Skessuhorn


Skessuhorn - 12.08.2015, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 12.08.2015, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 201520 Við Munaðarhól 25-27 á Hellis- sandi stendur verslunin Blómst- urvellir. Verslunin sjálf var fyrst opnuð fyrir 47 árum, þá í bílskúr hjónanna Óttars Sveinbjörnssonar og Írisar Tryggvadóttur. Fyrstu árin voru þar seld ljós og lampar, sjón- varpsloftnet, kaplar, sjónvörp og ýmislegt sem tengdist raflögnum. Reksturinn vatt upp á sig og fleiri vörur bættust í flóruna. „Árið 1978 flutti verslunin í íbúðarhús lang- ömmu minnar Júníönu og langafa Friðbjarnar. Húsið heitir Blómst- urvellir og þaðan kemur nafnið á versluninni. Þar var hún til 1986 en þá var fyrsti hlutinn af þessu húsi byggður, það hefur svo verið byggt við það tvisvar síðan,“ segir Júníana Björg, dóttir Óttars og Írisar. Þrír ættliðir við afreiðslu Júníana byrjaði ung að afgreiða viðskiptavini Blómsturvalla. „Ég er eiginlega alin hérna upp,“ seg- ir hún og brosir. Sex ára gömul byrjaði hún að afgreiða og tíu ára stóð hún vaktina á gömlu Blómst- urvöllum milli klukkan 16 og 18, á meðan faðir hennar vann sem raf- virki og móðir hennar starfaði á símstöðinni. „Þá lék ég mér á loft- inu með Barbie og hljóp svo nið- ur að afgreiða þegar það komu við- skiptavinir í búðina. Ég man alltaf eftir einum manni sem vildi endi- lega gefa mér pening af því að það hafði aldrei svona „lítil“ stelpa af- greitt hann. Mér fannst þetta frekar furðulegt og varð alveg hreint stór- móðguð. Svo er dóttir mín Guðlaug Íris, 18 ára, nánast alin upp hérna líka og svaf úti í vagni hérna þriggja vikna gömul þannig að flesta daga erum við hérna þrír ættliðir starf- andi í búðinni. Mamma á nú samt líklega vinninginn þegar kemur að mestu viðverunni hérna, hún er sú allra duglegasta. Við höfum líka í gegnum tíðina verið afskaplega heppin með starfsfólk og þær sem hafa unnið hjá okkur hafa allar gert það lengi, en Súsanna Hilmarsdótt- ir hefur verið hjá okkur núna í átta ár.“ Eiga trygga viðskiptavini Júníana segir verslunina eiga trygga viðskiptavini af svæðinu en einn- ig leggi mikið af aðkomufólki leið sína í verslunina á ferð sinni um Snæfellsnes. „Það hefur aukist und- anfarin ár að íslenskir ferðamenn komi hérna við. Þeir nefna það oft að þeim hafi verið sagt að það væri skyldustopp að koma hingað. Mér finnst alltaf jafn gaman að sjá upplifun íslensku ferðamannanna sem koma hingað inn. Fólk verður oft svo hissa á að finna svona stóra verslun einhvers staðar lengst úti á nesi.“ Mæðgurnar segja erlenda ferðamenn einnig líta inn en þeir versli minna. „Það er kannski helst að þeir kaupi skó eða útivistarfatn- að, ef það er kalt.“ Fleira ferðafólk í ár Vöruúrvalið í Blómsturvöllum er fjölbreytt og hefur breyst mikið frá fyrstu árunum í bílskúrnum. „Í dag leggjum við áherslu á tískufatnað fyrir dömur og herra, skó og ýmsa gjafavöru. Við erum einnig með leikföng, úr, skartgripi og heimilis- tæki sem fólk fær á sama verði og í Reykjavík keyrt upp að dyrum sé þess óskað. Annars erum við búin að prófa ýmislegt hérna, höfum til dæmis selt reiðhjól, húsgögn, inn- réttingar, sláttuvélar og grill, svo eitthvað sé nefnt,“ segja mæðgurn- ar og hlæja. Á meðan blaðamaður spjallar við ættliðina þrjá fjölgar í verslun- inni. Fjölda bíla er lagt fyrir utan og fleiri viðskiptavinir koma inn. „Núna er útsala í fullum gangi og nýjar vörur komnar í hús. Þetta hef- ur verið gott sumar, það hefur verið mun meira ferðafólk en undanfarin