Skessuhorn - 12.08.2015, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 201510
Nú í sumar hefur Orkuveita Reykja-
víkur staðið fyrir vinnu við fráveitu á
skólpi frá Akranesi. Verið er að ganga
frá sjólögn sem liggur frá hreinsunar-
stöð út í sjó auk fleiri þátta. Áður var
búið að vinna svipaðar framkvæmd-
ir á Kjalarnesi. Snemma næsta vor
verður röðin síðan komin að Borg-
arnesi. Árni Geir Sveinsson er stað-
arstjóri verktakafyrirtækisins Ístak
á Vesturlandi sem er helsti verktaki
framkvæmdanna fyrir Orkuveituna.
„Það voru byggðar hreinsistöðv-
ar hér á Akranesi, í Borgarnesi og á
Kjalarnesi á árunum 2008 og 2009.
Hér á Akranesi var líka unnið í að
endurbæta allar lagnir, bæði þrýsti-
lagnir og frárennslislagnir. Á þess-
um árum byggðum við líka dælu-
stöðvar við Leyni, hér á Ægisbraut
og við Faxabraut rétt hjá höfninni,“
segir Árni Geir þar sem blaðamað-
ur Skessuhorns hitti hann á vinnu-
svæðinu við Ægisbraut á Akranesi.
Þessar miklu frárennslisfram-
kvæmdir á Akranesi, í Borgarnesi
og á Kjalarnesi stöðvuðust hins veg-
ar í efnahagshruninu sem skall á af
þunga haustið 2008. Þá lenti Orku-
veitan eins og kunnugt er í mikl-
um fjárhagsörðugleikum. „Það má
segja að allt kerfið hér á Akranesi
hafi verið gert klárt og hafi staðið
tilbúið í ein fimm ár, nema fjórða
og síðasta dælustöðin sem átti eftir
að setja niður neðanjarðar á bökk-
um Krókalóns við Vesturgötu. Þar
töfðust málin vegna deilna við lóð-
areigendur og Akranesbær þurfti að
fara í málarekstur sem sneri að eign-
arnámi. Það er búið að leysa þau mál
núna,“ segir Árni.
Þrýstitankur og sjólögn
Að sögn Árna var þráður tekinn upp
að nýju í að ganga frá fráveitumál-
um á Akranesi um miðjan júní. Nú
í sumar er unnið að því að ganga frá
kerfinu sem á að skila frárennslinu
frá hreinsistöðinni og út í sjó. „Það
var hafist handa við að byggja svo-
kallaðan þrýstitank hér í fjöruborð-
inu við Esjubraut og Ægisbraut,
skammt frá sjálfri hreinsistöðinni.
Þetta er steinsteyptur tankur, traust-
ur og með þykkum veggjum. Hann
er niðurgrafinn og verður undir
sjávarmáli. Þar verður settur tveggja
bara þrýstingur á það efni sem kem-
ur frá hreinsistöðinni áður en því er
svo dælt gegnum sjólögn til hafs.
Síðan hafa menn frá Köfunarþjón-
ustunni verið að setja saman sjálfa
sjólögnina. Það gera þeir úti í Elín-
arhöfða,“ útskýrir Árni.
Krefjandi aðstæður við
Kalmansvík
Sjálf sjólögnin er bæði löng og
mikil. „Hún verður alls um einn og
hálfur kílómeter að lengd. Hún er
úr plasti og þvermál hennar er 650
millimetrar. Hún á að liggja héð-
an frá þrýstitankinum og út í sjó.
Fyrst er hún til norðurs en svo
sveigir hún í vesturátt. Þessi lögn
er ákveðin verkfræðileg áskor-
un. Það er bæði flókið og krefj-
andi að koma henni fyrir og ganga
frá henni með tryggilegum hætti.
Hér fyrir utan Kalmansvíkina og
framan við Ægisbraut er töluvert
af neðansjávarskerjum og það þarf
að sveigja lögnina framhjá þeim.
Þetta er erfitt og krefjandi svæði.
Endi lagnarinnar verður á 18 til 19
metra dýpi. Hér næst landi gröfum
við lögnina niður í sjávarbotninn.
Það verður grafinn um 600 metra
langur skurður frá fjöruborðinu og
út. Lögnin fer ofan í hann og síð-
an verður efni sturtað yfir hana og
hún þannig hulin. Fyrr í sumar var
búið að grafa um 200 metra langan
skurð frá landi. Við nánari athugun
þar sem meðal annars var litið bet-
ur á straumaskilyrði og öldugang
var svo ákveðið nú í júlí að hafa
skurðinn töluvert lengri en upp-
haflega var áætlað. Þannig á nú að
hafa um 600 metra af lögninni frá
landi niðurgrafna. Þessi sjógröft-
ur hefst nú á næstunni. Fyrirtækið
Björgun mun koma og sjá um það,“
segir Árni.
Tilbúið í lok næsta árs
Hið nýja frárennsliskerfi Orkuveit-
unnar bæði á Akranesi, í Borgarnesi
og á Kjalarnesi á að standa fullbú-
ið í árslok 2016. „Þá verður kerfið
gangsett á öllum þessum stöðum.
Með því verða fráveitumál á Akra-
nesi sem og á hinum stöðunum
tveimur komin í eitt það besta horf
sem gerist hér á landi. Við ljúkum
störfum hér á Akranesi í haust. Þá
mun taka við vinna við lokafrágang
á sjálfri hreinsistöðinni sem aðal-
lega felst í því að tengja þann búnað
sem á að vera í henni. Hún er full-
frágengin nema þessi búnaður hef-
ur staðið þar inni ótengdur síðan í
hruni. Snemma næsta vor munum
við sem störfum hér á Akranesi í
sumar flytja okkur um set í Borg-
arnes til að vinna sams konar verk
þar. Það er að setja niður þrýstit-
ank og ganga frá sjólögninni. Við
erum hins vegar búnir á Kjalarnesi.
Þar er búið að ganga frá sjólögn-
inni en eftir er að ljúka við sjálfa
hreinsistöðina eins og hér á Akra-
nesi og í Borgarnesi reyndar einn-
ig. Þetta á allt að verða tilbúið sam-
tímis. Hreinsunarstöðvarnar starfa
þannig að þurrefni og drasl í skólp-
inu er hreinsað úr því og fer til urð-
unar. Það sem kemur úr sjólögn-
inni og endar í hafinu verður nán-
ast vökvi,“ segir Árni Geir Sveins-
son. mþh
Fráveituframkvæmdir í fullum gangi á Akranesi
Næst verður ráðist í framkvæmdir í Borgarnesi og hreinsistöðvarnar gangsettar fyrir lok 2016
Starfmenn Köfunarþjónustunnar vinna við að festa klossana á lögnina.
Árni Geir Sveinsson staðarstjóri Ístak með hreinsistöðina við Ægisbraut á Akranesi í baksýn.
Á dögunum vann efnisflutningaskipið Pétur mikli að því að sturta malarefni í
sjóinn á hluta svæðisins sem sjólögnin á að liggja um. Það var hugsað sem undir-
lag fyrir leiðsluna á kafla þar sem hún þarf að liggja yfir klettahrygg neðansjávar.
Sjálf sjólögnin liggur nú að hluta meðfram veginum út Elínarhöfða á Akranesi. Hún liggur svo áfram út
í sjó frá fjörunni í Höfðavík.
Í fjörunni í Höfðavík er nú unnið að því að festa steinsteypta klossa á leiðsluna sem eiga að halda henni
á hafsbotni. Auk þessa veður leiðslan grafin niður að hluta en einnig fest með akkerum sem fest verða
við botninn.
Þessi bátur heitir Ístak og liggur nú í Akraneshöfn. Hann er í eigu verktakafyrir-
tækisins með sama nafni og búinn fullkomnum staðsetningarbúnaði. Mikillar
nákvæmni í staðsetningum er þörf þegar sjólögnin er lögð á hafsbotninn og þar
gegnir þessi bátur lykilhlutverki.