Skessuhorn - 12.08.2015, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 20158
Hálf staða
organista og
kórstjóra
GRUNDARFJ: Sóknar-
nefnd Grundarfjarðarkirkju
hefur auglýst lausa stöðu org-
anista og kórstjóra við kirkj-
una frá og með næstu mán-
aðamótum. Um hálft stöðu-
gildi er að ræða. Í Grund-
arfjarðarkirkju er 13 radda
pípuorgel smíðað af þýska
orgelsmiðnum Reinhart
Tzschöckel. Einnig er Atl-
as-flygill í kirkjunni svo ekki
skortir góð hljóðfæri fyr-
ir væntanlegan starfsmann.
Áhugasamir hafi samband
við sr. Aðalstein Þorvaldsson
sóknarprest eða Guðrúnu
Margréti Hjaltadóttur for-
mann sóknarnefndar. Um-
sóknir skulu sendar á net-
fangið skallabudir@simnet.is
fyrir 15. ágúst.
–mm
Á skógrækt
samleið með
sauðfjárrækt?
LANDIÐ: Á skógrækt sam-
leið með sauðfjárrækt? Að
þessu verður spurt á aðal-
fundi Skógræktarfélags Ís-
lands sem haldinn verður
á Akureyri dagana 14.-16.
ágúst. Þórarinn Ingi Péturs-
son, formaður Landssam-
bands sauðfjárbænda, flyt-
ur erindi um þetta málefni
á fundinum. Einnig verður
rætt um skóg sem orkuauð-
lind, belgjurtir í skógrækt og
sveppanytjar. Farið verður í
skoðunarferðir, meðal ann-
ars til Siglufjarðar þar sem
skógræktarfélagið á staðnum
fagnar 75 ára afmæli sínu og
opnar að því tilefni skógar-
reit sinn undir merkjum Op-
ins skógar. Nánar má lesa
um aðalfundinn í frétt á vef
Skógræktarfélags Eyfirðinga
sem er gestgjafi aðalfundar
SÍ að þessu sinni.
–mm
Margt gekk á í
umferðinni
VESTURLAND: Alls voru
átta ökumenn teknir fyrir
akstur undir áhrifum fíkni-
efna hjá Lögreglunni á Vest-
urlandi í liðinni viku, þar af
þrír í tengslum við raftón-
listarhátíðina sem haldin var
á Hellissandi um helgina.
Einn ökumaður var tek-
inn fyrir ölvun við akstur
og annar fyrir akstur undir
áhrifum lyfja. Alls urðu átta
umferðaróhöpp í umdæm-
inu í vikunni, þar af eitt þar
sem ökumaðurinn er grun-
aður um að hafa verið undir
áhrifum fíkniefna og í öðru
tilviki reyndist ökumaður-
inn vera ölvaður. Lítilshátt-
ar meiðsli, skrámur og mar
eftir bílbeltin voru í nokkr-
um óhappanna en í árekstri
tveggja bíla á gatnamótum á
Akranesi var einn aðili fluttur
með sjúkrabíl til læknisskoð-
unar en talið að um minni-
háttar meiðsli væri að ræða.
Tvisvar sinnum var ekið á
stöðvunarvegslá við gjald-
skýli Hvalfjarðarganga í vik-
unni og í báðum tilvikum var
um stórar bifreiðar að ræða.
-mm
Handverkshátíðin á Hrafnagili í
Eyjafirði fór fram um síðustu helgi.
Þar var margt um manninn og býsn
fallegra muna sýndir og boðnir til
sölu. Árlega velur valnefnd Hand-
verkshátíðar fallegasta sölubás árs-
ins og handverksmann ársins.
Handverksmaður ársins var Þórdís
Jónsdóttir og verðlaun fyrir sölu-
bás ársins hlaut Vagg og Velta. Val-
nefnd veitti ein aukaverðlaun í ár,
Gleði og bjartsýnisverðlaunin, en
þau hlaut Hildur Harðardóttir með
sölubásinn Hildur H. List-Hönn-
un.
