Skessuhorn - 11.05.2016, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 20162
Átakið og vinnustaðakeppnin „Hjólað í vinn-
una“ hófst í liðinni viku og stendur til 24.
maí. Því er kjörið tækifæri til að dusta rykið
af reiðhjólunum, ferðast til vinnu á umhverf-
isvænan máta og bæta heilsuna.
Það verður austan 5-10 m/s syðst á landinu
en annars breytileg átt á morgun. Léttskýjað
á Norður- og Austurlandi en skýjað þurrt að
mestu annars staðar á landinu. Hiti 4 til 12
stig. Á föstudag, laugardag og sunnudag er
útlit fyrir fremur hæga vestlæga eða breyti-
lega átt. Skýjað með köflum og lítil úrkoma.
Yfirleitt bjartviðri suðaustanlands. Hiti 4 til
15 stig, hlýjast suðaustan til. Austanátt, skýj-
að og lítilsháttar rigning í flestum landshlut-
um á mánudag. Áfram fremur milt veður.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hver er uppáhalds mánuðurinn þinn?“
„Júlí“ trónir á toppnum með tæplega fjórð-
ung greiddra atkvæða, 24%. Næst koma
„júní“ og „maí“ með 17% hvor. „Ágúst“
sögðu 13%, „janúar“ 10% en aðrir mánuðir
njóta minni vinsælda.
Í næstu viku er spurt:
Hversu oft týnirðu lyklunum þínum?
Knattspyrnukonan Hallbera Guðný Gísla-
dóttir ritaði á dögunum pistil þar sem hún
vakti máls á því að knattspyrnu karla og
kvenna væri gert mishátt undir höfði hér
á landi. Kallar hún eftir breyttu viðhorfi til
kvennaknattspyrnunnar. Hallbera er Vest-
lendingur vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Sóttu vélarvana bát
AKRANES: Sjóflokkur Björg-
unarfélags Akraness fékk út-
kall um klukkan 6 síðastliðinn
mánudagsmorgun með beiðni
um að koma vélarvana strand-
veiðibát til aðstoðar. Trillan var
stödd 12 mílur vestan við Akra-
nes við svokallað Hraun. Farið
var á björgunarbátnum Margréti
Guðbrandsdóttur, dráttartóg
komið í bátinn og hann dreginn
í land. Að sögn Jóns Gunnars
Ingibergssonar félaga í sjóflokki
BA gekk ferðin að óskum, smá
kaldi var utan í Hrauninu en lag-
aðist þegar nær dró landi. Kom-
ið var á Akranes aftur um klukk-
an 9 um morguninn. -mm
Dreginn síðasta
spölinn
ÓLAFSVÍK: Síðasta miðviku-
dag, á þriðja veiðidegi frá því
að strandveiðar hófust, var spáð
frekar leiðinlegu veðri. Þó gerði
smá útskot fyrr um morguninn
og nýttu nokkrir smábátasjó-
menn þetta útskot, þar á meðal
Magnús Ingimarsson SH. Þeg-
ar hann var á landleið varð smá-
vægileg vélarbilun í bátnum rétt
fyrir utan höfnina í Ólafsvík.
Kom Aðalheiður SH honum til
hjálpar og dró bátinn til hafnar.
Gekk það vel fyrir sig þrátt fyrir
leiðinda kalda. -þa
Sumaráætlun
Strætó
LANDIÐ: Sumaráætlun
Strætó bs hefst á næstunni, en
nokkuð misjafnt er eftir lands-
hlutum hvenær hún tekur gildi.
Á Vestur- og Norðurlandi hefst
hún 5. júní, á Suðurlandi 15.
maí, á höfuðborgarsvæðinu 29.
maí, á Suðurnesjum 5. júní og
á Norður- og Norðausturlandi:
29. maí. Nánari upplýsingar
um breytingarnar er að finna á
Strætó.is. -fréttatilk.
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur
Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
Ársreikningur Stykkishólmsbæjar
fyrir árið 2015 var til fyrri umræðu
á fundi sveitarstjórnar síðastlið-
inn mánudag. Rekstrarniðurstaða
er jákvæð. Tekjur sveitarfélagsins
á árinu námu 1.151 milljón króna
samkvæmt samanteknum ársreikn-
ingi fyrir A og B hluta, þar sem A -
hluti stendur fyrir bæjarsjóð en B -
hluti fyrir stofnanir og fyrirtæki. Þar
af námu rekstrartekjur bæjarsjóðs
1.066 milljónum króna. Þá námu
rekstrargjöld sveitarfélagsins 994,3
milljónum, þar af var hluti bæjar-
sjóðs 957,4 milljónir að meðtöldum
hækkunum vegna lífeyrisskuldbind-
inga starfsfólks. Rekstrarniðurstaða
samantekins ársreiknings er því já-
kvæð um 32,7 milljónir króna. Þar
af er rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs
jákvæð um 16,8 milljónir. Hafnar-
sjóður var rekinn með um það bil
13,9 milljóna króna hagnaði og frá-
veita með 6,9 milljónum í plús. Þá
hafa tekjur aukist hjá bæjarsjóði um
rúmar 175 milljónir. Skuldahlutfall
bæjarsjóðs hefur lagast mikið milli
ára og er nú 107,5% af skatttekjum
en var 126,8% árið á undan og
135,8% árið 2013. Eigið fé sveit-
arfélagsins í árslok 2015 nam 983
milljónum króna samkvæmt efna-
hagsreikningi, en þar af nam eigið
fé bæjarsjóðs 1.151 milljón króna.
