Skessuhorn - 27.04.2016, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2016 23
Dagskrá:
Hátíðin sett: 1. Signý Jóhannesdóttir formaður Stéttarfélags Vesturlands
B2. arnakór undir stjórn Steinunnar Árnadóttur syngur nokkur lög
Ræða3. dagsins: Sigurður Bessason formaður Eflingar stéttarfélags og
varaforseti ASÍ
Al4. da Dís og Mummi taka lagið
Freykjukórin5. n, Zsuzsanna Budai stjórnar
Internasjónalinn6.
Kynnir: Hrefna Ásgeirsdóttir trúnaðarmaður Kjalar
Félögin bjóða samkomugestum í súpu og brauð að fundi loknum.
Fjáröflunarnefnd 9. bekkjar Grunnskólans í Borgarnesi sér um veitingarnar.
Kvikmyndasýning fyrir börn verður í Óðali kl. 13:30,
boðið verður upp á popp og ávaxtasafa.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
1. MAÍ 2016
Í BORGARNESI
Hátíðar- og baráttufundur verður í
Hjálmakletti og hefst kl. 11.00
Dagskrá:
Kynnir: Kristín G. Ólafsdóttir
Ræðumaður: Garðar Hilmarsson,
Formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar
Skemmtiatriði: Halldór Ólafsson, (Lolli) trúbador
og Valgeir Guðjónsson, Stuðmaður mikill og trúbador
Kaffiveitingar
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
1. MAÍ
Í BÚÐARDAL 2016
1. maí 2016 samkoma Dalabúð,
Búðardal kl.14:30
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Sumardagurinn fyrsti var með ágæt-
asta móti í Grundarfirði en veð-
ur var nokkuð ljúft þrátt fyrir smá
kulda. Sögumiðstöðin var með tvær
sýningar á Svartahnjúk, stríðssögu
úr Eyrarsveit og svo var Sögustof-
an með opið hús þar sem Ingi Hans
Jónsson og Sigurborg Kr. Hannes-
dóttir tóku á móti gestum. Þar var
einnig boðið upp á brúðuleikhús
sem féll vel í kramið hjá yngri kyn-
slóðinni. tfk
Buðu upp á brúðuleikhús
á Safnadeginum
Árlega stendur Kiwanishreyfing-
in á Íslandi ásamt Eimskip fyrir því
að allir nemendur í 1. bekk á land-
inu fái reiðhjólahjálma að gjöf. Til-
gangurinn er að bæta öryggi þeirra
í umferðinni ásamt því að reyna að
koma í veg fyrir alvarleg slys eða
óhöpp við hjólreiðar. Nýtast hjálm-
arnir einnig vel við notkun hjóla-
bretta og hjólaskauta. Nemendur
1. bekkjar í Grunnskóla Snæfells-
bæjar fengu góða gesti í síðustu
viku þegar þeir Guðbjörn Ásgeirs-
son og Þórarinn Steingrímsson
komu í heimsókn, en þeir sáu um
afhendingu hjálmanna og fræddu
þeir börnin í leiðinni um mikilvægi
þess að vera alltaf með hjálm þegar
hjólað er eða verið á hjólabretti eða
hjólaskautum. þa
Fyrstu bekkingar fengu
reiðhjólahjálma
Það er ómissandi fylgifiskur vor-
verka flestra bænda að bera á tún og
ekki óþekkt að bílstjórar sem keyri
hjá loki fyrir loftinntak inn í bíla
sína. Sveitalyktin svífur þá um nán-
asta umhverfi og minnir vegfarend-
ur á að vorið er komið og grund-
irnar gróa. Bjarni Sigurbjörnsson
bóndi á Eiði við Kolgrafafjörð var
í óða önn að bera á tún sín þegar að
fréttaritari Skessuhorns átti leið hjá
með lokað loftinntak. Hann mátti
þó til með að skrúfa niður rúðuna
og smella mynd af mykjudreifing-
unni en þó ekki fyrr en hann var bú-
inn að koma sér fyrir undan vindi ef
svo má að orði komast.
tfk
Vorilmur í lofti