Fleira vakti athygli valnefnd-
ar, svo sem bás Leðurverkstæðis-
ins í Hlöðutúni í Stafholtstungum
í Borgarfirði. Þar sýndi Brynjólf-
ur Guðmundsson bóndi og söðla-
smiður hnakk fyrir fatlaða. Hnakk-
urinn þótti glæsilegur nytjagripur
sem gerir fleirum kleift að stunda
hestaíþróttina. Sérstaklega tók val-
nefndinni eftir að ekki var slegið af
fagurfræðilegum kröfum við gerð
hnakksins.
mm
Brynjólfur í Hlöðutúni fékk
viðurkenningu fyrir hnakkasmíði
Klifberi sem Brynjólfur smíðaði fyrir
björgunarsveitina Brák í Borgarnesi.
Hér stendur Brynjólfur við hnakkinn sem ætlaður er fyrir fatlaða. Smíðin og hand-
verkið vakti afar jákvæða athygli á Leðurverkstæðinu í Hlöðutúni.
Hnakkurinn Adam úr smiðju Brynjólfs
í Hlöðutúni.
Fyrirtækinu Grenjum ehf. hefur
verið úthlutað lóðum við Blóma-
lund 1-3, 5-7-9 og 11-13 á Akra-
nesi. Þetta kemur fram í fundar-
gerð bæjarráðs Akraneskaupstað-
ar. Nú hefur fyrirtækið einnig sótt
um lóðir við Akralund 8, 10, 12 og
14 og liggja fyrrnefndar lóðir við
þessar tvær götur saman og mynda
eina heild í hverfinu. Í fundargerð-
inni kemur fram að hugmyndir fyr-
irtækisins gangi út á að byggja átta
einnar hæðar parhús á þessum lóð-
um, samtals 16 íbúðir. Þá stendur
til að allar íbúðirnar verði settar inn
í leigufélag. Til að heimilt verði að
byggja parhúsin samkvæmt upp-
dráttum þarf að óska eftir deili-
skipulagsbreytingu og hefur bæjar-
ráð því óskað álits skipulags- og um-
hverfissviðs. Bæjarráð hefur einnig
falið sviðsstjóra skipulags- og um-
hverfissviðs að afla upplýsinga um
framboð leiguhúsnæðis á Akranesi
og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjár-
málasviðs var falið að svara fyrir-
tækinu í samræmi við umræður á
fundinum. Við vinnslu fréttarinnar
var haft samband við forsvarsmenn
fyrirtækisins Grenja ehf. sem vildu
ekki tjá sig um málið á þessu stigi.
grþ
Stefna á að byggja átta
parhús til útleigu á Akranesi
Teikning sem sýnir hugmyndatillögu fyrir lóðirnar við Akra- og Blómalund.
Teikningar af byggingunum voru með fundargerð bæjarráðs á vefsíðu Akranes-
kaupstaðar.
Nýverið voru opnuð tilboð í tvær
vegaframkvæmdir sem tengj-
ast Vesturlandi. Annars vegar var
óskað eftir tilboðum í endurupp-
byggingu Uxahryggjavegar milli
Skarðs og Brautartungu í Lundar-
reykjadal, alls 5,42 kílómetra veg-
arkafla. Kostnaðaráætlun Vega-
gerðarinnar hljóðaði upp á 118,8
milljónir króna. Fjögur tilboð
bárust í verkið og voru öll mjög
nærri kostnaðaráætlun. Borgar-
verk ehf og Skagfirskir verktak-
ar ehf á Sauðárkróki voru lítið
eitt yfir áætlun en tvö voru und-
ir. Þróttur ehf á Akranesi bauð
116,564 milljónir króna en Vöru-
bílstjórafélagið Mjölnir á Selfossi
átti hins vegar lægsta boð, bauð
116,517 milljónir, eða 47 þúsund
krónum minna en Þróttur.
