Skessuhorn - 23.09.2015, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2015 11
LAGERSALA
Fimmtudag 24. sept. kl. 13-18
Föstudag 25. sept. kl. 13-18
Laugardag 26. sept. kl. 11-15
Mánudag 28. sept. kl. 13-18
Þriðjudag 29. sept. kl. 13-18
Miðvikudag 30. sept. kl. 13-18
Fimmtudag 1. okt. kl. 13-18
Föstudag 2. okt. kl. 13-18
Laugardag 3. okt. kl. 11-15
ATH: Gjafakort og inneignir
gilda ekki á lagersölu.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
70% AFSLÁTTUR OG MEIRA
AF DÖMU- OG HERRAFATNAÐI!
Hefst fimmtudaginn 24. sept.kl. 13:00 að
Kalmansvöllum 1A (Húsgagnaverslunin Bjarg).
Fjórða umferðin í Íslandsmótinu í
rallý fer fram laugardaginn26. sept-
ember næstkomandi. Hefst keppn-
in hjá Geysi í Haukadal klukkan
10:00 og haldið upp á Skjaldbreið-
arveg. Nokkur ár eru síðan ekið
hefur verið um þennan línuveg.
Er leiðin um 42 km löng og telst
lengsta sérleið sumarsins. Mun
hún reyna á úthald og einbeitingu
áhafna sem og ástand bifreiða. Síð-
an færist keppnin nær Borgarfirði
en ekið verður yfir Uxahryggi eft-
ir að komið er út við Kaldadals-
veg. Uxahryggir eru ökumönnum
vel kunnug akstursleið því hún hef-
ur verið ekin að jafnaði einu sinni
á sumri undanfarin ár. Þegar kom-
ið er niður af Uxahryggjum munu
áhafnirnar snúa við og aka báðar
sérleiðirnar til baka.
Að akstri loknum halda keppend-
ur niður að Korputorgi þar sem úr-
slit verða tilkynnt klukkan 16:30
en þar verður einnig rallýsýning
hjá Planinu í tilefni þess að í ár eru
40 ár síðan fyrsta rallýkeppnin var
haldin hérlendis. Er sýningin opin
laugardag og sunnudag og er að-
gangur ókeypis.
Að þessu sinni eru 13 áhafn-
ir skráðar til leiks, má þar sjá bæði
nýliða sem og þaulreyndar áhafnir.
Þeir Baldur Haraldsson úr Skaga-
firði og Aðalsteinn Símonarson úr
Borgarnesi mæta galvaskir til leiks
en þeir leiða nú Íslandsmótið með
tæplega 15 stiga forskoti á Daníel
Sigurðsson og Ástu Sigurðardótt-
ur en þau systkin verða fjarri góðu
gamni á laugardaginn. Helsti keppi-
nautur þeirra að þessu sinni verður
Henning Ólafson sem mætir á nýj-
um bíl eftir að hafa velt þeim gamla
við Hvaleyrarvatn í síðustu umferð.
Með honum verður Sunnlending-
urinn Sigurjón Þór Þrastarson.
mm
Katrín Lea Daðadóttir er tólf ára
nemandi við Grundaskóla á Akra-
nesi. Hún hefur gaman af nám-
inu og þá sérstaklega tungumála-
námi. Katrín byrjaði ung að læra
ensku og byrjaði nýverið í fjar-
námi í ensku við Verzlunarskóla Ís-
lands, þrátt fyrir ungan aldur. Tíu
og ellefu ára gömul var hún að læra
ensku sem ætluð var nemendum í 8.
