Skessuhorn - 09.03.2016, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 20166
Sex sóttu um
starf skólastjóra
Grundaskóla
AKRANES: Akraneskaup-
staður auglýsti laust starf
skólastjóra Grundaskóla í byrj-
un febrúar. Umsóknarfrest-
urinn rann út 29. febrúar og
sóttu alls sex um starfið. Einn
umsækjandi dró umsóknina til
baka. Ráðningarferli stendur
yfir um þessar mundir og sér
ráðningarstofan Capacent um
úrvinnslu umsókna í samstarfi
við bæjaryfirvöld á Akranesi.
Umsækjendur um starf skóla-
stjóra Grundaskóla eru: Að-
albjörg Ingadóttir aðstoðar-
skólastjóri í Norðlingaskóla,
Anna Gréta Ólafsdóttir skóla-
stjóri Flóaskóla, Bergþóra
Þórhallsdóttir aðstoðarskóla-
stjóri Brekkuskóla, Lind Völ-
undardóttir verkefnisstjóri og
Sigurður Arnar Sigurðarson
aðstoðarskólastjóri í Grunda-
skóla.
–grþ
Tryggvi og fé-
lagar sigruðu
AKRANES: Aðalsveitakeppni
Briddsfélags Akraness lauk á
fimmtudaginn. Fyrir úrslita-
viðureignina hafði formanns-
sveit Einars Guðmundsson-
ar sæti að verja en átti eftir
það hlutskipti að mæta sveit
Tryggva Bjarnasonar sem nag-
aði í hæla hennar. Sú viður-
eign fór þannig að Tryggvi og
félagar gjörsigruðu andstæð-
inga sína 25-3 og eru Akra-
nesmeistarar. Með Tryggva
spiluðu þeir Þorgeir Jósefs-
son, Karl Alfreðsson og Bjarni
Guðmundsson. Með Ein-
ari spiluðu Sigurgeir Sveins-
son, Magnús Magnússon og
Leó Jóhannesson. Í þriðja sæti
varð sveit Guðmundar Ólaf-
sonar. Næst á dagskrá hjá fé-
laginu er léttur eins kvöld tví-
menningur, en annan fimmtu-
dag hefst Akranesmótið í tví-
menningi.
–mm
Stuðnings-
yfirlýsing vegna
Straumsvíkur-
deilu
BORGARNES: Trúnað-
armannaráð ásamt trún-
aðarmönnum Stéttarfélags
Vesturlands samþykkti á
fundi sínum 3. mars síðast-
liðinn stuðningsyfirlýsingu
við hafnarverkamenn á fé-
lagssvæði Hlífar í Hafnar-
firði vegna aðgerða starfs-
manna Rio Tinto Alcan á
Íslandi. Ályktunin er svo-
hljóðandi: „Trúnaðarráð
Stéttarfélags Vesturlands
lýsir yfir fullum stuðn-
ingi við verkfallsaðgerðir
félagsmanna í Verkalýðs-
félaginu Hlíf í Hafnarfirði,
sem beinast að útskipun
á áli frá Rio Tinto Alcan
á Íslandi. Framkoma for-
svarsmanna fyrirtækisins
sem ganga í störf hafnar-
verkamanna er fyrirtækinu
til háðungar. Stéttarfélag
Vesturlands skorar á Sam-
tök atvinnulífsins að knýja
þetta aðildarfélag sitt til
að ganga til samninga við
verkalýðsfélögin sem samið
hafa við fyrirtækið og for-
vera þess, um áratugaskeið.
Íslenskt verkafólk mun ekki
sætta sig við að alþjóðleg-
ur auðhringur á borð við
Rio Tinto Alcan kollvarpi
skipulagi á vinnumarkaðn-
um og það ættu Samtök at-
vinnulífsins ekki heldur að
gera.“
–mm
Borað
eftir neyslu-
vatni í Ölveri
HVALFJ.SV: Fyr-
ir skömmu var borað eft-
ir neysluvatni í Ölveri í
Hvalfjarðarsveit. Var það
gert að undirlagi forsvars-
manna KFUM og K og
verður vatnið nýtt af sum-
arbúðum félagsins, sem
starfræktar eru á staðnum.
