Skessuhorn - 09.03.2016, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 2016 25
Keppt var í tölti T3 og T7 á KB
mótaröðinni í Faxaborg síðastliðinn
laugardag. Alls voru 77 skráningar
og gekk mótið afar vel og skemmti-
lega fyrir sig, að sögn mótshald-
ara. Sáust margar glæsilegar sýn-
ingar. Lauk mótinu á skeiði í gegn-
um höllina þar sem Guðmundur M
Skúlason á Fannari bar síður úr bít-
um á tímanum 5,55 sekúndur. Ann-
ar varð Ólafur Guðmundsson á
Nið á 5,9 sek og þriðji Lárus Ást-
mar Hannesson á Skyggni á 6,16.
Önnur úrslit urðu þessi:
Tölt T7 - A úrslit Barnaflokkur
1. Anita Björk Björgvinsdóttir /
Klöpp frá Skjólbrekku; 5,67
2. Kolbrún Katla Halldórsdóttir/
Sindri frá Keldudal; 5,58
3. Andrea Ína Jökulsdóttir /
Andvari frá Borgarnesi; 5,17
4. Elín Björk Sigurþórsdóttir /
Ábót frá Ytri-Löngumýri; 5,00
5. Hafdís Lóa Sigurbjörnsdóttir /
Hylling frá Minni-Borg; 4,75
6. Fjóla Rún Sölvadóttir /
Dagur frá Ólafsvík; 4,58
7. Kristófer Daði Davíðsson /
Tvistur frá Þingnesi; 3,67
Tölt T7 - A úrslit Unglingaflokkur
1. Annabella R Sigurðardóttir /
Ormur frá Sigmundarstöðum; 7,08
2. Berghildur Björk Reynisdóttir /
Óliver frá Ánabrekku; 6,08
3. Gyða Helgadóttir /
Freyðir frá Mið-Fossum; 5,75
4. Húni Hilmarsson /
Bubbi frá Þingholti; 5,67
5. Fanney O. Gunnarsdóttir /
Skuggi frá Brimilsvöllum; 5,58
Tölt T3 - A úrslit Ungmenna-
flokkur
1. Guðný Margrét Siguroddsdóttir/
Reykur frá Brennistöðum; 6,72
2. Máni Hilmarsson /
Hringur frá Reykjavík ; 6,67
3. Berglind Ýr Ingvarsdóttir /
Elísa frá Bakkakoti; 5,56
4. Louise Maria Adrianzon /
Vordís frá Hrísdal; 5,28
5. Ólafur Axel Björnsson /
Þula frá Borgarnesi; 4,00
Tölt T7 - B úrslit Opinn flokkur
- 2. flokkur
1.-2. Hrafn Einarsson /
Lækur frá Bjarkarhöfða; 6,00.
1.-2. Veronika Osterhammer /
Kári frá Brimilsvöllum; 6,00
3. Reynir Már Sigmundsson /
Embla frá Akranesi; 5,92
4. Halldóra Jónasdóttir /
Stöðlun frá Nýjabæ; 5,83
5. Guðrún Sigurðardóttir /
Urður frá Leirulæk; 5,58
Tölt T7 - A úrslit Opinn flokkur
- 2. flokkur
1. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir /
Atlas frá Tjörn; 6,67
2. Inga Vildís Bjarnadóttir /
Gola frá Þingnesi; 6,42
3. Hrafn Einarsson /
Lækur frá Bjarkarhöfða; 6,25
4. Helgi Baldursson /
Neisti frá Grindavík; 5,83 H
5. Belinda Ottósdóttir /
Skutla frá Akranesi: 5,83
6. Rósa Emilsdóttir /
Toppur frá Svínafelli II; 5,75
7. Veronika Osterhammer /
Kári frá Brimilsvöllum; 5,67
Tölt T3 - A úrslit Opinn flokkur
- 1. flokkur
1. Ámundi Sigurðsson /
Hrafn frá Smáratúni; 6,61 D
2. Gunnar Tryggvason /
Ómur frá Brimilsvöllum; 6,61
3. Hrefna Rós Lárusdóttir /
Hnokki frá Reykhólum; 6,17
4. Einar Gunnarsson /
Illingur frá Akranesi; 5,56
5. Sif Ólafsdóttir /
Eldur frá Einhamri 2; 5,50
Tölt T3 -A úrslit Opinn
1. Siguroddur Pétursson /
Steggur frá Hrísdal; 7,39
2. Iðunn Svansdóttir /
Fjöður frá Ólafsvík; 7,22
3. Bjarki Þór Gunnarsson /
Bráinn frá Oddsstöðum I; 6,44
4. Benedikt Þór Kristjánsson /
Kolur frá Kirkjuskógi; 6,33
5. Guðmundur Margeir Skúlason/
Gangskör frá Hallkelsstaðahlíð;
6,11.
Keppt í tölti á KB mótaröðinni
Verðlaunahafar í A flokki. Ljósm. kg.
Verðlaunahafar í unglingaflokki. Ljósm. kg.
Annabella Sigurðardóttir og Ormur frá Sigmundarstöðum sigruðu í unglinga-
flokki. Ljósm. iss.
Guðný Margrét og Reykur sigruðu í ungmennaflokki. Ljósm. iss.
munum, völdum, peningum og
áhrifum. Og sannarlega eru bæj-
arfulltrúar ekki öfundsverðir að
sitja í þessari súpu. Íslenskt samfé-
lag er smátt, vina- og ættartengsl
út um um allt. Það krefst gífurlegs
styrks að taka ákvarðanir sem eru
e.t.v. í andstöðu við góða félaga
eða valdamikla aðila sem þú þarft
jafnvel velvild frá í öðrum málum.
