Skessuhorn


Skessuhorn - 12.08.2015, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 12.08.2015, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2015 17 og gengur. Þarna voru önnur við- mið og aðferðir en nú er. Á þess- um árum var engin sérkennsla eða neitt svoleiðis.“ En var það ekki svo að erfiðir nemendur voru oft sendir til vist- ar á héraðsskólunum? „Jú, jú. Það kom fyrir að við fengjum nemend- ur sem áttu að vera þannig. En þeir mönnuðust yfirleitt og komust á legg eins og hinir. Krökkum geng- ur misjafnlega í skóla. Það er svo að skólinn er ekki allra og þannig hef- ur það alltaf verið og verður sjálf- sagt áfram,“ svarar Eyþór og talar þar sjálfsagt af langri reynslu. Hann segir að ákveðin þró- un hafi átt sér stað í Reykjaskóla á þeim árum sem hann starfaði þar. Kannski hillti þar undir lok skól- ans. „Mér fannst munur á því fyrstu árin sem við vorum á Reykjum í Hrútafirði að maður mætti á haust- in krökkum sem höfðu kannski verið tvö eða þrjú ár í skólanum. Þeir þekktu skil á öllu, kunnu all- ar reglur og vissu hvað mátti og hvað var bannað. Þeir kunnu líka á okkur kennarana og allt það, ” seg- ir Eyþór og hlær við endurminn- inguna. „Þegar nýir krakkar komu í skólann þá lærðu þeir af þeim eldri og aðlöguðust fljótt. Í restina var þetta svo orðið þannig að meiri- hluti krakkanna á hverju ári voru nýir nemendur sem komu víðar að af landinu. Þá varð þetta svolítið erfiðara.“ Heim í Hólminn Eins og Eyþór nefndi þá hætti hann störfum við Reykjaskóla árið 1984. Fjölskyldan flutti úr Hrútafirðinum og suður til Reykjavíkur. „Við ætl- uðum að prófa að búa þar en Unn- ur var úr höfuðborginni. Ég kenndi við Árbæjarskóla í eitt ár og líkaði það svo sem ágætlega. Þarna var ég þó farinn að spá í að finna mér eitt- hvað annað að gera og ekkert endi- lega við kennslu. Þá var hringt í mig héðan úr Stykkishólmi og mér boð- in kennarastaða hér. Ég sló til þó ég hefði aldrei ætlað mér sérstaklega að fara í kennslu hér í Hólminum. Ég hafði þó alltaf verið viðloðandi hér. Það voru löng sumarfrí við Reykjaskóla og þá hafði ég gripið í aðra vinnu bæði fyrir norðan og hér í Stykkishólmi. Hérna átti ég líka marga vini og ættingja þannig að tengslin voru sterk. Við ákváðum að láta slag standa og drifum okkur hingað. Hér erum við svo búin að vera og verðum sjálfsagt áfram.“ Allar götur síðan og þar til yfir lauk í vor sem leið hefur Eyþór kennt við grunnskólann í Stykkis- hólmi. „Ég hef kennt í elstu bekkj- unum. Árið 1996 varð ég aðstoð- arskólastjóri og var það þar til fyr- ir ári. Nú í vetur var ég svo í hálfu starfi sem kennari en nú er ég al- veg hættur. Ég var orðinn næst- elsti kennarinn og fannst tíma- bært að yngra fólk tæki við. Þetta er búið að vera fínn tími. Það hefur ótrúlega margt breyst í skólastarfi og kennsluháttum á síðustu árum. Kennarastarfið er ekki lengur bara að mæta í kennslustofuna og kenna eins og var í gamla daga. Þetta er miklu meira en það.“ Krakkar í dag djarfari er fyrrum Þessi síðustu orð hins reynda kenn- ara vekja forvitni blaðamanns um að heyra hvernig hann meti grunn- skólana í dag samanborið við á árum áður þegar hann var að hefja kennslu. „Skólastarfið hefur að mörgu leyti breyst og að flestu leyti til hins betra finnst mér. Krakkar í dag eru miklu opnari en þeir voru og hika ekki við að prófa eitthvað nýtt. Þeir eru ófeimnari, djarfari og veraldarvanari ef það er hægt að orða það svo. Sumum finnst það ókostur og hafa jafnvel á orði að börnin séu orðin frökk í fram- komu. Mér þykir það hins vegar til hins betra að þau