Skessuhorn - 09.03.2016, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 2016 17
Nafn: Hildur Björk Hörpudóttir
Fjölskylduhagir/búseta:
Er gift Agli Rúnari Erlendssyni
og eigum við þrjá stórskemmti-
lega krakka, þau Auði Emilíu 15
ára, Markús Pál Bjarma 14 ára og
Bjart Stefán 7 ára.
Starfsheiti/fyrirtæki: Sóknar-
prestur Reykhólaprestakalls og
starfsmaður fræðslusviðs Bisk-
upsstofu.
Áhugamál: Guðfræði, lestur og
bókmenntir, ferðalög, endur-
menntun, tónlist og söngur!
Mánudagurinn 7. mars 2016.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Farsíminn minn (a.k.a
vekjaraklukkan mín) hringdi kl.
7:30 og það fyrsta sem ég gerði
var að ýta á snooze-hnappinn.
Sjö ára sonur minn, Bjartur Stef-
án, benti mér hins vegar góðlát-
lega á það að ég væri nú þegar
búin að opna augun einu sinni og
gæti sannarlega haldið þeim opn-
um áfram svo við fórum á fætur
og vöktum unglingana, þau Auði
Emilíu og Markús, við litla hrifn-
ingu þeirra.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? Úff... er engin morgunmats-
týpa svo ein kókómjólk kom mér
út í daginn.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Vinnudagurinn hófst
kl. 8.30 eftir að hafa knúsað og
kysst strákana mína í útidyra-
hurðinni og rölt fimm skref inn á
skrifstofuna mína.
Fyrstu verk í vinnunni: Ég hef
vanið mig á að byrja alla virka
daga á að gera lista yfir það sem
ég vill koma í verk þann daginn.
Listann hef ég mjög nákvæm-
an því öðruvísi gleymi ég og svo
finnst mér ógurlega gaman að ná
að strika yfir sem flest atriði! List-
ar eru líka gott tæki í verkefna-
stjórnun og þegar maður ætlar að
koma hlutum frá höfði og í fram-
kvæmd.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Undirbjó verkefni fyrir ferm-
ingarfræðsla.is og kláraði hluta
af starfslýsingu. Einnig var ég að
undirbúa fermingarfræðslu og
fara yfir guðspjall næsta sunnu-
dags með öðru auganu og byrja
að hugsa hvernig ég ætla að nálg-
ast það.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Vann áfram að verkefnum morg-
unsins og tók svo eitt símtal við
Silju mína um Vinasetrið sem er
stuðningsheimili fyrir börn og
unglinga sem við eigum saman.
Einnig viðurkenni ég að matar-
listin var mætt á svæðið svo ég
borðaði ristað brauð með banana
og drakk kók fyrir framan tölv-
una.
Hvað varstu að gera klukkan
14: Klára tölvupóst með spurn-
ingum til brúðhjóna og undirbúa
sálgæsluviðtal.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Ég
hætti formlega í vinnunni kl. 17
og það síðasta sem ég gerði var
að fara yfir messuskrár og klára
að skipuleggja páskana. Byrjaði
aðeins á listanum fyrir morgun-
daginn og setti inn að ég yrði að
hafa samband við organistann og
samstarfsfélaga um hvort áætlun-
in gengi upp fyrir þau.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Við Bjartur fórum í smá lego og
svo hjálpaði ég Auði að pakka
niður eitthvað af fötum og keyrði
þau feðginin í rútuna í Búðardal
en þau ætla að dvelja í Reykja-
vík næstu fjóra daga við nám og
störf.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Lasagne, spínat með feta-
osti og nóg af tómatsósu. En við
Markús elduðum þetta kvöldið og
hlustuðum saman á hljómsveitina
Úlfur Úlfur yfir matseldinni.
Hvernig var kvöldið? Einstak-
lega notalegt þegar öll rútína var
búin og hægt var að láta líða úr
sér á sófanum, hringja í vinkon-
urnar og hlæja smá og horfa svo
á nýja X-files þáttinn og borða
fylltar lakkrísreimar, toppurinn á
tilverunni stundum!
Hvenær fórstu að sofa? Eins og
alltaf... of seint. En ég drattaðist
upp í rúm rétt yfir miðnætti, tal-
aði við Guð og þakkaði fyrir þá
hluti sem voru mér efst í huga
þetta kvöldið.
Hvað var það síðasta sem þú gerð-
ir áður en þú fórst að hátta?
Fór í heitt bað og hlustaði á góða
tónlist.
Hvað stendur uppúr eftir dag-
inn? Yndislega fólkið í kringum
mig og hvað mánudagar geta ver-
ið ljúfir dagar.
Eitthvað að lokum? Setjum
gleði, von og þakklæti í forgang
í lífinu.
STYKKISHÓLMI
Sjúkraliðar - hjúkrunarnemar- almennir starfsmenn
Óskum eftir sjúkraliðum, hjúkrunarnemum og almennum
starfsmönnum til sumarafleysinga á sjúkradeild HVE í Stykkishólmi á
tímabilinu 30. maí til 23. ágúst.
Um er að ræða vaktavinnu, morgun-, kvöld og næturvaktir.
Starfshlutfall og tímalengd er samkomulagsatriði.
Hæfniskröfur
Góð íslenskukunnátta•
Jákvæðni og góð samskipthæfni•
Snyrtimennska og stundvísi•
Umsóknarfrestur er til 17. mars 2016.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnhildur Jónsdóttir hjúkrunardeildarstjóri
í síma 432 -1220 frá kl.14-16 alla virka daga.
Umsóknareyðublöð er að finna á www.hve.is. Senda þarf umsóknir
á netfangið hrafnhildur.jonsdottir@hve.is.
HVE er reyklaus vinnustaður.
Nánari upplýsingar um Heilbrigðisstofnun Vesturlands
má finna á www.hve.is.
Sumarafleysingar á sjúkra-
deild HVE í Stykkishólmi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Aðalfundur
Við höldum 1. vetrardag hátíðlegan og
blásum til veislu í Kaupfélagi Borgfirðinga
laugardaginn 25. október 2008 kl. 12-15
Flugger litir veita ráðgjöf og verða með tilboð
Mjólka kynnir vörur sínar
Kynning á hreinsiefnum frá Kemi
Kynning og tilboð á Kerckhaert
járningavörum, umboðsmaður
á staðnum, býður upp á ís
* Vetrarskeifurnar með
breiða teininum komnar *
Tískusýning á vetrarfatnaði,
tilboð á fatnaði frá 66°N
10 - 50 % afsláttur af völdum vörum
í versluninni
Royal Canin, glaðningur fylgir
öllum pokum af hunda-og kattamat.
Umboðsmaður á staðnum
Kaffi og rjómaterta
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Aðalfundur Kaupféla s Borgfirði ga
verður haldinn að Hótel Borgarnesi
þriðjudaginn 15. mars 2016 og hefst kl. 20,30
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum
félagsins.
2. Önnur mál.
Skv. 14. gr. samþykkta KB þá hafa allir félagsmenn aðgang að
fulltrúafundum og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
Borgarnesi, 2. mars 2016
Stjórn Kaupfélags Borgfirðinga.
CLARVISTA
STURTUGLER
FYRIR
VANDLÁTA
Allt í gleri
ÚTI OG INNI
M
ynd: Josefine Unterhauser
Hljómsveitin Maskinstorm var stofn-
uð fyrri hluta árs 2015 og gerir út frá
Árósum í Danmörku og hyggur á
tónleikaferð um Danaveldi nú á vor-
mánuðum. Síðan í haust hefur leik-
ið með hljómsveitinni Tómas Guð-
mundsson frá Kjarlaksvöllum í Dala-
sýslu. Hann flutti út ásamt kærustu
sinni Daðeyju Albertsdóttur, sem
nemur alþjóða viðskiptasamskipti við
Árósarháskóla. Tómas er rafvirki en
hefur lengi fengist við tónlist sér til
ánægju og yndisauka. Fljótlega eftir
að út var komið fór hann að svipast
um eftir hljómsveit. „Ég var tiltölu-
lega nýfluttur til Árósa þegar ég sá
auglýsingu á danskri tónlistarmanna-
síðu þar sem hljómsveitin auglýsti
eftir gítarleikara. Ég sótti um, fór í
tvær prufur og var boðin staða eftir
þá síðari,“ segir Tómas í samtali við
Skessuhorn.
