Skessuhorn - 09.03.2016, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 10. tbl. 19. árg. 9. mars 2016 - kr. 750 í lausasölu
Framtíðin er
full af möguleikum
Traust fjármálaráðgjöf leggur grunn
að farsælli framtíð
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
5
-0
0
5
0
Coldfri munnúði
Fluconazol
ratiopharm
- við kvefi og hálsbólgu
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
FRAMKÖLLUNARÞJÓNUSTAN EHF
BRÚARTORGI - 310 BORGARNESI - S. 437 1055
www.framkollunarthjonustan.is
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
EGILS SÖGUR
í tímahylki tals og tóna
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Næstu sýningar:
Föstudagur 11. mars kl. 20
Laugardagur 12. mars kl. 20
Laugardagur 19. mars kl. 20
Sunnudagur 20. mars kl. 16
Hundar vita fátt skemmtilegra en að leika sér í vatni. Þessi gulleiti labrador fékk að busla dálítið í fjörunni við Búðardal í síðustu viku þegar ljósmyndari var á ferðinni
skömmu fyrir sólarlag. Ljósm. sm.
Skaginn hf. á Akranesi, ásamt sam-
starfsfyrirtækjum sínum Frost ehf. og
Rafeyri ehf. á Akureyri, hefur samið
við Eskju hf. á Eskifirði um smíði og
uppsetningu á búnaði í nýja verk-
smiðju fyrir vinnslu á uppsjávarfiski
til manneldis á Eskifirði. Verksmiðj-
an verður í nýju 7.000 fermetra stál-
grindarhúsi og er áætlað að hún taki
til starfa í september á þessu ári eða
eftir aðeins rúmlega hálft ár. Sam-
hliða nýrri vinnslu hyggst Eskja auka
landfrystingu uppsjávarafla og draga
að sama skapi úr sjófrystingu. Stefnt
er að því að í verksmiðjunni verði
hægt að frysta um 700 til 900 tonn
afurða á sólarhring með tólf plötu-
frystum og stækkunarmöguleika í
1.200 tonn með 16 plötufrystum sem
smíðaðir eru hjá Þorgeiri & Ellert á
Akranesi. Þetta er í þriðja skiptið
sem fyrirtækin þrjú mynda með sér
bandalag um verk sem þetta en fyrri
verkin voru tvær sambærilegar verk-
smiðjur í Færeyjum á árunum 2012
og 2014. Verkefnið fyrir Eskju verð-
ur þeirra stærst, en samkvæmt heim-
ildum Skessuhorns er heildarvirði
samningsins á fjórða milljarð króna.
Verkefnið mun skapa fjölmörg
störf víðs vegar um landið. Stærsti
hluti smíðinnar mun fara fram á
Akranesi hjá Skaganum, systurfyrir-
tækinu Þorgeiri & Ellert hf. og fjöl-
mörgum öðrum fyrirtækjum í bæj-
arfélaginu. Á Akureyri eru það sam-
starfsfyrirtækin Frost og Rafeyri
ásamt nokkrum öðrum fyrirtækjum
sem koma að verkefninu. Á Ísafirði
mun systurfyrirtæki Skagans, 3X
Technology ehf., sjá um stóran hluta
smíðinnar ásamt samstarfsfyrirtækj-
um þar. Í Garðabæ koma að verk-
inu fyrirtækin Style ehf. og Marel
Iceland ehf. auk starfsstöðvar Frosts
þar. SR vélaverkstæði hf. á Siglufirði
mun einnig koma að verkinu auk
fjölmargra minni fyrirtækja víðs veg-
ar um land. Það er verkfræðistofan
Efla á Austurlandi sem sér um hönn-
un verksmiðjuhússins og mun bygg-
ing þess verða í höndum verktaka á
Eskifirði og í nágrenni.
Í fararbroddi á
ýmsan hátt
Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri
Skagans, segir verkefnið það stærsta
sem fyrirtækið, ásamt samstarfs-
aðilum, hafi tekið að sér til þessa.
„Bandalag þessara fyrirtækja hefur
gert það að verkum að við ráðum vel
við verk af þessu umfangi og stærð-
argráðu. Þetta er mikil áskorun fyr-
ir okkur og um leið mikil viðurkenn-
ing á öllum þeim fyrirtækjum sem
að verkinu standa og starfsmönn-
um þeirra. Stjórnendur Eskju hafa
sýnt okkur mikið traust í undirbún-
ingnum sem hefur tekið langan tíma
og miðar að því að skila Eskju verk-
smiðju sem verður í fararbroddi hvað
gæði, tækni, nýtingu, afköst og hag-
kvæmni varðar. Verkefni af þessu tagi
er mikilvægt fyrir landsbyggðina og
mun styrkja íslenskan sjávarútveg og
framsækin tæknifyrirtæki sem þjón-
usta greinina,“ segir Ingólfur.
mm
Stærsta einstaka verkefni Skagans og samstarfsfyrirtækja frá upphafi
Hér flæðir ferskur makríll um færibönd áleiðis í frystingu í vinnslu Varðin Pelagic í
Færeyjum. Það verkefni er fram að þessu stærsta einstaka verkefni Skagans hf. og
samstarfsfyrirtækja, en verksmiðjan fyrir Eskju verður sú stærsta. Færeyjaverk-
efninu var lokið á fimm mánuðum frá undirskrift, en vinnslutíminn nú verður sex
mánuðir.