Skessuhorn


Skessuhorn - 09.03.2016, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 09.03.2016, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 201620 við og brosir en það verður seint tal- inn áhugabúskapur að hafa þúsund fjár á húsi. „En það er dálítið gam- an að hugsa til þess að á hinum bú- unum sem fengu verðlaun er enginn sem vinnur með búskapnum,“ bætir Katla við. Afnám greiðslumarks vandmeðfarið Aðspurð um nýja búvörusamninga segjast þau líta þá frekar jákvæðum augum og telja þá auðvelda ungu fólki að hefja búskap. „Það hef- ur verið misræmi á milli yngri og eldri bænda því þeir sem eru fyrir fá meira fyrir lambakjötið en þeir sem eru að byrja,“ segir Vilberg. „Nýir bændur þurfa að kaupa sér allt; jörðina, bústofn, tæki og tól og svo þurfa þeir líka að kaupa sér rík- isstyrkinn,“ segir hann og telur að afnám greiðslumarksins geti haft jákvæð áhrif á nýliðun í greininni. „Við hefðum aldrei byrjað að búa nema af því foreldrar mínir buðu okkur að koma inn í reksturinn,“ segir hann. „Við hefðum ekki get- að keypt jörð, bústofn og tæki og tól,“ bætir Katla við. Bæði telja þau þó að stíga þurfi varlega til jarðar við afnám greiðslu- marksins. „Það væri auðvitað ekki réttlátt að afnema það í einni svip- an, ég vil ekki að aðrir lækki í laun- um,“ segir Vilberg. „En fyrst það var leyft að kaupa og selja greiðslu- markið þá er þetta svolítið vand- meðfarið. Mín skoðun er sú að það ætti að binda það innan sveitarfé- laga og við jarðirnar að einhverju leyti. Það myndi hvetja til búskapar á hverri jörð,“ segir hann og Katla tekur í sama streng. Vilberg segir að nýir búvöru- samningarnir hafi lítil áhrif á búið á Hríshóli. „Hluti bústofnsins er skráður á mig og hinn hlutinn á pabba. Ég hækka örlítið í launum á samningstímanum en pabbi lækk- ar. Heildaráhrifin á okkur hér verða því lítil sem engin,“ bætir hann við. Líður vel í sveitinni Aðspurð um framtíðina segja Vil- berg og Katla sjá hana fyrir sér með svipuðum hætti og nútíðina. „Von- andi verðum við hér sem lengst, okkur líður mjög vel hérna,“ seg- ir Katla. „Umhverfið er rólegt og persónulegt. Hér þekkjast næst- um allir. Ég er alin upp við það á Drangsnesi og líkar vel í þannig umhverfi,“ bætir hún við og Vil- berg tekur í sama streng. „Mér þykir miklu skemmtilegra að búa hér en til dæmis í bænum. Ég held ég umgangist börnin meira en ég gæti gert ef ég ynni í bænum á dag- vinnutíma,“ segir Vilberg og Katla tekur undir það. „Ég bjó í tíu ár í Reykjavík og þar er meira kapp- hlaup við tímann. Ég held að hér sé meiri tími fyrir börnin,“ segir hún. Saman eiga þau þrjár dætur; Elísu Rán níu ára, Bergrós er sex ára og Málfríður Lilju varð þriggja ára í nóvember. Mikið er af ungum börnum í Reykhólasveit og eru þau Vilberg og Katla himinlifandi með það. „Í dag eru 70 börn í leik- og grunnskóla á Reykhólum og mér skilst að þau hafi aldrei verið fleiri. Það er alveg frábært, “ segja Vilberg og Katla að lokum. kgk PISTILL Það eru tvö mál sem mig lang- ar að fjalla aðeins um. Þegar öld- urnar hafa lægt lítið eitt í kringum nýja búvörusamninginn er vert að taka sér stöðu og skoða málið. Eða svona smá allavega. Það sem ég hef lært af öllu þessu saman er að það að Finnur vinur minn