Skessuhorn - 12.08.2015, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2015 25
Opið meira og minna meðan á
Dönskum dögum stendur,
14. – 16. ágúst nk.
Erum við höfnina í Stykkishólmi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Dag ur í lífi...
Forstöðumanns íþróttamannvirkja
Hin árlega bæjarhátíð, Danskir
dagar, verður haldin í Stykkishólmi
um næstu helgi. Er þetta í 21. skipti
sem hátíðin er haldin og er hún
um leið ein af elstu bæjarhátíðum
landsins. Að sögn Önnu Margrétar
Sigurðardóttur framkvæmdastýru
Danskra daga eru íbúar í Hólmin-
um fullir tilhlökkunar. „Undirbún-
ingurinn gengur ágætlega, þetta er
allt að smella,“ segir Anna Margrét
í samtali við Skessuhorn.
Hátíðarhöldin hefjast á föstu-
deginum með götugrillum og að
venju skreytir fólk í kringum sig
með dönsku fánalitunum. „Bak-
aríið ætlar að útbúa bakkelsi sem
best skreytta hverfið fær í verðlaun.
Svo verða heimamenn með tón-
leika á hátíðarsvæðinu á föstudeg-
inum, eftir götugrillin.“ Anna Mar-
grét segir hátíðina verða með hefð-
bundnu sniði í ár. „Við verðum líka
með einhverjar nýjungar, svo sem
svokallaðan heimavistarhitting.
Þeir sem voru á gömlu heimavist-
inni, þar sem dvalarheimilið er nú
til húsa, á árunum 1959-78 ætla að
hittast og hafa gaman,“ segir hún.
„Svo verður líka fyrirtækjakeppni
í loftbolta (bubblebolta) þar sem
keppt verður um titilinn „Orku-
mesta fyrirtækið í Hólminum“.
Það stefnir í góða þátttöku í þeirri
keppni,“ bætir hún við.
Mikil stemning
í bænum
Á laugardeginum heldur gleðin í
Stykkishólmi áfram og verður fjöl-
breytt dagskrá fyrir íbúa og gesti
hátíðarinnar. Meðal annars verða
hoppukastalar á hátíðarsvæðinu
fyrir yngstu kynslóðina, ratleik-
ur, vatnaboltar og Ingi Hans mæt-
ir með söguvagninn Brandþrúði.
„Íþróttaálfurinn kemur í heimsókn
og Haffi Gúnda hefur verið að búa
til ýmis ásláttarhljóðfæri sem hann
mun leika á ásamt nokkrum nem-
endum úr tónlistarskólanum. Svo
verður auðvitað kvöldvaka með
brekkusöng og flugeldasýningu um
kvöldið.“ Hátíðin endar á Pallaballi
í íþróttahúsinu en auk þess munu
ýmsir trúbadorar verða á veitinga-
stöðum bæjarins. „Það er að mynd-
ast mikil stemning í bænum og
stefnir í skemmtilega helgi,“ segir
Anna Margrét að endingu.
grþ
Samfélagsstyrkjum að upphæð tíu
milljónir króna var úthlutað úr
Samfélagssjóði Landsbankans fyr-
ir síðustu helgi. Alls hlutu 26 verk-
efni styrki við þessa úthlutun. Tvö
verkefni á vegum Rauða krossins
og Geðhjálpar hlutu samtals eina
milljón króna. Annars vegar fengu
RKÍ og Geðhjálp styrk út á verk-
efnið Hópastarf og virkni á vegum
RKÍ sem ætlað er að styðja við bak-
ið á ungum drengjum sem eiga erfitt
með að fóta sig í lífinu. Einnig fékk
landssöfnunin Út með’a, vitund-
arvakning gegn sjálfsvígum ungra
karla styrk. Þá fengu tólf verkefni
500 þúsund krónur hvert og önnur
tólf fengu 250 þúsund króna styrki.
Um 300 umsóknir bárust sjóðnum
að þessu sinni.
Samfélagsstyrkjum er einkum
ætlað að styðja mannúðar- og líkn-
armál, menntamál, rannsóknir og
vísindi, forvarnar- og æskulýðsstarf,
sértæka útgáfustarfsemi og verkefni
á sviðum menningar og lista. Sam-
félagsstyrkir verða veittir tvisvar á
þessu ári en umsóknarfrestur vegna
seinni úthlutunar rennur út í októ-
ber næstkomandi. mm
Nafn: Aðalsteinn Jósepsson.
Fjölskylduhagir/búseta: Bý
með konunni og tveimur börn-
um í Grundarfirði.
Starfsheiti/fyrirtæki: For-
stöðumaður íþróttamannvirkja
í Grundarfirði.
Áhugamál: Tónlist, kvikmynd-
ir, körfubolti og amerískur fót-
bolti.
Dagurinn: Miðvikudagur 5.
ágúst 2015.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði klukkan
7:20 og vakti börnin til að koma
þeim í leikskólann.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? Frootloops morgunkorn.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég var mættur klukk-
an átta, kom á bíl.
Fyrstu verk í vinnunni: Að
fara yfir tölvupósta og þess hátt-
ar. Ég er í framkvæmdum núna
inni í íþróttahúsinu og vinnan
snýst svolítið mikið um það. Ég
þurfti til dæmis að fá lánaðan
skriðdreka (juðara).
Hvað varstu að gera klukk-
an 10? Þá var ég að slípa inni í
íþróttahúsi.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Í
hádeginu fór ég út á Rúben og
náði í mat fyrir mig, konuna og
dótturina sem var heima.
Hvað varstu að gera klukk-
an 14: Þá fór ég niður á tjald-
svæði og tók hring þar. Það þarf
reglulega að yfirfara að allt sé í
lagi þar.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Ég
hætti klukkan 16. Það síðasta
sem ég gerði var að panta meiri
sandpappír fyrir juðarann.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Náði í strákinn á leikskólann og
tók með aukabarn. Svo var farið
heim að leika sér.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Konan eldaði beikon-
vafðar kjúklingabringur með
hrísgrjónum og gufusoðnu
grænmeti.
Hvernig var kvöldið? Geng-
ið frá eftir kvöldmatinn og í
þvottahúsinu. Svo þegar búið
var að baða börnin og svæfa var
lagst í sófann.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Burstaði tennurnar.
Hvað stendur uppúr eftir
daginn? Það eru allir dagar til-
tölulega fjölbreyttir en þennan
dag talaði ég við Henson upp
á að kaupa búninga fyrir körfu-
boltaliðið.
Eitthvað að lokum? Nei, ég
held ekki.
Mikil stemning myndast árlega á Dönskum dögum. Hér eru félagar úr Lions-ak-
sjóninni að bregða á leik 2013. Ljósm. eb.
Danskir dagar
framundan í Stykkishólmi
Anna Margrét Sigurðardóttir er framkvæmdastýra Danskra daga 2015.
Frá afhendingu samfélagsstyrkja Landsbankans. Hér má sjá styrkþega eða full-
trúa þeirra ásamt Guðrúnu Agnarsdóttur, formanni dómnefndar, lengst til vinstri
og Steinþóri Pálssyni bankastjóra lengst til hægri.
Landsbankinn
veitti samfélagsstyrki