Skessuhorn - 12.08.2015, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2015 15
Reykholtskirkja
Verið innilega velkomin í Reykholtskirkju
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
- L
jó
sm
. G
Ó
Messa sunnudaginn 16. ágúst
11. sd. e. trin. kl. 14.00
Anna Magnea Hreinsdóttir hef-
ur verið ráðin í starf sviðsstjóra
fjölskyldusviðs hjá Borgarbyggð
og tekur hún formlega til starfa
í byrjun september. Anna er gift
Arnari Óskarssyni, málarameist-
ara og kennara í Tækniskólanum
í Reykjavík. Saman eiga þau tvær
dætur. Hún lauk námi í tómstunda-
fræði í Gautaborg árið 1980, B.Ed
gráðu í leikskólafræðum frá Fóstru-
skólanum árið 1999, meistaragráðu
með áherslu á tölvu- og upplýs-
ingatækni í skólastarfi árið 2003 og
að lokum doktorsprófi í menntun-
arfræðum með áherslu á matsfræði
frá Menntavísindasviði Háskóla Ís-
lands.
Anna vann um tíma með ung-
lingum, bæði í félagsmiðstöðinni
Fellahelli og Unglingaheimili rík-
isins. Einnig vann hún í nokkur
ár í Kvennaathvarfinu í Reykjavík
fljótlega eftir opnun þess. Hún var
leikskólastjóri og leikskólafulltrúi
í Garðabæ í 25 ár og hefur setið í
fjölskylduráði Garðabæjar síðustu
12 ár. Hún hefur einnig starfað sem
stundakennari, bæði við Háskóla
Íslands og Háskólann á Akureyri.
Full tilhlökkunar
Aðspurð segist Anna lengi hafa ver-
ið hrifin af Borgarnesi og segist
hún hafa fylgst með Borgarbyggð
úr fjarlægð um nokkurn tíma. „Ég
á vini í Reykholti og svo á ég einnig
sumarhús í Svínadalnum og er því
oft á þessu svæði. Sveitarfélagið er
með fallegri stöðum á landinu og
það er örugglega gott að búa þar,“
segir Anna. „Það er mjög gott starf
unnið í skólum í Borgarbyggð. Ég
kom m.a. í heimsókn á leiðtoga-
dag Klattaborgar og Uglukletts
nú í apríl og kynntist betur þeim
metnaði sem einkennir starf þess-
ara leikskóla. Þegar ég sá svo þetta
starf auglýst varð ég að sækja um.
Mér fannst starfslýsingin koma inn
á margt af því sem ég hef verið að
vinna við um ævina. Þetta var því
draumastarfið og hlakka ég mik-
ið til að kynnast starfsmönnum og
íbúum Borgarbyggðar,“ bætir hún
við.
Anna segir að starfið leggist mjög
vel í hana, „Þetta starf kemur inn
á margt sem ég hef tekið mér fyr-
ir hendur um ævina og ég er full til-
hlökkunar að byrja í þessu starfi.
Það er mikil gerjun í skóla- og vel-
ferðarmálum og Borgarbyggð vill
vera í fararbroddi svo að þar sé eft-
irsóknarvert að búa. Nú liggur fyr-
ir að móta stefnu í skóla og velferð-
armálum í Borgarbyggð og vil ég
hvetja íbúa til að leggja hönd á plóg
til að gera Borgarbyggð að enn
betra náms- og velferðarsamfélagi,
þar sem gott er að búa,“ segir Anna
að lokum.
arg
Nýr sviðsstjóri fjölskyldusviðs
hjá Borgarbyggð
Anna Magnea Hreinsdóttir.
Nýjung í átt
að löggiltum
starfsréttindum
Tæknistoðir eru einkum
ætlaðar þeim sem hafa
reynslu úr atvinnulífinu og
eru að minnsta kosti 23
ára, eru á vinnumarkaði
og hafa hug á að ná sér
í löggild starfstengd
réttindi í bíl-, málm- og
byggingartæknigreinum.
Tæknistoðir
Eitthvað fyrir þig?
• Frábær leið fyrir þá sem vilja byrja á
tækninámi í sinni heimabyggð
• Tilvalið nám með vinnu
• Hæfilegur námshraði
• Fjölbreyttar kennsluaðferðir
• Góður stuðningur við nemendur
Hagnýtt nám og
sérsniðin kennsla
Ef þú hefur reynslu úr atvinnulífinu og
hefur áhuga á að afla þér iðnréttinda
og vilt vita meira hafðu samband
við okkur
Símenntunarmiðstöðin
á Vesturlandi
Sími 437 2390
Eða hafðu samband beint við Hörð
Baldvinsson verkefnastjóra í síma
841 7710 eða sendu honum póst á
hordur@simenntun.is
Verð kr. 70.000.-www.simenntun.is