Að sögn Sturlu Böðvarssonar bæj-
arstjóra markast rekstrarniðurstöð-
ur mjög af hækkun launakostnaðar
miðað við fjárhagsáætlun.
Helstu fjárfestingarhreyfingar
Stykkishólmsbæjar eru annars veg-
ar sala á húsnæði Amtsbókasafns-
ins við Hafnargötu 7 að upphæð 48
milljónir króna og hins vegar fjár-
festingar að upphæð 80,3 milljón-
ir kr. Þær helstu eru fjárfesting í
gatnagerð og deiliskipulag að upp-
hæð 28,8 milljónum króna og við-
bygging við Grunnskóla Stykkis-
hólms að upphæð 20,6 milljónir
króna.
grþ
Jákvæður rekstur og betra skuldahlutfall
Síðastliðinn föstudag var fyrsta
skóflustungan tekin að tveimur nýj-
um íbúðablokkum við Asparskóga
27 og 29 á Akranesi. Það er fyrir-
tækið Uppbygging ehf., í eigu Eng-
ilberts Runólfssonar byggingaverk-
Uppbygging hefur byggingu tveggja blokka við Asparskóga
taka, sem byggir. Í hvoru húsi um sig
verða 12 íbúðir, þriggja og fjögurra
herbergja, 100-125 fermetrar með
geymslum. Þær verða seldar fullbún-
ar með innréttingum og gólfefnum.
Þessi framkvæmd er líklega stærsta
einstaka framkvæmd í íbúðabygg-
ingum í bæjarfélaginu frá hruni, en
framkvæmdin kostar um 700 millj-
ónir.
Engilbert stefnir á að fyrri blokk-
in verði tilbúin um næstu áramót en
sú síðari 2-3 mánuðum síðar. „Við
ætlum að byggja á stuttum tíma og
höfum fengið til liðs við okkur hóp
af þrautþjálfuðum iðnaðarmönnum
af svæðinu,“ segir Engilbert. Hús-
ið verður byggt úr forsteyptum ein-
ingum frá Loftorku í Borgarnesi, en
meðal annarra sem að verkinu koma
eru Al-hönnun Runólfs Þ. Sigurðs-
sonar, Ylur sér um pípulagnir, Véla-
leiga Halldórs um jarðvinnu, Þráinn
Gíslason um tréverk, Bragi Sigur-
dórsson hjá Verkís hannar rafmagn
en Rafsmiðjan leggur rafmagnið og
er Arnar Sveinsson rafvirkjameistari
hjá Rafsmiðjunni jafnramt bygginga-
stjóri. Það verða fasteignasölurnar
Hákot og Miðbær sem annast sölu
íbúðanna. Engilbert segir að eftir
um einn eða tvo mánuði muni sölu-
verð íbúðanna liggja endanlega fyr-
ir en segir þó að það muni losa 300
þúsund krónur fyrir fermetrann.
Engilbert kveðst bjartsýnn á að
tímabil uppbyggingar á íbúðarhús-
næði sé að hefjast á Akranesi og í ná-
grenni og hyggur hann á fleiri fram-
kvæmdir innan tíðar á Skaganum.
Fyrir hrun rak Engilbert fyrirtæk-
ið Stafna á milli sem byggði um 70
íbúðir á Akraness, svo sem í Flata-
hverfinu og við Þjóðbraut. Við hrun-
ið fór fyrirtækið á hliðina og hafði þá
meðal annars verið byrjað á bygg-
ingu stóru blokkarinnar við Sól-
mundarhöfða en sú byggingarfram-
kvæmd fór í nokkurra ára bið og lok-
ið var við hana af öðru fyrirtæki.
mm
Dætur Engilberts, þær Elín Edda 8 ára og Stefanía Rakel 4 ára fengu það hlutverk
að taka fyrstu skóflustungurnar að nýju blokkunum við Asparskóga síðdegis á
föstudaginn.
Tölvugerð mynd af Afskaparskógum 27. Mynd: Al-hönnun.