- 10. bekk. Þrátt fyrir að fá töluvert
af aukaverkefnum var hún fljót að
klára og var farið að leiðast í ensku-
tímum. „Ég var alltaf búin með allt
og hafði eiginlega ekkert að gera í
tímunum. Þannig að ég talaði við
mömmu um þetta og hún tékkaði á
því hvort ég mætti byrja í fjarnámi,
sem ég fékk,“ segir Katrín Lea í
samtali við blaðamann. Hún segir
að breytingin sé góð og að fjarnám-
ið gangi vel. „Þetta er samt bara
fyrsta önnin mín, en mér finnst
þetta skemmtilegra svona. Núna er
ég meira í ritun en áður en annars
er þetta svipað. Ég fæ að fara niður
á bókasafn að læra þegar bekkurinn
er í ensku.“
Lærði ensku í leikskóla
Katrín Lea segist aldrei hafa búið
erlendis en hún byrjaði þrátt fyrir
það að læra enskuna snemma. „Ég
bjó í Keflavík þegar ég var yngri og
í leikskólanum þar var okkur kennd
enska. Ég byrjaði örugglega að læra
ensku þegar ég var fjögurra ára.“
Katrín Lea segir að henni hafi allt-
af þótt enskan skemmtileg og hún
náði fljótt góðri færni í tungumál-
inu, enda byrjaði hún snemma að
lesa bækur á ensku. Fyrsta ensku-
ritaða skáldsagan sem hún las var
Hobbitinn eftir J.R.R Tolkien.
Hana las Katrín Lea þegar hún var
átta ára gömul. „Eftir það fór ég
að lesa meira. Núna hef ég verið
að lesa The Mazerunner seríurn-
ar en Harry Potter bækurnar og
bækur eftir Tolkien eru samt í upp-
áhaldi hjá mér,“ segir Katrín Lea.
Hún á tvær yngri systur sem eru
einnig farnar að læra ensku, þrátt
fyrir ungan aldur. „Þær eru sex og
níu ára og eru farnar að tala dálít-
ið. Þeim finnst mjög gaman að tala
ensku.“ - Ert þú þá að kenna þeim?
„Já eiginlega,“ segir Katrín Lea og
hlær.
Var boðið að sleppa
fyrsta bekk
Katrín Lea er augljóslega mik-
ill námshestur. Hún var ekki nema
fjögurra ára þegar hún lærði að
lesa og var farin að lesa stórar bæk-
ur á borð við Harry Potter sex ára.
Henni var boðið að sleppa fyrsta
bekk þegar hún byrjaði í grunn-
skóla. „Mér stóð til boða að fara
beint í annan bekk í Myllubakka-
skóla en mamma og pabbi afþökk-
uðu það. Þau vildu frekar að ég væri
með jafnöldrum mínum í bekk,“
segir hún. Aðspurð um hvernig
henni gengur í öðrum fögum en
ensku segir Katrín Lea að það gangi
vel í flestu, hún sé til að mynda að
læra stærðfræði sem ætluð er fyr-
ir þá sem eru tveimur árum eldri.
Þrátt fyrir að verja dágóðum tíma í
lestur og heimanám þá nær hún að
sinna áhugamálum sínum vel. „Ég
hef mestan áhuga á leiklist, söng
og tónlist. Ég er í tónlistarskólan-
um að læra á gítar en áður hafði
ég lært á blokkflautu í Keflavík og
Rallý helgarinnar fer meðal
annars um Uxahryggjaveg
Félagarnir Baldur og Aðalsteinn, Tímon-liðið, leiða keppnina á Íslandsmótinu.
Var orðin læs fjögurra ára gömul
ég var í söngskóla Huldu Gests í
fyrra,“ segir Katrín Lea. Aðspurð
um framtíðina segist hún ekki vita
hvað hana langar að gera, en það
komi til greina að verða leikkona
eða söngkona.