Að sögn Þórólfs Hafstað
grunnvatnsfræðings hjá
ÍSOR vildu forsvarsmenn
sumarbúðanna einfald-
lega tryggja þeim meira
neysluvatn. „Það er auðvi-
tað vatnsból þarna fyrir og
hefur ekki orðið skortur
á vatni enn. Aftur á móti
gæti orðið vatnsskort-
ur í þurrkatíð að sumri
einhvern tímann í fram-
tíðinni. Forsvarsmenn
sumarbúðanna vildu því
tryggja meira af vatni til
að geta betur brugðist við
ef til vatnsskorts kæmi,“
segir hann. Borholan er að
sögn Þórólfs við eitt horn
fótboltavallarins við sum-
arbúðirnar og á hann von
á því að dælu verði kom-
ið fyrir áður en langt um
líður. Hann segir að stutt
hafa verið niður á vatnið
og boranir hafi gengið vel.
„Þetta tókst mætavel, sem
gerist ekki alltaf. Þarna
vorum við nokkuð vissir
um að við myndum fá vatn
en það er eins og alltaf,
ekki á vísan að róa.“
–kgk
Þegar gengið er um fjörur Snæfells-
ness má komast í náin kynni við líf-
ríki sjávar og stöku sinnum finna
þar sjórekna fiska eða dýr. Grund-
firðingurinn Guðmundur Reynis-
son fékk að kynnast því er hann var
í einni af gönguferðum sínum um
Eyrarodda við Urthvalafjörð síðast-
liðinn þriðjudag. Þá gekk hann fram
á dauðan háhyrning sem rekið hafði
á land. Háhyrningurinn var nokkuð
heillegur að sjá og strax daginn eftir
var komin nokkur umferð fólks út á
oddann til að skoða hræið enda nán-
ast hægt að aka alveg upp að því á
jeppum. Það er svo spurning hvað
verður gert við hræið þegar fram
líða stundir en fréttaritari gat ekki
merkt að nokkurn óþef lægi frá því
enda nokkuð kalt í veðri. Í ljós kom
að um er að ræða fullorðið kvendýr,
um 6 metra langt, en þau geta ein-
mitt mest orðið um 6 metrar löng
og allt að 7 tonn að þyngd.
Kveðst ekki í vafa um
ástæðuna
„Það sést greinilega á þessum mynd-
um af háhyrningnum sem þið birtið
á vefnum að hann er með skemmdar
tennur. Þegar slíkt gerist getur kom-
ið sýking í kjálkabeinið, en heyrna-
taugin liggur þar einnig. Þessi hval-
ur hefur einfaldlega sturlast af kvöl-
um og komið sér þannig í ógöngur.“
Þetta segir Vilmundur Þorgrímsson
á Djúpavogi í samtali við Skessu-
horn í kjölfar þess að hann sá frétt
á vef Skessuhorns í síðustu viku um
dauða háhyrninginn við Urthvala-
fjörð. Vilmundur segir hvalina vera
með afar linar tennur. Þegar þeir séu
í einhæfu fæði, eins og á botni sjávar
við innanverðan Breiðafjörð og ekki
síst síldarhræjunum við Kolgrafa-
fjörð, þá séu þeir að krafsa í botni og
slíta tönnunum óeðlilega hratt upp
í grjóti og skeldýrum. „Við það að
tennurnar eyðast upp kemst ígerð
í þær og jafnvel kjálkann líka, þeir
hætta að heyra og ærast af kvölum.“
Sjálfur hefur Vilmundur sérhæft sig
í rannsóknum á hvölum og rekur
Beina- og steinasafn á Djúpavogi.
Hann hefur keypt hræ af háhyrning-
um. Meðal annars keypti hann hræ
af fjórum háhyrningum sem strönd-
uðu á Langanesi vorið 2013 og verk-
aði af þeim beinagrindurnar. Ein slík
er nú á leið á safn í Ameríku.
tfk/mm
Dauður háhyrningur við Urthvalafjörð
Eins og sést eru tennur hvalsins uppétnar. Vilmundur Þorgrímsson telur að það
hafi leitt hann til dauða.
Hvalinn rak á land við Urthvalafjörð.