Skessuhorn - 09.03.2016, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 201630
Hvað á að gera
um páskana?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Ingibjartur Þórjónsson:
„Að vera með fjölskyldunni.“
Óðinn Þórarinsson:
„Ég ætla að vera heima.“
Stefán Jónsson:
„Aðallega að vinna og verja tíma
með fjölskyldunni.“
Stefanía Tara Þrastardóttir:
„Vinna.“
Halldóra Björk Magnúsdóttir:
„Ég ætla að vinna og verja tíma
með fjölskyldunni.“
Eins og greint var frá á vef Skessu-
horns tapaði Snæfell stórt gegn ÍR í
Domino‘s deild karla í körfuknattleik
síðastliðinn fimmtudag. Síðari hálf-
leikur varð liðinu að falli, leikmenn
náðu sér alls ekki á strik í sókninni
og töpuðu að lokum með 34 stig-
um, 108-74. Áhorfendur í Stykkis-
hólmi voru því ánægðir að sjá að allt
annar bragur var á liðinu þegar það
mætti Stjörnunni á sunnudagskvöld-
ið. Snæfellingar mættu ákveðnir til
leiks, börðust fyrir hverjum bolta og
unnu vel saman. Þeir höfðu yfirhönd-
ina í leiknum allan fyrri hálfleikinn en
Stjarnan var þó aldrei langt undan. Í
leikhléi leiddi Snæfell með fimm stig-
um, 53-48.
Eins og hálfleikstölur gefa til kynna
var leikurinn nokkuð hraður. Snæfell
hafði aðeins átta leikmenn á skýrslu á
móti fullskipuðum hópi gestanna. Fór
því heldur að draga af heimamönnum
í þriðja leikhluta og Stjarnan náði for-
ystunni. Snæfellingar börðust áfram
og héldu í við gestina en höfðu ekki
erindi sem erfiði. Stjarnan fór með
sigur af hólmi, 94-102.
Sherrod Wright var atkvæðamest-
ur Snæfellsmanna í leiknum með 33
stig, sjö fráköst og fimm stoðsend-
ingar. Austin Bracey skoraði 23 stig
og Sigurður Þorvaldsson og Viktor
Marinó Alexandersson 14 stig hvor.
Snæfell er í 8. sæti deildarinnar
með 16 stig eftir 21 leik, jafn mörg
og Grindavík í sætinu fyrir neðan.
Snæfell mætir Þór norður á Akureyri
á fimmtudag og fyrr ræðst ekki hvort
liðið kemst í úrslitakeppnina. kgk
Baráttuglaðir Snæfellingar
þurftu að sætta sig við tap
Leikmenn þurfa oft að beita
hugmyndafluginu til að koma bolt-
anum ofan í körfuna. Viktor Marínó
Alexandersson skýtur hér aftur fyrir
sig, í spjaldið og ofan í. Ljósm. sá.
Sundsamband Íslands hélt í þriðja
skipti í gæmorgun Boðsundskeppni
grunnskólanna. Fór keppnin fram
í Laugardalslauginni í Reykjavík.
Keppt var í 8x25 m sprettum. Fjórar
stelpur og fjórir strákar mynda hvert
lið og keppt í tveimur aldursflokk-
um, miðstig (5.-7. bekkir) og ung-
lingastig (8.-10. bekkir). Þetta er út-
sláttarkeppni þannig að þegar öll lið
í hverjum flokki hafa lokið keppni
fara átta hröðustu áfram, síðan fjög-
ur og loks tvö lið. 34 skólar voru með
í ár og keppendur um 500 talsins en
skólarnir máttu senda eins mörg lið
og þeir vildu.
Krakkar frá Grundaskóla á Akra-
nesi tóku þátt núna í fyrsta sinn og er
skemmst frá því að segja að þau stóðu
sig öll frábærlega. Unglingastigslið-
ið vann sinn riðil og komst í átta liða
keppnina og var svo einungis nokkr-
um sekúndubrotum frá því að kom-
ast í fjögurra liða úrslitin eftir æsi-
spennandi keppni. Miðstigið gerði
enn betur og komst í fjögurra liða
úrslitin og endaði í þriðja sæti og fór
heim með bronspening um hálsinn.
„Þetta var einstaklega skemmtilegt
mót þar sem saman komu krakkar
sem æfa sund á fullu og aðrir sem æfa
ekki sund en allir jákvæðir og til í að
gera sitt allra besta með brosi á vör.
Héðan í frá verðum við í Grunda-
skóla með keppendur á hverju ári í
þessu móti,“ segir Anna Guðbjörg
Lárusdóttir sundkennari.
