Skessuhorn - 15.06.2016, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 20168
Aflatölur fyrir
Vesturland
4. júní - 10. júní
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu:
Akranes 23 bátar.
Heildarlöndun: 78.592 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 44.008
kg í þremur löndunum.
Arnarstapi 14 bátar.
Heildarlöndun: 29.172 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 5.804
kg í tveimur löndunum.
Grundarfjörður 23 bátar.
Heildarlöndun: 157.339 kg.
Mestur afli: Steinunn
SF:62.690 kg í einni löndun.
Ólafsvík 45 bátar.
Heildarlöndun: 228.834kg.
Mestur afli: Ólafur Bjarnason
SH: 27.159 kg í þremur lönd-
unum.
Rif 38 bátar.
Heildarlöndun: kg.219.370
Mestur afli: Tjaldur SH:
47.163 kg í einni löndun.
Stykkishólmur 21 bátar.
Heildarlöndun: 70.033 kg.
Mestur afli: Fjóla SH: 8.611
kg í þremur löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Steinunn SF – GRU:
62.690 kg. 8. júní
2. Hringur SH – GRU:
52.559 kg. 8. júní
3. Tjaldur SH – Rif:
47.163 kg. 10. júní
4. Rifnes SH – Rif:
20.275 kg. 9. júní
5. Örvar SH – Rif:
19.139 kg. 9. júní.
förum þangað 2016halla2016.is I facebook.com/halla2016
Halla Tómasdó�ir
Á Íslandi skipta allir máli
FORSETAKOSNINGAR 2016
Ég vil búa í samfélagi sem setur mannlífið og ná�úruna í forgang. Samfélagi sem byggir
á góðri menntun, heiðarleika og ré�læti. Samfélagi sem sýnir umhyggju, er framtíðar-
heimili unga fólksins og leyfir eldri kynslóðum að njóta þess sem þær hafa áorkað.
Sem forseti Íslands myndi ég starfa e�ir þessum gildum. Förum þangað.
Úrslit í forsetakosningunum eru hvergi nærri ráðin. Ég hvet þig, kjósandi góður,
til að mæta á kjörstað og kjósa með hjartanu. Þi� atkvæði skiptir máli.
Halla Tómasdó�ir hefur starfað lengst af sem mannauðsstjóri og kennari hér heima,
í Bandaríkjunum og í Bretlandi. Hún kom að uppbyggingu Háskólans í Reykjavík og
leiddi verkefnið Auður í kra�i kvenna. Hún gegndi stöðu framkvæmdastjóra
Viðskiptaráðs árið 2006 en hæ�i 2007 til að stofna Auði Capital með það að markmiði
að koma með aðra og mannlegri nálgun inn í �ármálageirann. Hún var ein þeirra sem
stóðu að Þjóðfundinum árið 2009.
Halla er rekstrarhagfræðingur frá Bandaríkjunum og talar �ögur tungumál.
Undanfarin misseri hefur hún starfað sem fyrirlesari á alþjóðave�vangi og er
auk þess virkur þá�takandi í umræðu um þróun samfélagsins. Halla er gi�
Birni Skúlasyni og þau eiga tvö börn. Fjölskyldan býr í Kópavogi.
Liðin eru 88 ár frá því Hrepps-
laug í Skorradal var byggð en hún
er næstelsta 25 metra steinsteypta
laug á landinu. Nú í byrjun sum-
ars hafa staðið yfir framkvæmd-
ir við laugina en eftir að hún var
friðuð árið 2014 fékkst styrkur frá
Minjastofnun til að laga laugarker-
ið sjálft. Þá var ákveðið að ráðast í
frekari framkvæmdir og taka bað-
húsið og laugarbakkann í gegn líka.
Blaðamaður leit við hjá Guðrúnu J.
Guðmundsdóttir í Efri-Hrepp og
ræddi við hana um laugina og fram-
kvæmdirnar.
Hreppslaug byggð í
sjálfboðavinnu
Árið 1928 samdi Ungmennafélagið
Íslendingur við landeigendur Efri-
Hrepps um að fá land og leyfi til
að nota heitt vatn úr uppsprettu á
landareigninni fyrir sundlaug. „Það
var gífurlegt afrek að byggja svona
laug á þessum árum en það þurfti
að flytja allt timbur og annað bygg-
ingarefni sjóleiðina frá Borgarnesi
að Skiplæk við Skeljabrekku. Þá var
mölin flutt langa leið á hestvögnum.
Öll þessi vinna var að mestu unnin
í sjálfboðavinnu og hefur mest allt
viðhald og vinna við laugina síðan
þá einnig verið unnin í sjálfboða-
vinnu af félögum Umf. Íslendings,
en félagsmenn eru rétt um 200 tals-
ins í dag,“ segir Guðrún.
Samkomustaður
sveitunga
„Frá upphafi hefur Hreppslaug
gegnt mikilvægu hlutverki í sveit-
inni, oft sem samkomustaður sveit-
unga. Hér hefur alltaf verið kvöld-
opnun og í gegnum tíðina hef-
ur verið vinsælt í sveitinni að hitt-
ast í pottunum á fallegum sumar-
kvöldum,“ segir Guðrún. „Í laug-
ina rennur heitt vatn úr uppsprett-
um rétt ofan við laugina svo það er
í raun aldrei hægt að vita hversu
heit laugin er þegar maður kemur
í hana. Stundum er laugin sjálf jafn
heit og þægilegur heitapottur en
svo getur hún líka orðið ansi köld.
Þá höfum við möguleika á að bæta
við heitu vatni frá Orkuveitunni,“
bætir hún við.
Opna á
þjóðhátíðardaginn
„Það var fyrir löngu orðið tímabært
að gera upp laugina og með styrkn-
um frá Minjastofnun var ákveðið að
ráðast í þær framkvæmdir núna í vor.
Einnig var ákveðið að lagfæra í leið-
inni aðstöðu umhverfis laugina og
í búningsklefunum. Félagsmenn í
Umf. Íslendingi hafa sem oftar lagt
á sig mikla sjálfboðavinnu við þessar
framkvæmdir. Búið er að helluleggja,
múra og mála laugina þannig að um-
hverfi og aðstæður við hana verði upp
á sitt besta í sumar. Þessi vinna varð
örlítið umfangsmeiri en gert var ráð
fyrir og setti rigning strik í reikning-
inn. Opnun laugarinnar seinkaði því
aðeins en nú er allt að verða klárt og
stefnt á opnun á þjóðhátíðardaginn,
17. júní,“ segir Guðrún.
Hreppslaug verður opin frá klukk-
an 18 til 22 þriðjudaga til föstudaga
og frá kl. 13 til 22 laugardaga og
sunnudaga, en lokað verður á mánu-
dögum. arg/Ljósm.
Guðrún J. Guðmundsdóttir.
Hreppslaug opnuð eftir endurbætur
Sjálfboðaliðar að vinnu við lagfæringar á Hreppslaug. Allt annað er að sjá Hreppslaug eftir lagfæringarnar.