Skessuhorn - 09.03.2016, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 201614
Ólsarinn Eggert Herbertsson, sem
búsettur hefur verið á Akranesi síð-
astliðin þrettán ár, ætlar að hasla sér
völl í ferðaþjónustu á Akranesi. Hann
hefur bæði fest kaup á gistiheim-
ilinu við Suðurgötu 32 á Akranesi,
betur þekkt sem Gamla apótekið,
og rekstrinum í Kirkjuhvoli þar sem
rekið hefur verið gistiheimili undan-
farin tvö ár. Blaðamaður Skessuhorns
settist niður með Eggerti í því fallega
húsi og ræddi við hann um áformin
og ferðaþjónustu á Akranesi.
Einn plús einn urðu
meira en tveir
Eggert, sem er viðskiptafræðingur
að mennt, með meistaragráðu í við-
skiptum, hefur komið að rekstri fyrir-
tækja um allnokkurt skeið. Hann rak
upplýsingatæknifyrirtækið Omnis til
fjölda ára og er einn af eigendum Rit-
ara.is, sem Ingibjörg Valdimarsdótt-
ir eiginkona hans rekur. „Ég er bú-
inn að vera í þessum tölvugeira í 17
til 18 ár. Ég stofnaði sjálfur fyrirtæk-
ið Omnis fyrir tíu árum ásamt öðr-
um og seldi það félag í desember. Ég
ætlaði upphaflega að fjárfesta í hluta-
bréfum en hætti svo við,“ segir hann
og bætir því við að þá hafi hann far-
ið að skoða fasteignir á vefnum, þar
sem hann rakst á gistiheimilið við
Suðurgötu 32. Í framhaldinu hringdi
hann í Magnús Frey Ólafsson, þáver-
andi eiganda gistihússins. „Ég fékk
hjá honum tölur og byrjaði að reikna.
Mér fannst þetta vera of lítið sem ein
eining, til að gera eitthvað með þetta.
Þá fór ég að skoða húsið við hlið-
ina á, sem einnig er til sölu og var að
spá í að blanda þessu saman og búa
til eina stærri einingu en það kom í
ljós að það væri of dýrt.“ Eggert hafði
heyrt af því að fyrrum rekstraraðil-
ar Kirkjuhvols væru að hugsa um að
selja reksturinn. Hann hafði samband
og fékk gefnar upp tölur. „Þá kom í
ljós að einn plús einn væru meira en
tveir og ég gat séð fyrir mér að ég
gæti rekið þetta tvennt saman sem
eina einingu. Það er samlegð í ýmsu,
svo sem í fólki, bókhaldi, símsvörun
og fleiri atriðum sem skipta ákveðnu
máli í þessu. Ég ákvað því að kaupa
reksturinn af þeim líka. Excelskjalið
leit betur út þegar ég reiknaði þetta
svona og það er ástæðan fyrir því að
ég keypti bæði,“ útskýrir Eggert.
Fjölskyldan tengd sögu
Kirkjuhvols
Eggert hefur enn sem komið er litla
reynslu af ferðaþjónustu en hlakk-
ar til að takast á við starfið. Hann
er segir fyrstu skrefin felast í því að
læra sem mest. „Ég er að finna út úr
þessu. Er alveg blautur á bakvið eyr-
un í ferðaþjónustunni en hef rekið
fyrirtæki áður og hef pínu sens fyrir
viðskiptum.“ Hann telur mikilvægt
að byrja á því að tryggja eftirspurnina
og ná henni á Akranes. „Ég er svo-
lítið að vinna í því. Ég er að innleiða
hugbúnaðarkerfi sem samþættir bæði
Kirkjuhvol, Suðurgötu og allar bók-
unarvélar sem eru opnar á netinu.
Þessi aðgerð mun auðvelda vinnuna
og ég vonast til að hún muni tvöfalda
eftirspurnina.“ Eggert hefur nú þeg-
ar hafið störf á Suðurgötunni og tók
við Kirkjuhvoli síðastliðinn föstudag.
Hann er spenntur fyrir verkefninu
enda er Kirkjuhvoll fjölskyldunni kær.
„Það eru miklar tilfinningar tengd-
ar þessu húsi í fjölskyldu Ingibjarg-
ar. Þetta er fyrrum prestsbústaður
og afi hennar var Séra Jón M. Guð-
jónsson sem bjó hér. Móðir hennar
er alin upp í þessu húsi og húsið var
fyrsta heimili hennar, þar sem for-
eldrar Ingibjargar hófu sinn búskap
hér í kjallaranum og bjuggu þar þeg-
ar hún fæddist. Þá var tengdamamma
forstöðumaður Listaseturs Kirkju-
hvols í átján ár, þannig að saga húss-
ins er ansi tengd fjölskyldunni,“ út-
skýrir Eggert.
Eftirspurnin er til staðar
Eggert lítur björtum augum til fram-
tíðar. Hann segir eftirspurnina eft-
ir gistingu á höfuðborgarsvæðinu
og í nágrenni við það vera langt um-
fram framboð og að bókunarhlutfall
í janúar og febrúar 2016 sé með svip-
uðum hætti og um hásumar 2013.
„Það má líka nefna að fótbolta-
lið utan af landi sem spilaði hér um
helgina fékk gistingu fyrir níu manns
hér. Ég var svo spurður að því hvort
þeir gætu samið við mig varðandi
sumarið, þar sem öll hótel sem þeir
eru vanir að gista á í gegnum tíðina
eru uppbókuð. Þannig að þó við ger-
um Akranes ekki að túristabæ, þá tök-
um við auðveldlega við yfirfallinu frá
Reykjavík,“ segir Eggert. Hann seg-
ir þessa eftirspurnarþörf sem hann
hefur metið gera það að verkum að
hann treysti sér til að henda sér í
djúpu laugina, hvað sem síðar verði.
Hann telur sumarið og allt árið verða
gott. „Mars er að verða fullbókaður
á ákveðnum vikum í þessum mán-
uði þannig að eftirspurnin er klár-
lega til staðar. Það vantar bara ein-
hverja miðju hérna á Akranesi, ein-
hverja höfn sem heldur utan um
þetta, því eitt vegur upp annað. Ég
myndi til dæmis glaður fagna því ef
einhver myndi opna hótel hérna, ég
myndi líta á það sem tækifæri en ekki
samkeppni. Ég held að þetta vegi allt
hvort annað upp og auki trúverðug-
leika fyrir gesti.“ Hann segist sann-
færður um að fjöldi tækifæra felist í
nálægðinni við höfuðborgarsvæðið,
þar sem gistirými fyllast fljótt. „Það
eru auðvitað ýmis önnur tækifæri,
svo sem í flóasiglingunum hérna á
milli. Það er möguleiki sem þarf að
grandskoða og meta,“ segir Eggert.
Fylgjandi stækkun
á fiskþurrkun
Eitt umdeildasta málið á Akranesi í
dag snýr að fyrirhugaðri stækkun á
fiskþurrkuninni Laugafiski, sem er í
eigu HB Granda. Eggert hefur litlar
áhyggjur af fyrirhugaðri stækkun og
er sannfærður um að fyrirtækið geti
gert það þannig að allir bæjarbúar
megi vel við una. „Ég hef sjálfur fisk í
blóðinu og hef mikið unnið við störf
tengd sjávarútvegi. Ég er sannfærður
um að HB Grandi geti gert þetta vel,
ég er viss um að það er hægt,“ seg-
ir Eggert. Hann hefur litlar áhyggj-
ur af því að fiskþurrkunin hafi áhrif
á ferðamennsku á Akranesi. Áður en
hann fjárfesti í gistiheimilinu gerði
hann óformlega rannsókn á umsögn-
um ferðamanna á veraldarvefnum
um gistingu á Akranesi. „Þetta voru
allt staðfestar umsagnir og þar kom
fólk með ýmsar vísbendingar. Til
dæmis sögðu sumir að bærinn væri
full rólegur á meðan aðrir töluðu um
göturnar eða veitingastaði. En það
var enginn sem talaði um vonda lykt.
Af 650 athugasemdum benti einn á
að Akranes væri gamall fiskibær og
að þar væri smá fiskilykt sem væri
eðlilegt. Það var eina athugasemd-
in.“ Eggert hefur einnig lesið fjölda
gestabóka frá farfuglaheimilinu við
Suðurgötu og ekki fundið eina at-
hugasemd. „Fólk hér í bænum er að
nefna það að börn geti ekki farið út
að leika fyrir ólykt. Ef það væri þann-
ig yfir sumartímann, þá myndu ferða-
mennirnir skrifa það. Ég er sannfærð-
ur um það. Ég hef ekki meiri áhyggj-
ur af þessari stækkun en svo að ég set
spariféð undir á þennan blett og það
í atvinnugrein sem er talin verða fyr-
ir miklum áhrifum vegna stækkunar-
innar,“ heldur hann áfram.
Vill tengja ferðaþjónustu
við sjávarútveg
Eggert hefur ýmsar hugmyndir um
ferðaþjónustuna á Akranesi. Ein
þeirra snýst um að byggja upp ferða-
þjónustu í tengslum við sjávarútveg.
„Hvers vegna ekki? Við eigum mikla
sögu í sjávarútvegi, inni í gamla HB
húsinu er til fullt af efni sem sýnir þá
sögu. Í Stakkavík er þetta gert, þar er
pallur þar sem hægt er að labba út á
og þar er hægt að horfa á myndbönd
af veiðum, fá sér súpu og ýmislegt
fleira. Það er brjálað að gera í þessu
og þeir selja inn í svona ferðir,“ út-
skýrir Eggert. Hann segir Íslendinga
framarlega í allri fiskvinnslutækni
á heimsvísu og er fullviss um að er-
lendir ferðamenn hefðu ánægju af því
að skoða slíkt. „Ég hef verið að vinna
hjá Skaganum 3X og farið á sjávar-
útvegssýningar víða um heim. Þar
sér maður hversu mikil virðing er
borin fyrir Íslendingum sem vinna í
þessum iðnaði. Við eigum fyrirtæki
á heimsmælikvarða í þessum iðnaði
og þess vegna segi ég að við gætum
örugglega gert út á ferðamanninn
tengt sjávarútvegi.
