Skessuhorn - 12.08.2015, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2015 31
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Óvenjulega lítil úrkoma hefur verið
í Borgarnesi líkt og víðar á Vestur-
landi undanfarnar vikur. Sólríkja og
þurrviðri einkenna sumarið. Gras-
flatir eru af þessum sökum farnar
að sölna og tré og gróður á holt-
um tekur á sig snemmbúinn haust-
lit. Gripið var til þess ráðs á mánu-
daginn að gegnbleyta Skallagríms-
völl með því að aka með dráttarvél
og marga tanka af vatni á völlinn.
þg
ÍA tók á móti toppliði FH á Akra-
nesi síðastliðið mánudagskvöld í
15. umferð Pepsi-deildar karla.
Fyrir leikinn voru Skagamenn í 9.
sæti deildarinnar með 17 stig. Leik-
urinn byrjaði vel fyrir heimamenn,
sem skoruðu fyrsta mark leiks-
ins strax á fjórðu mínútu. Það var
Arnar Már Guðjónsson sem stökk
hærra en aðrir í teignum og náði
að skalla hornspyrnu frá Ásgeiri
Marteinssyni beint í markið. Eftir
að ÍA komst yfir spiluðu FH-ingar
af krafti og höfðu betur. Þeir sóttu
stíft og á 24. mínútu jöfnuðu þeir
leikinn þegar Atli Viðar Björnsson
skoraði með skoti úr markteigi eft-
ir skyndisókn gestanna. FH-ingar
voru mun meira með boltann í fyrri
hálfleik en náðu ekki að skapa sér
fleiri afgerandi færi og var staðan
því jöfn í hálfleik.
Gestirnir voru sprækir í síðari
hálfleik og hófu hann af krafti. Eftir
frábæra sókn náði Emil Pálsson að
koma FH í 2:1 á 49. mínútu þegar
hann skoraði með skalla. FH-ingar
héldu áfram og skoruðu sitt þriðja
mark á 53. mínútu þegar Atli Viðar
Björnsson skoraði sitt annað mark
í leiknum með skalla eftir send-
ingu Serwy fyrir markið. Skaga-
menn gáfust þó ekki upp og það
var Garðar Gunnlaugsson sem náði
að minnka muninn í 3:2 á 81. mín-
útu með skoti af markteig. Heima-
menn sóttu áfram af krafti eftir
mark Garðars og Jón Vilhelm átti
skot sem small í stönginni rétt fyr-
ir leikslok. Undir lok leiksins fékk
Skagamaðurinn Marko Andelkovic
rautt spjald fyrir að brúka munn.
Leiknum lauk með sigri FH-inga,
3:2 og sitja þeir enn á toppnum
með 33 stig. Skagamenn eru áfram
í 9. sæti deildarinnar og eru með
17 stig. Næsti leikur ÍA er útileikur
á móti Breiðabliki 17. ágúst næst-
komandi.
grþ/ Ljósm. Guðmundur Bjarki.
Skotgrund - skotfélag Snæfells-
ness stóð fyrir stórskemmtilegu
refamóti á æfingasvæði félagsins
sunnudaginn 9. ágúst síðastliðinn.
Þetta var í fyrsta skipti sem slíkt
mót er haldið en hugmyndin að því
var fengin frá Skotfélagi Austur-
lands. Mæting var með besta móti
en 19 skotveiðimenn öttu kappi.
Mótið fór þannig fram að hver og
einn skotmaður átti að skjóta 10
útskorna refi í mismunandi fjar-
lægðum úr liggjandi stöðu. Það fór
svo þannig að Finnur Steingríms-
son frá Skotfélagi Akureyrar sigr-
aði og hlaut 128 stig. Hilmir Vals-
son frá Skotfélagi Vesturlands varð
í öðru sæti með 126 stig og Gunn-
ar Ásgeirsson frá Skotfélagi Snæ-
fellsness varð í þriðja sæti einn-
ig með 126 stig en þar sem Hilm-
ir var með einu skoti meira í miðj-
una þá hreppti hann silfrið. Það
var listamaðurinn Þorgrímur Kol-
beinsson hjá Lavaland ehf sem
smíðaði verðlaunagripina og einn-
ig gaf verslunin Hlað sigurvegar-
anum 10.000 kr. inneign í verslun-
inni.
