Skessuhorn


Skessuhorn - 09.03.2016, Blaðsíða 29

Skessuhorn - 09.03.2016, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 2016 29 vsv Nýfæddir Vestlendingar 3. mars. Stúlka. Þyngd 4.025 gr. Lengd 52 sm. Foreldrar: Hrund Harðardóttir og Þóroddur Björn Þorkelsson, Borgarnesi. Ljósmóðir: Helga R. Höskuldsdóttir / Ólafía Sólveig Einarsdóttir. Snæfellsbær - miðvikudagur 9. mars Snæfellingar fá frábært tækifæri til að njóta listar úkraínska trúbadors- ins Sasha Boole. Sasha er folk-kántrý söngvaskáld og er ein af björtustu stjörnum úkraínsku söngvaskálda- senunnar. Hann er mikill sagna- maður og viskíáhugamaður, leikur á fjölda hljóðfæra og hefur djúpa tengingu við Bob Dylan, Neil Young og Johnny Cash. Sasha syngur á úkraínsku og ensku. Svavar Knútur er gestgjafi Sasha á Íslandi og býður hann velkominn með léttri upphitun kl. 20. Miðaverð: 2900 krónur. Akranes - fimmtudagur 10. mars Nótan 2016 í Tónbergi kl. 18. Forval- stónleikar fyrir Nótuna 2016. Nem- endur keppa um hverjir fara fyrir hönd skólans í Stykkishólm til þátt- töku í forvali fyrir Nótuna 2016 sem haldin verður í Hörpu í apríl. Akranes - fimmtudagur 10. mars Aðalfundur Rauða krossins á Akranesi verður haldinn kl. 17:30 í húsnæði deildarinnar að Skólabraut 25a. Dagskrá fundarins: Venjuleg aðalfundarstörf, Sveinn Kristinsson formaður Rauða krossins segir frá helstu verkefnum félagsins ásamt öðrum málum. Félagar eru hvattir til að fjölmenna! Akranes - fimmtudagur 10. mars Kári Haraldsson boðar til stofn- fundar fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt í uppbyggingu matar- heimboðs ferðamennsku á Akranesi. Fundurinn verður í Garðakaffi kl. 18. Akranes - fimmtudagur 10. mars ÍA mætir Ármanni í 1. deild karla í körfuknattleik í íþróttahúsinu við Vesturgötu kl. 19:15. Borgarbyggð - fimmtudagur 10. mars Óþarfa offarsi – fjórða sýning í Loga- landi kl. 20. Umf. Reykdæla sýnir átta hurða farsa eftir Paul Slade Smith. Illskiljanlegur leigumorðingi, góð- gjarn borgarstjóri, frekar tregar en ákaflega viljugar löggur, kynsveltur endurskoðandi, dauðhræddur yfirmaður öryggismála, gæðaleg borgarstjórafrú. Hvernig fer þetta saman? Það er ekkert víst að neitt klikki! Miðapantanir í síma 435-1182 / 691-1182. Grundarfjörður - fimmtudagur 10. mars Hjónaklúbburinn verður með spila- kvöld á Rúben klukkan 20. Spilaður verður Ruslakall. Það kostar 500 kr. fyrir félagsmenn og 1.000 kr. fyrir aðra. Allir velkomnir. Borgarbyggð - fimmtudagur 10. mars Prjóna-bóka-kaffi í bókhlöðunni í Snorrastofu kl. 20. Kvöldstund við hannyrðir, bókaspjall og kaffisopa. Gestir eru hvattir til að hafa með sér hugmyndir og uppskriftir að hann- yrðum og hvers konar handverki. Einnig hafa kvöldin reynst góður vettvangur fyrir hvers kyns frá- sagnir og kynningar á hugðarefnum. Safnið er opið til útlána og allir eru hjartanlega velkomnir. Akranes - föstudagur 11. mars Aðalfundur