Skessuhorn - 09.03.2016, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 201618
Hjalti Allan Sverrisson býr í
Grundarfirði ásamt konu sinni
Lísu Ásgeirsdóttur og tveimur
sonum. Þau eiga og reka Rútu-
ferðir ehf sem hefur verið vax-
andi fyrirtæki síðan það var stofn-
að fyrir fjórum árum. Helstu verk-
efni þess eru akstur fyrir Strætó
bs en auk þess akstur ferðafólks af
skemmtiferðaskipum og ýmislegt
fleira taka þau að sér. Nú bíða þau
eftir að fá afgreitt ferðaskrifstofu-
leyfi sem gefur ýmsa möguleika í
rekstrinum. Fréttaritari Skessu-
horns kíkti í heimsókn til Hjalta
Allans sem er fæddur í Ástralíu en
ættleiddur af íslenskum hjónum.
Hann leitar nú uppruna síns í hópi
andfætlinga okkar.
Leitaði tengsla
við ættingja sína
Hjalti er fæddur 20. febrúar 1969 í
borginni Perth í Ástralíu. Hann var
nokkura daga gamall þegar örlög-
in gripu í taumana og hann var ætt-
leiddur. Það voru íslensk hjón sem
bjuggu í Ástralíu á þessum tíma og
voru í ættleiðingarhugleiðingum
sem ættleiddu piltinn. Þriggja ára
gamall flutti Hjalti svo með foreldr-
um sínum til Íslands, siglandi með
skipinu Southern Cross. Fjölskyld-
an skaut svo rótum í Grindavík en
móðir hans er þaðan. „Ég hef nú
alltaf litið á mig sem Íslending þó
ég hafi oft hugleitt uppruna minn,“
segir Hjalti þegar hann er inntur
eftir þessu. „Ég var sjö eða átta ára
þegar jafnaldri minn minnist á það
við mig að ég sé ættleiddur en hann
hafði sennilega heyrt það hjá for-
eldrum sínum. Ég vissi nú varla þá
hvað það þýddi að vera ættleiddur
og ég spurði móður mína nánar út
í það.“
Hjalti ólst upp í Grindavík og
undi sér þar við leik og störf líkt
og jafnaldrarnir í sjávarplássinu.
„Ég man að ég var mikið að spá í
uppruna minn eftir að ég komst að
því að ég væri ættleiddur og móðir
mín var búin að skýra þetta út fyr-
ir mér,“ segir Hjalti en það var ekki
fyrr en árið 1991 þegar hann eign-
ast sína fyrstu dóttur með þáverandi
sambýliskonu að hann fór virkilega
að velta þessu fyrir sér. „Já, þegar
ég eignaðist mitt fyrsta barn fór ég
að hafa mikinn áhuga á áströlskum
uppruna mínum og sendi bréf út
og spurðist fyrir um þessi málefni
hjá þarlendum barnaverndaryfir-
völdum,“ segir Hjalti. Þá var haft
samband við blóðforeldra hans ytra
sem neituðu öllum samskiptum.
„Ég skildi aldrei hvernig hægt var að
gefa barn til ættleiðingar en væntan-
lega hafa þau haft sínar ástæður fyrir
því,“ segir hann. Eftir það réði hann
einkaspæjara í Ástralíu til að kom-
ast að einhverju um uppruna sinn.
„Já, ég réði mér spæjara til að kíkja á
þetta og komst þá að því að ég á tvær
systur úti. Þetta var upp úr seinni
fyrirspurninni minni en þá vildu
þær ekki hafa samband til baka,“
segir Hjalti en hann var 22 ára þeg-
ar þetta var og systur hans 18 og 20
ára. „Við höfðum varla þroska til að
meðtaka þetta þá en það er öðru-
vísi í dag enda erum við öll á fimm-
tugsaldri núna,“ segir Hjalti og hlær.
Önnur systir Hjalta hafði svo sam-
band fyrir ári síðan. „Ég fékk bréf
frá systur minni í Ástralíu í fyrra og
hef verið í bréfaskriftum við hana en
hin systirin vill ekki vera í sambandi
því henni finnst hún vera að fara á
bakvið móður sína með því,“ segir
Hjalti en hann stefnir á að hitta þær
einhvern tímann í framtíðinni.
Þessi ættleiðingarmál höfðu ekki
djúpstæð áhrif á Hjalta og hann lét
ekki trufla sig að blóðforeldrar hans
vildu engin samskipti, utan eitt at-
riði: „Helst myndi ég vilja vita ætt-
arsögu mína hvað varðar t.d. erfða-
sjúkdóma og slíkt, en ég hef enga
vitneskju um neitt slíkt í dag,“ seg-
ir Hjalti. Nú á hann sjálfur fimm
börn og tvö barnabörn og væri til í
að hafa meiri upplýsingar um upp-
runa sinn.
Frá eðalvögnum til
Noregs og loks til
Grundarfjarðar
Hjalti bjó í Grindavík til ársins
1999 og rak þar eðalvagnaþjón-
ustuna Royal Limousine sem eins
og nafnið gefur til kynna gerði út
lúxus bíla af fínustu gerð. Einn-
ig rak Hjalti flutningaþjónustu um
tíma í Grindavík en árið 1999 slitu
hann og þáverandi sambýliskona
hans samvistum og Hjalti flutti út
til Svíþjóðar. „Ég flyt til Svíðþjóðar
og fer að vinna á flutningabíl. Það
var heilmikið ævintýri en maður
keyrði alla leið frá Norður-Noregi
og Murmansk niður til Frakklands
og stundum til Spánar og þá aðal-
lega Barcelona. Hver ferð tók viku-
tíma og svo keyrði maður til baka
með grænmeti og ávexti frá Spáni
til Noregs.“ Hjalti fór þó aðra
hverja helgi til Íslands til að vera
með dætrum sínum þremur og í
einni af þeim ferðum kynntist hann
núverandi konu sinni. „Já, það var
árið 2000 að ég og Lísa förum að
slá okkur upp saman,“ segir Hjalti
hlæjandi og gjóar augum til konu
sinnar. „Ég flyt þá fljótlega heim
aftur til Íslands til að vera með
Lísu og fór þá fljótlega að keyra
rútur og síðar stofnuðum við Lísa
jeppafyrirtæki sem sérhæfði sig í að
ferja ferðamenn um fjöll og fyrn-
indi. En þeim rekstri urðum við að
hætta eftir 11. september 2001 en
þá steinhættu ferðamenn allt í einu
að koma.“ Hjalti og Lísa ráku með-
al annars bónstöð til skamms tíma
áður en þau hófu rekstur á verk-
takafyrirtæki með hjólaskóflu og
vörubílum. „Já, þetta var í góðær-
inu og við bjuggum í Hveragerði
og gerðum út þessar vinnuvél-
ar. Svo kom 2008 eins og frægt er
orðið og við lentum ansi illa í því.
Við náðum okkur þó fljótt á strik
að nýju og í janúar 2009 fluttum við
hingað til Grundarfjarðar og ég fór
að vinna við akstur.“
Bíður eftir ferðaskrif-
stofuleyfi
Árið 2011 hóf Hjalti svo að aka
fyrir Strætó bs sem verktaki. „Við
keyptum litla rútu og hófum að aka
fyrir Strætó frá Hellissandi í Borg-
arnes. Svo vex þetta batterí og árið
2012 stofnum við Rútuferðir ehf,“
segir Hjalti Allan en Rútuferðir
hefur verið vaxandi fyrirtæki í takt
við fjölgun ferðamanna. „Strætó bs
er okkar stærsti viðskiptavinur en
skemmtiferðaskipin eru þar skammt
undan,“ segir Hjalti en í dag á fyrir-
tækið tvær 50 manna rútur og þrjár
minni rútur sem taka 15-19 farþega
hver. Auk þess eiga þau breytt-
an Ford Econoline fyrir fjallaferð-
ir. „Ég keyri mest sjálfur en hef þó
nokkra bílstjóra sem ég get hóað í
þegar mikið liggur við,“ en Hjalti
er einmitt nýkominn heim úr einni
slíkri ferð þegar fréttaritari kíkti
við í kaffi. „Á veturna keyrum við
líka mikið fyrir erlendar ferðaskrif-
stofur sem eru með hópa í ferðum
hérna á Snæfellsnesi.“
Rútuferðir eru einnig að bíða
eftir ferðaskrifstofuleyfi til að bæta
reksturinn enn frekar. „Já, við ætlum
að bjóða upp á ferðir fyrir Íslend-
inga sem vilja fara í öðruvísi ferð-
ir erlendis og erum við þá að hugsa
um Ítalíu, Færeyjar og svona sér-
sniðnar ferðir fyrir hvern og einn,“
segir Hjalti en ferðaskrifstofuleyfið
ætti að detta í hús hjá þeim á næstu
vikum og þá ættu Vestlendingar að
geta fengið hjálp við að skipuleggja
óhefðbundnar draumaferðir hjá
Rútuferðum ehf. tfk
Hjalti Allan Sverrisson hjá Rútuferðum ehf:
Hefur prófað allt frá eðalvagnaþjónustu til reksturs rútufyrirtækis
Lísa Ásgeirsdóttir og Hjalti Allan reka Rútuferðir ehf.
Hjalti við rúturnar sínar.
Hjalti gerir meðal annars út Ford Econoline fjallatrukk.