Árnason, kaupsýslumaður og tón- listarmaður í hjáverkum sem er með 68 milljónir á ári í laun, telur samninginn glapræði. Hann nefn- ir Icesave og allt hvað eina til að mála sem svartasta mynd í höfuð manns. Hver er Finnur gæti ein- hver spurt. Nú hann er í forsvari fyrir fyrirtæki eða samstæðu sem er afsprengi gjörnings sem fól í sér að Baugssamstæðan var látin flakka í íslenskt gjaldþrot og ekk- ert fékkst upp í kröfur, ríkið beðið um monný og verkalýðshreyfing- in virkjuð í að kaupa Bónus/Hag- kaup og til varð fyrirbærið Hag- ar sem er einskonar skilgreint af- kvæmi orðsins „einokun“. En hvað um það, annað mál sem hefur vakið áhuga minn snýr ekki að fákeppni heldur fávísi. Upp hafa sprottið hópar á Norð- urlöndunum sem kenna sig við ás- inn Óðinn, Soldiers of Odin nán- ar tiltekið, og Ísland er því mður engin undantekning. Ég varð reyndar fyrst var við forsprakka hópsins á fésbókarsíðu sem er umræðuvettvangur um Akranes. Ég er í raun engu nær um hvað þeir ætla sér að gera því þeir segj- ast ekki vera sjálfskipaðir laganna verðir né að þeir séu haldnir kyn- þáttahyggju á einhverju stigi. Þeir ætli sér bara að verja íslensk gildi og hvítan hörundslit sinn með því að vera svartklæddir frá toppi til táar og snoða hausinn sinn, allt mjög víðsýnt og vinalegt. Það sem er hægt að slá föstu varðandi þessa jólasveina er að þeir séu fordekr- aðir af fávísi og ótta. Þeir horfa á flóttamenn sem innrásarher sem beri að verjast og ákveða að kenna sig við Óðinn af öllum. Svo keyrði úr hófi þegar Gylfi Ægisson gekk til liðs við þá. Ég er tvisvar búinn að biðja þá á síðunni þeirra að skila Gylfa aftur, en án árangurs. Við- urkenni það að ég kunni betur við hann þegar hann háði sitt stríð við skipuleggjendur Gleðigöngunnar í kommentakerfunum og á Útvarpi Sögu með Arnþrúði sinni, það var svo sem fyndið og maður tók ekkert mark á honum því skoð- anirnar voru svo stórkostlega forpokaðar. En þetta öfgahópa- dæmi hjá honum er ekkert fynd- ið, þetta er korter í nýnasisma ef við kæfum þetta ekki í fæðingu. Til að draga þetta saman þá má ímynda sér að meirihluti með- lima Soldiers of Odin hafi bara lesið fyrsta erindið í Hávamálum en þar segir: Gáttir allar áður gangi fram um skoðast skyli, um skyggnast skyli, því að óvíst er að vita hvar óvinir sitja á fleti fyrir. Vísan sem Óðinn kveður birt- ir mynd af víðsjárverðu þjóðfélagi þar sem hættur leynast við hvert fótmál. Ég held að þeir hafi ekki lesið meira því Óðinn segir stuttu seinna að sá sem situr heima lærir fátt því þar reynir ekkert á hann. Hann fórnaði svo auga sínu fyr- ir meiri visku, svo að kenna sig við norræna trú og æðsta guð ásatrúarinnar er jafnframt fynd- ið en einnig sorglegt. En sjáum hvað þessi hópur gerir. Í versta falli sendum við þá í landvörslu í Reynisfjöru til að passa upp á stórhættulega ferðamenn. Axel Freyr Eiríksson Af einokun og heimótta Við setningu Búnaðarþings 28. febrúar síðastliðinn afhenti land- búnaðarráðherra tveimur búum Landbúnaðarverðlaun. Komu önn- ur verðlaunin í hlut ábúenda sauð- fjárbúsins á Hríshóli í Reykhólasveit. Þar búa hjónin Þráinn Hjálmarsson og Málfríður Vilbergsdóttir annars vegar og hins vegar Vilberg Þráins- son og Katla Ingibjörg Tryggvadóttir ásamt börnum