Skessuhorn


Skessuhorn - 09.03.2016, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 09.03.2016, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 201624 Ég sit og drekk kaffi með góð- um vinum á veitingastað Land- námsseturs í Borgarnesi. Staður- inn iðar af lífi og ég rekst á fjölda kunningja víðs vegar að. Það var þá sem ég ákvað að skrifa, það yrði ekki hjá því komist. Ekki af því að ég hafi trú á að það breyti nokkru um framvindu málsins heldur af því að ég stend í ástar-haturs sam- bandi við minn gamla heimabæ Akranes og ýmislegt gerir maður fyrir ástina. Byrjum á lyktinni, þá er hún frá: Lykt eða ekki lykt Í fyrrasumar var ég í sjálfboða- vinnu við að skoða garða sem fengið höfðu tilnefningar til um- hverfisverðlauna Akraness. Það var stillt og bjart sumarkvöld og stolt- ir garðeigendur sögðu frá störfum sínum, en voru um leið hálfpart- inn að afsaka lyktina sem lá yfir bænum. Ég hugsaði með virðingu um þolinmæði þessa fólks sem lét þetta yfir sig ganga ár eftir ár. Amma mín og afi bjuggu í næsta nágrenni við Síldarverksmiðjuna. Húsið lyktaði, bíllinn lyktaði og þegar þau komu í heimsókn leyndi lyktin sér ekki. Greinar úr garðin- um sem voru klipptar og settar í vasa lyktuðu. Á þeim tíma var líka fólk sem hélt því fram að það væri engin lykt úr verksmiðjunni, svo- leiðis er það nú bara. Ég man líka eftir loforðum um enga lykt, betri búnað og hærri strompa. Vissu- lega hefur margt breyst til batn- aðar og lyktin úr hausaþurrkun- arverksmiðjunni öðruvísi, en lykt er það nú samt og sú lykt hefur skemmt fyrir mér stemninguna að fara í búðir niðri í bæ á Þorláks- messu, versla á kaffihúsinu Skökk- inni á sumardegi og haft leiðinleg áhrif á viðkvæmum stundum eins og við kistulagningar og jarðarfar- ir ástvina. Fleiri hliðar? En hefur málið fleiri hliðar en lykt- ina? Jú, fyrir skömmu hélt ég er- indi á glæsilegi ráðstefnu í Hörpu um hálendi Íslands. Þar var einhuga samhljómur um að leyfa náttúrunni að njóta vafans, að hugsa til næstu kynslóða, við þyrftum ekki að ráð- stafa öllu. Í huga mínum snýst mál- ið um breytingu á deiliskipulagi og stækkun hausaþurrkunarverksmiðj- unnar um það sama. Það snýst alls ekki eingöngu um lyktarmengun, heldur um grundvallar afstöðu til framtíðarsýnar bæjarins. Hvernig bær vill Akranes vera? Framleiðslu- og iðnaðarbær með tiltölulega ein- sleita atvinnustarfsemi og innviði, eða bær sem nýtir það stórkostlega tækifæri sem felst í nálægð við höf- uðborgina til að sækja fram, laða að sér hæfileikaríka, skapandi einstak- linga í fjölbreyttum störfum, end- urreisa gamla bæinn, byggja á Sem- entverksmiðjureit og búa þannig til einstaka sérstöðu. Sérstöðu sem mjög margir aðilar úr skipulags- og hönnunargeira landsins sjá sem óopnaða gullkistu og öfunda bæ- inn af. Starf mitt felur að stórum hluta í sér að vinna með mannlegt samfé- lag með því að tvinna saman nátt- úru og hönnun til að móta um- hverfi sem felur í sér gæði. Þannig hef ég séð fjölmargt, heima og er- lendis hvað er hægt að gera, bæði afar vel heppnuð dæmi og skelfileg mistök. Hluti vinnunnar er að leitast við að greina staðaranda, bæði til að átta sig á sérstöðu og styrk hvers samfélags, en einnig til að nota sem verkfæri við að gæða svæði auknu lífi og styrkja aðdráttar- afl þeirra í víðu samhengi. Svæði eru oft viðkvæm fyrir breyting- um og geta misst sérstöðuna ef ekki er vandað til verka. Eitt af því sem þarf að skoða sérstaklega er saga og menningaminjar. Á Akra- nesi er