Skessuhorn


Skessuhorn - 24.08.2016, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 24.08.2016, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 201630 Íslandsmeistarinn Lenka Ptáční- ková og stórmeistarinn Jón L. Árna- son sigruðu á Minningarmóti Birnu Norðdahl í skák sem haldið var á Reykhólum laugardaginn 20. ágúst. Keppendur komu hvaðanæva af land- inu og var mikil stemning í íþrótta- húsinu þar sem mótið fór fram við frábærar aðstæður. Mótið var hald- ið til að minnast Birnu E. Norðdahl (1919-2004) sem var brautryðjandi í kvennaskák á Íslandi. Birna var bóndi og listakona og fyrsta konan sem sög- ur fara af að hafi teflt á skákmóti hér- lendis, árið 1940. Hún átti frum- kvæði og allan heiður af því að ís- lensk kvennasveit fór í fyrsta skipti á Ólympíuskákmót, í Argentínu 1978. Íslenskar landsliðskonur í skák voru heiðursgestir á mótinu á Reykhól- um, og í þeim hópi voru skákkonur sem tefldu með Birnu á Ólympíum- ótum 1978 og 1980. Þetta var hluti af upphitun kvennalandsliðsins fyrir Ólympíumótið í Bakú sem hefst eftir hálfa aðra viku. Tefldar voru átta umferðir með tíu mínútna umhugsunartíma og voru keppendur 37, þar af fjórir stór- meistarar. Í kvennaflokki urðu Lenka Ptáčníková og Hallgerður Helga Þor- steinsdóttir jafnar og efstar, en Lenka var hærri á stigum. Guðlaug Þor- steinsdóttir, sem varð fyrst kvenna Íslandsmeistari árið 1975, hreppti bronsið, en jafnar í 4.-7. sæti urðu Hrund Hauksdóttir, Veronika Stein- unn Magnúsdóttir, Áslaug Kristins- dóttir og Sigurlaug R. Friðþjófsdótt- ir. Þær Áslaug, Guðlaug og Sigur- laug voru allar í landsliðinu samtíða Birnu, rétt eins og Svana Samúels- dóttir, sem tók núna þátt í skákmóti eftir langt hlé. Í karlaflokki urðu Jón L. og Jóhann Hjartarson efstir og jafnir, en Jón var hærri á stigum. Í þriðja sæti varð Hannes Hlífar Stefánsson, sem mun leiða sveit Íslands á Ólympíumótinu í Bakú sem hefst núna í byrjun sept- ember. Hrund og Veronika fengu verðlaun fyrir bestan árangur 20 ára og yngri, og heimamaðurinn Guðjón D. Gunnarsson (betur þekktur sem Dalli) varð efstur skákmanna með 2000 skákstig eða minna. Vegleg peningaverðlaun voru veitt á mótinu. Verðlaun í kvennaflokki voru ívið hærri en hjá körlunum, og er það algjör nýbreytni á skákmótum. Það var að frumkvæði Finns Árnason- ar forstjóra Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum, sem styrkti mótið með verulegu fjárframlagi. Auk þess tefldi Finnur á mótinu, þó að árangur hans þar hafi kannski ekki verið alveg í takti við peningaframlagið! Fjölmenni var við setningu mótsins á Reykhólum í dag og ríkti afar góður andi á mótinu. Samhliða fór fram sýning á munum sem tengjast Birnu, bæði listaverk eftir hana og verðlaunagripir henn- ar af skákmótum, sem og myndir sem tengjast sögu íslenskra skákkvenna. Við setningu mótsins flutti Hlyn- ur Þór Magnússon sagnfræðingur á Reykhólum ávarp, en hann var frum- kvöðull að mótinu og skipuleggjandi ásamt Skákfélaginu Hróknum. Setn- ingarávarpið flutti Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitastjóri Reykhóla- hrepps, og svo lék Birna E. Norð- dahl, barnabarn skákdrottningarinn- ar, fyrsta leikinn fyrir Hrund Hauks- dóttur gegn Hannesi Hlífari. Mótið var afar skemmtilegt og spennandi frá upphafi og leikgleðin í fyrirrúmi. Heimamenn á Reykhólum og fjölskylda Birnu tóku virkan þátt í hátíðinni og voru tvær dætur Birnu meðal keppenda, þær Indiana Svala Ólafsdóttir og Anna María Ólafsdótt- ir. Í mótslok þakkaði Hrafn Jökulsson forseti Hróksins fjölskyldu Birnu, fólkinu á Reykhólum og í Reykhóla- hreppi, keppendum og bakhjörlum, en þó sérstaklega Hlyni Þór Magn- ússyni, fyrir frumkvæðið og frábært samstarf við skipulagningu hátíðar- innar. Skólanum færð góð gjöf Í tilefni af hátíðinni færðu Hrókurinn og Þörungaverksmiðjan grunnskól- anum á Reykhólum tíu taflsett að gjöf og munu Hróksmenn efna til skák- daga í skólanum í haust. Mikill skák- áhugi er meðal barna og ungmenna á Reykhólum og tóku þau virkan þátt í hátíðinni. mm/hj Glæsilegt minningarmót í skák var haldið á Reykhólum Brynjar Pálmi Björnsson og Hrafn Jökulsson. Brynjar fékk sérstök verðlaun fyrir aðstoð við framkvæmd skákhátíðarinnar. Að sögn Hróksmanna eru góðar aðstæður til skákmótahalds á Reykhólum. Svana Samúelsdóttir og Sigurlaug Friðþjófsdóttir voru samferðamenn Birnu Nordahl í skákinn á fyrstu árum kvennaskákar hér á landi. Krakkarnir á Reykhólum tóku virkan þátt í mótinu. Hlynur Þór Magnússon átti frumkvæði að mótið var haldið. Dalli náði bestum árangri keppenda með undir 2000 skák- stig. Hér bítur hann í eðalmálminn. Stórmeistarar í efstu sætum ásamt Birnu Norðdahl yngri. Birna Norðdahl yngri lék fyrsta leikinn fyrir þau Hrund Hauksdóttur og Hannes Hlífar Stefánsson. Lenka Ptáčníková og Jón L. Árnason sigruðu á mótinu.Veronika Steinunn Magnúsdóttir og Finnur Árnason voru valin best klæddu keppendurnir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.