Skessuhorn - 15.07.2015, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2015 11
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Öryggis- og
hlífðarfatnaður
Dynjandi býður upp á hlífðar- og öryggis fatnað
sem uppfyllir ströngustu kröfur markaðarins.
Hafðu samband og við aðstoðum!
ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA
BLIKKSMIÐJA
Loftræstingar – Reykrör
Klæðningar – Nýsmíði
Viðhald – Efnissala
JÁRNSMIÐJA
Gjafagrindur – Nýsmíði
Viðhald – Þjónusta
Hesthúsinnréttingar
RAFMAGNS-
VERKSTÆÐI
Nýlagnir – Viðhald
Viðgerðaþjónusta
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
Leikskólastjóri í Borgarbyggð
Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar starf leikskóla -
stjóra Andabæjar á Hvanneyri. Starfshlutfall er 100% og
brýnt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst.
Leikskólastjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla,
aðalnámskrá leikskóla og stefnu Borgar byggðar. Leikskólastjóri
veitir skólanum faglega forstöðu og ber ábyrgð á rekstri skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Leikskólakennaramenntun.
• Reynsla af stjórnun leikskóla.
• Færni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu starfi.
• Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð.
• Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 24. júlí. Umsóknum er skilað til
Kolfinnu Jóhannesdóttur, sveitarstjóra, á netfangið kolfinna@
borgarbyggd.is. Með umsókn skal fylgja starfsferilsskrá og
kynningarbréf.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar hvetur sveitarfélagið
karla jafnt sem konur til þess að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu skólans,
www.andabaer.borgarbyggd.is.
www.andabaer.borgarbyggd.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Feðgarnir Ólafur Þór Jónsson,
Guðmundur Þór Ólafsson og Stef-
án Valberg Ólafsson eru nýir eig-
endur að Sprautu- og bifvélaverk-
stæði Borgarness, en þeir Björn Jó-
hannesson og Pétur Jónsson höfðu
rekið verkstæðið í 31 ár. Þeg-
ar blaðamann bar að garði tóku
þeir Ólafur og Guðmundur vel á
móti gestinum. Stefán var stadd-
ur í Danmörku þar sem hann hefur
búið síðustu ár, en hann stefnir að
flutningi heim í lok þessa mánað-
ar. Undirbúningur fyrir enduropn-
un verkstæðisins var í fullum gangi.
Þó hefur ekki verið tekin ákvörðun
um hvenær formleg opnun verður
en að sögn Ólafs er stefnt að því í
lok sumars eða snemma í haust.
Ólafur er með meistararéttindi í
bifvélavirkjun og sveinspróf í bíla-
sprautun og réttingum. Hann hef-
ur starfað við bílasprautun og rétt-
ingar nánast alla tíð, fyrir utan smá
tíma sem hann gerðist sölumaður
í Reykjavík. „Ég var að hugsa um
að hætta þessari bíladellu og fara í
eitthvað allt annað, en það var eitt-
hvað sem togaði mig aftur í bílana,“
segir Ólafur og hlær. Guðmund-
ur er ekki heldur ókunnugur þess-
ari starfsemi en hann er menntaður
bifreiðasmiður og hefur starfað við
fagið undanfarin ár. Stefán hefur
lengst af verið starfandi hjá Reco-
ver Nordic við þrif og endurbætur
á húsum eftir bruna- og vatnstjón.
Jafnframt hefur matreiðslan skip-
að stóran sess og hefur hann lokið
grunnnámi í matreiðslu við Aarhus
Tekniske Skole. Hann stefnir að
því að ljúka námi í viðburðastjór-
nun við Háskólann á Hólum þeg-
ar heim verður komið.
Hárréttur tími
Aðspurðir um hvað hafi orðið til
þess að þeir ákváðu að kaupa verk-
stæðið segja þeir þetta hafa lengi
verið í myndinni, nú var bara hár-
réttur tími. „Það var bara svo margt
sem gerði það að verkum að þetta
var réttur tími. Ég var frekar laus
við vinnulega séð, það hefur þó
verið nóg að gera hjá mér en ég var
hvergi bundin. Guðmundur var að
leita að vinnu í Borgarnesi og Stef-
án að flytja heim aftur og var laus
vinnulega séð og þurfti vinnu svo
þetta var bara upplagt,“ segir Ólaf-
ur. „Þeir Björn og Pétur voru alveg
að koma að því að hætta að vinna
og þeim fannst því upplagt að ég
myndi taka við og halda starfsem-
inni gangandi. Það var svo í vor
sem endanleg ákvörðun var tekin
og þá var ekki eftir neinu að bíða,“
bætir Ólafur við.
Aðspurðir um það hvort þeir ætli
að gera stórar breytingar segjast
þeir ekki reikna með því svona fyrst
um sinn. „Við höfum ýmsar hug-
myndir en það hafa ekki verið tekn-
ar neinar ákvarðanir. Hér verð-
ur fyrst og fremst sprautu- og rétt-
ingaverkstæði en það er aldrei að
vita hvað við gerum þegar líður á,“
segir Ólafur. „Við viljum nota tæki-
færið og bjóða gömlum sem nýjum
viðskiptavinum að líta við hjá okk-
ur,“ bætir hann við að lokum.
arg
Freisting vikunnar
Margir hafa lent í því að hafa þurft að hrista fram úr erminni góðan mat
með litlum fyrirvara. Hver kannast ekki við að verða hugmyndalaus þeg-
ar kemur að því að ákveða hvað á að baka. Nýbakaðar smákökur með ís-
kaldri mjólk hljómar vel í eyrum margra. Eins og nafnið gefur til kynna
eru smákökur litlar kökur en þó hafa þær stækkað og margir eru farnir
að baka smákökur sem kenndar eru við Ameríku, svoleiðis smákökur má
t.d. finna á Subway. Við ætlum þó að bæta um betur og kynna ykkur fyr-
ir Big cookie. Það var hún Tinna Steindórsdóttir á Akranesi sem deildi
þessari uppskrift með okkur.
Innihald:
150 g mjúkt smjör
1 bolli púðursykur
0,5 bollar sykur
2 egg
2 bollar og 2 msk hveiti
1 tsk matarsódi
0,5 tsk salt
1,5 tsk vanilludropar
1,5 bollar súkkulaði
4 stk. Mars súkkulaði eða annað að eigin vali.
Takið smjörið, púðursykurinn og sykurinn og setjið í skál og hrærið vel.
Bætið eggjum við, einu í einu og hrærið vel á milli. Næst er hveitið, mat-
arsódinn, saltið og vanilludropar settir út í og hrært vel, best er að hræra
með höndunum. Að lokum er súkkulaðið skorið í grófa bita og hrært
létt saman við. Það er líka gott að breyta til og nota allskonar súkkul-
aði í þess, hvítt súkkulaði kemur vel út, toblerone, bingókúlur eða hvað
sem ykkur dettur í hug. Að lokum er öllu gúmmelaðinu skellt á bökun-
arpappír í ofnskúffu og jafnað aðeins út og látið bakast í 20-25 mínútur
í 180°heitum ofni.
Big cookie
Nýir eigendur að Sprautu- og
bifreiðaverkstæði Borgarness
Feðgarnir Ólafur Þór og Guðmundur
tilbúnir í slaginn. Von er á Stefáni til
landsins í lok mánaðar.