Skessuhorn - 23.09.2015, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2015 15
Borðhald hefst kl. 19.00
Langborðsstemning
Grétar Örvarsson
leikur fyrir matargesti
Verð 3.900 kr.
KÓTILETTUKVÖLD
Kótilettur eins og amma gerði þær
Föstudaginn 9. október 2015
Borðapantanir í símum
525-8440/898-1779
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Borgarfirði
ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA
BLIKKSMIÐJA
Loftræstingar – Reykrör
Klæðningar – Nýsmíði
Viðhald – Efnissala
JÁRNSMIÐJA
Gjafagrindur – Nýsmíði
Viðhald – Þjónusta
Hesthúsinnréttingar
RAFMAGNS-
VERKSTÆÐI
Nýlagnir – Viðhald
Viðgerðaþjónusta
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
Síðastliðinn sunnudag var í Ólafs-
víkurkirkju afhentur veggskjöldur
í kirkjuna. Það voru aðstandendur
hjónanna Markúsar Einarssonar og
Soffíu E. Sigurðardóttur, sem á sín-
um tíma gáfu kirkjunni skírnarfont,
sem afhentu veggskjöldinn. Á hon-
um er eftirfarandi texti: „Gefendur
A. Markús Einarsson framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúss Ólafsvíkur og
kona hans Soffía E. Sigurðardóttir
ásamt stjórn Hraðfrystihúss Ólafs-
víkur 1953.“ Skírnarfontinn gerði
á sínum tíma Wilhelm Beckmann
myndhöggvari. Verður veggskjöld-
urinn settur upp í kirkjunni til að
vekja athygli gesta og upplýsa þá
um listaverkið. Að guðsþjónustu
lokinni var boðið til kaffisamsætis
í safnaðarheimilinu. Þar flutti Jón
Þór Þórhallsson, formaður stjórnar
stofnunar Wilhelms Beckmanns,
erindi um listamanninn sem jafn-
framt var tengdafaðir hans.
Íslenskur listamaður af
þýsku bergi brotinn
Wilhelm Beckmann var mjög fjöl-
hæfur listamaður. Allt lék í höndum
hans. Hann skar út í tré, hjó í stein,
málaði myndir og gerði skartgripi.
Langþekktastur er hann þó fyrir
útskurðarverk sín. Verk hans er að
finna í mörgum kirkjum og heim-
ilum. Hann skar út marga skírn-
arfonta í líkingu við þann sem er
í Ólafsvíkurkirkju og tækifæris-
gjafir af ýmsu tagi. Sýning á verk-
um hans var haldin í tilefni af 50
ára afmæli Kópavogskirkju og var
það fyrsta yfirlitssýningin á verkum
Beckmann. Hann gaf Kópavogs-
kirkju fyrstu altaristöflu kirkjunnar
1954 og er hún nú í anddyri safn-
aðarheimilisins Borga. Myndir af
mörgum verkum Wilhelms Beck-
mann eru til sýnis á 3. hæð Bóka-
safns Kópavogs. af
Veggskjöldurinn afhentur í Ólafsvíkurkirkju sl. sunnudag.
Veggskjöldur afhentur
í Ólafsvíkurkirkju