sínum. Í rökstuðningi verðlaunanna segir meðal annars að ábúendur á Hríshóli hljóti þau fyrir dugnað, framtakssemi og einstaklega snyrtilega umgengni á býli sínu. Vil- berg og Katla voru hógværðin upp- máluð þegar blaðamaður tók hús á þeim og sér í lagi varðandi snyrti- mennskuna. „Maður er alinn upp í þessu,“ seg- ir Vilberg. „Það var alltaf góð um- gengni hjá foreldrum mínum með- an við vorum á Kletti og foreldrar mínir tóku við góðu búi þegar þau komu hingað,“ segir hann. Það eru ekki orðin tóm, því þegar verðlaunin voru veitt fannst öllum sem hlut áttu að máli full ástæða til að heiðra einn- ig Reyni Halldórsson, fyrrum bónda á Hríshóli, sem bjó þar ásamt Gíselu Halldórsdóttur eiginkonu sinni til ársins 2001. Vilberg er sonur Þráins og Mál- fríðar og ólst upp á Kletti í Reyk- hólasveit þar sem þau bjuggu áður en Katla er frá Drangsnesi. Vilberg nam búfræði á Hvanneyri og þar bjuggu þau saman þar til hann lauk prófi árið 2009. Katla stundaði aft- ur á móti nám í ferðamálafræði. „Á meðan við vorum á Hvanneyri var ég reyndar bara að vinna og sá um að halda okkur uppi,“ segir Katla og brosir til manns síns. Þau segjast allt- af hafa stefnt að því að flytja út á land hvort sem búskapur yrði fyrir valinu eða ekki. „Hann var alltaf áhugasam- ur um búskap en það var ekkert endi- lega stefnan hjá mér,“ segir Katla og Vilberg jánkar því. „Þetta var alltaf draumur hjá mér og því tók ég því fagnandi þegar mamma og pabbi buðu okkur að koma inn í búskap- inn,“ bætir hann við. Starfa öll með búskapnum Núna eru á bænum tæplega þúsund fjár með hrútum og smálömbum. Það þykir nokkuð margt en Hrís- hólsbændur setja fjöldann ekki fyrir sig. „Það fer auðvitað eftir vinnu og aðstæðum en það þarf að fara í hús- in hvort sem maður er með hundr- að rollur eða þúsund. Svo erum við auðvitað tveir sem sinnum búskapn- um í fullu starfi, ég og pabbi,“ seg- ir Vilberg en bætir því við að það sé helst í sauðburðinum sem þau finni fyrir fjöldanum. „Við höfum reynd- ar verið mjög heppin með aðstoð í sauðburði. Það eru margir sem koma og hjálpa okkur og alltaf sama fólkið, ættingjar og vinir,“ segir Katla. Eins og títt er um bændur og búa- lið þá grípa þeir í störf utan land- areignarinnar eftir fremsta megni. Katla vinnur á dvalar- og hjúkrun- arheimilinu Barmahlíð á Reykhólum rétt eins og tengdamóðir sín og virka daga sinna feðgarnir báðir skóla- akstri. „Pabbi flytur líka fé í sláturhús á haustin og ég hleyp í skarðið fyr- ir hann ef þarf,“ segir Vilberg. „Þetta er algengt með bændur, búskapurinn er eiginlega bara hobbí,“ bætir hann Stefnan var alltaf að setjast að á landsbyggðinni Rætt við Vilberg og Kötlu á Hríshóli í Reykhólasveit Kalta Ingibjörg Tryggvadóttir og Vilberg Þráinsson ásamt dætrunum Bergrós, Elísu Rán og Málfríði Lilju. Hríshóll í Reykhólasveit. Hríshólsbændur halda að jafnaði tíu til tólf hross og fara ríðandi í smalamennskur. Hér má sjá hryssuna Emblu ásamt folaldi sínu Straumi. Embla er einnig móðir verðlaunahryssunnar Mánadísar, sem hafnaði í 2. sæti á Fjórðungsmóti 2009 og er fyrsta ræktun Vilbergs. Hann kveðst hafa hestabakteríuna í sér og af myndinni að dæma gætu fleiri hafa smitast af henni.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.