Skessuhorn


Skessuhorn - 12.08.2015, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 12.08.2015, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 32. og 33. tbl. 18. árg. 12. ágúst 2015 - kr. 750 í lausasölu Arion hraðþjónusta – hafðu það eins og þú vilt Arion appið • Netbanki • Hraðbankar Lúsina burt! Restaurant Munaðarnes Borgarfirði 525 8441 / 898 1779 Njótið veitinga í fallegu umhverfi SK ES SU H O R N 2 01 5 OPIÐ 12.00 – 21.00 Í HJARTA BÆJARINS VIÐ AKRATORG Matar- og antikmarkaður á Akranesi í sumar - Ekta markaðsstemning! Opið alla laugardaga kl. 13 - 17 Samkvæmt upplýsingum Veðurstofu Íslands var júlí sérlega þurr um land- ið norðvestan- og vestanvert. Úr- koma í Stykkishólmi mældist ein- ungis 5,1 mm í mánuðinum. Er það aðeins 12% af meðalúrkomu og hið minnsta í júlí síðan 1939, litlu meiri úrkoma mældist í júlí 1974. Þessi veðrátta hefur hentað vestlenskri ferðaþjónustu vel en engan veginn bændum sem treysta þurfa á góðan heyfeng. Uppskera í fyrri slætti var víðast minni en í meðalári en hey- gæði aftur á móti með ágætum. Há- arspretta hefur hins vegar verið afar takmörkuð síðan snemma í júlí. Vestlenskir bændur eru samkvæmt heimildum Skessuhorns sumir hverjir orðnir uggandi vegna lítill- ar grassprettu síðustu vikur. Eink- um eru það sendin tún sem spretta illa eða ekkert. Jafnvel eru dæmi um að bændur óttist uppskerubrest og þurfi í versta falli að fækka í bústofni sínum af þessum sökum fari ekki að gæta meiri úrkomu. Veðurlagi í sumar hefur verið óvenjulega mis- skipt eftir landshlutum því um aust- anvert landið hefur verið úrkomu- samt og kalt í allt sumar. Þá þarf ekki að leita lengra en aftur til síð- asta sumars til að fá dæmi um veðr- áttu á Vesturlandi þar sem of mikil og tíð úrkoma einkenndi veðurfarið þannig að ekki var hægt að heyja að ráði fyrr en í ágúst þegar grös voru úr sér sprottin. Þá urðu heygæði rýr en magnið mikið. Skessuhorn leitaði í smiðju Har- aldar Magnússonar bónda í Belgs- holti til að afla frétta um heyskap. Haraldur segist hafa lokið fyrri slætti í byrjun júlí, nokkru seinna en undanfarin ár. Uppskeran hafi ver- ið um 80-85% miðað við meðal ár- ferði. Úrkoman í Belgsholti í júlí hafi hins vegar einungis mælst 11 mm sem jafnframt er sú minnsta frá því Haraldur hóf að mæla úrkomu árið 2003. Hann segir að dæmi séu þó um að úrkoma hafi verið held- ur meiri upp til sveita þar sem skúr- ir hafi frekar fallið upp við fjöllin. Þannig hafi mælst 32 mm úrkoma á Hlíðarfæti Svínadal í júlí, sem ekki er ýkja langt frá Belgsholti í beinni loftlínu. Haraldur í Belgsholti rekur stórt kúabú. Hann segist vera orð- inn uggandi um grassprettuna ef ekki fari að rigna svo einhverju nemi næstu daga. Hann hafi alltaf treyst á að fá tvær uppskerur af túnunum. Haraldur segist þó vera í betri stöðu en margir aðrir bændur hvað það snertir að hann á talsverða kornakra sem hann getur valið að slá að hluta og þannig aflað nægjanlegs gróf- fóðurs fyrir kýrnar. „Maður fær þó ekki korn af þeim ökrum sem slegn- ir verða en kjarnfóður getur maður frekar keypt. Ég er því ekki hræddur um að þurfa að fækka í bústofninum, en það munu ekki verða of mikil hey, það er nokkuð ljóst,“ segir Haraldur Magnússon. mm Margir unnendur berjatínslu og berjaáts hafa beðið með óþreyju eftir að sjá hvort ber nái að þrosk- ast á lyngum eftir fremur erfitt vor. Lausleg könnun Skessuhorns á Snæfellsnesi og í uppsveitum Borg- arfjarðar nú um helgina bendir til að finna megi ber en í litlu magni. Svo virðist sem einhverjar veður- farslegar ástæður hafi valdið því að ber eru einungis á hluta berjalyng- janna. Lítið er um krækiber en bet- ur lítur út með bláberjasprettu. Þar sem þau finnast eru berin stór en ennþá, þegar tíu dagar voru liðnir af ágúst, voru þau ljósgræn og áttu eftir að taka lit, eins og meðfylgj- andi mynd sýnir. Vera kann að lyng- inu skorti vætu hér um vestanvert landið líkt og öðrum jarðargróðri. Það er því ástæða til að hvetja berja- tínslufólk til að fara að gá til berja eftir um viku eða hálfan mánuð. Það er töluvert seinna en flest árin að undanförnu, en einkum var sum- arið 2013 einkar gott berjasprettu- ár. Þá var hægt að byrja að tína eft- ir miðjan júlí. mm/ Ljósm. gó. Veiðar á langreyði hafa gengið mjög vel á þessari vertíð. Veiðarn- ar hófust í lok júní, nokkru síðar en flestar undanfarnar vertíðar. Búið er að veiða á níunda tug hvala, eða um tvö dýr á dag að jafnaði. Er það heldur betri veiði en á sama tíma í fyrrasumar. Hvalbátarnir virðast hafa fundið góð mið vestur af Faxa- flóa. Þeir koma inn sitt á hvað, rétt stoppa til að landa feng sínum, taka olíu og vistir og svo beint á miðin aftur. Einmuna blíða er búin að vera á miðunum og úrvals aðstæður til veiða. Allt er keyrt á fullu í hvalstöð- inni í Hvalfirði. Þar hafa menn gert fátt annað en vinna, eta og sofa alla daga í júlí og það sem af er ágúst á átta tíma vöktum allan sólarhring- inn. mþh Hvalveiðar ganga vel Útlit fyrir slaka berjasprettu Lítil grasspretta vegna þurrka Margir hafa notið sumarsins og veðurblíðunnar á Vesturlandi undanfarin misseri. Þar á meðal þessar konur af sunnanverðu Vesturlandi sem fóru í kvennareið um liðna helgi. Sjá nánar bls. 24. Ljósm. iss Sláttur á Ystu Görðum í Kolbeinsstaðarhreppi. Ljósm. úr safni Skessuhorns/þsk.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.