Skessuhorn - 12.08.2015, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 20156
Aldrei mælst
meira af makríl
LANDIÐ: Á mánudag
lauk rúmlega fimm vikna
löngum leiðangri hafrann-
sóknaskipsins Árna Friðriks-
sonar, sem hafði það meg-
in markmið að meta magn
og útbreiðslu makríls um-
hverfis Ísland og við Græn-
land. Samkvæmt fyrstu nið-
urstöðum er ljóst að heildar-
magn makríls á Íslandsmið-
um er meira en nokkru sinni
frá því að athuganir hófust
árið 2009. Mun meira var
af makríl sunnan við Ísland
en undanfarin ár og er út-
breiðslan suðlægari en áður.
Svipað magn makríls fannst
fyrir Vesturlandi og Aust-
urlandi og þar hafði mælst
undanfarin ár en hins veg-
ar var lítið af makríl norður
af landinu. „Framundan er
frekari úrvinnsla á gögnum
frá leiðangrinum og munu
niðurstöður verða kynntar í
sameiginlegri skýrslu þeirra
aðila sem að leiðangrinum
komu en verkefnið er hluti
af sameiginlegum rannsókn-
um Íslendinga, Norðmanna,
Færeyinga og Grænlendinga
á dreifingu og magni helstu
uppsjávartegunda í Norð-
austur-Atlantshafi ásamt at-
hugunum á magni átu og
umhverfisþáttum á svæð-
inu,“ segir í tilkynningu frá
Hafró.
–mm
Kaupum meira
en við seljum
LANDIÐ: Samkvæmt
bráðabirgðatölum Hag-
stofunnar fyrir júlímánuð
á þessu ári var útflutningur
landsmanna á fob-verði 51,9
milljarðar króna og innflutn-
ingur á sama tíma fyrir tæpir
56,4 milljarðar. Vöruskiptin
í júlí voru því óhagstæð um
rúma 4,4 milljarða króna.
–mm
Gistinóttum
fjölgaði um
fimmtung
LANDIÐ: Gistinætur á
hótelum í júní voru 285.100
sem er 19% aukning miðað
við júní á síðasta ári. Gisti-
nætur erlendra gesta voru
90% af heildarfjölda gisti-
nátta í mánuðinum en þeim
fjölgaði um 20% frá sama
tíma í fyrra á meðan gisti-
nóttum Íslendinga fjölgaði
um tæp 10%. Flestar gisti-
nætur á hótelum í júní voru
á höfuðborgarsvæðinu eða
162.800 sem er 16% aukn-
ing miðað við júní 2014.
Á tólf mánaða tímabili frá
júlí 2014 til júní 2015 voru
gistinætur á hótelum lands-
ins 2.508.841 sem er fjölg-
un um 15% miðað við
sama tímabil árið áður. Um
13.600 gistinætur mældust á
samanlögðu svæði Vestur-
lands og Vestfjarða í júní-
mánuði og var fjölgunin
milli ára 21%. Á tólf mán-
aða tímabili mælist hins
vegar 23% fjölgun á vest-
anverðu landinu. Erlendir
gestir með flestar gistinætur
á landinu í júní voru; Þjóð-
verjar með 56.500, Banda-
ríkjamenn með 54.600 og
Bretar með 26.900 gistinæt-
ur.
-mm
Einn fasteigna-
samningur að
jafnaði
VESTURLAND: Á Vest-
urlandi var 32 samningum
um kaupsamningum um
fasteignir þinglýst í nýliðn-
um júlímánuði. Þar af voru
níu samningar um eign-
ir í fjölbýli, 13 samning-
ar um eignir í sérbýli og
tíu samningar um annars
konar eignir. Heildarvelt-
an var 617 milljónir króna
og meðalupphæð á samn-
ing 19,3 milljónir króna. Af
þessum 32 voru 14 samn-
ingar um eignir á Akranesi,
eða rétt tæpur helmingur.
Þar af voru átta samningar
um eignir í fjölbýli og sex
samningar um eignir í sér-
býli. Heildarveltan var 345
milljónir króna og með-
alupphæð á samning 24,7
milljónir króna. Þetta kem-
ur fram í frétt á vef Þjóð-
skrár.
