Skessuhorn - 23.09.2015, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2015 9
Minningartónleikar til heiðurs Lo-
vísu Hrund Svavarsdóttur verða
haldnir á Akranesi mánudag-
inn 5. október næstkomandi, á af-
mælisdegi Lovísu Hrundar. Lov-
ísa Hrund lést þann 6. apríl 2013
í hörðum árekstri á Akrafjalls-
vegi þegar ölvaður ökumaður, sem
kom úr gagnstæðri átt, ók í veg fyr-
ir hana. „Lovísa Hrund hefði orð-
ið tvítug þennan dag og við ákváð-
um því að skella í tónleika af því til-
efni. Það hafa allir tekið ofboðslega
vel í hugmyndina og allir tilbúnir
að hjálpa okkur með þetta,“ seg-
ir Hrönn Ásgeirsdóttir móðir Lo-
vísu Hrundar í samtali við Skessu-
horn. Allur ágóði tónleikanna
rennur óskiptur til Minningar-
sjóðs Lovísu Hrundar. Tilgangur
hans er að stuðla að fræðslu og for-
vörnum gegn akstri ökutækja undir
áhrifum áfengis og annarra vímu-
efna. Á tónleikunum munu koma
fram Þjóðlagasveit Tónlistarskól-
ans á Akranesi, Ylfa og Hallur, Jón
Jónsson, Friðrik Dór og gætu fleiri
flytjendur bæst í hópinn. Þá mun
Jóhannes Kr. Kristjánsson flytja
hugvekju og Ólafur Páll Gunnars-
son verður kynnir kvöldsins. All-
ir sem koma að tónleikunum gefa
vinnu sína.
Forvarnardagur í FVA
Hrönn bætir því við að sama dag
verði haldinn forvarnardagur í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi.
„Þar verður haldinn fyrirlestur á sal
fyrir nemendur skólans um skað-
semi ölvunaraksturs. Samgöngu-
stofa mun koma að þeirri fræðslu
og Sjentilmannaklúbburinn á Bif-
röst. Sjentilmannaklúbburinn mun
koma með ölvunargleraugu sem
krakkarnir fá að prófa í lok fyrir-
lesturs. Með þeim er hægt að sjá
hversu brengluð skynjunin verður
við ölvun og það er gott fyrir þau
að prófa þetta í kjölfar fræðslunn-
ar, á meðan þau eru meðvituð,“
segir Hrönn. Hún segir gleraugun
hafa vakið mikla athygli en þau eru
keypt fyrir styrk úr Minningarsjóði
Lovísu Hrundar.
„Við viljum nota tækifærið og tjá
þakklæti fyrir alla þá hjálp sem við
höfum fengið og einnig að þakka
þeim flytjendum sem munu koma
fram á tónleikunum. Það er ekki
sjálfgefið að fá fólk í svona verkef-
ni en hefur gengið mjög vel að safna
saman þessum góða hópi flytjenda.“
Miðasala á tónleikana hefst klukkan
18 á tónleikadegi og er miðaverð
3.500 krónur. Enginn posi er á stað-
num og er vakin athygli á því að þeir
sem ekki komast á tónleikana en vil-
ja styrkja sjóðinn er bent á vefslóði-
na www.lovisahrund.is fyrir frekari
upplýsingar. grþ
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Deildarstjóri
tæknideildar
Borgarnes
Starf deildarstjóra tæknideildar Vegagerðarinnar á
Vestursvæði er laust til umsóknar.
Um 100% starf er að ræða.
Starfssvið
Stjórnun á áætlanagerð, undirbúningi og framkvæmd verka á sviði
viðhalds- og nýframkvæmda á Vestursvæði.
Yfirumsjón með stofn-, tengi- og héraðsvegum, efnisvinnslu,
frágangi náma, yfirlögnum og styrkingum bundinna slitlaga, brúm,
varnargörðum og umferðaröryggisaðgerðum ásamt öðrum tilfallandi
verkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Verk- eða tæknifræðingur•
Stjórnunarreynsla er æskileg•
Góð íslenskukunnátta•
Góð tölvukunnátta•
Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt•
Góðir samstarfshæfileikar•
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar báðum
kynjum og í samræmi við jafnréttisáætlun Vegagerðarinnar eru
konur með umbeðnar hæfniskröfur sérstaklega hvattar til að
sækja um starfið.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins við viðkomandi
stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til 5. október 2015.
Umsóknin berist mannauðsstjóra Vegagerðarinnar, netfang
oth@vegagerdin.is.
Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt starfsferilskrá
og upplýsingum um þá menntun og hæfni sem óskað er eftir.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingvi Árnason svæðisstjóri í
síma 522-1510.
Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Lovísa Hrund Svavarsdóttir hefði orðið tvítug, daginn sem tónleikarnir fara fram.
Minningartónleikar um Lovísu Hrund
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Lýsing vegna breytingar
á aðalskipulagi
Jaðar, Bæjarsveit 9, 16, 17 og 24 – lýsing
vegna breytingar á aðalskipulagi
Sveitarstjórn samþykkti 13. ágúst 2015 að
auglýsa lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi
Borgarbyggðar 2010 – 2022.
Breytingin felst í að landnotkun á lóðunum
Jaðri, Bæjarsveit 9, 16,17 og 24 verði breytt úr
landbúnaðarsvæði í frístundasvæði. Skipulagið nær
yfir um 64,2 ha land, Jaðar 9 (5,5 ha), Jaðar 16 (5,6
ha), Jaðar 17 (40 ha) og Jaðar 24 (13,1 ha). Gert er
ráð fyrir allt að 146 lóðum á svæðinu.
Lýsingin verður auglýst frá 23. september til og
með 2. október 2015 skv. 36. gr. skipulagslaga
123/2010
Kynningarfundur fimmtudaginn 1. október í
Ráðhúsi Borgarbyggðar kl. 19.00 til 20.00
Skoða má gögnin á heimasíðu Borgarbyggðar
www.borgarbyggd.is og í Ráðhúsi Borgarbyggðar,
Borgarbraut 14, Borgarnesi frá og með 23.
september 2015.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila fyrir 2.
október 2015 annað hvort í Ráðhús Borgarbyggðar
eða á netfangið lulu@borgarbyggd.is og skulu þær
vera skriflegar.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Skipulagsauglýsingar í Borgarbyggð
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt að auglýsa
eftirfarandi skipulög:
Ölvaldsstaðar II – breytt aðalskipulag
Sveitarstjórn samþykkti 20. maí 2015 að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022. Í
breytingunni fellst breyting á landnotkun úr landbúnaðarsvæði í frístundasvæði og er sett fram á uppdrætti
með greinargerð dags. 5. maí 2015.
Tillagan verður auglýst frá 23. september til og með 3. nóvember 2015 skv. 30. gr. skipulagslaga 123/2010.
Ölvaldsstaðar II – nýtt deiliskipulag
Sveitarstjórn samþykkti 20. maí 2015 að auglýsa deiliskipulag fyrir Ölvaldsstaði. Tillagan er sett fram á
uppdrætti og í greinargerð dags. 5. maí 2015 og felur meðal annars í sér skipulag fyrir 22 frístundalóðir og
útivistarsvæði.
Tillagan verður auglýst frá 23. september til og með 3. nóvember 2015, skv. 41. gr. skipulagslaga 123/2010.
Munaðarnes 1. áfangi – breytt deiliskipulag
Sveitarstjórn samþykkti 21. apríl 2015 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi við Munaðarnes, áfanga 1.
Í breytingunni felst meðal annars að tvö skipulagssvæði verði sameinuð og bætt verði við fimm lóðum.
Deiliskipulagið er sett fram á uppdrætti með greinargerð dags. febrúar 2015.
Deiliskipulagið verður auglýst frá 23. september til og með 3. nóvember skv. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.
Munaðarnes 2. áfangi – breytt deiliskipulag
Sveitarstjórn samþykkti 21. apríl 2015 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi við Munaðarnes, áfanga 2.
Í breytingunni felst meðal annars að tvö skipulagssvæði verði sameinuð og bætt verði við tíu lóðum við
Jötnagarðsás, afmakaðar fjórar stakar lóðir, skilgreint útivistarsvæði og göngustígar. Deiliskipulagið er sett
fram á uppdrætti með greinargerð dags. febrúar 2015.
Deiliskipulagið verður auglýst frá 23. september til og með 3. nóvember skv. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.
Kynningarfundur fimmtudaginn 1. október í Ráðhúsi Borgarbyggðar kl. 19.00 til 20.00
Skoða má gögnin á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is og í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut
14, Borgarnesi frá og með 23. september 2015.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila fyrir 3. nóvember 2015 annað hvort í Ráðhús Borgarbyggðar eða
á netfangið lulu@borgarbyggd.is og skulu þær vera skriflegar.