Skessuhorn - 09.03.2016, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 201622
maður, Jóhann Sigurðsson, Sigrún
Mjöll Stefánsdóttir, Anna Þóra
Þorgilsdóttir, Sigrún Ríkharðs-
dóttir og Ingibjörg Indriðadótt-
ir. Lóa Guðrún Gísladóttir verður
áfram framkvæmdastjóri félagsins.
Næst á dagskrá hjá Fimleika-
félaginu er Bikarmótið í stökk-
fimi sem haldið verður í Keflavík
helgina 1.-3. apríl næstkomandi.
Stefnt er að því að um 20 lið keppi
þar fyrir hönd félagsins. „Einn-
ig verður árlega Vorsýning FIMA
haldin 9. apríl og því er óhætt að
segja að þjálfarar og iðkendur hafi
nóg að gera næsta mánuðinn. Vor-
sýning FIMA var glæsileg í fyrra
en stefnan er tekin á að bæta um
betur. Við hvetjum Skagamenn til
að taka 9. apríl frá, en tvær sýn-
ingar verða haldnar og hvetjum
við bæjarbúa, bæjarstjórn og nær-
sveitunga til að koma á frábæra
skemmtun og rennur ágóði sýn-
ingarinnar til deildarinnar,“ segir
í tilkynningu.
Síðasti viðburður vetrarins
verður svo Subway-Íslandsmótið
í hópfimleikum sem haldið verður
helgina 20.-22. maí.
kgk/ Ljósm. FIMA.
Landstólpinn
Viðurkenning Byggðastofnunar
Sími 455 54 00
Fax 455 54 99
postur@byggdastofnun.is
byggdastofnun.is
Landstólpinn Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar
er viðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á
ársfundi sínum. Viðurkenningin er hvatning, því
hugmyndin að baki er að efla skapandi hugsun og
bjartsýni.
Landstólpinn er veittur einstaklingi, fyrirtæki eða
hóp/verkefni á vegum fyrirtækis eða einstaklinga, fyrir
framtak sem vakið hefur athygli á byggðamálum,
landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi
og þannig aukið veg viðkomandi samfélags.
Hér með er lýst eftir tillögum um handhafa
Landstólpans 2016. Dómnefnd velur úr þeim tillögum
sem berast.
Hafa má í huga hvort viðkomandi hafi:
- gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni eða
viðkomandi svæði
- aukið virkni íbúa eða fengið þá til beinnar þátttöku í
verkefninu
- orðið til þess að fleiri verkefni/ný starfsemi verði til
- dregið að gesti með verkefni eða umfjöllun sinni
Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt
eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar. Nauðsynlegt er
að rökstuðningur fylgi tilnefningunni.
Viðurkenningunni fylgir listmunur hannaður af Sigrúnu
Ólöfu Einarsdóttur frá Gler í Bergvík.
Tillögur sendist á netfangið:
landstolpinn@byggdastofnun.is
Nánari upplýsingar gefur Sigríður K. Þorgrímsdóttir, s. 4555400.
Frestur til að til að koma tillögum til skila rennur út
þriðjudaginn 29. mars 2016
Á myndinni má sjá hressa ung-
linga úr Auðarskóla í Búðardal að
telja og flokka dósir í bragga KM
þjónustunnar í Búðardal. Þetta
var liður í fjáröflun vegna ferðar
þeirra á Samfés dagana 4.-5. mars
sl. en þá héldu Samtök félagsmið-
stöðva á Íslandi sitt árlega ung-
lingaball og sögvakeppnina Sam-
festinginn. Söfnunin gekk vel en
unglingarnir gengu í hús í Búðar-
dal en fólk til sveita var duglegt að
koma sínum dósa-/flöskupokum
til krakkanna.
sm
Flokkuðu dósir til fjáröflunar fyrir Samfestinginn
Dagana 26.-28. febrúar var Bikar-
mót unglinga í hópfimleikum hald-
ið í Kópavogi. Var þetta stærsta mót
Fimleikasambandsins til þessa, en
um 980 iðkendur tóku þátt. Fim-
leikafélag Akraness sendi sex lið til
keppni undir merkjum ÍA; þrjú í
4. flokki, tvö í 3. flokki og eitt í 2.
flokki og er árangur þeirra sem hér
segir:
2. flokkur:
2. flokkur keppti í A deild og hafn-
aði í 5. sæti.
3. flokkur:
3. flokkur A keppti í A deild og hafn-
aði í 3. sæti.
3. flokkur B keppti í C deild og
hafnaði í 1. sæti og vann sig upp í
B deild.
4. flokkur:
4. flokkur A keppti í A deild og hafn-
aði í 6. sæti.
4. flokkur B keppti í B deild og
hafnaði í 2. sæti og vann sig upp í
A deild.
4. flokkur C keppti í C deild og
hafnaði í 11. sæti (en liðið keppti
ekki með dansi).
„Árangur FIMA er til fyrirmynd-
ar á landsvísu og hlökkum við til að
fylgjast með stúlkunum í verkefnun-
um sem bíður þeirra framundan,“
segir í tilkynningu frá félaginu.
Meistaraflokkur
varð bikarmeistari
annað árið í röð
Sunnudaginn 6. mars síðastliðinn
var svo keppt í WOW bikarnum,
sem er bikarmót meistaraflokka í
hópfimleikum. Lið Fimleikafélags
Akraness keppti í B deild og gerði
sér lítið fyrir og sigraði á mótinu
og er því bikarmeistari annað árið
í röð. „Þetta eru elstu iðkendur
félagsins og hefur FIMA aldrei átt
eins „gamla“ iðkendur sem keppa
fyrir hönd félagsins, en þrjár eru
tvítugar. Meistaraflokkurinn hefur
dafnað vel frá því um áramótin og
hefur mikil liðsheild skapast. Þær
hafa bætt sig líkamlega, andlega og
tæknilega,“ segir í tilkynningu.
Æfingaaðstaða bætt og
mót framundan
Forsvarsmenn Fimleikafélagsins
festu fyrir skömmu kaup á svo-
kallaðri trampólínbraut. Kemur
brautin til með að styrkja tækni-
lega þjálfun iðkenda til muna. Var
brautin keypt með styrk frá sveit-
arfélaginu. „FIMA sendir þakkir
til Akraneskaupstaðar og Bifreiða-
stöðvar ÞÞÞ sem flutti trampólín-
brautina úr Reykjavík,“ segir í til-
kynningu.
Þá var félaginu kosin ný stjórn
á aðalfundi þess á dögunum. Hana
skipa Guðmundur Claxton for-
Góður árangur fimleikafólks á Akranesi