sorglegt að sjá hvað það er mikil spilling þarna. Landið á fullt af auðlindum en það vantar alls staðar pening. Angkor Wat, stærsti ferðamanna- staðurinn, er leigður til Víetnam. Þarna eru stórar gull- og silfur- námur, en þær eru leigðar til Kín- verja. Peningurinn fer allur eitt- hvað út úr landinu,“ segir Sigur- björg. Þeim pening sem þó er var- ið til heilbrigðismála í Kambódíu er að mati hópsins forgangsraðað undarlega á köflum. „Við rákumst á einn sjúkling sem var að betla vatn á spítalanum en samt voru all- ir með vökva í æð. Sem er miklu dýrara,“ segir Sigurbjörg. „Það er algjört grunnatriði til að fólk geti náð bata að það geti drukkið. Við skildum þetta ekki alveg. Þetta er skrítin forgangsröðun.“ Fæðingar ekki beint gleðistund Hópurinn flakkaði á milli skurð- deildar, fæðingadeildar og slysa- móttöku sjúkrahússins. Á fæðinga- deildinni ráku þær sig strax á það að enginn má vera viðstaddur fæð- ingu barns nema móðirin sjálf og heilbrigðismenntað fólk. „Ógift- um konum og konum á barneigna- aldri er sérstaklega haldið frá. Þeir halda að þær vilji ekki eign- ast börn ef þær verða vitni af fæð- ingum. Fyrsta mál á dagskrá eftir fæðinguna er svo að fá pabbann til að þrífa stofuna, henda fylgjunni og annað slíkt. Sem er ótrúlega skrítið því það þarf ekkert að gera það alveg um leið. Fæðingin er ekki beint gleðistund eins og hér heima. Það er meira eins og fólki finnist það vera skylda sín að eign- ast börn. Mamman bara rétt fær að líta á barnið sem er síðan kom- ið í hendur ömmunnar. Hún á að bera ábyrgðina á því fyrst um sinn, miðla þekkingu sinni til móður- innar,“ segir hún og bætir því við að þær hafi orðið vitni af óhugn- anlegu atviki í kjölfar þess að kona missti fóstur. Sú þurfti að fara í svokallað útskaf, sem er gert til að ná fóstrinu út. Það var ekki fyrr en hópurinn sá konuna koma aftur inn á deildina með tómt soghylk- ið í höndunum að þær áttuðu sig á því að hún hafði þurft að þvo hylk- ið sjálf. „Svo var hún látin liggja inni á fæðingadeild með öllum ný- bökuðu mömmunum. Hún fékk enga áfallahjálp eða neitt,“ segir Sigurbjörg. Hún nefnir að hópurinn hafi orð- ið vitni af ansi skrautlegri heimferð fjölskyldu af fæðingadeildinni. „Ein mamman settist aftan á vespu með barnið í fanginu og þannig var ekið með barnið heim af spítalanum.“ Að sögn Sigurbjargar eru vespur og önnur létt bifhjól mjög algeng- ur ferðamáti úti í Kambódíu. „Oft sáum við heilu fjölskyldurnar, allt upp í fimm eða sex manns, á einni vespu þarna úti og enginn með hjálm, nema kannski pabbinn sem sat við stýrið. Enda voru vespus- lys algeng, eitt af því sem við sáum mjög oft á slysamóttökunni.“ Þegar á skurðstofuna var kom- ið fékk hópurinn að fylgjast með nokkrum aðgerðum. „Þær voru þannig séð flottar, ég hélt að minnsta kosti að þær væru miklu verri. Það eru mjög færir læknar þarna og það skiptir öllu máli,“ seg- ir Sigurbjörg. „Við fengum reynd- ar ekki að fylgjast með öllum að- gerðum sem við vildum en það var ekki vegna þess að þar færi eitthvað fram sem við mættum ekki sjá. Það var einfaldlega ekki til nógu mikið af fötum fyrir allan hópinn,“ bæt- ir hún við. Öllu hreinlæti ábótavant „Það skrítnasta sem við rákum okk- ur á þarna úti var að aðstandendur skyldu sjá um alla aðhlynningu og umönnun sjúklinganna. Hjúkrun- arfræðingar sinna bara íhlutunum, eins og að skipta um nálar eða sára- umbúðir og þess háttar. Það er ein- hver undarleg hefð fyrir því þarna að meðhöndla öll sár eins, hvort sem það eru legusár, skurðsár eða eitthvað annað. Því kom það okk- ur ekkert sérstaklega á óvart að sýk- ingar eru mjög algengar,“ segir Sig- urbjörg. „Eins sáum við legusár hjá mjög ungu fólki sem er eitthvað sem þekkist varla hérna heima. Þau eru tilkomin einmitt vegna þess að öll umönnun er í höndum aðstand- enda. Þeir eru auðvitað ekki fag- lærðir og kunna ekki að koma í veg fyrir slíkt,“ bætir hún við. En það var fleira sem gat komið í hlut aðstandenda en almenn um- önnun sjúklinga. Sigurbjörg minn- ist þess þegar þurfti að tappa vökva af kviðarholi eins sjúklings. „Þar stingur hjúkrunarfræðingur gat á kviðarholið til að tappa vökvanum af. Þegar það var búið var vökvinn bara látinn leka í flösku og ættingj- unum var bara sagt að skipta um þegar hin fylltist. Þetta var bara einhver kókflaska.“ Að sögn Sigurbjargar var öllu hreinlæti á sjúkrahúsinu ábótavant. Til dæmis var aðeins ein mann- eskja sem sá um allar ræstingar á spítalanum. Þrif á sjúkrarúmum komu því í hlut aðstandenda sem gátu þrifið rúmfötin áður en sjúk- lingar lögðust inn, ellegar yrðu þau ekki þrifin.“ Auk þess var bara eitt útibað fyrir allan spítalann og til að komast þangað þurfti að vaða í gegnum eitthvað leðjusvað,“ seg- ir hún. „Svo var líka bara ein kona sem sá um að elda mat fyrir allan spítalann en ættingjarnir þurftu að sækja matinn og sjá til þess að sjúklingarnir fengju að borða,“ segir hún. „Ég held að öll svona vinnu- brögð séu tilkomin vegna þess að hjúkrun er einfaldlega ekki jafn mikil fagstétt þarna úti og hún er hér. Mikið mæðir á ættingjunum varðandi umönnunarþátt starfs- ins. Þetta gengur kannski að vissu leyti núna meðan þjóðin er svona Sigurbjörg Gyða Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðinemi er nýkomin frá Kambódíu „Óréttlátt hvað það skiptir miklu máli hvar maður fæðist í heiminum“ Sjúkrarúmin og öll aðstaða var önnur en það sem við eigum að venjast. Stolt nýbökuð amma heldur á barnabarninu og býst til heimferðar. Fjölskyldunni var ekið heim á kerru þar sem móðirin lá í hengirúmi. Baðaðstaðan sem þjónaði öllu sjúkrahúsinu í Samraong. Sigurbjörg Gyða Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðinemi. Sáraskiptingar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.