svæðið á Breið gríðarlega verðmætt staðaranda bæjarins, þar eru menningaminjar, saga og nátt- úruöfl. Nefna má að Thor Jensen lét gera bryggju við Steinsvör árið 1895 og fyrsta bryggjan af hálfu sveitarfélagsins var gerð á sama stað árið 1908. Akraneskaupstað- ur hefur nú af myndarskap lagt í hönnunarvinnu á Breið gerða af landslagsarkitektastofunni Lands- lagi og hafnar eru framkvæmd- ir. Sjá menn þetta virkilega ganga saman við stækkun á hausaþurrk- unarverksmiðju? Í dag er mikið farið að nota skipu- lag sem verkfæri til verðmætasköp- unar. Sú vinna sem farið var í með samstarfi fimm sveitarfélaga á Snæ- fellsnesi og stofnun Svæðisgarðs er gott dæmi um þannig nálgun. Þar er greindur náttúrulegur, menn- ingarlegur og þekkingarlegur auð- ur svæðis og það nýtt sem grunn- ur til áframhaldandi verka. Unnið er með staðaranda og ímynd sem hefur mikil áhrif á aðdráttarafl. Í aðferðafræðinni er unnið með; a) landslagið sem auðlind b) upplif- un sem söluvöru c) mat af svæðinu og d) uppruna. Þetta er nú not- að víða til uppbyggingar og mark- aðssetningar svæða. Skoðum þessa nálgun aðeins út frá Akranesi. Landslagið sem auðlind Snemma beygist krókurinn, 12 ára gömul plataði ég Steinu frænku með mér í viðtalstíma bæjarfull- trúa á Akranesi. Mér var mikið niðri fyrir, hvað átti að verða um svæðið fyrir neðan Bjarkargrund, trönurnar, þúfurnar, skurðina og fallegu hofsóleyjarnar sem þar uxu. Átti bara að koma þar slétt ein- sleitt gras? Bæjarfulltrúar hlustuðu góðlátlega og sýndu máli mínu skilning af kurteisi, ég skynjaði þó að þeim fannst ég vera kjáni. Í dag veit ég, að þó að bærinn hefði ekki varðveitt nema hluta einhvers staðar af þessu menningarlandslagi væru það mikil og eftirsóknarverð verðmæti. Náttúruleg strandlína er einnig verðmætt fyrirbæri en að stórum hluta horfin í mörg- um sveitarfélögum, til að mynda Reykjavík, Kópavogi og Hafnar- firði. Hvaða náttúrulegu strandl- ínu má finna á Akranesi og er fórn- arinnar virði að minnka hana. Í bænum er einnig að finna einstaka samsetningu af fjörugerðum. Þar má finna stórgrýtisfjöru, sandfjöru og skeljasandsfjöru. Hversu mik- ið er verið að vinna með þetta sem auðlind? Og er vitað hvaða áhrif framkvæmdir og breyttir straumar hafa á aðra staði t.d. Skarfavör sem er algjörlega einstök og Langa- sand. Á hverju ári koma tugir þús- unda ferðamanna eingöngu til Ís- lands til að skoða fugla, ákveð- in svæði á Skaganum búa yfir ein- stöku fuglalífi, hvað er gert með það? Upplifun sem söluvara Stórar evrópskar rannsóknir sýna að það að ganga með sjó og sjá ljósið speglast á haffleti, heyra í öldum eða brimi brotna við strönd gefur fólki meiri andlega vellíð- an en önnur útivist. Hér á landi var til dæmis hætt við hefðbund- inn varnargarð á Akureyri og farið í að líkja eftir útliti gömlu strand- línunnar til að virða upplifunar- möguleika íbúa. Á Skaganum er einstakt tækifæri á að upplifa brim og vind. Er verið að vinna með það sem auðlind? Lega bæjarins gerir það að verkum að þar er líka ein- stakt útsýni. Er verið að vinna með það sem auðlind eða markaðstæki- færi út frá sjónlínum og örnefnum sem taka mið af landslagi. Á Sel- tjarnarnesi er útilistaverkið, Kvika eftir Ólöfu Nordal. Það er hring- laga vaðlaug úr grágrýtissteini. Fólk er hvatt til að upplifa hita og kraft jarðar með því að fara úr sokkum og skóm og verða eitt með náttúrunni. Stöðugur straumur heima- og ferðamanna er í Kviku alla daga. Hversu margir ferða- menn vita af