Sennilega er þetta sá þáttur sem
hefur haft hvað mest áhrif á van-
traust almennings á Íslandi á kerf-
inu og kemur svo skýrt fram í sið-
ferðishluta rannsóknarskýrslu Al-
þingis. Fjöldi fólks veigrar sér við
að segja skoðun sína eða blanda sér
í mál af ótta við að það bitni á þeim
með einum eða öðrum hætti. Það
er auðvitað ekki til marks um lýð-
ræði eða traust.
Innviðir
Því miður er það svo að næg at-
vinna er ekki nægjanleg forsenda
fyrir búsetu fólks, þá væri nú
margt einfaldara hér á landi. Ein-
sleit atvinnutækifæri kalla á ein-
sleitari innviði. Vill bærinn fjöl-
breyttari flóru fólks? Í mínum
huga er það nauðsynlegt ef takast
á að byggja upp gamla bæinn með
sómasamlegum hætti og hvað þá
að laða að fólk til að flytja á Sem-
entverksmiðjureitinn. Það er nú
svo, að það er önnur gerð af fólki
sem velur að endurgera gömul hús
til búsetu heldur en þeir sem velja
að byggja nýtt. Hvorki verra eða
betra fólk og báðir hóparnir mik-
ilvægir.
Pabbi var húsgagnasmiður og
myndlistarmaður. Um árabil sleppti
hann að vinna yfirvinnu í Slippn-
um til að keyra fyrir Hvalfjörð í
myndlistarnám í Reykjavík. Maður
fékk nú að heyra hversu mikill let-
ingi hann væri að sleppa yfirvinnu
fyrir föndurtíma. Sjálf hef ég átt
útilistaverk við Langasand sem var
hent á haugana án þess svo mikið
að láta mig vita af því bæjarstjór-
anum fannst það ljótt. Hvorugt
þessa ber vott um umburðarlyndi
eða virðingu fyrir mismunandi
störfum. Enda sýndi áratugastarf
pabba á Byggðasafninu að þar fór
ekki letingi um. Málið snýst ekki
um duglega hægrimenn eða lata
vinstrimenn. Það snýst um fram-
tíðarsýn sem getur falið í sér aukna
hagsæld sem byggir á virðingu fyr-
ir fjölbreytileikanum. Gleymum
ekki að frumkvöðlastarfsemi og
möguleikar hugbúnaðargeirans
eru nánast ótæmandi og oft ekki
háðir sérstöku húsnæði eða stað
heldur sameiginlegri ástríðu, hug-
myndum og viðhorfi.
Að lokum
Ég hef hér að framan minnst á
nokkur atriði sem ég tel að skipti
máli fyrir framtíð bæjarins hvað
varðar innri gæði og samkeppn-
isstöðu. Munum að þeir sem
börðust fyrir verndun húsanna á
Bernhöfðstorfu við Lækjargötu í
Reykjavík, voru á sínum tíma tald-
ir fífl og fávitar, af mörgum. Eng-
inn efast um mikilvægi húsanna í
dag sem hluta af staðaranda mið-
bæjarins. Á sama hátt er það fólk
mikilvægt samfélaginu á Akranesi
sem hefur áhuga á að vinna að
endurgerð húsa í gamla bænum og
nóg er af fallegum húsum í niður-
níðslu. Ef sá hópur missir tiltrú á
bænum er miklu tapað.
Sjálf hef ég í gegnum nemenda-
vinnu í háskólanum komið að
vinnu fjölda verkefna sem tengjast
Akranesi, s.s. skólalóð FVA, mið-
bænum og nýsköpunarverkefninu
Ströndin og skógurinn. Að stærst-
um hluta vegna þess að ég hef haft
áhuga á að leggja mitt af mörkum
við að opna sýn. Sennilega á ég
nú hátt í 2000 ljósmyndir af bæj-
arlífi, húsum, hafi og göturýmum.
Í þeim sé ég ekkert nema tæki-
færi sem eru staðfest í húsakönnun
sem unnin var fyrir bæinn af Guð-
mundi L. Hafsteinssyni arkitekt
árið 2009 og ber það fallega nafn
Perla Faxaflóa.
Enginn af þeim brottfluttu
Skagamönnum sem ég hef rætt við
skilur að þetta sé að gerast á Akra-
nesi árið 2016. Allir þeir fræði-
menn sem ég hef rætt við telja
þetta vera að setja bæinn í sama
far í stað þess að sækja fram og í
engu samtali við þá góðu vinnu
sem unnin hefur verið í sambandi
við nýtt Akratorg og Sementverk-
smiðjureit.
Ágætu bæjarfulltrúar! Ábyrgð
ykkar er mikil, ég hvet ykkur til
að taka þyrluflug með málið, lyfta
ykkur upp úr músarholuhugsunar-
hætti og skoða málið í víðara sam-
hengi heldur en hingað til hefur
verið gert svo Akranes megi verða
perla Faxaflóa.
Með vinsemd og virðingu,
Helena Guttormsdóttir
Höf. er myndlistarmaður og lektor
við umhverfisskipulagsbraut Land-
búnaðarháskóla Íslands, fædd og upp-
alin á Akranesi.
Framtíðarsýn – hjólabærinn Akranes úr hugmynd Önnu Margrétar Sigurðar-
dóttur – Hjólað á sléttunni.
Að upplifa brim - hönnunarhugmynd við Reykjavíkurhöfn.
Ljósm. Edda Ívarsdóttir.