Skessuhorn - 08.07.2015, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2015 23
Keppnin um rauðhærðasta Íslend-
inginn er fastur liður í bæjarhátíð-
inni Írskum dögum á Akranesi sem
fóru fram um liðna helgi. Í ár var
einnig valinn efnilegasti rauðhær-
ðasti Íslendingurinn og var það
Vigdís Birna sem hreppti þann tit-
il. Í keppninni um rauðhærðasta
Íslendinginn tóku 29 keppend-
ur þátt. Var það Laufey Heiða
Reynisdóttir, 17 ára Strandamað-
ur, sem stóð uppi sem sigurveg-
ari. Að launum hlaut hún ferð fyr-
ir tvo til Írlands með Gaman ferð-
um. „Ég ætlaði alltaf að taka þátt
þegar ég var lítil en þorði það ekki,
ég var svo hrædd við að standa á
sviðinu,“ sagði Laufey í samtali við
Skessuhorn eftir að úrslit lágu fyr-
ir. „En núna ákvað ég að slá til og
þá gerðist þetta,“ bætir hún við,
glöð í bragði.
Laufey er frá Miðdalsgröf við
Steingrímsfjörð og var á leið í
sumarbústað með vinkonum sín-
um um helgina en kom við á Akra-
nesi til að taka þátt í keppninni.
„Fjölskyldan var að fara á Írska
daga og við vinkonurnar ætluð-
um að vera áfram. En við vorum
svo spenntar eftir keppnina að við
ákváðum að fara bara í bústaðinn
og fagna,“ segir hún.
Aðspurð um hvernig hún und-
irbjó sig fyrir keppnina segir Lauf-
ey undirbúninginn hafa verið
frekar einfaldan. „Vinkona mín
greiddi mér og ég setti olíu í hárið
til að fá smá gljáa og svo það stæði
ekki allt út í loftið,“ segir Laufey
og hlær við.
„Þetta var mjög skemmtilegt.
Þegar nafnið mitt var kallað upp
þá var ég ekki að trúa því. Ég
vissi ekkert þegar mér var rétt-
ur míkrafónninn. Ég held að það
hafi ekkert heyrst hvað ég sagði
eftir keppnina því ég var svo geð-
veikt spennt,“ segir Laufey að
lokum.
kgk/ Ljósm. Guðni Hannesson.
Laufey Heiða er
rauðhærðasti Íslendingurinn
Laufey Heiða Reynisdóttir (fyrir miðju) fagnaði sigri í keppninni um rauðhærðasta
Íslendinginn sem fram fór á Írskum dögum um helgina.
Alls tóku 29 þátt í keppninni í ár.
Á Írskum dögum á Akranesi hefur
skapast mikil hefð fyrir því að íbúar
gatna taki sig saman og haldi götug-
rill að föstudagskvöldi. Víðast hvar
er grillað undir berum himni en
sums staðar leigja íbúar tjöld í sam-
einingu. Á Grenigrund hafa íbú-
ar hins vegar tekið höndum saman
og reist grillskála til að geta grillað
í skjóli fyrir veðri og vindum, þegar
svo ber undir.
„Þetta var ákveðið fyrir þrem-
ur árum. Það var svo vont veð-
ur, rigning og tjaldið var alltaf að
fjúka,“ sagði Gísli Jónsson, íbúi á
Grenigrund, þegar blaðamaður
Skessuhorns spurði hann um for-
sögu málsins. „Fyrsta skóflustung-
an að skálanum var tekin á Írskum
dögum í fyrra eftir að byggingaleyfi
hafði fengist. Gísli Oddsson á mik-
inn heiður skilið fyrir að standa í að
fá leyfið,“ bætir Gísli við.
Að sögn Gísla hafa íbúar unnið
að skálanum í sameiningu, smátt
og smátt síðan í fyrra. „Við höfum
borgað smotterí í sjóð einu sinni á
ári, til að kaupa kol og grill og svo-
leiðis. Alltaf hefur verið góð þátt-
taka,“ segir hann og bætir því við að
í upphafi hafi allir íbúar götunnar
þurft að samþykkja byggingu skál-
ans.
Götugrillið á Grenigrundinni
var fjölmennt í ár. Gísli telur að
um 200 manns hafi verið viðstadd-
ir vígslu nýja skálans áður en grillið
hófst. „Þetta var alveg meiriháttar
flott. Það hefur alltaf fjölgað ár frá
ári, þetta er heitasta hverfið,“ segir
hann léttur í bragði. Skálinn er þó
ekki alveg tilbúinn því enn á eftir að
smíða þakið. „Við strengdum segl-
dúk yfir skálann til að koma þessu í
gagnið, svo hægt væri að vígja hús-
ið. Þakið verður svo smíðað fyrir
næstu Írsku daga.“
En stendur til að nýta húsið við
fleiri tilefni en götugrill á bæjarhá-
tíðinni? „Það má að sjálfsögðu vera
með eitthvað húllumhæ þarna. Öll-
um er frjálst að nota þetta. Skál-
inn er náttúrulega inni á okkar
leiksvæði en ef einhver vill fara og
grilla með börnunum sínum þá er
það velkomið. Fólk gæti til dæmis
farið og haldið afmæli þarna, þetta
á eftir að verða mjög vinsælt og er
alveg meiriháttar gaman. Skaginn
er að koma sterkur inn,“ segir Gísli
að lokum.
kgk/ Ljósm. ki.
Grillað með glans á Grenigrund
Skálinn er um 36m2 og var strax tekinn í notkun. Bráðabirgðaþak er á skálanum
en að sögn Gísla Jónssonar verður búið að smíða þakið fyrir næstu Írsku daga.
Grillskálinn var vígður við upphaf götugrillsins á Írskum dögum síðastliðinn
föstudag.
Bærinn var þétt setinn fólki og iðaði af lífi.
Fjölmenni var saman komið í Garðalundi á sunnudeginum þar sem leikhópurinn
Lotta sýndi Litlu gulu hænuna.
Krakkarnir fylgdust spenntir með leik-
ritinu um Litlu gulu hænuna.
Eldri borgarar héldu götugrill á
Höfðagrundinni þar sem þeir skemmtu
sér saman og nutu grillmatarins.
Matthías Matthíasson og Magni Ás-
geirsson stjórnuðu brekkusöng.
Gestir á brekkusöng voru ekki feimnir við að brosa fyrir myndavélina.
Hópur sem kallar sig Mafíuna var mættur á brekkusönginn.