Skessuhorn - 08.07.2015, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2015 17
Sumarlesari vikunnar
Líkt og síðustu ár gengst
Bókasafn Akraness fyr-
ir sumarlestri fyrir börn.
„Ekkert býr barnið betur
undir lífið en góð lestr-
arfærni og fæst hún ekki
nema með ástundun,“
segja starfsmenn bóka-
safnsins við Dalbraut á
Akranesi og hvetja börn-
in til að skrá sig til sum-
arlesturs. Vikulega verður
valinn heppinn sumarles-
ari og rætt við hann hér í Skessuhorni.
Í þetta skiptið er það Kinga Bohdan
sem er sumarlesari vikunnar.
Hvað heitir þú og hvað ertu gam-
all/gömul. Ég heiti Kinga Bohdan og
ég er 6 ára, að verða 7.
Hvaða bók varstu/ertu
að lesa? Ég var að lesa
ævintýri á pólsku. Næst
ætla ég að lesa um Huldu
Völu dýravin.
Hvernig var/er hún?
Þetta var mjög skemmti-
leg bók.
Hvernig bækur finnst
þér skemmtilegastar?
Mér finnst skemmtilegast
að lesa um dýr.
Hvar er best að vera
þegar maður er að lesa? Í stofunni
og í herberginu mínu.
Áttu þér uppáhalds bók? Allar bæk-
ur eru uppáhalds bækur!
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Ég er ekki búin að
ákveða það.
sem nú er Hvalfjarðarsveit. Har-
aldur bróðir minn er bóndi þar
nú,“ segir hún. Jón Jóel segist eiga
ættir að rekja í Dali. „Ég ólst upp
hjá henni ömmu minni í Hvamms-
sveit í Dölum. Ég var þar í ein átta
ár. Með aldrinum fór maður að fá
meiri áhuga fyrir upprunanum og
þá beindist athyglin vestur,“ svarar
Jón Jóel. Eiginkona hans greinir frá
því að þau hafi byrjað sína starfsemi
með Út og vestur einmitt í Döl-
unum. „Það er heilmikið af falleg-
um stöðum þar. Sagan er líka mjög
lifandi í Dölunum. Gönguleiðir
þarna eru vannýtt auðlind. Dalirnir
hafa frábæra náttúru en líka magn-
aða sögu. Breiðafjörður og um-
hverfi hans með Snæfellsnesi eru
líka svæði sem eiga mjög mikið inni
í ferðaþjónustu.“
Tækifæri í siglinga-
sögunni
Þuríður Maggý minntist á siglingar
sem færir ferðaþjónustu þeirra hjóna
út á sjó. Til að geta boðið viðskipta-
vinum sínum upp á slíkt keyptu þau
færeyskan trébát sem heitir Óli Sóf-
us. Þegar báturinn er ekki í notkun
liggur hann við bryggju í Stykkis-
hólmi. „Við byrjuðum með þenn-
an bát í fyrra. Það að vera með slíka
útgerð og eiga svona bát er ekk-
ert smá mál. Ég keypti bátinn frá
Vestmannaeyjum af manni sem var
hálfur Færeyingur og hafði eignast
hann í gegnum fjölskyldu sína þar.
Báturinn hafði aldrei verið skráð-
ur á Íslandi fyrr en ég fór að spá í
að nota hann í ferðaþjónustu. Þá
kom í ljós að báturinn var fyrir ofan
sex metra mörkin til að teljast smá-
bátur. Hann er átta metra langur.
Þetta þýddi að ég þurfti nánast að
uppfylla kröfur eins og þetta væri
togari. Hjá Siglingastofnun stóðu
menn og veltu bátnum mikið fyr-
ir sér þó hann sé af gerð sem búin
er að vera til í margar aldir. Það er
eitthvað meiriháttar mikið að hjá
okkur. Allar þessar flóknu reglur
eru örugglega búnar að gera sitt til
að drepa niður alla frístundabátaút-
gerð hér á landi en þetta hafðist þó
loks í gegn að fá öll tilskilin leyfi,“
segir Jón Jóel.
Hann segist sjá ákveðin tækifæri
í ferðaþjónustu sem byggi á sigl-
ingahefð með trébátum. Slíkt teng-
ist öðrum þræði sögunni. Vestlend-
ingar hafi ætíð nýtt sér farleiðir á
sjó. Um það megi finna ótal dæmi.
Eitt það frægasta sé þegar Vestlend-
ingar sigldu á sínum tíma til Græn-
lands og þaðan áfram til Ameríku.
„Það komu Norðmenn siglandi á
skútu í Breiðafjörð og inn í Stykk-
ishólm nú í júní vegna áhuga síns á
sögunni af Eiríki rauða. Þeir hyggj-
ast koma aftur á næsta ári og sigla
þá inn í Búðardal. Það væri kjör-
ið tækifæri til að prófa þessa leið.