Framtíð ferðaþjónustu
björt
Eggert telur framtíð ferðaþjón-
ustu á Akranesi tvímælalaust vera
bjarta. Hann nefnir sem dæmi þeg-
ar hann og eiginkonan fóru í göngu-
ferð niður að vita einn sunnudags-
morgun fyrir skömmu. „Þar var
fjöldi gesta, allt fylltist af erlendum
ferðamönnum. Þetta var bara fólk á
rúntinum sem kom þarna við. Akra-
nes er í alfaraleið.“ Hann bætir því
við að fleiri myndu sjálfsagt leggja
leið sína á Skagann ef eitthvað væri
við Hvalfjarðargöngin sem myndi
minna á Akranes. „Jafnvel ef bent
yrði á mínútufjöldann sem tekur að
keyra hingað, frekar en kílómetra-
fjölda. Þá er mikilvægt að fólk viti að
hér er venjulegur bær, gamalt sjáv-
arþorp með áhugaverðum húsum.
Hér höfum við áhugaverðan vita,
hægt er að fara í sund, fjara í fjöru-
ferð, ganga á fjöll og fleira sem gæti
gert þetta að áhugaverðum degi.
Það er nóg að sjá fyrir ferðamann-
inn,“segir hann. Hann segir aukn-
ingu ferðamanna á landsmeðaltali
skila sér inn á Akranes og að augljóst
sé að mörg tækifæri felist fyrir Akra-
nes sem ferðamannabæ í því árferði
sem nú er. „Eitt styður annað, fleiri
fyrirtæki hjálpa hvert öðru og ég segi
því meira, því betra. Maður má ekki
horfa á þetta sem samkeppni. Eftir-
spurnin er meiri en við getum ráð-
ið við og við þurfum að fá fólk inn
á Akranes. Bærinn okkar er fínn og
að mörgu leyti skemmtilegur. Hér
er hægt að gera út á ferðaþjónustu
og við erum miðsvæðis. Það þarf
ekki að dvelja í Reykjavík og gera
allt þaðan. Ég tala nú ekki um þegar
Reykjavík er uppseld líka.“
grþ
Fjórða kvöldið í Spurningakeppni
Snæfellsbæjar fór fram í Röstinni
síðasta laugardagskvöld. Var það
síðasta undanúrslitakvöldið og
kepptu fjögur lið, GSNB Ólafsvík
– stelpur kepptu á móti Leikskól-
anum Kríubóli og Hraðfrystihús
Hellissands keppti á móti Sjáv-
ariðjunni. Það var mikið fjör
og keppnin skemmtileg eins og
fyrr. Það voru lið Hraðfrystihúss
Hellissands og GSNB Ólafsvík –
stelpur sem unnu og eru því kom-
in í undanúrslit ásamt liðum frá
Átthagastofu, Valafelli, Sauma-
klúbbnum Preggý og GSNB
Hellissandi. Undanúrslitin hefj-
ast svo eftir páska og munu fara
þannig fram að þau lið sem komin
eru áfram munu keppa tvö og tvö
í einu. Að því loknu standa uppi
þrjú lið í úrslitum. Það lið sem er
með lægsta stigaskorið af þeim
þremur lendir sjálfkrafa í 3. sæti
en hin tvö munu svo keppa um
titilinn. „Gáfaðasta fólk Snæfells-
bæjar“. Áætlað er að fyrri keppn-
in fari fram 16. apríl og sú seinni
7. maí. Spennan verður svo í há-
marki á seinna kvöldinu þar sem
ekki ræðst fyrr en í hléi hvaða lið
keppa um titilinn.
Þessi kvöld hafa verið frábær
skemmtun og þeir sem hafa kom-
ið verið ánægðir með framtakið.
Vildu Lionskonur í Lionsklúbbn-
um Þernunni koma á framfæri
þakklæti fyrir góðar móttökur.
Það er nefnilega með svona við-
burði eins og annað að það er ekki
nóg að halda þá, það þurfa ein-
hverjir að mæta og njóta og ekki
er nú verra að styrkja gótt málefni
í leiðinni. þa
Undankeppni spurninga-
keppni Snæfellsbæjar lokið
Ætlar að reka tvö gistiheimili á Akranesi
Eggert Herbertsson hefur fjárfest í tveimur ferðaþjónustufyrirtækjum á Akranesi.
Hér er hann fyrir framan annað þeirra, Kirkjuhvol.
Kirkjuhvoll er nátengdur fjölskyldusögunni.
Eggert keypti farfuglaheimilið við Suðurgötu 32, betur þekkt sem Gamla apótekið.
Ljósm. Ljósmyndasafn Akraness.