–mþh
Góð sókn að
Landbúnaðar-
safninu
HVANNEYRI: „Góð að-
sókn hefur verið að Land-
búnaðarsafninu í sumar,
bæði almennra gesta sem og
gesta í skipulögðum ferð-
um, flestra erlendra. Gest-
ir ljúka almennt lofsorði
á hina nýju grunnsýningu
safnsins í Halldórsfjósi sem
opnuð var í október í fyrra,“
segir í frétt á vef safnsins.
Þá segir að Ullarselið haf-
ið einnig notið hinna nýju
en aldurhnignu húsakynna,
og þá hafi Skemman - kaffi-
hús einnig vakið stormandi
lukku.
–mm
Síðastliðinn föstudag var undir-
ritaður samningur milli Stykk-
ishólmsbæjar og sóknarnefnd-
ar Stykkishólmskirkju vegna af-
nota af kirkjunni í þágu stofnana
Stykkishólmsbæjar. Er samningur-
inn hluti af fjáröflun til viðamikilla
lagfæringa á kirkjunni sem fram-
undan eru. Meðfylgjandi mynd
er fengin af vef Stykkishólmsbæj-
ar frá því samningurinn var undir-
ritaður. Þar eru þær Unnur Valdi-
marsdóttir og Magndís Alexand-
ersdóttir fulltrúar sóknarnefndar
ásamt Sturlu Böðvarssyni bæjar-
stjóra og Hafdísi Bjarnadóttur for-
seta bæjarstjórnar.
mm
Arnarvarp á Vesturlandi gekk
þokkalega í ár, að sögn Kristinn
Hauks Skarphéðinssonar fugla-
fræðings á Náttúrustofnun Íslands.
„Það var svo, sérstaklega ef haft
er í huga að veðrið var afar óhag-
stætt fyrir fugla sem verpa snemma
eins og örninn. Alls er vitað um 74
arnaróðul í ábúð, sem er álíka og í
fyrra. Vitað erum 52 pör sem urpu
og hafa hreiðrin aldrei verið fleiri.
Alls komust 36 ungar upp í 28
hreiðrum. Varpárangur var í með-
allagi við Faxaflóa, eða sex hreið-
ur með ungum, og sunnanverðan
Breiðafjörð þar sem eru 16 hreið-
ur með ungum. En þar fyrir norðan
misfórust flest hreiðrin vegna ótíð-
ar og komust ungar aðeins upp í sex
hreiðrum,“ sagði Kristinn þegar
Skessuhorn grennslaðist fyrir um
árangur vestlenskra arna nú í sum-
ar.
mþh
Kirkjufell í Grundarfirði og um-
hverfi þess er sennilega að verða eitt
þekktasta og mest myndaða fjall á
Íslandi. Það vakti talsverða athygli
þegar að þyrla með ferðamönnum
lenti við Kirkjufellsfoss við Grund-
arfjörð á sunnudagskvöld. Út úr
þyrlunni stigu svo ferðamenn sem
hófu að taka myndir við fossinn.
Hvort að þetta hafi verið gert til
að spara sér sporin á hinum nýja
göngustíg að fossinum skal ósagt
látið en öll umferð vélknúinna far-
artækja er bönnuð á svæðinu. Það
var svo eftir stutt spjall við fulltrúa
landeigenda að þyrlan var færð frá
fossinum enda líklega ekki sniðugt
að vera með slíkt farartæki í kring-
um rafmagnslínur, kindur og hross
sem eru í girðingu þarna skammt
frá og vissu ekki hvaðan á sig stóð
veðrið. tfk
Þyrlan var flutt um set frá fossinum að tilmælum fulltrúa landeigenda.
Þyrlu lent við Kirkufellsfoss
Samið um styrk og afnot af Stykkishólmskirkju
Stálpaðir hafarnarungar á vestlensku óðali. Ljósm. Friðþjófur Helgason.
Þokkalegur árangur hjá
haförnum á Vesturlandi