Skessuhorn - 09.03.2016, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 2016 23
Átta hurða farsi! Útspekúleruð gildra!
Illskiljanlegur leigumorðingi, góðgjarn borgarstjóri,
tregar en ákaflega viljugar löggur, kynsveltur endurskoðandi,
dauðhræddur yfirmaður öryggismála, gæðaleg borgarstjórafrú.
Þegar þannig hópur kemur saman þá er ekki víst að neitt klikki!
Næstu sýningar:
3. sýning Fimmtudag............10. mars kl. 20.00
4. sýning Föstudag ...............11. mars kl. 20.00
5. sýning Sunnudag .............13. mars kl. 20.00
6. sýning Föstudag ...............18. mars kl. 20.00
7. sýning Laugardag .............19. mars kl. 20.00
Miðapantanir í síma 435 1182 / 691 1182.
Fosshótel Reykholt býður þriggja rétta leikhúsmatseðil og
sértilboð á gistingu. Nánari upplýsingar í síma 435 1260 og á
netfangið addi@fosshotel.is
Ungmennafélag Reykdæla
ÓÞARFA
OFFARSI
Sýnt er í Logalandi í Reykholtsdal
eftir Paul Slade Smith
í leikstjórn Ármanns Guðmundssonar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Við hitum upp fyrir Írska daga með
Írskum vetrardögum 17. til 20. mars.
Markmiðið er að tengjast Írlandi enn frekar og verður m.a.
eftirfarandi í boði:
Örnefnaganga í umsjá Landmælinga Íslands•
Tónleikar í Akranesvita með írskum brag•
Upplestur og fræðsla um írskar bókmenntir í Bókasafni Akraness•
Írskt bakkelsi á Skökkinni•
Fimmtudaginn 17. mars, á degi heilags Patreks, eru bæjarbúar,
stofnanir og fyrirtæki á Akranesi sérstaklega hvött til að skarta
grænum lit.
Fylgist nánar með á www.akranes.is og
www.facebook.com/IrskirdagaraAkranesi/
Írskir vetrardagar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Víðs vegar um landið héldu Rótarý-
félagar upp á Rótarýdaginn laugar-
daginn 27. febrúar síðastliðinn. Þema
dagsins að þessu sinni var „fjölmenn-
ing“ í víðum skilningi þess orðs.
Deginum er ætlað að vekja athygli
á starfi klúbbsins og styrkja ímynd
hans. Þá var, í ljósi þemans, vakin at-
hygli á fjölmenningu í nærumhverfi
starfandi klúbba, á alþjóðaverkefnum
Rótarý og þeirri fjölmenningu sem
innan hreyfingarinnar er.
Í tilefni þess blésu meðlim-
ir í Rótarýklúbbi Akraness til opins
fundar. Bar hann yfirskriftina „Út-
lendir Skagamenn“ og var haldinn
í Garðakaffi á Akranesi. Framsögu
höfðu nokkrir íbúar á Akranesi sem
eru af erlendu bergi brotnir. Fræddu
þeir gesti stuttlega um heimaland sitt
en röktu einnig ástæður þess að þeir
fluttust til Íslands og sögðu frá upp-
lifun sinni af landi og þjóð.
Hönnuður hjá
Skaganum
Fyrstur tók til máls Johannes Sim-
onsen frá Færeyjum. Hann flutt-
ist á Akranes árið 1985, tvítugur að
aldri. „Ég kynntist íslenskri stúlku og
við hófum okkar búskap á Bakkatúni
14 hér á Akranesi. Við eigum fjögur
uppkomin börn og tvö barnabörn,“
segir hann ánægður.
Fyrst eftir komuna á Skagann
kvaðst Johannes hafa starfað sem
dyravörður á hótelinu. Launin hafi
verið léleg og hann hafi því leitað að
öðru starfi. Úr varð að hann fór á sjó-
inn ári eftir að hann fluttist til lands-
ins. „Ég fékk vinnu á Skipaskaga, sem
nú liggur á hafsbotni og var á honum
í tvö ár áður en mér bauðst pláss á
frystitogaranum Örvari sem gerði út
frá Skagaströnd,“ segir hann.