ár. Það hefur bæði verið betra veð- ur og svo er búið að taka bæði tjald- svæðin og sundlaugina í gegn hér í Snæfellsbæ. Þetta trekkir allt að,“ segja mæðgurnar kátar að endingu og snúa sér að viðskiptavinunum. grþ Veitingastaðurinn Bjargarsteinn Mathús í Grundarfirði var loks opnaður eftir nokkurra daga bið föstudaginn 31. júlí síðastliðinn. Ætlunin var að opna fyrir bæjarhá- tíðina Á góðri stund en ekki náð- ist að fá veitingaleyfið í tæka tíð. Því buðu vertarnir í opið hús á bæj- arhátíðinni en opnuðu svo staðinn um verslunarmannahelgina. Veitingahúsið er hið glæsileg- asta á að líta. Elsti hlutinn eða hús- ið Bjargarsteinn er rúmlega aldar gamalt íbúðarhús sem flutt var frá Akranesi og gert upp að utan af SÓ húsbyggingum í Borgarnesi. Það var síðan keypt og flutt vestur og hefur verið gert upp að innan eftir það. Það eru hjónin Gunnar Garð- arsson og Selma Rut Þorkelsdótt- ir sem reka Bjargarstein í samvinnu við Einar S. Valdimarsson og for- eldra Selmu, Olgu Sædísi Einars- dóttur og Þorkel Gunnar Þorkels- son. „Hugmyndin er að reka hérna alhliða veitingastað með góðan mat. Við gerum meira út á fiskinn og eftirrétti en erum einnig með gott kjöt. Við stígum varlega nið- ur til jarðar og byrjum með minni matseðil en munum skipta réttun- um reglulega út og bæta við hlið- arréttum eftir því hvaða spennandi hráefni fæst þann daginn,“ segir Gunnar í samtali við Skessuhorn. Gamaldags en hlýlegt Innréttingar á staðnum eru í svip- uðum stíl og húsið sjálft, gamal- dags og hlýlegt. Að sögn Gunnars eru stólarnir og ljósin keypt á flóa- mörkuðum í Danmörku. „En gard- ínurnar eru heklaðar af tengda- móður minni og dúkarnir á borð- unum af frænku minnu og ömm- um okkar Selmu.“ Hann segir stað- inn geta tekið allt upp í 50 til 60 manns í sæti ef því er að skipta en eldhúsið þoli best um 40 - 45 gesti. Gunnar er sjálfur matreiðslumað- ur að mennt og hefur verið í veit- ingabransanum í langan tíma. „Ég byrjaði sem polli í eldhúsinu, fylgdi mömmu sem var smurbrauðskona. Ég elst því upp í þessu, fór í nám og hef verið í þessum bransa allar götur síðan bæði úti í Danmörku og hérlendis. Svo er konan mín áhugabakari og sér um allan bakst- ur ásamt tengdamömmu,“ útskýrir Gunnar. Bjargarsteinn er þó ekki ein- göngu veitingastofa því þar er einnig hægt að fá gott kaffi og aðra drykki. Rúmgóður pallur er fyrir aftan húsið, með útsýni yfir Grund- arfjörðinn og sjálft Kirkjufellið. „Stefnan er að með tímanum verði kannski eitthvað menningartengt hér. Listamenn geti jafnvel komið og verið til dæmis hérna úti á palli með uppákomur. En það verður þó engin barmenning hérna. Við erum fyrst og fremst með alhliða mathús, matsölustað með breiðu ívafi og góðum mat,“ segir Gunnar á Bjarg- arsteini. grþ Þrír ættliðir starfa nú í versluninni Blómsturvöllum. Guðlaug Íris Jóhannsdóttir, Júníana Björg Óttarsdóttir og Guðlaug Íris Tryggvadóttir. Blómsturvellir eru skyldustopp á ferð um Snæfellsnes Hér má sjá hluta matsalarins á Bjargarsteini, sem innréttaður er í gömlum og hlýlegum stíl. Ljósm. grþ. Búið að opna Bjargarstein Mathús í Grundarfirði Hjónin Selma Rut Þorkelsdóttir og Guðbrandur Gunnar Garðarsson sem eru meðal eigenda Bjargarsteins eru hér stödd á staðnum með tvo yngstu drengina sína þá Ölni Þorra og Eini Huga Guðbrandssyni. Ljósm. tfk. Veitingahúsið Bjargarsteinn Mathús er byggt út frá gömlu húsi sem stóð á Akranesi en var gert upp af SÓ húsbyggingum í Borgarnesi. Ljósm. tfk.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.