Í framtíðinni væri kannski hægt að
bjóða upp úr siglingar úr Búðardal
út í eyjar á Breiðafirði þar sem far-
ið yrði á söguslóðir siglandi á svip-
uðum farkostum og fólk gerði fyrr
á öldum.“
Mikið skip væntanlegt
til Íslands
Þegar hér kemur við sögu í viðtal-
inu segist Jón Jóel hafa fréttir að
færa fyrir Vestlendinga sem tengist
einmitt hinni gömlu siglingahefð. Í
henni geti falist stórt tækifæri fyr-
ir ferðaþjónustu á Vesturlandi sé
rétt á málum haldið. „Á næsta ári
er fyrirhugað að hingað á Vestur-
land komi stærsta víkingaskip sem
smíðað hefur verið og nú er sigl-
andi. Það heitir Drekinn Haraldur
hárfagri og er norskt. Næsta sum-
ar stendur til að sigla skipinu yfir
Norðursjó til Hjaltlandseyja og
þaðan áfram til Íslands, Grænlands
og Ameríku. Hér gæti ferðaþjón-
usta á Vesturlandi átt tækifæri. Það
mætti bjóða skipinu að koma hing-
að að Snæfellsnesi og jafnvel inn í
Breiðafjörðinn til að leggja áherslu
á að það hafi verið fólk sem lagði frá
Breiðafirði sem fór til Grænlands
og fann í framhaldinu Norður-Am-
eríku. Þessi ferð skipsins á eftir að
vekja athygli út um allan heim. Hér
eiga Vestlendingar tækifæri og ættu
að gera hvað þeir geta til að tengjast
þessu verkefni,“ segir Jón Jóel.
Þau Jón Jóel og Þuríður Maggý
hafa greinilega frá mörgu að segja
en við látum hér staðar numið, í það
minnsta að sinni. Ferðaþjónustan
þeirra er bæði öðruvísi og áhuga-
verð. mþh
Þau hjón hafa alltaf verið mikið útivistarfólk.
Merki fyrirtækisins skírskotar til
vistvænnar ferðamennsku.
Drekinn Haraldur Hárfagri er stærsta víkingaskip sem nú er til í heiminum. Næsta
sumar mun það sigla frá Noregi yfir Atlantshaf til Vesturheims með viðkomu
meðal annars á Íslandi og þá á Vesturlandi.
Ísgöng ehf ( Into the Glacier )
óska eftir leiðsögumönnum til starfa
Um er að ræða leiðsögn í daglegum ferðum félagsins.
Einnig er óskað eftir hressum einstaklingum með
meirapróf til að keyra gesti fyrirtækisins frá Húsafelli
að Langjökli í 18 manna rútu.
Ísgöngin í Langjökli opnuðu þann 1. júní síðastliðinn og
eru skipulagðar ferðir í göngin þrisvar á dag.
Mikil áhersla er lögð á gæði leiðsagnar.
Hæfniskröfur
• Leiðsögupróf ( kostur )
• Reynsla af ferðaþjónustu
• Þekking á hálendi og jöklum Íslands ( kostur )
• Góð tungumálakunnátta ( enska )
• Færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
• Reynsla úr björgunarsveitum ( kostur )
Áhugasamir hafið samband:
info@intotheglacier.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA
BLIKKSMIÐJA
Loftræstingar – Reykrör
Klæðningar – Nýsmíði
Viðhald – Efnissala
JÁRNSMIÐJA
Gjafagrindur – Nýsmíði
Viðhald – Þjónusta
Hesthúsinnréttingar
RAFMAGNS-
VERKSTÆÐI
Nýlagnir – Viðhald
Viðgerðaþjónusta
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
Stykkishólmsbær
Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmur - Sími: 433-8100
Auglýst er laust til umsóknar starf ritara bæjarstjóra Stykkishólmsbæjar.
Starf ritara bæjarstjóra fellur undir stjórnsýslu, fjármál- og fjölskyldumál
Stykkishólmsbæjar og heyrir undir bæjarstjóra og faglega stjórn og leiðsögn
bæjarritara.
Helstu verkefni
Ritarastörf, umsjón með fundargerðum í stjórnsýslu, bréfaskriftir eftir bæjarráðs- og •
bæjarstjórnarfundi auk annarra bréfaskrifta, innskráning mála í skjalavistunarkerfi,
umsjón með fundarboðum, almenn ritaraverkefni og umsjón með verkefnaskráningu
fyrir bæjarstjóra, reikningagerð fyrir alla starfsemi bæjarins samkvæmt nánara
verkskipulagi hverju sinni, ýmiss bókhaldsvinna, umsjón með samþykkt reikninga og
færsla þeirra yfir í gjaldkerakerfi.
Umsjón með vefsíðu Stykkishólmsbæjar og samskipti við þá sem sinna •
kynningarmálum.
Önnur almenn störf samkvæmt nánari fyrirmælum bæjarstjóra.•
Menntunar- og hæfniskröfur
Framhaldsskólamenntun og/eða sérhæfð skrifstofu- eða viðskiptamenntun, •
kunnátta og reynsla á sviði bókhalds og skjalagerðar er mikilvæg.
Haldgóð þekking á Word og Excel er nauðsynleg.•
Þjónustulund, þolinmæði, rík ábyrgðarkennd og hæfni í mannlegum samskiptum.•
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.•
Starfið er veitt frá 1. ágúst n.k. Launakjör eru samkvæmt samningum sveitarfélaga við
Starfsmannafélag Dala og Snæfellsness.
Allar upplýsingar um starfið veita bæjarstjóri Sturla Böðvarsson sturla@stykkisholmur.is
og bæjarritari Þór Örn Jónsson thor@stykkisholmus.is í síma 433-8100.
Umsóknir skal senda til Bæjarstjórans í Stykkishólmi, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða
í netfangið sturla@stykkisholmur.is fyrir 15. júlí 2015.
Stykkishólmi, 25.júní 2015
Sturla Böðvarsson bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5