Sjálflærð í spænsku
Katrín Lea hefur ekki einungis
áhuga á ensku og tónlist. Hún er
einnig að læra fleiri tungumál, upp
á sitt einsdæmi. „Sko, þegar ég var
tíu ára kunni ég orðið dálítið mik-
ið í ensku og langaði að prófa að
læra annað tungumál. Ég hugsaði
þetta aðeins og fannst spænskan
skemmtileg, þannig að ég ákvað að
læra hana,“ segir Katrín Lea. Hún
útskýrir fyrir blaðamanni að það
sé lítið mál að læra tungumál sjálf-
ur. „Maður les bara á netinu og svo
horfi ég á sápuóperur í sjónvarpinu.
Það er sniðugt því þá er íslenskur
texti.“ Hún fór með fjölskyldunni
til Kanaríeyja í sumarfríinu og fékk
þá tækifæri til að æfa spænskuna í
fyrsta sinn. „Ég prófaði aðeins að
tala, sérstaklega þegar við vorum að
panta mat og svona - og svo túlk-
aði ég aðeins fyrir mömmu. En
mér finnst samt auðveldara að skilja
hvað aðrir eru að segja en að tala
sjálf,“ segir Katrín Lea að endingu.
grþ
Katrín Lea Daðadóttir nemandi í
7. bekk er að læra ensku á fram-
haldsskólastigi.
SKÓLASTJÓRI Í BORGARBYGGÐ
Staða skólastjóra við Andabæ, Hvanneyri er laus til umsóknar. Andabær er skóli fyrir 74 börn sem byggir
starf sitt á útinámi og náttúru- og umhverfismennt. Leitað er að skólastjóra til að leiða uppbyggingu
skólastarfsins í samvinnu við starfsfólk, foreldra og börn. Skólastjóri tekur einnig virkan þátt í að móta
skólasamfélag Borgarbyggðar með uppbyggilegum og framsýnum hætti í samvinnu við fjölskyldusvið og
aðra skóla í Borgarbyggð. Þróunarstarf er að hefjast um breytingar á aldri barna sem dvelja í skólanum
sem nær yfir leikskólastig og yngri bekki grunnskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Grunnskólakennari eða leikskólakennari
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- og kennslumála æskileg
• Reynsla af stjórnun, rekstri og þróunarstarfi
• Hæfni til að veita faglega forystu og frumkvæði
• Færni í mannlegum samskiptum
• Metnaður og áhugi á nýjungum í leikskólastarfi
Verkefni og ábyrgðarsvið
• Er faglegur leiðtogi skólans
• Stjórnar daglegri starfsemi
• Sér um áætlanagerð og innra mat
• Ber rekstrarlega ábyrgð
• Sér um starfsmannahald
• Ber ábyrgð á samstarfi við foreldra
• Ber ábyrgð á samvinnu við ýmsar stofnanir
Staðan er laus frá 15. október 2015.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Borgarbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um stöðu
skólastjóra.
Umsóknarfrestur er til og með 3. október 2015.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Magnea Hreinsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs, netfang
annamagnea@borgarbyggd.is eða í síma 525-8500.
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn á netfangið annamagnea@borgarbyggd.is. Umsókn þarf
að fylgja yfirlit yfir nám og störf og upplýsingar um reynslu af stjórnun, rekstri og þróunarstarfi. Jafnframt er
óskað eftir því að gerð verði grein fyrir hugmyndum að áherslum í uppbyggingu skólastarfs í Andabæ.
Skólar í Borgarbyggð
Skólar í Borgarbyggð eru eftirsóknaverðir vinnustaðir þar sem áhersla er lögð á jákvæðni, áreiðanleika og
fagmennsku kennara og annarra starfsmanna. Þar starfar vel menntað og hæft starfsfólk sem skipuleggur
nám og starf barna á markvissan hátt. Unnið er með leiðtogafærni starfsfólks og nemenda og er vellíðan
og velferð barna í fyrirrúmi. Gott og náið samstarf er haft við foreldra og þeir hvattir til að taka virkan
þátt í námi barna sinna. Þróunarstarf er virkur þáttur í skólastarfi og fást börn og ungmenni við fjölbreytt
viðfangsefni við hæfi hvers og eins.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5