Gekk hann þar til liðs við stofn-
meðlimi sveitarinnar, söngvarann
Andreas Bjørn Madsen og trommu-
leikarann Stevie Dalla Zuanna.
Skömmu eftir að Tómas gekk til liðs
við sveitina bættist bassaleikarin Lars
Bonefaas við hópinn. Að sögn Tóm-
asar leikur hljómsveitin Indie-rokk
og ber hann öðrum meðlimum vel
söguna. „Þetta eru hæfileikaríkir tón-
listarmenn sem hafa mikla reynslu af
tónlistarlífinu í Árósum. Gaman er að
segja frá því að söngvarinn Andreas
komst í undanúrslit í Danmark Got
Talent nú á dögunum,“ segir Tóm-
as ánægður.
Æfingar Maskinstorm standa í
fjóra til fimm klukkustundir í senn og
aldrei er æft sjaldnar en einu sinni í
viku. Hljómsveitarfundir eru haldn-
ir mánaðarlega. Tómas segir að und-
anfarin misseri hafi verið mikið að
gera. „Síðustu mánuðir hafa farið í að
undirbúa ferðalagið, bóka tónleika,
æfa lögin vel og slípa þau til og láta
hanna fána með merki hljómsveitar-
innar sem mun hanga fyrir aftan okk-
ur á sviði,“ segir hann.
Vonast til að
spila á Íslandi
Tómas segir tónlistargeirann harð-
ari í Danaveldi en hér heima. „Fleiri
bönd berjast um að komast að á tón-
listarhátíðum og þess háttar viðburð-
um,“ segir hann. „Þess vegna kannski
eru bönd hér duglegri að nýta sér
samfélagsmiðla til að koma sér á
framfæri. Hér eru flestar hljómsveitir
með eigin heimasíðu og auk þess að-
gang á Facebook, Twitter, Instagram,
Snapchat og rásir bæði á Youtube og
Soundcloud, öllum þessum miðl-
um,“ segir Tómas og bætir því við að
heimasíða þeirra fari í loftið á næstu
dögum á sama tíma og síður hljóm-
sveitarinnar á samfélagsmiðlum.
Tónleikaferðalag Maskinstorm
hefst 11. mars með tónleikum í
Svendborg. Fjórir tónleikar eru stað-
festir og fleiri í pípunum þegar þessi
orð eru rituð, sem og tónlistarhátíðir.
„Til að byrja með ætlum við að ein-
beita okkur að því að hita upp fyr-
ir stærri bönd á meðan við erum að
skapa okkur nafn í þessum geira. Á
komandi ferðalagi munum við hita
upp fyrir Ericu Dime, sem er rísandi
stjarna hér í Danmörku,“ segir hann.
Aðspurður um framtíðina seg-
ir Tómas að þegar tónleikaferðalag-
inu lýkur liggi leiðin í hljóðver. „Við
erum búnir að taka upp eitt demo-
lag í kynningarskyni, það heitir Bleak
og má heyra á Youtube. En í vor ætl-
um við í stúdíó að taka upp okk-
ar fyrstu smáskífu og við stefnum að
því að gera tónlistarmyndband í kjöl-
farið,“ segir hann og bætir því við að
það væri gaman að koma með hljóm-
sveitina hingað til lands. „Strákarn-
ir eru mjög áhugasamir um að spila
á Íslandi. Það væri gaman að komast
á Iceland Airwaves einn daginn,“ seg-
ir hann. „Maskinstorm er metnað-
arfullt band sem stefnir langt,“ segir
Tómas Guðmundsson að lokum.
kgk
Tómas Guðmundsson eltir
rokkstjörnudrauminn í Danmörku
Hljómsveitin Maskinstorm sem gerir út frá Árósum. F.v. Tómas Guðmundsson
gítarleikari, Andreas Bjørn Madsen söngvari, Lars Bonefaas bassaleikari og
trymbillinn Stevie Dalla Zuanna.
Dag ur í lífi...
Sóknarprests