Skessuhorn - 12.08.2015, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 201526
Vignir Jóhannsson myndlistarmaður
hefur undanfarin fimm ár búið í bæn-
um Hou í Danmörku þar sem hann
stundar list sína. Vignir er fjölhæfur
myndlistarmaður en málverkið hefur
samt alltaf verið í aðalhlutverki hjá
honum. Glerlistaverk hafa svo verið
að sækja á síðustu árin. Síðasta sýn-
ing Vignis var í Skagen sem segja má
að sé mekka myndlistarinnar í Dan-
mörku en þar gerðu Skagensmal-
erne garðinn frægan í lok nítjándu
aldar og byrjun þeirrar tuttugustu.
Fyrir tveimur árum kvæntist Vign-
ir Karen Goss, lækni frá Danmörku,
en fyrir átti Vignir tvö uppkomin
börn, dótturina Marsibil Björk, sem
býr á Akranesi ásamt fjölskyldu og
soninn Erling sem býr í Stokkhólmi
í Svíþjóð. Karen kona Vignis er fædd
í Kenýa og ólst þar upp til níu ára
aldurs en faðir hennar var þjóðgarð-
svörður þar. „Hún er fædd skammt
frá þeim stað sem danski rithöf-
undurinn Karen Blixen bjó og fékk
nafn hennar,“ segir Vignir og bætir
við að móðir hennar hafi verið flug-
freyja hjá SAS og kynnst þar hvítum
Kenýabúa í ferðum sínum. Karen á
tvo bræður sem búa í Kenýa. Vignir
kynntist Karen eftir sýninguna sem
hann tók þátt í á Mön. „Við bara
kynntumst þarna en svo varð ekkert
meira úr því fyrr en ári seinna. Við
giftum okkur svo 2013 þann 7. sept-
ember. Við skutum á 7, 9, 13,“ segir
Vignir og hlær. Hann sagði merki-
legt að þegar mamma Karenar sigldi
með hana og bræður hennar frá
Mombasa í Kenýa til Hamborgar á
leið sinni til Danmerkur þá tók hún
sig til og prjónaði á þau hlý föt því
þau höfðu aldrei átt slíkan fatnað.
Þessi föt voru prjónuð úr íslenskri
ull, bæði vettlingar og lopapeysur.
Þarna fékk Karen fyrstu hlýjuna frá
Íslandi,“ segir Vignir kankvís.
Birtan á Skagen og á
Skaganum er svipuð
„Í fyrra vorum við á Skagen að halda
upp á eins árs brúðkaupsafmælið og
þá fórum við að tala um að gaman
væri að sýna þar. Þarna voru auð-
vitað miklir snillingar að mála í lok
nítjándu aldar og upphafi þeirrar
tuttugust. Birtan þarna á Skagen er
ekki ósvipuð og á Skaganum á Ís-
landi, enda sjór á þrjá vegu. Þegar
Karen sagði við mig að sýna þarna
sagðist ég ekki vilja sýna í einhverri
búðarholu niður í bæ svo við fór-
um að keyra um og leita. Eftir fimm
mínútna keyrslu sáum við myndar-
legt nýlegt gallerí. Karen sagði strax
að þetta væri galleríið en ég var treg-
ur en lét til leiðast. Þegar við komum
inn sá ég hins vegar strax að þetta var
flott gallerí. „Svo var Karen búin að
labba þarna um og sagðist halda að
konan sem ræki galleríið væri fær-
eysk. Ég fór þá að tala við hana og
spurði hvort hún væri færeysk. Hún
sagði nei, hún væri íslensk. Þá kom
í ljós að þessi kona, sem heitir Mar-
ín Magnúsdóttir, kannaðist við mig
og minn listamannsferil. Hún bauð
mér að sýna og áður en ég fór þaðan
var það afráðið að ég myndi sýna þar
núna í sumar. Það er erfitt að komast
að með sýningar því þær eru oft svo
mikið tengdar gömlu Skagensmál-
urunum. Við töluðum mikið um það
að nú væri Skagamaðurinn orðinn
einn af Skagensmálurunum. Þetta
með birtuna, sérstaklega á kvöld-
in er svo merkilegt á þessum stöð-
um því hún kemur upp úr sjónum.