Í grillveislunni eftir mótið var
strax ýjað að því að halda annað
slíkt mót að ári enda heppnaðist
þetta frábærlega í alla staði.
tfk
Þrír sundkappar úr Sri Chinmoy
heimseiningar Friðarhlaupinu luku
nýverið hlaupinu hér á landi með
því að synda yfir Hvalfjörðinn með
logandi friðarkyndil og hlaupa það-
an til Reykjavíkur. Þeir Aryavan
Lanham frá Ástralíu, Chandrak-
anta Krull frá Bandaríkjunum og
Sarvodaya Gregoryansky frá Úk-
raínu lögðu í hann frá Katanesi og
náðu landi við Eyrarkot hjá vitan-
um á Hvalfjarðareyri. Björgunar-
sveit Akraness fylgdi sundmönnun-
um. Eftir það var hlaupið af stað til
Reykjavíkur.
Sri Chinmoy heimseiningar
Friðarhlaupinu lauk svo fyrir fram-
an Alþingishúsið. Þar tóku þing-
menn úr ólíkum flokkum á móti
Friðarhlaupinu og sameinuðust um
Friðarkyndilinn. Þannig sýndi fólk-
ið með táknrænum hætti stuðning
sinn við að hlúa að og byggja áfram
upp friðarmenningu Íslands, sem
Sri Chinmoy, stofnandi Friðar-
hlaupsins, kallaði einstaka. mþh
Óhætt er að segja að liðsmenn Vík-
ings Ólafsvík séu í fantaformi þessa
dagana. Á laugardaginn tóku þeir
á móti toppliði Þróttar og höfðu á
þeim 3:2 sigur. Leikurinn þótti afar
skemmtilegur og hafði einn gesta á
vellinum á orði að þetta hefði verið
einn besti knattspyrnuleikur sum-
arsins og var hann þá að miða við
þá leiki sem hann hafði séð í úr-
valsdeildinni. Nú situr því Víking-
ur á toppi deildarinnar með 35 stig,
tveimur fleiri en Þróttur. Í þriðja
sæti er svo Þór Akureyri með 28
stig. Sæti í úrvalsdeild næsta sumar
er því handan við hornið hjá Ólsur-
um haldi þeir vel á spöðunum það
sem eftir lifir móts.
Leikurinn í Ólafsvík byrjaði fjör-
lega hjá Þrótturum sem skoruðu
mark á 15. mínútu. Aftur kort-
eri síðar fengu Ólsarar vítaspyrnu
sem markmaður Þróttar varði.
Fleiri urðu mörkin ekki fyrir hlé
og gestirnir því marki yfir. Það
voru hins vegar heimamenn sem
komu sprækari til síðari hálfleiks
og voru einungis þrjá mínútur liðn-
ar af hálfleiknum þegar Kenan Tu-
dija jafnaði metin við mikinn fögn-
uð heimamanna. Það var hins vegar
Dominguez sem kom heimamönn-
um yfir á 72. mínútu. Aftur jafn-
aði Þróttur þegar Viktor Jónsson
gerði sitt annað mark fyrir gestina
á 85. mínútu og tóku þá leikar að
æsast mjög. Sigurmarkið í leiknum
skoraði Dominguez síðan tveimur
mínútum fyrir leikslok með skoti
af stuttu færi. Verðskuldaður sig-
ur Víkings var staðreynd og heima-
menn himinlifandi eftir árangurinn
í einum þýðingarmesta leik sum-
arsins.
Í næsta leik mæta Víkingar botn-
liði deildarinnar; BÍ/Bolungarvík.
Fer leikurinn fram á Torfnesvelli
og hefsta klukkan 18:30 á föstudag-
inn.
mm/ Ljósm. af.
Víkingur á toppi deildarinnar
Garðar Gunnlaugsson var maður
leiksins.
FH hafði betur á Skaganum
Arnar Már stökk manna hæst og skoraði strax á fjórðu mínútu.
Einbeitingin skein úr hverju andliti.
Refir í sigtinu hjá
skotfélagsmönnum
Komið að landi með kyndilinn eftir
sund frá Katanesi að Hvalfjarðareyri.
Syntu með kyndil yfir Hvalfjörð
Bleytt vel í Skallagrímsvelli