Félags eldri borgara Akranesi og nágrenni verður haldinn á Kirkjubraut 40 kl. 14. Dagskrá fund- arins eru hefðbundin aðalfundar- störf. Gestur er Haukur Ingibergsson, formaður LEB. Kaffiveitingar að fundi loknum. Mætum vel og látum mál- efni félagsins okkur varða. Borgarbyggð - föstudagur 11. mars Karfan: Skallagrímur - Hamar í Borgarnesi kl. 19:15. Borgarbyggð - föstudagur 11. mars Egilssögur á Landnámssetrinu föstudagskvöld og laugardagskvöld kl. 20. Hinn ástsæli söngvari og lagasmiður Egill Ólafsson hefur tekið saman úrval sagna frá eftirminni- legum atvikum úr sínu viðburðaríka lífi og sett saman í tveggja tíma sýningu. Með frásögninni fléttar Egill lög við eigin undirleik. Sjálfur segist Egill ætla að segja okkur sögur af samtíð, fortíð og framtíð og ferðast í tímahulstri eigin tónlistar. Nánari upplýsingar og miðapantanir í síma 437-1600. Stykkishólmur - laugardagur 12. mars NÓTAN 2016 - forvalstónleikar Vestursvæðis í Stykkishólmskirkju kl. 14. Svæðistónleikar Vesturlands og Vestfjarða. NÓTAN, uppskeruhátíð tónlistarskóla landsins, verður haldin í Eldborgarsal Hörpu sunnudaginn 10. apríl. - Allt verður auglýst nánar þegar nær dregur. Borgarbyggð - laugardagur 12. mars Skallagrímur - Njarðvík í Borgarnesi kl. 16:30. Reykhólasveit - laugardagur 12. mars Dr. Karl Gunnarsson, sérfræðingur í þangi og þara hjá Hafró, flytur tvo fyrirlestra á Reykhólum. Annars vegar fjallar hann um líffræði sjávar- gróðurs og nytjar á Íslandi í gegnum aldirnar. Hins vegar mun hann fjalla um þær rannsóknir á þangi og þara sem eru í undirbúningi í Breiðafirði á næstu árum og tengjast auknum áhuga á nýtingu sjávargróðursins. Þær rannsóknir eiga að hefjast í vor. Fyrirlestrarnir verða í borðsal Reykhólaskóla og öllum opnir. Þörungaverksmiðjan býður gestum í kjötsúpu um kl. 12 og um kl. 13 hefst fyrri fyrirlesturinn. Kl. 15 verður svo boðið í kaffi og kleinur og eftir það kynnir Karl fyrirhugaðar rannsóknir. Borgarbyggð - sunnudagur 13. mars Helgihald í Reykholtskirkju á 5. sd. í föstu kl. 14. Borgarbyggð - sunnudagur 13. mars Aðalfundur Grímshúsfélagsins 2016 verður í Alþýðuhúsinu Borgarnesi kl. 17. Dagskrá aðalfundarins sam- kvæmt 11. grein laga félagsins. Snæfellsbær - þriðjudagur 15. mars Hundaeigendur í Snæfellsbæ athug- ið! Hundahreinsun verður í Áhalda- húsinu í Ólafsvík, milli kl. 12- 17. Á döfinni 6. mars. Drengur. Þyngd 3.550 gr. Lengd 50 sm. Foreldrar: Birna Sólrún Andrésdóttir og Guðbjartur Þór Stefánsson, Hvalfjarðasveit. Ljósmóðir: Elín Sigurbjörnsdóttir. Heyrúllur til sölu Til sölu heyrúllur, góðar í útigang. Verð 3.000 kr. stk. Staðsettar í Dala- sýslu. Uppl. í síma 892-5678. Konunglegt og glæsilegt antík sófasett Þetta fallega sófasett er til sölu. Það er danskt með mjög fallegu vínrauðu pluss áklæði sem sér ekki á. Settið saman stendur af sófa og 2 stólum með örmum og 2 minni stólum án arma. Verð 220 þús. Uppl. í s: 696-2334 eða ispostur@ yahoo.com. Frystiskápur, ísskápur og flatskjár Til sölu: frystiskápur 20 þús., ís- skápur 20 þús. og 37“ LG flatskjár frá 2007 á 40 þús. Uppl. í síma 892-5114. Óskum eftir leiguhúsnæði Við eru par sem erum komin á sextugsaldur og erum að leita að leiguhúsnæði eða íbúð með yfirtöku lána til kaups á Akranesi og nágrenni. Erum reglusöm og göngum vel um. Heitum góðri umgengni og skilvísum greiðslum. Hafið samband í síma 849-9545 og 849-9525 eða í einkaskilaboðum eða á gutti62@gmail.com. Óska eftir lítilli stúdíóíbúð Óska eftir mjög ódýrri stúdíó/ lítilli íbúð. Mikill kostur ef hún er með sérinngangi en samt ekki föst krafa). Óska eftir langtíma leigu með leigusamningi fyrir húsaleigubætur. Ég er mjög róleg miðaldra kona og það væri mikill kostur ef mjög róleg lítil gömul innikisa / gæludýr sé leyfð. Gsm 867-6927. Óska eftir leiguhúsnæði Leiguhúsnæði óskast með 3 til 4 herbergi. Skoðum alla stað- setningu á Vesturlandi, t.d. Hvann- eyri, Borgarnes, Grundarfjörð eða Stykkishólm. hafsteinnsv@gmail. com. Ert þú að leita að fólki eins og okkur til að leigja hjá þér? Við mæðgur (37 og 4 ára) viljum flýja borgina og leitum því að húsnæði í Stykkishólmi. Erum með eindæmum þrifalegar, hófstilltar, reglusamar, heimakærar, gáfaðar, uppátækjasamar og glaðlegar. Eigum helling af dóti sem myndi varla fylla meira en þrjú herbergi, ekki væri verra ef herbergi væru fjögur svo amma geti heimsótt. drifapalin@gmail.com. 109 fm. íbúð í þríbýli Til leigu 109 fm. íbúð í eldra húsi í Borgarnesi. Staðsetning mjög góð m.t.t. grunnskóla og verslana. Framkvæmdir utanhúss fyrirhug- aðar haustið 2016. Þrjú svefnher- bergi, tvær samliggjandi stofur. Sameiginlegt þvottahús í kjallara. Leiguverð 145 þús. m/rafmagn og hita. kristjan.rafn.sig@gmail.com. Bakpoki Higlander Discovery 85 ltr. bak- poki til sölu. Ónotaður utan 2ja tíma prufugöngu sem leiddi í ljós að pokinn var of stór fyrir vænta göngu eigandans. Til sölu á flottu verði 25 þúsund kall eða svo. gud- steinne@simnet.is. Óska eftir báti Óska eftir um það bil fimm til sjö tonna báti til leigu á strand- veiðar í sumar. Upplýsingar í síma 695-2150, Guðmundur Karlsson. Bílaþvottur Sylvíu Við tökum að okkur að þrífa og bóna bíla á sanngjörnu verði. Get- um sótt og skilað innan Akraness ef þess þarf. Erum vandvirk og höfum einnig ágætis reynslu. Sími 864-1844 og 893-1854. Markaðstorg Vesturlands DÝRAHALD HÚSBÚNAÐIR / HEIMILISTÆKI LEIGUMARKAÐUR TIL SÖLU ÝMISLEGT Childs Farm Húð & baðvörur fyrir börn H E N T A R F Y R I R V I Ð K V Æ M A & E X E M G J A R N A H Ú Ð VI ÐU RKE NNT AF BARNALÆKNUM V I Ð U R K E N N T A F H Ú Ð L Æ K N U M *hverri seldri vöru af Childs Farm á meðan birgðir endast frí smáv ara fylgir með * Markaðstorg Vesturlands Skráðu SMáauglýSinguna á www.SkeSSuhorn.iS fyrir klukkan 12.00 á þriðjudöguM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.