séu opnari. Þau er tilbúnari að prófa miklu meira en var hér áður. Þetta á sér ýmsar skýr- ingar. Ef við lítum á skólakerfið og skólahaldið, bekkjaranda og sam- skipti kennara og nemenda þá er þetta orðið mikið breytt frá því sem var þegar maður var að byrja að kenna. Það er allt miklu frjálslegra og afslappaðra. Áður var mikil ein- stefna í miðlun frá kennara til nem- enda. Kennsluhættir hafa breyst. Það er ekki lengur verið að reikna heilu blaðsíðurnar af sömu dæmun- um eins og í gamla daga, eða enda- laust verið að skrifa eitthvað upp í stílabækur eða lesa langa texta.“ Eyþór segir líka að börn tileinki sér nýja þekkingu öðruvísi í dag en þau gerðu áður. „Þau lesa til að mynda öðruvísi. Nú eru þau mikið í tölvum. Þar sækja þau sér kannski upplýsingar um eitthvert tiltekið efni, leita á netinu og taka það fyrsta sem þau finna, jafnvel án þess að skoða það með nægilega gagnrýn- um huga. Þau skauta hratt yfir efnið en lesa minna staf fyrir staf eins og var hér áður. En ég vil taka fram að auðvitað er þetta misjafnt eftir ein- staklingum. Það er erfitt að alhæfa í þessum efnum,“ segir Eyþór. Hann bætir því við að honum finnist aðalatriðið að fólki líði vel í skólanum. „Börn eiga að njóta þokkalega góðra minninga úr skóla, bæði um kennara og sam- nemendur. Þetta skiptir meira máli en að nemendur kunni utan að ein- hver ártöl eða þess háttar. Ég held að þetta hafi oft tekist ágætlega hér hjá okkur í Stykkishólmi,“ segir skólamaðurinn Eyþór Benedikts- son að endingu. mþh Hjónin Eyþór og Unnur í ferð með Kór Stykkishólmskirkju í Búdapest fyrr í sumar. Systkinin með foreldrum sínum. Myndin var tekin í áttræðisafmæli húsmóður- innar árið 2011. Eyþór og Unnur með börnin. F.v: Benedikt, Eyþór, Þórhildur, Þorsteinn og Unnur. Myndin var tekin 1996. Unnur Hildur Þorsteinsdóttir í fangi nöfnu sinnar. Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í ræstingu fjögurra leikskóla á Akranesi svo og almenningsbókasafns kaupstaðarins. Verktími er frá 1. nóvember 2015 til 31. október 2018. Útboðsgögn (á geisladiski) verða til afhendingar í þjónustuveri Akraneskaupstaðar frá og með 10. ágúst nk. án endurgjalds. Hægt er að fá gögn afhent á pappír fyrir kr. 3000,-. Tilboð verða opnuð í fundarherbergi skipulags- og umhverfissviðs þriðjudaginn 29. september nk. kl. 10:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar SK ES SU H O R N 2 01 5 Útboð á ræstingu Leikskólar og bókasafn Upphaf skólastarfs FSN haustönn 2015 Stundatöfluafhending/birting verður 14. ágúst kl. 11:00 – 12:30. Föstudaginn 14. ágúst kl. 10:00-14:00 verða nýnemum kynntir helstu þættir skólastarfsins. Skólasetning og fyrsti kennsludagur á haustönn 2015 er miðvikudaginn 19. ágúst kl. 8:30. Að lokinni skólasetningu hefst kennsla samkvæmt stundatöflu. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu skólans, www.fsn.is. Fjölbrautaskóli Snæfellinga er á Facebook. Skólameistari SK ES SU H O R N 2 01 5 Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í akstur strætisvagns á Akranesi. Verktími er frá 1. jan. 2016 til 31. des. 2020. Útboðsgögn (á geisladiski) verða til afhendingar í þjónustuveri Akraneskaupstaðar frá og með 11. ágúst nk. án endurgjalds. Hægt er að fá gögn afhent á pappír fyrir kr. 3.000,-. Tilboð verða opnuð í fundarherbergi skipulags- og umhverfissviðs þriðjudaginn 6. október nk. kl. 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar SK ES SU H O R N 2 01 5 Útboð á akstri strætisvagns á Akranesi Innanbæjarakstur 2016-2020

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.