Johannes var á sjó til ársins 1997
þegar hann fór að langa í nám. „Ég
lærði vélaverkfræði í Árósum og vinn
núna sem hönnuður hjá Skaganum
hf. við hönnun á vinnslubúnaði fyrir
verksmiðjur sem vinna uppsjávarfisk
og einnig hef ég teiknað verksmiðju-
skip,“ segir Johannes. „Ég hef kom-
ið víða erlendis í tengslum við störf
mín en alltaf haft það mjög gott hér
á Íslandi,“ sagði Johannes í lok erind-
is síns.
Ánægð með
kennara dætra sinna
Næst tók til máls Tuyet Anhthi Ngu-
yen frá borginni Hai Phong í Víet-
nam. Hún fræddi gesti lítillega um
lífið og tilveruna í Víetnam og bauð
auk þess upp á myndasýningu frá
heimalandinu. Þótti gestum mikið
til landslagsins koma. Hún flutti á
Akranes árið 2011 og starfaði í Bón-
us um þriggja ára skeið en vinnur nú
hjá HB Granda. „Ég heimsótti Akra-
nes þegar ég kom til Íslands og fann
strax að mig langaði að búa hér. Ég
fékk fljótlega húsnæði og vinnu og
kynntist fólki. Nú er ég orðinn Ak-
urnesingur,“ segir hún glöð í bragði.
Tuyet kom ásamt dætrum sínum
tveimur sem þá voru níu og tólf ára.
„Ég er mjög ánægð með skólalífið og
kennara dætra minna í Brekkubæjar-
skóla,“ segir Tuyet. Í frístundum tek-
ur hún þátt í starfi ljósmyndaklúbbs
og sinnir sjálfboðastarfi hjá Rauða
krossinum.
„Ég hitti sæta stelpu“
Uchechukwu Michael Eze, kallaður
Uche, kom fyrst til Akraness frá Níg-
eríu fyrir 18 árum síðan, árið 1998.
„Ég settist að á klakanum, eins og þið
kallið það,“ segir Uche og slær á létta
strengi. Ástæðuna fyrir komu sinni
hingað til lands segir hann einfalda.
„Ég hitti sæta stelpu. Ástin er sterk
og hingað kom ég. Í dag eigum við
þrjú börn,“ segir Uche og brosir sínu
breiðasta. Hann vinnur í kerskála ál-
vers Norðuráls á Grundartanga en
hefur áhuga á íþróttum. Síðan hann
flutti til Íslands hefur hann náð sér
í dómararéttindi Knattspyrnusam-
bandsins og tekið að sér að þjálfa
krakka í frjálsum íþróttum.
Hann kveðst ekki hafa vitað mik-
ið um Ísland þegar hann flutti hingað
annað en að hér væri kalt. „Í Nígeríu
eru bara tvær árstíðir, regntímabil og
þurrkatímabil. Hér eiga að vera fjór-
ar en veðrið breytist svo oft að mað-
ur veit aldrei hvaða árstíð er,“ seg-
ir hann en vakti máls á því að Ísland
og heimaland sitt væru ekki bara ólík
að veðrinu til. Nígería er fjölmenn-
asta land Afríku og það sjöunda fjöl-
mennasta í heimi. Þar búi 200 millj-
ónir manna, fátækt sé mikil og við-
brigðin hafi verið töluverð. „Þrátt
fyrir ýmis vandamál í Nígeríu þykir
mér ofboðslega vænt um landið mitt.
En ég er á sama tíma ánægður með
hvað íslenska þjóðin hefur tekið vel á
móti mér og er stoltur af því að vera
Íslendingur,“ segir Uche.