upplifunarmöguleik- um útilistaverka á Akranesi líkt og t.d. Elínarsæti býður uppá? Matur af svæðinu Stórkostlegar framfarir hafa orð- ið í staðbundinni matarmenningu sem markaðsvöru um heim all- an, með gríðarlega peningaveltu. Nægir að nefna veitingastaður- inn NOMA í Kaupmannahöfn sem byggir á norrænni matarhefð með tvær Michelin stjörnur. Getur Akranes unnið eitthvað með þetta? Fyrir utan útgerð var mjög mikil kartöflurækt í stórum görðum á Skaganum, enda sendinn jarðveg- ur kjörlendi fyrir ræktunina. Þá óx þar einnig fjöldi annarra tegunda s.s. rabbarbari, njóli og vallhum- all. Hvernig væri nú að plægja og búa til kartöflugarð á góðum stað í gamla bænum, opna veitingastað með fisk og kartöfluréttum, njóla- salati og rabbabara eftirréttum, borna fram með jurtate úr vall- humli. Margir hlógu góðlátlega að hugmyndinni þegar Friðheimar opnuðu veitingahús á Suðurlandi út frá einni afurð, tómat, en þeir hlægja ekki í dag. Það sem nefnt hefur verið hér að framan eru ekki draumórar eins kjána, heldur raunveruleiki af tækifærum og staðreyndum sem fela í sér atvinnu, öflugt hagkerfi og stórsókn í ferðamennsku. Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja Samkvæmt því sem fram kom á ráðstefnu Landsbankans þann 25. febrúar um áhrif Parísarsamþykkt- arinnar á atvinnulífið, þurfa mark- aðir og atvinnulíf að gera stórsókn í að laga sig að breyttum tíma. Vist- væn starfsemi er það sem mun skilja að þá sem halda velli inn í framtíð- ina. Er verið að vinna á þeim nót- um með stækkunarhugmyndum á verksmiðju með vinnslu á afurð sem er keyrð inn í bæinn og notar nú þegar gríðarlegt magn af heitu vatni úr hver, sem er ekki ótæmandi auðlind. Það er líka mikil ábyrgð að keyra áfram hluti sem kljúfa sam- félög og taka lífsgleði frá fólki. Í því felst ófyrirséð sóun á mannauði. Fyrirtækið HB Grandi sýndi stór- hug og samfélagslega ábyrgð með því að falla frá þessum áformum eða að skoða aðra kosti. Nú hefur t.d. komið fram að engin vinnsla verður í Hvalstöðinni í Hvalfirði sem er í eigu eins stærsta hluthafa fyrirtæk- isins. Væri hægt að skoða þann kost að flytja verksmiðjuna þangað? Samráð Við skipulagsvinnu er skylt að hafa samráð við íbúa líkt og Akranes- kaupstaður hefur gert. Stóri gallinn við öll svona mál er að almenning- ur skilur ekki skipulagsteikningar af planmyndum og á því oft mjög erfitt að átta sig á út á hvað mál- ið gengur. Það ætti að vera krafa að setja hlutina fram með þrívídd- armódelum þar sem hægt væri að skoða fleiri þætti. Til dæmis hvern- ig byggingarsvæðið tengist Breið með sjónrænum hætti. Ég er ekki fædd í gær og hef kynnst af eigin raun að það er ekki allt sem sýnist. Bæði með áralangri vinnu í veiði- húsi þar sem ýmislegt var ákveðið sem hinn almenni viðskiptavinur vissi ekki um og eins með tengingu inn í ýmsa skipulagsvinnu, þar sem er ýtt og tosað, samið og sveigt í þágu einkahagsmuna. Sennilega er afstaða þeirra sem eru fylgjandi breytingunum skiljanleg. Hver vill breyta reglum í leik sem maður er þegar að vinna. Þetta tengist hags- Óopnuð gullkista Skagamanna Pennagrein Helsta aðdráttarafl bæjarins- vitar og menningaminjar á Breið. Ljósm. HG. Mannlíf við bryggjuna í Steinsvör og Heimaskagahúsið. Ljósm. Ljósmyndasafn Akraness, áá. Á einfaldan hátt má breyta Skarfavör í stórkostlegt upplifunarsvæði. Ljósm. SB. Kartöflugarðar á Akranesi, mynd tekinn við Halldóruhús og Ráðgerði . Ljósm. Ljósmyndasafn Akraness, áá.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.