Krakkarnir sem stóðu sig svona
vel og mynduðu liðin voru eftirfar-
andi, frá miðstigi: Aníta Sól Gunn-
arsdóttir, Auður Elísa Kristjánsdótt-
ir, Ármann Ingi Finnbogason, Berg-
ur Breki Stefánsson, Dagbjört Líf
Guðmundsdóttir, Dagur Karl Lín-
dal, Logi Mar Hjaltested og Ragn-
heiður Karen Ólafsdóttir. Á ung-
lingastigi: Ásgerður Jing Laufeyjar-
dóttir, Droplaug Hafliðadóttir, Ísak
Örn Elvarsson, Júlía Rós Þorsteins-
dóttir, Kolbeinn Tumi Kristjánsson,
Oliver Stefánsson, Matthildur Haf-
liðadóttir og Natanael Bergmann
Gunnarsson.
mm/agl
Gekk vel í boðsunds-
keppni grunnskólanna
ÍA heimsótti Val í 1. deild karla í
körfuknattleik síðastiðinn föstudag,
en bæði lið berjast um sæti í úrslita-
keppninni í vor. Valsmenn byrj-
uðu leikinn betur, skoruðu fyrstu
sex stig leiksins áður en ÍA svaraði
með þriggja stiga körfu. Skömmu
síðar náðu Skagamenn forystunni
en heimaliðið fylgdi þeim eins og
skugginn. Valur jafnaði um miðjan
annan leikhluta en komust ekki nær
í bili og ÍA hafði tveggja stiga for-
skot í hálfleik, 41-43.
Síðari hálfleikur hófst þar sem sá
fyrri endaði. Leikurinn var áfram
jafn og spennandi. Skagamönnum
gekk á kafla illa að skora en leik-
menn Vals voru heldur markvissari
í sínum aðgerðum. Þeir náðu for-
ystunni undir lok þriðja leikhluta
og litu aldrei til baka. Þeir héldu
Skagamönnum í skefjum framan af
fjórða leikhluta og stungu af á síð-
ustu mínútunum. Lokatölur í Vals-
heimilinu voru 100-75 og gefa ekki
alveg rétta mynd af gangi leiksins.
Sean Tate var atkvæðamestur
Skagamanna með 24 stig og sex frá-
köst. Fannar Freyr Helgason skor-
aði 19 stig og tók átta fráköst og
Jón Orri Kristjánsson var með ell-
efu stig og tíu fráköst.
Úrslit leiksins gerðu það að
verkum að liðin höfðu sætaskipti í
deildinni. ÍA situr nú í 5. sæti með
20 stig eftir 16 leiki, tveimur stig-
um betur en Hamar í sætinu fyrir
neðan og baráttan um sæti í úrslita-
keppninni í algleymingi. Næst leik-
ur ÍA gegn Ármanni sem berst fyr-
ir sæti sínu í deildinni. Það má því
búast við hörkuleik í íþróttahúsinu
við Vesturgötu á morgun, fimmtu-
daginn 10. mars.
kgk
Skagamenn í mikilli baráttu
um sæti í úrslitakeppni
Jón Orri Kristjánsson skilaði sínu að
vanda í leiknum gegn Val. Það dugði
þó ekki til og áframhaldandi barátta
framundan um sæti í úrslitakeppninni.
Ljósm. jho.
Þriðjudaginn 1. mars var hald-
in undankeppni nemenda í Skóla-
hreysti í Grunnskóla Grundar-
fjarðar. Tíu nemendur tóku þátt
og tóku vel á því enda mikill heiður
að fá að keppa fyrir hönd skólans.
Lið Grundarfjarðar verður skipað
þeim Dominik Wojchiechowski og
Elvu Björk Jónsdóttur sem keppa
í hraðabrautinni. Gunnar Ingi
Gunnarsson keppir í dýfingum og
upphífingum og Björg Hermanns-
dóttir keppir í hreystigreip og arm-
beygjum. Varamenn verða þau Pat-
ricja Aleksandra Gawor og Gísli
Már Jóhannsson. Fjöldi áhorfenda
var á pöllunum og hvatti sitt fólk til
dáða. tfk
Keppa fyrir sinn skóla í
Skólahreysti
Síðastliðinn fimmtudag var form-
lega stofnað félagið Sigurfari - Sjó-
sportsfélag Akraness. Á stofnfund
mættu tíu. Á fundinum var rædd
staðan í sjósportinu á Akranesi og
verkefnin í framtíðinni. Lög félags-
ins voru samþykkt og kosið í stjórn.
Í Sigurfara eru þegar komnar
nokkrar félagsdeildir. Það eru: Ka-
jakadeild, Kjölbátadeild og Kænu-
deild. Væntanlega verða deildirnar
fleiri í framtíðinni. Stjórn hins nýja
félags skipa: Eyjólfur M Eyjólfs-
son formaður og stjórnarmennirn-
ir Hrannar Einarsson, Gísli J. Guð-
mundsson, Guðmundur Benedikts-
son og Sigurður Ó Guðmundsson.
Stjórnin mun skipta með sér verk-
um á næsta stjórnarfundi. Næsti fé-
lagsfundur hefur verið ákveðinn
fimmtudaginn 7. apríl nk.
mm
Formlega búið að stofna Sigurfara
– Sjósportsfélag Akraness