Þegar Skagensmálararnir komu með
myndirnar sína til Frakklands á sín-
um tíma urðu listmálarar þar alveg
undrandi því þeir sáu ekki þessa sér-
stæðu birtu inni í miðri Evrópu. Það
er ekki nóg að hafa eina strönd, þær
þurfa að vera tvær eða þrjár. Eftir
opnuna gengum við þarna um fjör-
urnar og þá sá maður svo vel að þetta
var sama birtan og heima.“
Á heimavelli í
Sementsverksmiðjunni
Eftir gagnfræðaskólanám á Akra-
nesi lærði Vignir rafvirkjun hjá föð-
ur sínum Jóhanni Bogasyni raf-
virkjameistara hjá Sementsverk-
smiðju ríkisins. Eftir sveinspróf í
rafvirkjuninni hélt hann í myndlist-
arnám og fljótlega eftir það lá leið-
in til Bandaríkjanna þar sem Vign-
ir bjó og stundaði myndlist sína í
rúm sextán ár. „Ég kom heim þeg-
ar pabbi greindist með krabbamein
en ég gat ekki hugsað mér að vera
svona langt frá honum við þær að-
stæður,“ segir Vignir. Eftir það vann
Vignir við myndlist sína hér heima
en var auk þess með annan fótinn á
Norðurlöndunum. Hann var síðan
lengi með vinnustofu við Sogaveg-
inn í Reykjavík en nú er hann kom-
inn með vinnustofu og íbúð á Akra-
nesi til að nota þegar hann kemur
heim. „Ég er með forstjóraíbúðina
í Sementsverksmiðjunni á leigu en
hún er á hæðinni ofan við þar sem
skrifstofan var. Ríkið á þennan part
hússins ennþá. Þarna kann ég vel við
mig enda átti ég fyrst heima á Mána-
brautinni og ég fæddist á Mánbraut
10. Sementsverkmiðjan er að hluta
byggð á lóð móðurafa míns, Guð-
bjarna í Ívarshúsum. Auk þess unnu
pabbi og afi í Sementsverksmiðj-
unni og ég vann þar líka meðan ég
lærði rafvirkjunina. Þannig að ég er
svo sannarlega á heimavelli þarna.“
Vignir segir fínt að vera þarna þeg-
ar hann fái verkefni á Íslandi. Hann
hafi t.d. verið þarna um tíma í vet-
ur vegna verkefnis út af afmæli Ein-
ars Benediktssonar skálds sem hann
vann að í Hörpu í Reykjavík. „Svo
er nú mamma á Akranesi, kom-
in yfir nírætt og það er því gott að
geta skotist til hennar þegar ég er í
Íslandsferðum. Hún býr í húsi sínu
á Einigrundinni og er eldhress. Hún
var t.d. að taka þátt í golfmóti um
daginn.“
Vinnustofan fór á kaf
Vignir hafði verið með vinnustofu
við höfnina í Hou en óvænt misst
hana. „Ég hafði vinnustofu þarna
niður við höfnina í Hou allt þar til
það kom mikill stormur hér 2013.
Þetta er talið næst versta veður sem
komið hefur í Danmörku og allt fór
í kaf þarna við höfnina í Hou. Þetta
var um miðjan desember og ég óð
upp fyrir hné til að komast út í hús-
ið. Það skemmdist mikið af verk-
um hjá mér þarna því inn í húsinu
var hnédjúpt vatn. Ég þurfti því að
fara með vinnustofuna úr þessu húsi
því það þarfnaðist mikilla viðgerða á
eftir. Þá stóð ég uppi vinnustofulaus
og fór því að útbúa þessa vinnustofu
hér í næsta nágrenni við þar sem ég
bý þótt þetta sé annar bær. Þeir eru
nú margir nánast samvaxnir í Dan-
mörku.“
Fékk aðstoð Skaga-
manna við húsasmíðina
Fyrir stuttu lauk Vignir við vinnu-
stofuna og galleríið. Til þess naut
hann aðstoðar Skagamanna búsettra
í Danmörku. Ólafur Ólafsson tré-
smiður Elíassonar aðstoðaði Vigni í
smíðunum og Árni sonur Sigrúnar
Árnadóttur og Karls Lilliendal að-
stoðaði Vigni við að mála húsið. „Ég
hringdi í Skagamanninn Lárus Gutt-
ormsson í vetur því hann er mál-
ari og spurði hann hvort hann gæti
komið og hjálpað mér í viku við að
mála. Lalli sagðist ekki geta þessa en
frændi hans sem væri að mála með
honum væri núna í fríi í Árósum og
hefði ekkert að gera. „Ég sendi hann
bara til þín,“ sagði Lárus og þann-
ig gerðist það að Árni kom að mála
hjá mér í nokkra daga, þannig að það
komu Skagamenn að þessu.“ Vignir
segir að hann hafi tekið þátt í sýn-
ingum á Norðurlöndunum og af því
hafi leitt að hann fór til Danmerkur
2010. „Fyrst sýndi ég með dönskum
myndlistarmönnum 1982 í Finnlandi
og sýndi svo með Dönunum reglu-
lega eftir það. Svo var ég tekinn inn
í danskan sýningarhóp hérna með
mörgum þekktustu dönsku málur-
unum. Við sýndum mikið á Norður-
löndunum frá 1992 til 2003. Ég hélt
alltaf sambandi við Danina og aðra
norræna málara og var svo með sýn-
ingu á Mön árið 2010 og eftir það
fór ég að vinna að því að vera bara
hér. Ég hef verið mikið að vinna í
leikmyndum og innsetningum bæði
heima og í Danmörku og hef feng-
ið nokkur slík verkefni hér í Dan-
mörku. T.d. eitt verkefni í Árósum
við að búa til sal fyrir æskulýðsmið-
stöð, nokkurs konar Arnardal þeirra
Árósabúa. Þetta var fimm mánaða
verkefni.“
Kann vel við sig í
Danmörku
Vignir segist kunna vel við sig í Dan-
mörku. Þar sé gott að vera og lofts-
lagið passlegt. Að vísu hafi Dönum
fundist kalt sumar en hann kunni
ágætlega við tuttugu stiga sumarhita.
Hins vegar þegar hitinn fari niður í
12 stig hér er kalt í Danmörku. „Sér-
staklega var þetta slæmt upp í Ska-
gen því hitinn var bara 12-15 stig.
Þetta þýðir að galleríin þarna hafa
fengið mikla aðsókn því fólk fór ekki
á ströndina.“ Vignir á lítinn trébát,
seglbát, sem hann er með heima í
Hou og notar mikið og hefur gam-
an af að sigla. Þau Karen ferðast líka
mikið í frístundum en myndlistin
hans er fjölbreytt. Til dæmis gler-
listaverk sem hann sýndi í Skagen
og notaði birtuna þar til að magna
það upp. „Annars er málverkið alltaf
í aðalhlutverki hjá mér,“ segir Vign-
ir Jóhannsson myndlistarmaður að
endingu. hb
Skagamaður með myndlistarsýningu á Skagen í Danmörku
Vignir Jóhannsson myndlistarmaður.
Frá opnun myndlistarsýningarinnar í Skagen. Vignir er lengst til hægri og Karen
Goss eiginkona hans honum á hægri hönd.
Sýnishorn verka á myndlistarsýningunni í Skagen.