Róin og kyrrðin
stendur upp úr
Shyamali Ghosh kemur frá Kalkútta,
12 milljóna borg í Vestur-Bengal hér-
aði á Indlandi. Hún fræddi gesti um
indversku þjóðina og lagði áherslu á
hve fjölbreytt hún er. Vart við öðru
að búast þegar málið er ígrund-
að. Indverjar eru fjölmennasta þjóð
heims, telja 1,3 milljarða eða nær
fimmtung jarðarbúa. Engu að síður
setji utanaðkomandi Indverja alltaf
undir einn og sama hattinn. Á Ind-
landi búi hins vega fjölmörg þjóðar-
brot, sem tali hátt í 80 ólík tungu-
mál og mállýskur og eigi sér sérstaka
sögu og menningu.
Maðurinn hennar, Dipu Gosh,
hafði þá komið til Íslands, fyrst árið
1983 og þjálfað badminton bæði á
Akranesi og í Borgarnesi, en hann
er fyrrum Indlandsmeistari í íþrótt-
inni. „Ísland togaði af einhverjum
ástæðum í hann og hann fór aftur,“
segir hún. Eftir heimsókn hennar og
sonar þeirra til landsins árið 1998
ákváðu þau að setjast hér að. Shya-
mali er doktor í lífefnafræði og fékk
vinnu hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Vinnuna missti hún í hruninu en
fékk strax vinnu hjá Rauða Krossin-
um á Akranesi þegar tekið var á móti
flóttamönnum frá Palestínu. „Það gaf
mér tækifæri til að kynnast íslensku
samfélagi í raun og ég er heppin að
hafa fengið það starf,“ segir Shya-
mali. Hún skveðst una hag sínum
vel á Akranesi. „Róin og kyrrðin er
það sem heldur mér hérna,“ seg-
ir hún en viðurkennir að auðvitað
sakni hún heimalandsins. „Ég sakna
þess að upplifa litríka útimarkaði og í
skammdeginu sakna ég sólskinsins,“
segir Shyamali.
Fögnum fjölbreytileika
mannlífsins
Síðust tók til máls Ruth Jörgensdótt-
ir Rauterberg frá Münster í Vestfalíu-
héraði í Þýskalandi. Hún býr á Akra-
nesi ásamt manni sínum og þremur
börnum og kveðst ekki vita hvort til-
viljanir eða örlögin hafi ráðið því að
þau settust að í bænum. Hún læt-
ur vel af Akranesi og er sérstaklega
Útlendir Skagamenn deildu reynslu sinni á Rótarýdeginum á Akranesi
ánægð með leikskóla barna sinna og
Brekkubæjarskóla. „Á Akranesi er
okkar heimili,“ segir Ruth.
Hún vinnur í dag sem þroskaþjálfi
í félagsmiðstöðinni Þorpinu, þró-
ar tómstundastarf fyrir ungmenni
og hefur síðan í haust kennt þroska-
þjálfun við Háskóla Íslands. „Mark-
miðið í mínu starfi passar vel við efni
dagsins. Það er að fagna margbreyti-
leikanum og virkja hann, leiða sam-
an ólíka hópa og veita öllum börn-
um tækifæri til að upplifa fjölbreyti-
leika mannlífsins sem eðlilegan hlut.
Þá upplifir hver og einn sig sem þátt-
takanda,“ segir Ruth.
Hún víkur stuttlega að sögu Müns-
ter, sem var sprengd í heimsstyrjöld-
inni síðari. Ruth varpar fram spurn-
ingunni; „af hverju stríð?“ og svar-
ið er einfalt og á góða samleið með
þema dagsins: „Ef við virðum ekki
margbreytileikann. Ef við látum
svæði, eignir, hugmyndafræði eða
eitthvað slíkt ganga ofar manneskj-
unni.“ kgk
Framsögumenn á fundinum. F.v. Shyamali Ghosh, Tuyet Anhthi Nguyen, Johannes Simonsen, Uchechukwu Michael Eze og
Ruth Jörgensdóttir Rauterberg ásamt Guðmundi Páli Jónssyni, forseta Rótarýklúbbs Akraness.
Gestir á fundinum hlýða á framsögu. Fremst fyrir miðri mynd er Magnús B Jónsson
núverandi umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi.