Skessuhorn - 12.08.2015, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 201522
Ágæt veiði heldur áfram í laxveiði-
ánum, ekki síst um vestanvert land-
ið og í Húnavatnssýslum. Úr Vatns-
dalsá í Húnaþingi var dreginn á land
112 cm lax í síðustu viku, með þeim
bosmameiri sem sjást. Heildarafli í
þeim 25 laxveiðiám sem Þorsteinn
Þorsteinsson á Skálpastöðum skrá-
ir vikulega veiði úr á vef Landssam-
band stangveiðifélaga var í síðustu
viku komin í 22.481 fisk. Meðaltal
á sama tíma allt frá sumrinu 2006
er 18.370 laxar. Þetta jafngildir því
að meðalveiði er nú 22% yfir með-
allagi. „Og ég heyri marga veiði-
menn tala um að fiskur sé enn að
ganga í þó nokkrum mæli. Það
finnst mér gefa vonir um þokka-
legan afla næstu vikur,“ skrifar Þor-
steinn. Norðurá, Þverá, Langá og
Haffjarðará hafa skilað flestum löx-
um á land af vestlensku ánum, en
á landsvísu tróna Blanda, Miðfjarð-
ará og Eystri Rangá á toppnum.
Gufuá komin í 155 laxa
Gufuá í Borgarfirði er ekki vatns-
mesta laxveiðiá landsins og fyr-
ir fáum dögum, þegar ekið var um
þjóðveginn við Gufuárbæinn, sást
að áin var að þorna upp á stórum
köflum. Hún rann varla, en neðar í
henni eru hlutirnir að gerast. „Áin
hefur gefið 155 laxa,“ sagði Hafþór
Óskarsson sem var að koma úr ánni
með nokkra laxa þegar við heyrðum
í honum um síðustu helgi. „Það er
gaman að veiða þarna og ekki hvað
síst neðst í ánni þegar aðstæður eru
svona,“ sagði Hafþór ennfremur.
En það spáir að það fari að rigna og
þá kemst fiskurinn ofar í Gufuá og
það er fyrir mestu.
Haukadalsá komin yfir
tvö hundruð laxa
„Það veiddust 20 laxar í morgun,
en áin er komin yfir 200 laxa, lík-
lega 210 laxa,“ sagði Ari Hermóður
Jafetsson er við spurðum um
Haukadalsá fyrir helgina, en veiðin
hefur verið ágæt þar um slóðir og
töluvert af laxi í ánni. „Veiðimenn
sem hafa verið þarna við veiðar eru
flestir ánægðir með veiðina,“ sagði
Ari.
„Við vorum í Laxá í Dölum og
veiddum 37 laxa á þremur dögum,
áin er skemmtileg,“ sagði Björgvin
Halldórsson sem var í Laxá í fyrsta
sinn fyrir fáum dögum. Áin hefur
gefið 300 laxa sem er miklu betra
en á sama tíma í fyrra. mm/gb
Allt stefnir í prýðilegt laxveiðisumar
Hafþór Óskarsson með flotta veiði úr Gufuá fyrir fáum dögum.
Þessi 112 cm lax, sem mældist 55 cm í þvermál, veiddist í Vatnsdalsá í Húnavatns-
sýslu fyrir nokkrum dögum. Baráttan við þennan höfðingja árinnar stóð í þrjú
kortér.
Það eru ekki allir kettir vondir við
fugla eins og heimilisfólkið að Vall-
holti 10 í Ólafsvík komst að á dög-
unum. Þegar þau komu heim einn
daginn var heimiliskötturinn, sem
er læða, búin að ná sér í ófleygan
þrastarunga sem hún passaði eins
og hann væri kettlingurinn hennar.
Kom hún unganum fyrir í kassan-
um sínum þar sem hún þvoði og lét
mjög vel að honum.
þa
Heimilislæðan tók
þrastarunga í fóstur
Unglingalandsmót UMFÍ var hald-
ið í 18. sinn á Akureyri um verslun-
armannahelgina. 25 keppendur frá
UDN tóku þátt á mótinu en þeir
voru skráðir í badminton, fótbolta,
frjálsar íþróttum, glímu, handbolta,
körfubolta, strandblak og sund.
UDN var með lið í körfubolta og
fótbolta hjá 15-16 ára strákum en
aðrir keppendur í fótbolta voru í
blönduðum liðum. Tveir keppend-
ur frá UDN komust á verðlaunapall
á mótinu, þeir Hilmar Jón Ásgeirs-
son og Vignir Smári Valbergsson.
Hilmar Jón var í fyrsta til öðru sæti
í glímu hjá 13 ára piltum og Vign-
ir Smári var í þriðja sæti í spjótkasti
15 ára pilta. arg
Tveir drengir frá UDN á verð-
launapall á Unglingalandsmóti
Kátir keppendur UDN ganga inn á íþróttavöllinn á Unglingalandsmóti UMFÍ á
Akureyri. Ljósm. Ingveldur Guðmundsdóttir.
Listsýningin „Hið skapandi ferli“
var opnuð í Fljótstungu í Borg-
arfirði fyrr í sumar. Sýningin er
opin alla daga á milli klukkan 9 og
19 fram til 1. september. Í Fljóts-
tungu er rekið listamannasetur sem
skipulagt er af Lilian Pineda dans-
höfundi. Listamenn alls staðar
að úr heiminum koma og dvelja í
Fljótstungu í tvær vikur í senn ann-
að hvort að vori eða hausti og vinna
að verkum sem sýnd eru á sýning-
unni. „Lilian sér um sýninguna sem
er samansafn verka á mismunandi
stigum í hinu skapandi ferli. Einn-
ig fylgja skýrslur frá listamönnun-
um þar sem þeir segja frá verkun-
um og hvernig þau tengjast dvöl-
inni í Fljótstungu. Að þessu sinni
eru verk eftir þá 49 listamenn, frá
22 löndum og fjórum heimsálfum,
sem hafa verið hjá okkur á þessu
ári,“ segir Halldór H. Bjarnason
þegar Skessuhorn hafði samband
við hann fyrr í þessari viku.
arg/ Ljósm. hhb
Listsýning í Fljótstungu í Hvítársíðu
Þrjú verk eftir tvær myndlistakonur frá Íran.
Brot af þeim verkum sem eru til sýnis á
listasýningunni „Hið skapandi ferli“ í
Fljótstungu.
Laugardaginn 15. ágúst býð-
ur þjóðgarðurinn Snæfellsjökull
upp á gönguferð um slóðir Bárð-
ar Snæfellsáss á Djúpalónssand og
í Dritvík. Farið verður út í hellinn
Tröllakirkju sem eingöngu er hægt
að fara í á stórstraumsfjöru, líkt og
verður á laugardaginn. Lagt verður
af stað kl. 12:00 frá bílastæðinu við
Djúpalónssand. Sagnamaðurinn
Sæmundur Kristjánsson leiðir ferð-
ina en Monika C. Kapanke mun
þýða yfir á pólsku. Pólverjar eru
hvattir til að fjölmenna í gönguna
og kynnast fegurð og sögu svæð-
isins. Bárður Snæfellsás setti upp
skip sitt í Dritvík og hann og menn
hans blótuðu sér til heilla í Trölla-
kirkju. Merkar minjar eru í Dritvík
en þar var ein stærsta verstöð lands-
ins áður fyrr.
Sæmundur hefur frá mörgu að
segja en ótal sögur og sagnir teng-
jast svæðinu. Minnst verður sérstak-
lega þeirra kvenna sem reru frá
Dritvík og á það vel við á 100 ára
afmælisári kosningaréttar kvenna
á Íslandi. Ferðin tekur um þrjá
klukkutíma og er ekkert þátttöku-
gjald. Allir velkomnir.
-fréttatilkynning
Sæmundur verður leiðsögumaður í
ferð á Djúpalónssand og í Dritvík