Þá var sama dag opnað tilboð
í Kjósarskarðsveg nr. 48, alls 6,7
kílómetra endurlögn frá Fremri
Hálsi að Þingvallavegi. Fimm
buðu í verkið og var kostnaðar-
áætlun 215 milljónir króna. Þrótt-
ur ehf á Akranesi var eina fyrir-
tækið sem bauð undir kostnaðar-
áætlun. Tilboð Þróttar var 214,1
milljón króna, eða 99,6% af áætl-
uðum kostnaði. mm
Tilboð opnuð í Uxahryggja-
veg og Kjósarskarðsveg
Fjölskylda Péturs Ágústssonar og
Svanborgar Siggeirsdóttur í Stykk-
ishólmi kannar nú möguleika á því
að opna 76 herbergja hótel að Nes-
vegi 2 í Stykkishólmi, þar sem Tré-
smiðja Stykkishólms var áður til
húsa. Í dag er húsnæðið í eigu Ag-
ustson ehf. og er notað sem veið-
arfærageymsla. Í nýlegri fundar-
gerð frá bæjarráði Stykkishólms er
sagt frá þessum áformum eftir að
Pétur Ágústsson og Siggeir Péturs-
son, fulltrúar félagsins Hólmsins
ehf., funduðu með bæjarstjóra og
forseta bæjarstjórnar. Þar er einn-
ig greint frá því að félagið eigi nú
í viðræðum við fulltrúa Agustson
ehf. um kaup á húseigninni. Hug-
myndir kaupenda gera ráð fyrir því
að breyta húsinu í hótel og byggja
við það, svo þar verði 76 herbergja
hótel með tilheyrandi þjónustu-
aðstöðu.
Hjónin Pétur Ágústsson og Svan-
borg Siggeirsdóttir seldu Eimskipi
sinn hlut í Sæferðum í vor, líkt og
greint hefur verið frá í Skessuhorni.
Áttu þau 26% eignarhlut en Tví-
drangi ehf. og María Valdimars-
dóttir voru með samtals um 74%
eignarhlut. Í fréttatilkynningu sem
barst frá ofangreindum seljendum
74% hlutafjár í Sæferðum er tek-
ið fram að þeir tengjast á engan
hátt fyrirtækinu Hólminum og/eða
áformum þess um hótelbyggingu í
Stykkishólmi.
grþ
Fasteignin við Nesveg 2 í Stykkishólmi, þar sem til stendur að opna tæplega 80
herbergja hótel.
Vilja opna nýtt hótel
í Stykkishólmi
Sturlu Böðvarssyni,
bæjarstjóra í Stykk-
ishólmi, hefur verið
falið að láta vinna
áætlun um sérstak-
ar umferðarörygg-
isaðgerðir vegna
aukinnar umferð-
ar ökutækja í ná-
grenni gististaða
í bæjarfélaginu.
Þetta kom fram
í fundargerð bæjarráðs í lok júlí. Á
fundinum var fjallað um fjölmörg er-
indi þar sem óskað er eftir leyfi til þess
að reka gistiþjónustu enda hefur heim-
sóknum erlendra ferðamanna í Stykk-
ishólm fjölgað mikið. Íbúar í Stykkis-
hólmi óttast aukna umferð um íbúð-
argötur og slysahættu sem stafar frá
umferðinni og telur bæjarráð að setja
verði reglur um
fjölda bílastæða við
gistihús og heima-
gistingu, sem verði
innan lóða þeirra
húsa sem gistingin
er rekin samkvæmt
rekstarleyfi.
Í bréfi sem birt
er á vef Stykkis-
hólmsbæjar segir
bæjarstjóri að und-
irbúningur að semja reglur um þetta
sé þegar hafinn. Ljóst sé að reglur um
umferð og bílastæði þurfi einnig að ná
til umferðar stærri bíla, svo sem hóp-
ferðabíla og flutningabíla. Þá beri að
geta þess að unnið sé að því að deili-
skipuleggja hafnarsvæðið með tilliti til
þess að selja þar aðgang að bílastæð-
um. grþ
Unnið að bættu umferðar-
öryggi í Stykkishólmi
Fjölgun ferðamanna í Stykkishólmi kallar
á bætt umferðaröryggi. Ljósm. mþh.