Skessuhorn - 24.08.2016, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 34. tbl. 19. árg. 24. ágúst 2016 - kr. 750 í lausasölu
Við viljum hafa
pláss fyrir allt
Þegar þörf er á brúar Arion bílafjármögnun
bilið í bílakaupunum.
Kynntu þér kjörin og ólíkar leiðir á arionbanki.is
Fæst án lyfseðils
LYFIS
VANTAR
Í SÖLU
Fasteignir af
öllum stærðum
og gerðum
Fagleg og
traust ráðgjöf
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Það er ýmislegt sem menn finna sér til afþreyingar yfir sumarmánuðina. Þegar veður er með besta móti, eins og að undanförnu, er hvers konar útivist heillandi. Þessir
þrír piltar sem urðu á vegi fréttaritara Skessuhorns í Grundarfirði á laugardaginn voru einmitt að kæla sig niður í góðviðrinu. Það er um að gera að nýta þessa síðustu
sumardaga til hins ýtrasta því að væntanlega verður sjóhopp ekki eins freistandi eftir nokkrar vikur þegar haustið færist yfir. Þeir Kristján Freyr, Gabríel Ómar og Arnar
Breki voru ekkert að tvínóna við hlutina þegar þeir létu sig vaða í kalda Grundarfjarðarhöfn. Ljósm. tfk.
Guðbrandur Björgvinsson frá Stykk-
ishólmi hefur róið á báti sínum Arnari
II SH á strandveiðum í sumar og gert
út frá Ólafsvík. Hann segir í sam-
tali við Skessuhorn að þetta hafi ver-
ið skemmtilegur veiðiskapur. „Ég vil
byrja á því að þakka sjávarútvegsrá-
herra fyrir þá aukningu sem hann
setti inn í kerfið í ár. Ég er sáttur við
kerfið að öðru leyti en því að það þarf
að breyta þessari svæðaskiptingu sem
nú er við líði og hafa landið bara eitt
svæði í staðinn fyrir fjögur. Veiðarnar
ættu að byrja eftir hrygningarstoppið
sem lýkur 21. apríl og standa til 10.
september. Að öðru leyti er þetta gott
kerfi,“ segir Guðbrandur. Hann bæt-
ir því við að strandveiðar með þessu
fyrirkomulagi standi ekki undir mik-
illi fjárfestingu. „Ég var að taka sam-
an útkomuna hjá mér í sumar og eftir
standa þetta 500-600 þúsund krónur
þegar laun og annar kostnaður hef-
ur verið greiddur. „Þetta er ágæt-
is sumarvinna fyrir þá sem eiga báta
sína skuldlausa,“ segir Guðbrandur
að lokum.
af
Segir að gera þurfi landið
að einu strandveiðisvæði
Á fundi Heil-
brigðisnefnd-
ar Vesturlands
8. ágúst síð-
astliðinn var
meðal annars
lagt fram lög-
fræðilegt álit
vegna svar-
bréfa þeirra
sem gerðu at-
h u g a s e m d -
ir við tímabundið starfsleyfi fisk-
þurrkunar HB Granda á Akranesi,
sem auglýst var í mars síðastliðn-
um. Fimm formlegar athugasemdir
bárust nefndinni vegna auglýsing-
ar starfsleyfisins og framkvæmda-
stjóra falið að svara athugasemdum
í samræmi við tillögur lögmanns.
Nefndin samþykki á fundinum að
gefa út tímabundið starfsleyfi fyr-
ir fiskþurrkun HB Granda sem
starfrækt er á Breiðinni á Akranesi.
Gildir leyfið til 1. maí 2017.
Að sögn Ingibjargar Valdimars-
dóttur, formanns heilbrigðisnefnd-
ar Vesturlands, er starfsleyfið tíma-
bundið vegna
þess að HB
Grandi hefur
sótt um deili-
s k i p u l a g s -
breytingu til
Akraneskaup-
staðar til að
sameina for-
og eftirþurrk-
un undir eitt
þak. „Þetta
er óbreytt starfsleyfi til að stunda
fiskþurrkun í núverandi húsnæði
en tímabundið vegna aðstæðna,
þar sem til stendur að bæta hús-
næðið,“ segir Ingibjörg, en HB
Grandi hefur meðal annars fengið
athugasemdir vegna eftirþurrkun-
arhúss fiskþurrkunarinnar. „Þetta
gefur fyrirtækinu leyfi til að starfa
áfram til 1. maí í núverandi hús-
næði. Þegar nýtt húsnæði hefur
verið byggt verður fyrirtækið síð-
an að sækja um nýtt starfsleyfi til
að stunda fiskþurrkun þar,“ segir
Ingibjörg.
kgk
Tímabundið starfsleyfi
til fiskþurrkunar