Skessuhorn - 09.03.2016, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 2016 11
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Framkvæmdir við byggingar og
önnur mannvirki Krauma við
Deildartunguhver í Borgarfirði eru
á áætlun og stefnt að því að nátt-
úrulaugarnar, þessi nýjasta viðbót í
ferðaflóru Vesturlands, verði opn-
aðar um miðjan júní næstkomandi.
Að framkvæmdinni standa tvenn
hjón, þau Bára og Dagur í Gróf og
Jóna Ester og Sveinn í Víðigerði. Í
Krauma verða fimm heitar laugar
og ein köld, tvö gufuböð með mis-
munandi hitastigi og lykt, auk slök-
unarrýmis með þægilegum bekkj-
um og eldstæði. Þá verður veit-
ingastaður, minjagripaverslun og
bar í Krauma.
Hönnun bygginga, baðsvæðis og
mótun landslags er í höndum Bryn-
hildar Sólveigardóttur arkitekts hjá
Dark studio. Leifur Welding sér um
innanhússhönnun ásamt Brynhildi.
Eigendur Krauma segjast hafa verið
mjög heppnir með hversu gott fólk
þau hafa fengið í lið með sér bæði
við hönnin og byggingu húsanna.
Farið er að huga að ráðningu starfs-
fólks og eru þau einmitt þessa dag-
ana á höttunum eftir matreiðslu-
manni og verður fljótlega auglýst
eftir örðu starfsfólki.
mm
Körfuknattleiksfélag Akraness
Íþróttahúsið við Vesturgötu
1. deild
Fimmtudaginn 10. mars kl. 19.15
ÍA - Ármann
Fjölmennum og hvetjum
ÍA til sigurs!
Krauma opnuð um miðjan júní
Eins og sjá má á meðfylgjandi teikningu þá verður foss sem fellur fram af einum pottinum niður í síki og þaðan áfram í læk
sem liggur meðfram göngustígnum. Stígurinn liggur niður að sjálfum hvernum.
Fimm heitir pottar, slökunarrými með notalegum bekkjum, gufuböð og fleira
verður í Náttúrlaugunum í Krauma.
Hafðu okkur
með í ráðum
569 6900 08:00–16:00www.ils.is
Okkar hlutverk hefur frá upphafi verið að stuðla að jafnvægi
og að allir hafi jafna möguleika á að eignast húsnæði, hvar
sem er á landinu.
Hjá okkur færðu óháða og trausta ráðgjöf, hvort sem þú ætlar
að kaupa eða leigja, þannig að þú vitir örugglega hvað þú ert
að fara út í.